Morgunblaðið - 06.01.2007, Síða 47

Morgunblaðið - 06.01.2007, Síða 47
verið yndislegt að sjá þau eins og er þau voru svo ung og dugleg. Vil ég þakka honum hve vel hann hefir hugsað um Unni mína. Við sendum ástvinum hans og fjöl- skyldu innilega samúð okkar allra héðan við óvænt fráfall hans nú þessi árslok. Jóhanna og Halldór. Okkar góði félagi Magnús E. Baldvinsson, úrsmíðameistari og fyrrverandi formaður Úrsmiða- félags Íslands, er látinn. Fljótlega eftir að ég hóf nám í úrsmíði kynntist ég Magnúsi sem þá rak vinsæla úra- og gjafavöruverslun við Laugaveg- inn. Ég var stundum sendur í fyr- irtæki Magnúsar að sækja varahluti, vörur eða fá letrað á skrautmuni en Magnús kom mér fyrir sjónir sem ákaflega hlý og lífsglöð persóna. Alltaf leysti hann ljúflega úr öllum bónum með sínu góða starfsfólki. Þegar ég hafði lokið námi og var farinn að reka mína eigin úra- og skartgripaverslun átti ég í talsverð- um viðskiptum við Magnús sem seldi okkur úrsmiðunum vörur tilheyr- andi rekstrinum. Óhætt var að treysta því að segði Magnús að eitt- hvað væri söluvara þá seldist það eins og heitar lummur. Hann hafði næmt auga fyrir nýjungum og tísku- straumum. Þessi farsælu viðskipti okkar stóðu yfir í um 20 ár eða allt þar til Magnús stofnaði úra- og skartgripaverslunina MEBA í Kringlunni ásamt tengdasyni sínum og félaga Birni Á. Ágústssyni úr- smið. Magnús var formaður Úrsmiða- félags Íslands í 16 ár og hélt þar uppi lifandi og faglegu félagstarfi og átti frumkvæðið að því að Úrsmiðafélag Íslands gekk í Norðurlandasamtök úrsmiða. Þar sat hann í stjórn í mörg ár. Fyrir störf sín í Norðurlandsam- tökunum var hann sæmdur heiður- speningi Arthurs Johnsons. Undir- ritaður varð formaður Úrsmiðafélags Íslands tólf árum eft- ir að Magnús hætti sem formaður og tók þar meðal annars þátt í sam- starfi norrænna úrsmiða. Oftar en ekki voru mér sagðar skemmtisögur af Magnúsi þar sem fram kom hvað hann var skemmtilegur félagi, uppá- tækjasamur og hvatvís en þegar sögustundinni var lokið var ég beð- inn fyrir kærar kveðjur heim til Ís- lands til Magnúsar og hans góðu konu, Unnar. Hann sýndi félagi okk- ar alla tíð mikinn áhuga og var virk- ur í félagsstarfinu og gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyrir félagið. Hann var sæmdur gullmerki félagsins og gerður að heiðursfélaga þess. Nú þegar síðasta sandkornið hef- ur fyllt stundaglas Magnúsar þakka ég samfylgdina og við félagar í Úr- smiðafélagi Íslands kveðjum mætan félaga. Fyrir hönd Úrsmiðafélags Ís- lands sendi ég Unni og fjölskyldu þeirra innilegustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning hans. Axel Eiríksson, formaður Úrsmiðafélags Íslands. Kveðja frá Lionsklúbbnum Nirði Kær Lionsfélagi er fallinn frá. Íþróttamaðurinn og lífskúnstnerinn, úrsmíðameistarinn og kaupmaður- inn, Magnús E. Baldvinsson, lést eft- ir skamma sjúkrahúsdvöl 83 ára að aldri. Magnús var virkur félagi í Lions- klúbbnum Nirði, Reykjavík frá því að hann gekk í klúbbinn árið 1962. Hann var þéttur á velli, fastur fyrir ef þurfti, ráðagóður ef til hans var leitað, en fyrst og fremst einkenndist lyndi Magnúsar af glaðværð og kát- ínu. Við Lionsfélagar minnumst sögumannsins snjalla, en Magnús var einkar orðheppinn og sagði frá með smitandi gleði. Magnús var gerður að Melvin Jones-félaga, sem er ein æðsta við- urkenning Lionshreyfingarinnar, 1993. Við félagar Magnúsar í Lions- klúbbnum Nirði þökkum Magnúsi samfylgdina og kveðjum hann með söknuði. Minningin um góðan félaga lifir. Við sendum Unni, dætrum og fjölskyldum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðjur. Jón Eyjólfur Jónsson. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007 47 ÞRÁTT fyrir ýmis skakkaföll á síðasta misseri trónir búlgarski stórmeistarinn Veselin Topalov í efsta sæti á janúarlista FIDE sem birtur var á dögunum. Hann hefur þó engu að síður tapað 30 stigum. Indverjinn Wisvanathan Anand, sem margir telja sterkasta skák- mann heims, er aðeins þremur stig- um á eftir og heimsmeistarinn Kramnik er kominn í 3. sæti. Tíu efstu menn eru: 1. Topalov (Búlgaríu) 2.783 2. Anand (Indlandi) 2.779 3. Kramnik (Rússlandi) 2.766 4. Mamedyarov 2.754 5. Ivanchuk (Úkraínu) 2.750 6. Leko (Ungverjalandi) 2.749 7. Aronian (Armeníu) 2.744 8. Morozevich (Rússlandi) 2.741 9. Adams (Englandi) 2.735 10. Gelfand (Ísrael) 2.733 Frægustu óvirku skákmenn heims eru vitaskuld Garrij Kasp- arov og Bobby Fischer, báðir með í kringum 2.800 Elo-stig þegar þeir hættu! Tíu efstu skákmenn Íslands eru: 1. Jóhann Hjartarson 2.594 2. Hannes Hlífar Stefánsson 2.576 3. Helgi Ólafsson 2.538 4. Jón L. Árnason 2.507 5. Henrik Danielssen 2.506 6. Stefán Kristjánsson 2.485 7. Héðinn Steingrímsson 2.482 8. Þröstur Þórhallsson 2.465 9. Helgi Áss Grétarsson 2.462 10. Arnar Gunnarsson 2.439 Friðrik Ólafsson, Guðmundur Sigurjónsson og Margeir Péturs- son: fræg nöfn sem eru komin á „óvirka“ listann. Sumir aðrir eins og málaðir til hálfs líkt og í mynd eftir Magnús Tómasson; tígrisdýr eða ljón á leið út úr málverkinu. Nashyrningur horfir á. Margir ungir skákmenn taka undir sig stökk. Vilhjálmur Pálma- son hækkar mest allra, um 153 stig. Dagur Arngrímsson hefur hins vegar teflt flestar skákir á tíma- bilinu. Meðal kvenna hefur Lenka Ptacnikova hækkað sig verulega eða um 46 stig en nýliði meðal kvenna á listanum er Tinna Kristín Finnbogadóttir sem kemur inn með 1.659 stig. Hjörleifur Halldórsson frá Dalvík er stigahæsti nýliðinn með 2.110 stig. Hækkanir eru yfirleitt mestar hjá hinum stigalægri enda er breytistuðullinn hærri. Guðmund- ur Kjartansson átti gott tímabil, hækkaði um 51 stig og er með 2.297 stig. Guðmundur sigraði með yfir- burðum á Haustmóti TR 2006, skákstíll hans er orðinn miklu til- þrifameiri en áður. Eftirfarandi skák sem tefld var á heimsmeist- aramóti unglinga 20 ára og yngri í Yerevan í Armeníu sl. haust er gott dæmi um skákhæfni hans. Heimsmeistaramót unglinga, 2006 Guðmundur Kjartansson – Daniel Brandenburg (Hollandi) Sikileyjarvörn Guðmundur lætur sig ekki muna um að hrista fram úr erminni nýjan leik, 14. Bxd6. Hugmyndin kemur fram með hinum magnaða riddara- leik 16. Rd5! Í stað 18. … Be6 lá beinast við að hirða hrókinn á h1 en þá kemur 19. Df6 t.d. 19. … Hf8 20. Bc4 með hótuninni 21. d6. í stað 20. Dd4 taldi Guðmundur enn sterkara að leika 20. Df5 sem er greinilega stílhreinna. Riddarinn á h1 er býsna skrefstuttur og vantar nauð- synlega fótfestu. Vandi Guðmundar felst í að innbyrða vinninginn skiptamun undir en þrír sterkir leikir, 29. g4, 30. Bf1 og 31. h4, treysta yfirburði hans. Hrókur, riddari og peð eru stórhættuleg þrenning eins og framhaldið leiðir í ljós. Þetta er að mínum dómi ein af best tefldu skákum ársins 2006 meðal íslenskra skákmanna. 1. e4 c5. 2. Rf3 d6. 3. d4 cxd4. 4. Rxd4 Rf6. 5. Rc3 Rc6. 6. Bg5 e6. 7. Dd2 a6. 8. 0-0-0 Bd7. 9. f4 h6. 10. Bh4 g5. 11. fxg5 Rg4. 12. Rf3 hxg5. 13. Bg3 Be7. 14. Bxd6 Bxd6. 15. Dxd6 Rf2. 16. Rd5 Sjá stöðumynd 1 16. … exd5. 17. exd5 Re7. 18. He1 Be6. 19. De5 Rg6. 20. Dd4 Rxh1. 21. Bd3 0-0. 22. dxe6 Dxd4. 23. exf7+ Kxf7. 24. Rxd4 Rf2. 25. Hf1 Kg7. 26. Rf5+ Kg8. 27. Hxf2 Rf4. 28. Bc4+ Kh8. 29. g4 Hac8 . 30. Bf1 Hcd8. 31. h4 Hfe8. 32. b3 He1+. 33. Kb2 Hdd1. 34. Bc4 b5. 35. hxg5 bxc4. 36. Hxf4 cxb3. 37. axb3 Kh7. 38. Hc4 Kg6. 39. Rh4+ Kf7. 40. Hc6 Hb1+. 41. Kc3 He3+. 42. Kd2 Hg3. 43. g6 Ke8. 44. Hc8+ Kd7. 45. g7 – svartur gafst upp. Jólaskákþrautirnar – „Lausn“ Friðriks Ólafssonar Greinarhöfundur fékk ágætis viðbrögð og ábendingar vegna jóla- skákþrautanna sem birtust á að- fangadag, t.d. frá Eyjólfi Ó. Eyj- ólfssyni, sem er greinilega mikill „connoisseur“ þegar kemur að skákdæmum. Ein athyglisverðustu viðbrögðin voru frá fyrsta stór- meistara Íslendinga og „skákmanni 20. aldar“, Friðriki Ólafssyni. Þau vörðuðu sjötta dæmið og það erf- iðasta að flestra mati. Þegar Frið- rik hafði setið yfir dæminu dágóða stund og fundið lausn tók hann eftir því að hann hafði stillt því vitlaust upp; hafði sett kónginn á b8 en í blaðinu var kóngurinn á a7. Friðrik leysti þá dæmið upp á nýtt en lausn- in var gefin í Morgunblaðinu hinn 28. desember sl. Eftir stendur þó að dæmið hefur öðlast nýtt líf ef við setjum kónginn á b8. Friðrik hefur því í reynd töfrað fram nýtt skák- dæmi sem lítur svona út: Hvítur leikur og mátar í 3. leik. Sjá stöðumynd 2 Skeljungsmótið 2007 – Skák- þing Reykjavíkur 2007 Skeljungsmótið 2007 – Skákþing Reykjavíkur hefst sunnudaginn 8. janúar nk. kl. 14. Tefldar verða níu umferðir eftir svissnesku kerfi og eru tímamörk að jafnaði 1½ klst. á alla skákina auk 30 sek. á leik (90 30) sem eru hin svonefndu FIDE- tímamörk. Umferðir verða á mið- vikudögum og föstudögum kl. 19.00 og á sunnudögum kl. 14.00. Þátt- tökugjöld verða kr. 3.500 fyrir 16 ára og eldri og kr. 2.000 fyrir 15 ára og yngri. Dagskrá mótsins: 1. umf. sunnud. 7. jan. kl. 14–18 2. umf. miðvikud. 10. jan. kl. 19– 23 3. umf. föstud. 12. jan. kl. 19–23 4. umf. sunnud. 14. jan. kl. 14–18 5. umf. miðvikud. 17. jan. kl. 19– 23 6. umf. föstud. 19. jan. kl. 19–23 7. umf. sunnud. 21. jan. kl. 14–18 8. umf. miðvikud. 24. jan. kl. 19– 23 9. umf. föstud. 26. jan. kl. 19–23 Skráning er á heimasíðu TR, www.skaknet.is, og þar verður að finna nánari upplýsingar og kepp- endalista. Einnig er hægt að skrá sig í síma 895-5860 (Ólafur) eða í netfangið rz@itn.is (Ríkharður). Hraðskákmót Reykjavíkur verður haldið sunnudaginn 28. janúar og hefst það kl. 14.00. Tefldar verða 2 x 7 umferðir eftir Monradkerfi. Topalov enn efstur á stigalista FIDE Skák Stöðumynd 1. Stöðumynd 2. helol@simnet.is ✝ Faðir okkar, HARALDUR AÐALSTEINSSON frá Svalbarði, Djúpavogi, síðast til heimilis í Norðurbrún 1, Reykjavík, sem andaðist föstudaginn 29. desember sl., verður jarðsunginn frá Djúpavogskirkju mánudaginn 8. janúar kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Sævar og Hörður. Það kom sorglega við mig fimmtudaginn 14. desember sl. að fá sms frá Íslandi út til Flórída kl. 8.30 að staðartíma, þá var klukkan hér heima 13.30. Skilaboð, sorgarfrétt. Ég vissi vel um veikindin en hélt í vonina um bata. Þjáningarfullu stríðstímabili við óvæginn sjúkdóm var lokið á miðri aðventunni. Vinur minn í hart- nær fjörutíu ár, Guðlaugur B. Arn- aldsson, fallinn fyrir sjúkdóms- brandi. Það segist hér eins og það var, Gulli var góð fyrirmynd. Gjörvuleiki, staðfesta, blítt viðmót og kímni. Oft hefur verið rifjað upp tímabil þessara ára fyrir 1970. Ungur raf- virki við iðn sína, tengingar, sem enduðu með því að hver ljósastaur- inn efir annan fékk að láta ljós sitt skína. Karlotta, Kalla, kom inn í líf hans á þessu tímabili. Það var spenn- andi. Við Kalla áttum heima sitt hvorum megin við götuna á Aðalgötu Guðlaugur B. Arnaldsson ✝ GuðlaugurBenedikt Arn- aldsson fæddist í Reykjavík 7. júní 1943. Hann lést á líknardeild Land- spítalans í Kópavogi fimmtudaginn 14. desember síðastlið- inn og var útför hans gerð frá Foss- vogskirkju 20. des- ember. 1 og 2 á Suðureyri þegar samband þeirra var að þróast til hjóna- bands. Mikil og góð samskipti höfðu alltaf verið milli heimila okkar Köllu og þegar Gulli kom til sögunnar, einstakt prúðmenni, hnýttust við hann vinabönd sem hafa haldið allar götur síð- an. Sandgerði varð heimili ungu hjónanna, hennar sem var svo rík af systkinum og hans sem var eina barn foreldra sinna. Þar komu saman máttur og megin því honum var afar vel tekið af stórfjöl- skyldunni. Ungu hjónin byggðu við húsið, líka stóran bílskúr, girtu lóð- ina og ræktuðu garðinn sinn. Í sum- arfegurð Suðureyrar blómstra nú í garðinum þeirra tré hærri húsinu og runnar. Þannig hefur Gulli einnig ræktað vini sína, með einlægni. Gulli hafði góða nærveru. Vinátta er dýr- mæt. Á Suðureyri, í Keflavík og Kópavogi var gaman að vera gestur í húsum þeirra. Mér hefur ekki nema einu sinni verið brugðið í matarboði. Það var hjá þeim í Keflavík er Gulli tjáði mér sérstaklega, þá konan hans bar steikina á borðið beint úr ofn- inum, að þetta væri spendýr í heilu lagi! Svei mér þá. Mér var nær öllum lokið. Hafði þá aldrei setið andspæn- is steiktri kanínu. Ekki meir um það. Við hittumst í gegnum tíðina, oftar fyrstu árin, en svo sjaldnar. Áttum alltaf góðar stundir, í heimboðum, útilegum og félagsmálum. Útilegur lögðust af. Í staðinn kom Sandgerði. Þar höfum við hjónin litið inn örfáum sinnum, svo og hann og Kalla til okk- ar í nágrenninu. Á vordögum hugð- um við gott til glóðarinnar. Í ágúst sl. var ákveðið að stansa nú lengur hvor hjá öðrum, í Sandgerði og á Laug- arvatni. Það gerðist ekki eins og hugur stóð til. Veikindi herjuðu á, Gulli varð mjög veikur. Veikindin urðu strax svo alvarleg að samskipti takmörkuðust. Við töluðumst einu sinni við í síma eftir það. Eigi má sköpum renna. Góði vinur minn, nú ertu farinn á Guðs vegum og ég þakka þér traust og góð kynni. Okkar liðnu samveru- stundir fara nú í minningasjóð með söknuði. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Elsku Kalla, börn og venslafólk. Við Bryndís vottum ykkur einlæga samúð og biðjum góðan Guð að styrkja ykkur í sorginni. Blessuð sé minning hans. Guðm. Óskar Hermannsson. Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegn- um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morg- unblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upp- lýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.