Morgunblaðið - 06.01.2007, Qupperneq 54
54 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
KAMMERSVEITIN Ísafold og Ís-
lenska óperan standa fyrir „Öðruvísi
Vínartónleikum“ í Duus-húsum í
Keflavík í dag og í Íslensku óperunni
á morgun. Einsöngvarar á tónleik-
unum eru Ágúst Ólafsson barítón og
Hulda Björk Garðarsdóttir sópran
en hljómsveitarstjóri er Daníel
Bjarnason. Hann segir ekki um
neina venjulega Vínartónleika að
ræða. „Venjulegir Vínartónleikar
myndu vera tónleikar þar sem leikn-
ir eru Vínarvalsar eftir valsakóng-
ana Johann Strauss og pabba hans,
og eitthvað í þeim dúr,“ segir hann.
„Það sem við erum að flytja er tónlist
sem er frá Vínarborg, en af svolítið
öðrum toga. Þetta eru verk eftir Ma-
hler, og þetta eru útsetningar sem
voru gerðar af hópi manna sem voru
undir forystu tónskáldsins Arnolds
Schönbergs í kringum 1920 í Vínar-
borg. Þetta var klúbbur sem útsetti
meðal annars verk ýmissa meistara
fyrir smærri hópa. Það er það sem er
kannski svolítið óvenjulegt við þetta
hjá okkur,“ segir Daníel, en um-
ræddur klúbbur kallaðist „Verein
für Musikalische Privatauffuhrun-
gen“ eða „félag um einkaflutning
tónverka“. Fæst þeirra verka sem
félagið útsetti og flutti hafa verið
flutt hér á landi, en þetta er annað
árið í röð sem kammersveitin Ísafold
flytur verk af þessu tagi undir yf-
irskriftinni Öðruvísi Vínartónleikar.
Á efnisskrá tónleikanna er sinfónía
nr. 4 og Kindertotenlieder (Barna-
dauðasöngvar) eftir Mahler.
Þótt um sé að ræða Vínartónleika
efast Daníel um að hægt verði að
dansa Vínarvalsa. „Nei, það yrði eitt-
hvað skrautlegt.“
Kammersveitin Ísafold var stofn-
uð veturinn 2003–2004 og sérhæfir
sig í flutningi tónlistar 20. og 21. ald-
ar. Sveitin er eingöngu skipuð ung-
um hljóðfæraleikurum.
Óvenjulegir Vínartónleikar
Óhefðbundið Á efnisskránni eru sinfónía nr. 4 og Kindertotenlieder (Barnadauðasöngvar) eftir Mahler.
Tónleikarnir í Duus-húsum í Kefla-
vík eru í dag klukkan 17 en tónleik-
arnir í Íslensku óperunni eru
klukkan 20 annað kvöld. Miðaverð
er 2.000 krónur en námsmenn fá
2 miða fyrir 1 gegn framvísun
skólaskírteinis.
Morgunblaðið/Ásdís
GESTIR þáttarins Orð skulu standa
í dag eru Atli Ingólfsson tónskáld og
Vésteinn Ólason, forstöðumaður
Stofnunar Árna Magnússonar. Þeir
ásamt liðsstjórunum Hlín Agnars-
dóttur og Davíð Þór Jónssyni fást
við þennan fyrripart, ortan um af-
töku Saddams Husseins:
Ræður í heimi ríkjum enn
réttarfar liðinna alda.
Í áramótaþætti var fyrriparturinn
þessi:
Með von um frelsi og friðarsól
við fögnum nýju ári.
Ásta Kr. Ragnarsdóttir botnaði í
þættinum:
Heitin strengjum heims um ból
höfnum stríði og fári.
Pétur Gunnarsson blaðamaður:
Það kom hér rigning og rok um jól
því ráða fékk hann Kári.
Davíð Þór Jónsson brá á leik:
Nú er Gunna á nýjum kjól –
nei, annars, þetta er Kári.
Meðal hlustenda botnaði Ey-
steinn Pétursson með skáldaleyfi:
Að vondir menn á valdastól
víki fyrir skári.
Sævar Sigbjarnarson m.a.:
Bjarta daga Bónus ól,
brosir Gunnar Smári.
Komdu hérna krakkafól
og kættu þig með tári.
Kvaddi einn og komst í stól
með „curly“ lokk í hári.
Sigurjón Guðmundsson:
Herra vor á himinstól
hlífi oss við fári.
Auðunn Bragi Sveinsson:
Hátíð mikla heims um ból
héldum við með „tári“.
Þórhallur Hróðmarsson:
Laus við helsi og haftaól
hellum í oss tári.
Í jólaþætti var fyrripartur svona:
Sendum bestu óskir um
ánægjulega daga.
Þórhallur Hróðmarsson:
Að komist heill frá kræsingum,
kunnirðu mál þíns maga.
Auðunn Bragi Sveinsson orti
m.a.:
Vondum gleymum vetrinum;
vart mun hann oss baga.
Eyrún Birgisdóttir kvartaði und-
an fyrripartinum:
Framsetning á fyrripörtum
finnst mér þurfi að laga.
Útvarp | Orð skulu standa
Réttarfar liðinna alda
Hlustendur geta sent sína botna í
netfangið ord@ruv.is eða bréfleið-
is til Orð skulu standa, Ríkisút-
varpinu,
Efstaleiti 1, 150 Reykjavík.
Útvarpsþáttur Orð skulu standa er á dagskrá Rásar 1 kl. 16.10 í dag. Um-
sjónarmaður þáttarins og spyrill er Karl Th. Birgisson en liðsstjórar eru
þau Davíð Þór Jónsson og Hlín Agnarsdóttir.
ÓFAGRA VERÖLD
Fös 12/1 kl. 20 3. sýning Rauð kort
Sun 21/1 kl. 20 4.sýning Græn kort
Fös 26/1 kl. 20 5.sýning Blá kort
Sun 28/1 kl. 20
Lau 13/1 kl. 20
Fös 19/1 kl. 20
Fim 25/1 kl. 20
Fös 2/2 kl. 20
SAN FRANCISCO BALLETTINN
Samstarfsverkefni Listahátíðar í
Reykjavík og Borgarleikhússins.
Mið 16/5 kl. 20 UPPS. Fim 17/5 kl. 20
Fös 18/5 kl. 20 Lau 19/5 kl. 14
Lau 19/5 kl. 20 Sun 20/5 kl. 14
Sun 20/5 kl. 20
Miðaverð 4.800
Sun 7/1 kl. 20 AUKAS.
Sun 14/1 kl.20 AUKAS.
Lau 20/1 kl. 20 AUKAS.
Lau 27/1 kl. 20 AUKAS.
Síðustu sýningar
DAGUR VONAR
Mið 10/1 kl. 20 Forsýning UPPS.
Fim 11/1 Afmælissýning UPPS.
Fös 12/1 kl. 20
Fim 18/1 kl. 20
Sun 21/1 kl. 20
Fös 26/1 kl. 20
Ekki er hleypt inn í salinn eftir að
sýning er hafin.
Sun 7/1 kl. 20
Sun 14/1 kl. 20
Lau 20/1 kl. 20
Síðustu sýningar
Í kvöld kl. 20
Fim 11/1 kl. 20
Fim 18/1 kl. 20
Lau 27/1 kl. 20
Síðustu sýningar
RONJA RÆNINGJADÓTTIR
Sun 7/1 kl. 14
Sun 14/1 kl. 14
Sun 21/1 kl. 14
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Í kvöld kl.20
Lau 13/1 kl. 20
Fös 19/1 kl. 20
Síðustu sýningar
Afgreiðsla er opin kl. 12:30 – 18:00 mán. – þri. Aðra daga kl. 12:30 – 20:00.
SKOPPA OG SKRÍTLA eftir Hrefnu Hallgrímsdóttur
Í dag lau. 6/1 kl. 11:00 uppselt, kl. 12:15 örfá sæti laus og kl. 14:00 uppselt, sun. 7/1 kl.
11:00 örfá sæti laus, kl. 12:15 nokkur sæti laus og kl. 14:00, lau. 13/1 kl. 11:00 örfá sæti
laus, kl. 12:15 og kl. 14:00 uppselt, sun. 14/1 kl. 11:00 örfá sæti laus, kl. 12:15 og
kl. 14:00 uppselt.
Kúlan
Smíðaverkstæðið kl. 20:00
PATREKUR 1,5 eftir Michael Druker.
Í kvöld lau. 6/1 örfá sæti laus, fös. 12/1 kl. 16:30 nokkur sæti laus, lau. 13/1 örfá sæti
laus, þri. 16/1 kl. 20:00 uppselt, mið. 17/1 kl. 14:30 uppselt, lau. 20/1, mið. 24/1 kl. 14:30
uppselt.
Ath! Miðaverð aðeins 1.500 kr. fyrir nema gegn framvísun skólaskírteinis.
Miðasala í síma 551 1200 og á netinu www.leikhusid.is.
STÓRFENGLEG! eftir Peter Quilter
Í kvöld lau. 6/1 nokkur sæti laus, lau. 13/1 nokkur sæti laus, lau. 20/1, lau. 27/1.
SITJI GUÐS ENGLAR eftir Guðrúnu Helgadóttur. Leikgerð Illugi Jökulsson.
Í dag lau. 6/1 kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 7/1 kl. 14:00 örfá sæti laus og kl. 20:00 örfá
sæti laus, lau. 13/1 kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 14/1 kl. 14:00 örfá sæti laus, lau. 20/1
kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 21/1 kl. 14:00 örfá sæti laus, lau. 27/1 kl. 14:00 nokkur sæti
laus, sun. 28/1 kl. 14:00.
BAKKYNJUR eftir Evrípídes
6. sýn. fim. 11/1 örfá sæti laus, 7. sýn. fös. 12/1 nokkur sæti laus, 8. sýn. fim. 18/1.
Stóra sviðið kl. 20:00
Patrekur 1,5
Svartur köttur – forsala hafin!
Lau 20. jan kl. 20 Frumsýn UPPSELT
Sun 21. jan kl. 20 2. kortasýn örfá sæti laus
Fim 25.jan kl. 20 3. kortasýn UPPSELT
Fös 26.jan kl. 20 4. kortasýn örfá sæti laus
Lau 27.jan kl. 20 5. kortasýn örfá sæti laus
Sun 28.jan kl. 20 Aukasýn UPPSELT
Næstu sýn: 2., 3., 4., 9., 10., 16., 17. febrúar.
Skoppa og Skrítla – forsala hafin!
Lau 10. feb kl. 11 og 12.15 Sala hafin!
Sun 11. feb kl. 11 Sala hafin!
www.leikfelag.is
4 600 200
! "
!
"
!
# $ %
&'# ( )
!
###
$
"!( *++ $,--
.#
# +/#-- ! )00" 1 ' ! !
/#
# ,-#-- !
& # ,#--- 1 2
( , +
3 4
# 5# # # ,- 1
6 % & %
37889: 398&"2 1 ;'9<=
#"
12
4
>>>#
' ( & % ) & % 389 "?2:289
;9@A0 BC9&:A8 ";98D E 1 ,*
*-F ! *+
+
&
,-. / 0 1
2
LeikkonanLindsay
Lohan var flutt
með hraði á
sjúkrahús í fyrra-
dag með botn-
langabólgu og
var botnlangi
hennar fjar-
lægður.
Leikkonan tilkynnti sig veika á
miðvikudag en hún er að leika í kvik-
mynd sem nefnist „I Know Who Kil-
led Me“ en hún hélt að hún væri með
flensu.
Þegar hún fór til læknis kom í ljós
að um botnlangabólgu var að ræða.
FyrirsætanDita Von
Teese hefur sótt
um skilnað við
rokkarann Mari-
lyn Manson.
Teese og Marilyn
Manson, sem
heitir réttu nafni
Brian Warner,
hafa verið saman
í sjö ár en þau
gengu í hjóna-
band fyrir ári síð-
an.
Samkvæmt
heimildarmanni
bandaríska dag-
blaðsins New
York Post segir
að Teese hafi
fengið nóg af
sambandinu þrátt
fyrir að elska
rokkarann heitt.
Miklir samskiptaörðugleikar hafa
einkennt sambandið og þegar hún
reyndi að segja honum að hún vildi
skilnað þá hlustaði hann ekki á hana.
Hún flutti út af heimilinu fyrir jól en
Manson hefur ekki enn gert sér
grein fyrir því.
Forstjóri snyrtivörufyrirtækisins
Estée Lauder, John Demsey, segir
að samstarfsfólk Teese sé mjög leitt
yfir endalokum sambandsins en
Teese er andlit fyrirtækisins fyrir
MAC snyrtivörur.
Fólk folk@mbl.is