Morgunblaðið - 06.01.2007, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 06.01.2007, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007 41 peyi. Sá draumur rættist það árið og var betri en ég átti von á. Sem lítill peyi ofan af landi þótti mér fátt skemmtilegra en að heimsækja Magga frænda á sumrin. Þú oftar en ekki úti á sjó en fjörið hófst þegar þú komst í land. Vá, hvað sjómennskan heillaði mig þá! Allar þjóðhátíðirnar sem við áttum saman og þolinmæðin þín í garð okkar Magga þegar við brölluðum ýmislegt í Eyjum. Ég þakka þér fyrir allar þær stundir sem við áttum saman bæði í fríum og um borði í Valdimar Sveinssyni. Elsku Bára, Magnús, Stefán Þór og fjölskyldur, ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Arnar Sigurbjörnsson. Elsku Steindór. Missirinn er mikill en nú ertu kom- inn á betri stað og laus við þennan hræðilega sjúkdóm. Það verður skrítið að koma til Eyja og þú ekki á bryggjunni með Báru að bíða eftir frænku-þríeykinu. Síðastliðin sumur hefur leið okkar legið til Eyja og þá til að fara á þjóðhátíð. Alltaf fengum við gistingu hjá ykkur hjónum og alltaf var hugsað jafn vel um okkur. Ef þú fréttir að einhver okkar hefði gert eitthvað af sér kom stríðnin upp í þér og þú naust þess að atast í þeirri sem í hlut átti. Síðasta skiptið sem við hittum þig var á spítalanum en þrátt fyrir mikil veikindi var stutt í húm- orinn og stríðnina. Já Steindór, þú varst sko stríðinn. Það er erfitt að sætta sig við að þú sért farinn og kveðjum við þig með miklum trega og söknuði. Við spyrjum margs en finnum fátt um fullnægjandi svör. Við treystum á hinn mikla mátt sem mildar allra kjör. Í skjóli hans þú athvarf átt er endar lífsins för. Þú skilur eftir auðlegð þá sem enginn tekið fær. Ást í hjarta, blik á brá, og brosin silfurtær. Mesta auðinn eignast sá er öllum reynist kær. Þín minning öllu skærar skín þó skilji leið um sinn. Þó okkur byrgi sorgin sýn mun sólin brjót- ast inn. Við biðjum Guð að gæta þín og greiða veg- inn þinn. (G.Ö.) Elsku Bára, Maggi, Bergey, Stef- án, Þórhildur og litlu afabörnin, Guð gefi ykkur styrk á þessum erfiðu tím- um. Hjördís, Guðbjörg og Hugrún. Mig langar að minnast Steindórs með nokkrum orðum, hvernig hann kom mér fyrir sjónir og hvaða mann hann hafði að geyma. Steindór var afar handlaginn mað- ur. Þegar þau, hann og Bára frænka mín, byggðu hús sitt á Höfðaveginum bað hann mig að segja sér til í múr- verki. Ég var honum innan handar við þann hluta byggingarinnar sem sneri að mínu fagi, en ekki var hann lengi að ná réttu handtökunum og gerði hlutina sem fagmaður til margra ára væri. Ekki minnkaði áhuginn og eljan þegar sumarbústað- urinn á Flúðum var reistur. Steindór fékk smáaðstoð við að reisa beina- grindina, enda bara með tvær hend- ur og 180 cm á hæð, en síðan var það hans að klára verkið. Og það reyndist ekki erfitt fyrir þennan vinnuþjark. Allt virtist leika í höndunum á honum og allur frágangur var til fyrirmynd- ar. Í bústaðnum leið allri fjölskyld- unni vel, ekki síst barnabörnunum sem elskuðu að eiga svona góðan afa sem einmitt hugsaði um að þau hefðu pláss hvort sem var innandyra eða úti við. Við Steindór þóttum líkir á yngri árum og olli það stöku sinnum rugl- ingi. Stuttu eftir að Steindór kom í ættina var hann spurður hverra manna hann væri og svaraði hann þá að hann væri tengdasonur Magga á Kirkjubæ. Sá sem spurði svaraði um hæl: „Hvers konar þvæla er þetta í þér? Þú getur ekki verið bæði sonur hennar Jónu á Kirkjubæ og tengda- sonur Magga!“ Steindór svaraði þá að hann mætti alveg hafa þetta eins og hann vildi, hann væri bara víst tengdasonur hans Magga á Kirkjubæ. Eftir þetta heilsuðumst við oftast með orðunum „sæll bróð- ir“. Elsku Bára, Maggi, Stefán og aðr- ir ástvinir. Með þessum kveðjuorðum langar mig að votta ykkur samúð mína. Eigið bjarta framtíð þótt einn hlekkur sé nú fallinn frá. Hvíldu í friði, bróðir. Gísli Sigurgeirsson. „Þið eruð nú meiru sleðarnir. Þyk- ist svo vera sjómenn en ætlið að slug- sast við að draga 10 trossur í allan dag. Ég held þið ættuð að finna ykk- ur aðra vinnu ef þið farið ekki að hreyfa á ykkur spaðana.“ Þetta voru mín fyrstu kynni af Steindóri þegar ég byrjaði á Valdimari Sveinssyni VE 22 í janúar 1985. Þessa fyrstu vertíð mína um borð stóð Steindór alltaf aftastur við netaborðið og þrus- aði yfir mannskapnum. Oft var ansi fjörugt þegar hann var búin að æsa okkur svo upp að það sauð á öllum. Þá flugu trossurnar inn og brosti hann þá og sagðist loksins vera búin að koma blóðinu í okkur á hreyfingu. Steindór hugsaði alltaf vel um út- gerðina, aldrei neitt til sparað í vinnuaðstöðu á dekki eða í fiskileitar- og siglingatækjum í brú. Skipinu var alltaf vel við haldið og þrifalegt enda var Valdimar eitt best búna vertíð- arskipið þegar hann var seldur árið 2000. Steindór var einn af þeim sem vildi gera hlutina sjálfur. Skipti þá engu máli hvort það þurfti að mála einn vegg eða byggja eitt stykki sumarbú- stað, það væri nú ekki mikið mál. Þegar ég heimsótti Steindór og Báru í bústaðinn í vor var hann mjög stolt- ur þegar hann sýndi mér bústaðinn og albúmið með byggingarsögunni. Einnig töluðum við um það að við þyrftum að hittast oftar en þær heimsóknir urðu aðeins þrjár og allar á Landspítalann þar sem hann háði þessa stuttu baráttu við þennan ill- víga sjúkdóm. Með þessum orðum vil ég kveðja kæran vin og góðan vinnu- veitanda til 15 ára og þakka það mikla traust sem mér var sýnt hjá út- gerðinni. Elsku Bára, Magnús, Stefán og fjölskyldur, guð styrki ykkur við þann mikla missi sem þið hafið orðið fyrir. Óskar Örn Ólafsson. Elsku vinur, nú er stríði þínu lokið, en aðeins tveir mánuðir eru síðan þú greindist með krabbamein. Þetta var ótrúlega stuttur tími, en samt í lokin svo langur, því varla er hægt að ímynda sér neitt erfiðara en að horfa upp á ástvin sinn svo veikan og geta svo lítið hjálpað, en Bára vék ekki frá þér og sama má segja um strákana þína og tengdadætur. Öll lögðu þau sitt af mörkum til þess að gera þenn- an tíma sem bærilegastan fyrir þig. Einnig varst þú mjög ánægður þegar barnabörnin þín komu í heimsókn, þau voru svo sannarlega augastein- arnir þínir, Steindór minn. Við viljum þakka þér öll árin sem vinskapur okkar hefur haldist. Marg- ar góðar stundir höfum við átt saman og var alltaf jafn gaman að „þrasa“ pínulítið við þig. Þú hafðir ákveðnar skoðanir á hlutunum, það vissu allir sem þig þekktu. Þú varst mikill Akoges-maður og varst alltaf boðinn og búinn til þess að gera það sem þurfti þar á bæ. Vegna mikils áhuga hjá þér ákvað ég að ganga til liðs við þennan góða fé- lagsskap og þar höfum við átt saman margar góðar stundir. Elsku Bára mín, Maggi, Bergey, Stefán og Þórhildur. Á stundu sem þessari er svo lítið hægt að segja.Ykkar missir er svo mikill og hugur okkar er hjá ykkur öllum. Minningarnar eigið þið um góðan eiginmann, föður, tengdaföður og afa. Litlu barnabörnin ykkar hafa misst afa sinn sem var þeim svo góð- ur, alltaf tilbúinn að gera eitthvað með þeim. Oft var farið í bústaðinn með ömmu og afa eða fengið að sofa. Kæru vinir, Guð styrki ykkur og leiði á þeim erfiðu tímum sem fram- undan eru. Systkinum Steindórs, tengdafor- eldrum og öðrum ástvinum sendum við innilegar samúðarkveðjur. Elsku Steindór, takk fyrir allt. Guð blessi minningu þína. Þórður og Guðmunda. Stuttri og snarpri baráttu Stein- dórs félaga míns við krabbamein er lokið fyrr en okkur óraði. Í septem- ber komum við útgerðarmenn í Vest- mannaeyjum og stjórn Landssam- bands íslenskra útvegsmanna saman til gleðskapar og lék þá Steindór á als oddi og naut lífsins. Leiðir okkar lágu saman fyrir um sex árum þegar við áttum viðskipti. Við þau kynni komu í ljós mannkostir og heiðarleiki Steindórs, myndaðist þar traust vinátta okkar á milli sem ekki bar skugga á. Steindór var hlut- hafi hjá mér í útgerð minni í skamm- an tíma og var gaman að spjalla um útvegsmál við hann. Steindór var mjög vinnusamur maður og naut sín best við að byggja upp sælureit fjölskyldunnar við Flúðir, þar átti fjölskyldan sínar bestu stundir við leik og störf. Eftir að Steindór hætti í útgerð keypti hann skóverslun Axel Ó sem fjöl- skyldan hefur rekið af mikilli sam- heldni og myndarskap hér í Eyjum og á Selfossi þar sem þau hafa haslað sér völl. Samheldni fjölskyldunnar kom vel í ljós í veikindum Steindórs og stóðu Bára og börnin saman eins og klettar við hlið hans þar til yfir lauk. Það var fjölskyldunni mjög dýrmætt að Steindór komst á sjúkrahúsið í Eyj- um fyrir jólin og áttu þau sín síðustu jól saman við sérstakar aðstæður, sem þau náðu samt að gera hátíðleg- ar og notalegar fyrir þau öll. Við biðjum góðan Guð að styðja Báru og fjölskylduna alla við þennan óvænta missi og hjálpa þeim að horfa fram á veginn með gott veganesti frá Steindóri sem vildi hag fjölskyldunn- ar sem mestan. Magnús og Lóa. Elsku Steindór, við þökkum þér fyrir öll árin sem við áttum með þér og kveðjum þig með söknuði. Hafðu þökk fyrir allt. Hvíl í friði. Við andlátsfregn þína allt stöðvast í tímans ranni. Og sorgin mig grípur, en segja ég vil með sanni, að ósk mín um bata þinn tjáð var í bæn- unum mínum, en guð vildi fá þig og hafa með englunum sínum. Við getum ei breytt því, sem frelsarinn hef- ur að segja, um hver fær að lifa, og hver á svo næstur að deyja. Þau örlög, sem við höfum hlotið, það verður að skilja. Svo auðmjúk og hljóð við lútum að frels- arans vilja. Þótt farin þú sért og horfin burt þessum heimi. Ég minningu þína þá ávallt í hjarta mér geymi. Ástvini þína ég bið síðan guð minn að styðja, og þerra burt tárin, ég ætíð skal fyrir þeim biðja. (Bryndís Jónsdóttir) Elsku Bára, Maggi, Bergey, Stef- án, Þórhildur, Guðrún Bára, Aron Smári, Karen Eir og Logi Snær, við biðjum algóðan Guð að styrkja ykkur á þessum erfiðu stundum. Finna og Pétur. Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, bróðir og mágur, UNNSTEINN PÁLSSON trésmiður, Sundlaugavegi 12, lést á krabbameinsdeild 11E, Landspítala, fimmtu- daginn 21. desember. Útförin fer fram frá Laugarneskirkju mánudaginn 8. janúar klukkan 13.00. Guðríður Haraldsdóttir, Elísabet Unnsteinsdóttir, Böðvar Páll Jónsson, Baldur Jón Böðvarsson, Þórunn Halla Unnsteinsdóttir, Runólfur Einarsson, Þórdís Pálsdóttir, Jón Bergsson. ✝ Bróðir minn, GUNNAR ÞORVARÐARSON frá Bakka, Kjalarnesi, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju mánu- daginn 8. janúar kl. 13.00. Fyrir hönd ættingja, Bjarni Þorvarðarson. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, VALGERÐUR ÓLAFSDÓTTIR, lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund laugar- daginn 30. desember. Niels Ómar Laursen, Óli Guðlaugur Laursen, Auður Ingibjörg Hafþórsdóttir og barnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, SÚSANNA REGÍNA GUNNARSDÓTTIR, Kleppsvegi 38, Reykjavík, sem lést á Fjórðungssjúkrahúsi Neskaupstaðar þriðjudaginn 2. janúar, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 10. janúar kl. 15.00. Þorgeir Kristján Eyberg, Þórdís María Blomsterberg, Einar Hafsteinn Árnason, Karen Hilmarsdóttir, Sigurlaug Ísabella Árnadóttir, Ragnar Valgeir Jónsson, Jónas Hannes Eyberg, Ester Guðjónsdóttir og barnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, afi og bróðir, STURLA ERLENDSSON, Hjarðarhaga 11, Reykjavík, lést á Landspítala Hringbraut föstudaginn 5. janúar. Jarðarförin auglýst síðar. Þóra Þórhildur Guðjónsdóttir, Sara Sturludóttir, Sölvi Sturluson, Björk Sturludóttir, barnabörn og systkini. ✝ Faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, MAGNÚS GUÐMUNDSSON skipasmíðameistari og skipaeftirlitsmaður, Heiðargerði 55, Reykjavík, andaðist á Sóltúni miðvikudaginn 3. janúar. Útförin verður gerð frá Grensáskirkju fimmtudaginn 11. janúar kl. 13.00. Guðmundur Magnússon, Sigþór Magnússon, Valdís Ósk Jónasdóttir, Kristbjörn Magnússon, Helga Gurli Magnússon, barnabörn og barnabarnabörn.  Fleiri minningargreinar um Steindór Árnason bíða birting- ar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höfundar eru: Aðalheiður
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.