Morgunblaðið - 06.01.2007, Side 39

Morgunblaðið - 06.01.2007, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007 39 hugann að því hvernig Ísland verður þegar hans kynslóð er fallinn frá. Vinnusemi, nægjusemi, hjálpsemi. Hvað verður um þessa eiginleika? Hvernig verður að vinna á heimilum fyrir aldraða í framtíðinni? Við verð- um ekki öll eins jákvæð og nægjusöm og Auðunn var. Eins hef ég leitt hug- ann að því hversu gott er að hverfa frá þessu lífi vitandi það að allir eiga góðar minningar um mann. Þær eig- um við nægar um hann Auðun Gests- son. Það er gott að eiga góðs að minn- ast. Harpa Rós. Þú ert hagur það ég veit þitt er fag að smíða alla daga út í sveit ert’u að laga og prýða. (S.H.) Í dag kveðjum við hinstu kveðju föðurbróður okkar, Auðunn Gests- son á Kálfhóli, og langar okkur til að minnast hans með nokkrum fátæk- legum orðum. Auðunn var borinn og barnfæddur á Kálfhóli, tók við búi af föður sínum og bjó þar lengst af. Þó að hann væri fyrst og fremst bóndi þá var hann einnig liðtækur smiður og starfaði við það víða um sveitir, er stund gafst frá bústörfum. Eftir að hann hætti búskap og flutti á Selfoss vann hann við smíðar fram í háa elli. Auðunn var hjálpsamur, glaðvær og gamansamur maður og gott var að alast upp í sambýli við hann. Þar sem tvíbýli var á Kálfhóli bjuggum við svo til á sama hlaði og var samgangur mikill á milli bæjanna, nánast eins og eitt samfélag. Stór barnahópur á báðum bæjum sem voru saman í leik og starfi sem systkini, svo oft hefur verið fjör í kotinu og ekki alltaf heigl- um hent að hafa hemil á svo stórum hópi. Auðunn lét það ekki raska ró sinni. Þó var einn staður sem var honum helgur en það var smíðaher- bergið og verkfærin hans og virtum við það að mestu. En tól og tæki freistuðu barnanna og einu sinni var lagt af stað í smíðaherbergið með soninn Ólaf í broddi fylkingar. Nú skyldu tækin könnuð. Er leikar stóðu sem hæst heyrðum við að einhver var að koma. Fór nú að fara um hópinn, Ólafur stökk upp á borð og króaðist af úti í horni, inn kom Auðunn frekar þungur á brún, verkfærin út um allt. Þá stundi Ólafur upp með angistar- svip: „Nú er ég hræddur.“ Þar með var það búið. Gamansemi Auðuns varð þó öllu öðru yfirsterkari og gat hann ekki annað en hlegið að öllu saman. Oft var setið löngum stundum við eldhúsborðið í vesturbænum og spjallað við Auðun því hann hafði það sem er ekki öllum er gefið – að geta talað við börnin sem jafningja: „Hvað segir þú heillin,“ var oft viðkvæðið, „eigum við að spila?“ en hann hafði mjög gaman af spilamennsku og var óþreytandi að spila við okkur og þá oftar en ekki Marías. Auðunn lætur eftir sig fjölmargar ljúfar minningar sem við munum varðveita. Öðlingur er fallinn frá og þökkum við honum kærlega fyrir samfylgdina. Að lokum viljum við senda að- standendum hans innilegustu sam- úðarkveðjur okkar. Minningin um góðan mann mun lifa og ylja ykkur um ókomna tíð. Systkinin úr austurbænum. Auðunn tók við búi á Kálfhóli 1946 ásamt Þórði bróður sínum. Þá varð ég þar vikapiltur, kom þar einu miss- eri á eftir Kristínu sem varð strax kona Auðuns. Raunar losnaði ég aldrei síðan þaðan meðan þau bjuggu. Þá skipti handaflið máli, að kunna að sveifla orfi, hrífu og skóflu og ráða við hestana, að láta ekki kýrnar sparka um mjólkurfötunni. Þá þoldu störf enn samræður, eyrna- skjól voru óþekkt enda var hlustað af ákefð á sögur af skrýtnum körlum þar á Skeiðum. Hvort sem þær voru sagðar undir þaki í hlöðunni, oná ný- björguðu heyinu og regnið skellur á þakinu að utan, eða við eldhúsborðið að dagsverki loknu, þá var hlegið. Ekki dró það úr hlátrinum að þar var húsfreyja við verkstjórn. Reyndar kom fólk víða að til að hlæja við það borð. Auðunn var sveitarsmiður, sjaldan voru byggingaframkvæmdir nær- sveitis að hann væri ekki kallaður til. Hönnun og smíði voru þá eitt og lítið þurfti að borga í vinnulaun. Um þau laun gilti sama og þegar hann var að gera við amboð nágranna: það var ekki ástæða til þess að borga mikið, maðurinn var svo flinkur hvort eð var og hafði ekkert fyrir þessu. En laun skiptu Auðun litlu í fé talið, greið- vikni hans var eðlislæg, hann naut smíðanna. Í lok búskapartíðar sinnar smíðaði hann innvols í slaghörpu og þótti ekki tiltökumál. Þetta var að fyrirsögn vikapilts sem nú er orðinn tónskáld og organisti. Það var ekki bara í viðhorfum sem Auðunn hafði reisn til að bera. Hann bar sig vel, teinréttur fram á síðustu daga og hnitmiðaður í hreyfingum. Ég hygg hann hafi tileinkað sér þetta í Héraðsskólanum á Laugarvatni, Bjarni heitinn hvatti nemendur sína til að rétta úr sér og ganga beinir. Ekki þótti öllum það vera skynsam- leg holning á þeim tíma. Sömuleiðis lærði hann margt um líkamsbeitingu á tveggja vikna lögreglunámskeiði sem haldið var að Brautarholti á Skeiðum sumarið 1937. Þá var verið að efna til hinnar svokölluðu sveita- lögreglu sem um nokkurra áratuga skeið stuðlaði mjög að friðsamlegu samkomuhaldi í héruðum. Það voru bændur og þeirra synir sem brugðu sér í lögreglubúning þegar samkom- ur voru haldnar. Afar sjaldan bar við að slegist væri þar sem Auðunn var á vakt, væri Stokkseyringur ódæll fékk Auðunn hann með sér út fyrir og ræddi aflabrögð, yrði Hreppa- maður hugumstór, var rætt við hann um fjárleitir. Fengu þá mennirnir að njóta sín í frásögnum og gleymdu slagsmálum. Nú er reynt að kenna líkamsbeitingu í sérstökum áföngum í framhaldsskólum og þykir erfitt. Allt var það gott sem Auðunn smíðaði og hannaði, afkomendur hans eru bestu vitnin um það. Við syrgjum hann auðvitað, en fyrst og fremst er gleði í hug þegar Auðuns er minnst, það er sú tilfinning sem hann miðlaði helst. Við munum hann glað- an og reifan. Hann var orðinn þreytt- ur í lokin og skyldi engan undra, en það lýsir verkhyggni hans að hann deyr á helgum jóladegi, þegar allt hans fólk gat verið hjá honum, hann er jarðsunginn um leið og jólin eru sungin út. Aldrei sló sá maður feilp- úst í hönnun sinni og skipulagningu. Blessuð sé minning hans og þeirra hjóna. Þór Vigfússon. Ég kveð vin minn, Auðun, með nokkrum línum. Við urðum kunnugir eftir að hann brá búi og fluttist til Selfoss. Auðunn var þá og til æviloka ern og hress, öt- ull í starfi. Áhugi og vílleysi ein- kenndu hann alla tíð. Það er mikil breyting á lífshlaupi bónda að flytjast úr sveit í kaupstað, enda munur á malbiki og móum eða túni. Honum farnaðist vel við þessi um- skipti, enda átti hann ættingjum og vinum að mæta á Selfossi. Ingileif dóttir hans var honum sem vernd- arengill. Það var að tilstuðlan hennar sem ég kynntist Auðuni. Hún vann með mér á sjúkrahúsinu og leitaði til mín vegna föður síns. Við læknuðum blóðleysi sem hrjáði hann fyrir meira en áratug. Hún sprautaði svo föður sinn reglulega eftir það. Auðunn var mér þakklátur eftir þessa litlu hjálp. Eftir þetta hittumst við oft. Auðunn var hvorki íhaldssamur né róttækur í skoðunum, mildur í dóm- um og illt umtal heyrði ég ekki af hans vörum. Hann var orðvar um annað fólk. En það leyndi sér ekki að vænt þótti honum um æskuslóðirnar. Endilega vildi hann sýna mér, Hún- vetningnum, sveitina sína, Skeið og Gnúpverjahrepp. Og það varð úr. Á fögrum sumardegi fékk hann sér bíl og bílstjóra og sagði mér frá bæj- um og landslagi, sögur af sér og bernskuslóðunum, af mikilli alúð og ást. Augu mín lukust upp fyrir dá- semdum þessarar sveitar. Þetta var dagur Auðuns og mér ógleymanleg- ur. Við fráfall Auðuns er mitt að þakka kynnin og láta það í ljós. Ég sendi kveðju mína til ættingja hans og vina með þessum ljóðlínum: Árnesþing, veröld vona, var sem bros í hjarta þér Unnir moldu, mildi jarðar. Muna skal sá eftir fer. Brynleifur H. Steingrímsson. Auðunn á Kálfhóli er dáinn og hluti af æskuminningum mínum vill koma fram, minningar um sumardaga í sveitinni, góða granna sem alltaf höfðu nægan tíma hver fyrir annan. Pabbi minn og Gústi í Skálmholti riðu einhvern tímann um Skálm- holtshraunið að líta eftir nautgripum og áður en þeir vissu voru þeir komn- ir í námunda við Kálfhól og upplagt að líta við. Auðunn bóndi stóð þá spariklæddur á hlaðinu og heilsaði þeim með þessum orðum: „Setjist þið bara inn, strákar mínir, ég þarf rétt að skreppa í eina fermingarveislu niðrá Selfoss, ég kem strax aftur!“ Þetta tilsvar lýsir honum vel og varð orðatiltæki heima hjá mér. Ég man eftir sumarhelgum og sveitaböllum. Mamma skutlar okkur systrum á Kálfhól, sem var fé- lagsmiðstöðin okkar, nema hvað þar voru ekki bara okkar jafnaldrar held- ur allar kynslóðir samankomnar á bæjunum tveimur. Krakkarnir þeirra Stínu og Auðuns voru enn með annan fótinn heima og eins var með hópinn á hinum bænum, þar á ofan kom slatti af sumarkrökkum og um helgar bættust við kaupafólk frá fyrri árum og vinir þeirra. Eldhúsið hjá Stínu fullt af fólki og hlátrasköll- um og við borðsendann sat Auðunn bóndi og ruggaði sér á stólnum. Æv- inlega á ullarsokkum þótt um hásum- ar væri. Heilsaði með virktum og spurði frétta. Stína stóð við vaskinn og mátti aldrei vera að því að setjast niður, reykti camel þar til ekkert var eftir af sígarettunni nema glóðin. Skaut inn stríðnislegum athuga- semdum, sagði sögur og hló með okk- ur. Við göntuðumst með það að hjóna- band þeirra væri svona gott af því þau hittust ekki svo mikið. Stína gat vakað með okkur eins lengi fram eft- ir og við vildum og það var viðbúið að ef við komum undir morgun heim af balli væri Auðunn vaknaður. Í þessu eldhúsi æfðum við okkur í að segja frá þannig að hlustað væri, að ræða um allt milli himins og jarðar – út- varpsdagskrána, skáldskap, pólitík- ina, daglegt líf og skondnar uppá- komur á þessum bæ sem og öðrum, góð tilsvör, undarlegar uppátektir og allar hliðar mannlífsins sem talist gátu skondnar og skemmtilegar. Hellt á kaffi í gríð og erg. Og mætti maður ekki vera að því að drekka það var eins gott að afþakka almennilega. Mjólkurbílstjórinn álpaðist til að segja að hann ætlaði að eiga það inni og Stína stakk kaffibollanum hans í ísskápinn og geymdi þar til næst! Ég man aldrei eftir að hafa séð Stínu smakka vín og Auðunn sagði að það þýddi ekki að gefa sér áfengi því það virkaði ekki fyrr en daginn eftir og til hvers væri það? Það var þeirra að- ferð við að sýna okkur gott fordæmi. Þannig lærðum við í rólegheitum (eða ekki svo miklum rólegheitum) hvað væri við hæfi og hvað ekki. Og aðallega lærðum við að hver maður er með sínu sniði og allt er það gott í bland. Sumir vilja meina að táningar vilji helst vera út af fyrir sig, en við sóttum í eldhúsin þar sem allar kyn- slóðir sátu og ævinlega var pláss fyr- ir einn í viðbót. Hvort heldur það var á Kálfhóli, Egilsstaðakoti, Heiðarbæ eða Skálmholti var ævinlega tekið á móti skaranum með bros á vör, nú eða reynt að sofa ófriðinn af sér þeg- ar við mættum í eldhús eftir ball og vorum ekki tilbúin til að hætta og þurftum að syngja eitt lag enn eða spila eitt spil áður en við þyrftum að þykjast vera mjög fast sofandi til að þurfa ekki að fara í fjósið. Góðir tímar! Löngu síðar fluttu Auðunn og Stína á Selfoss og ég heimsótti þau þar og ég kom til Auðuns á heimili hans á Grænumörk líka og ekki breyttist andrúmsloftið. Það sem er kallað „virk hlustun“ á fínu máli og er kennt á námskeiðum í dag kunnu þau frá upphafi. Þótt mörg ár liðu milli þess sem við hittumst á seinni árum, Auðunn og ég, þá mundi hann alltaf hvað ég hafði verið að gera síðast og hvaða fréttir hann hafði haft af mér. Og alveg síðan ég var táningur hefur mér þótt upphefð að þessum áhuga, þessum einföldu táknum um vænt- umþykju, það sem skiptir máli. En nú er komið að ferðalokum, Auðunn og Stína komin í nýtt eldhús, og um leið og ég sendi þeim báðum hjartans þakkir fyrir svo ótalmargar skemmtilegar minningar mínar og annarra ungmenna sem áttu leið um þeirra hús, þá veit ég að einhvern tímann hittumst við öll aftur við eld- húsborðið þeirra. Heiðrún Dóra Eyvindardóttir. Á tíræðisaldri smíðaði afi minn, Auðunn Gestsson, síðustu gjöfina. Öll eigum við ættingjarnir eitthvað sem afi smíðaði í höndunum, með hvert og eitt okkar í huga. Hann smíðaði skálar, vasa, hirslur, nátt- borðin eru ófá vítt og breitt um ætt- ina, dúkkurúm svo falleg og fullkom- in og svo margt annað frá litlum hlutum eins og smjörhnífum í stór símaborð með áföstum bekk, svo ekki sé minnst á allt annað sem hann hefur tekið sér fyrir hendur ýmist heima í sveitinni, í vinnu hjá Samtaki eða í vinnuskúrnum sínum. Þessir hlutir verða á heimilum okkar um aldur og ævi. Sem betur fer eigum við flest sög- ur og minningar frá afa. Fyrir um fimm árum fórum við afi ásamt mömmu og pabba upp að Húsatóft- um í sunnudagskaffi. Á leiðinni taldi afi upp fyrir mig hvern bóndabæ, hvern hól, hverja þúfu og hvert fjall sem bar nafn. Eftir kaffið var leiðinni haldið heim og þá byrjaði afi strax að spyrja mig hvað hver þúfa, fjall, hóll eða bóndabær héti og að sjálfsögðu gat ég nær engu svarað, afa til mik- illar furðu. Hvernig stóð á því að stelpan vissi ekki neitt? Hann var nýbúinn að þylja þetta allt upp fyrir henni. Helst hefði hann viljað keyra um Skeiðahreppinn þangað til ég næði þessu öllu en sem betur fer slapp ég við það. En viðbrögð afa voru kostuleg. Kímnigáfa er eitthvað sem afa skorti aldrei og var hann ætíð fljótur til svars, sem oftar en ekki fékk fólkið í kring til að skríkja úr hlátri. Eftir- minnilegar vísur komu þegar við síst áttum von á, heilræði, hlátur, og góð- mennskuna og hlýjuna vantaði aldr- ei. Það er ekki öllum sem farnast veg- ferðin jafnvel og þeim hjónum Stínu og Auðuni frá Kálfhóli en þau tókust með ótrúlegum hætti á við það sem lífið hafði upp á að bjóða, bæði góðar og slæmar stundir. Með opnum örm- um, gestrisni, ást og umburðarlyndi tóku þau á móti hverjum sem gekk að Kálfhóli og veittu húsaskjól. Ég er stolt af því að hafa kynnst þeim, að fá tækifæri til að líta yfir farinn veg og sjá hvernig afi og amma spiluðu út sínum spilum. Vinnusemin, hlýjan og dugnaður- inn hafa skilað sér til afkomenda. Þeir sem fylgst hafa með afa vita hvernig á að haga sér, vita hversu mikilvægt það er að skila góðri vinnu, að gera ávallt sitt besta og hugsa vel um sig og sína. Nú er það okkar hinna sem eftir lifum að halda áfram, halda í minn- ingarnar um ömmu og afa sem mest við getum, reyna að lifa eftir þeim fordæmum sem þau hafa sýnt okkur og ef við erum heppin þá skilar það okkur ögn af þeirri gleði og virðingu sem amma og afi gáfu okkur og þau skilja eftir sig. Blessuð sé minning þeirra. Fanný Guðbjörg Jónsdóttir. ✝ Eiginmaður minn og faðir okkar, SIGURÐUR Á. BENEDIKTSSON, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð föstudaginn 15. desember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Kristín Eva Árnadóttir, Magnús Hallur Norðdahl Sigurðsson, Hallgrímur Norðdahl Sigurðsson, Berglind Norðdahl Sigurðardóttir, Ragna Margrét Norðdahl Sigurðardóttir, tengdabörn og barnabörn. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SÆUNN ÞURÍÐUR GÍSLADÓTTIR, til heimilis á Hrafnistu í Reykjavík, lést föstudaginn 5. janúar. Fyrir hönd aðstandenda, Margrét Kjartansdóttir, Sólberg Vigfússon, Gísli Kjartansson, Júlíana Aradóttir, Svava Kjartansdóttir, Ingibjörg Kjartansdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, dóttir, sambýliskona og amma, ÓSK DAGBJÖRT GUÐMUNDSDÓTTIR, Sóleyjarima 3, Reykjavík, lést á heimili sínu þriðjudaginn 2. janúar. Útför hennar fer fram frá Grafarvogskirkju miðviku- daginn 10. janúar kl. 13.00. Þökkum hlýhug og vinsemd. Guðný Ólöf Reimarsdóttir, Guðjón Jónsson, Inga Lára Reimarsdóttir, Hilmar Þór Elefsen, Magnea Vala Reimarsdóttir, Anna Dagbjört Þorleifsdóttir, Óskar Jónsson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.