Morgunblaðið - 06.01.2007, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007 55
menning
Í ANDDYRI Háskólabíós á fimmtu-
dagskvöldið mátti sjá nokkur
kringlótt borð sem voru hulin svört-
um dúkum. Á hverju borði brann
svart kerti. Óneitanlega minnti
þetta á sviðsmyndina í einhverri
ónefndri hryllingsmynd. Var svört
messa í aðsigi? Nei, aðeins Vín-
artónleikar Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands. Svörtu kertin voru ekki
brennd til að hylla Myrkradróttin,
heldur konung Vínarvalsanna, Jo-
hann Strauss yngri, sem samdi
Dónárvalsinn ódauðlega. Og sá vals
var einmitt leikinn á tónleikunum.
Ásamt annarri áþekkri tónlist.
Á undan dagskránni léku fjórir
hljóðfæraleikarar Vínartónlist í
kammerútgáfu í anddyri Há-
skólabíós. Nú man ég hreinlega ekki
hvort þetta hefur verið gert á Vín-
artónleikum áður, en það var einkar
viðeigandi. Þarna var hægt að fá
forsmekk að stemningunni á sjálf-
um tónleikunum, auk þess sem mað-
ur var minntur á að Vínartónlist var
– og er – partítónlist. Að vísu var
leikur fjórmenninganna ekki alltaf
nægilega nákvæmur, en sjálfsagt er
ekki þægilegt að spila á meðan mas-
andi tónleikagestir eru í metra-
fjarlægð. Auk þess voru gæði tón-
listarflutningsins ekki aðalatriðið
hér, heldur stemningin sem hann
skapaði. Allar misfellur fyrirgáfust
því auðveldlega.
Tæknilegar hliðar hljóðfæraleiks-
ins voru mikilvægari á sjálfum tón-
leikunum. Og segjast verður eins og
er að Sinfónían lék prýðilega undir
stjórn Christophers Warrens
Greens. Hápunktarnir í hverju
verki voru glæsilega útfærðir og
hljóðfæraleikurinn almennt skýr og
öruggur. Kynningar Greens á hin-
um ýmsu tónleikaatriðum voru líka
þægilega afslappaðar (og fyndnar)
og þegar hann kynnti einsöngvara
kvöldsins, Þóru Einarsdóttur sópr-
an, sem Eifsdóttur eða Eipsdóttur,
var það bara sjarmerandi. Eips-
dóttir kom fram nokkrum sinnum á
tónleikunum, og hljómsveitarstjór-
anum tókst á endanum að bera
nafnið hennar rétt fram: E-I-N-A-
R-S-DÓTTIR! Þegar það gerðist
brutust út gífurleg fagnaðarlæti í
salnum.
Þóra söng ákaflega fallega. Nú er
hugsanlegt að söngurinn hafi verið
örlítið magnaður með raftækni; í
öllu falli barst rödd hennar vel
þangað sem ég sat, en það var á
tólfta bekk. Söngurinn var líka un-
aðslega skær og hljómmikill, auk
þess sem leikræn tilþrif voru svo
kómísk að maður sprakk úr hlátri
hvað eftir annað. Óhætt er að full-
yrða að frammistaða söngkonunnar
hafi verið frábær á tónleikunum.
Margt annað var einnig kostu-
legt, sérstaklega atriðið með Frank
Aarnink slagverksleikara, en hann
spilaði á afar sérstætt hljóðfæri sem
ekki verður lýst frekar hér, enda á
það að koma á óvart. Og einleiks-
strófur ýmissa hljóðfæraleikara á
borð við Sigurgeir Agnarsson selló-
leikara og Áshildi Haraldsdóttur
flautuleikara, auk fiðluleikaranna
Sigrúnar Eðvaldsdóttur og Sifjar
Tulinius, voru markvissar og flottar.
Ef ég má leyfa mér að vera per-
sónulegur, þá verð ég að viðurkenna
að mér finnst Vínartónlist ekki
skemmtileg. En þegar hún er svona
vel flutt og ríkulega krydduð með
húmor, þá er ekki annað hægt en að
hafa gaman af. Varla hefur Valsa-
dróttinn snúið sér við í gröfinni
þetta kvöldið; ég mæli hiklaust með
þessum tónleikum.
Valsadróttinn ákaft hylltur
Morgunblaðið/ÞÖK
Frábær Óhætt er að segja að gagnrýnanda hafi líkað frammistaða Þóru á Vínartónleikum Sinfóníunnar.
TÓNLIST
Háskólabíó
Vinartónleikar Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands undir stjórn Christophers Warrens
Greens. Einsöngvari: Þóra Einarsdóttir.
Einnig kom Frank Aarnink slagverksleik-
ari fram. Flutt var tónlist eftir Strauss
yngri og eldri, Heuberger og Millöcker.
Fimmtudagur 4. janúar.
Sinfóníutónleikar
Jónas Sen
Í SAL félagsins Íslensk grafík
verður í dag opnuð sýning Önnu
Maríu Lindar Geirsdóttur „Hver
eru mörkin II“. Sýningin sam-
anstendur af ljósmyndum af gjörn-
ingnum „Spunnið á fjöllum“ sem
hefur staðið yfir með hléum frá
1993. Hann felst í því að Anna
heldur á fjöll með rokk og spinnur
á tindum þeirra. Textílverkin sem
eru á sýningunni eru náskyld
spunagjörningnum að sögn lista-
mannsins.
Bæjarlistamaður Akureyrar,
Joris Rademaker, opnar í dag kl.
16 sýningu í galleríinu Jónas Viðar
en þar gefur að líta afraksturinn
af vinnu hans sl. hálft ár en hann
hefur notið listamannalauna þann
tíma.
Spuni Anna María Lind spinnur verk sín bókstaflega á fjöllum.
Sýningar í Reykjavík og á Akureyri
Spunnið á fjöllum
Afrakstur Horft yfir sýningu Jorisar Redemakers á Akureyri.
Skráning stendur yfir
á jákvætt námskeið um
hjónaband og sambúð
Upplýsingar og skráning á
thorhallur.heimisson@kirkjan.is
• Samskipti hjóna.
• Aðferðir til að styrkja hjónabandið.
• Orsakir sambúðarerfiðleika.
• Leiðir út úr vítahring deilna og átaka.
• Ástina, kynlífið, hamingjuna og börnin.
Á námskeiðunum er m.a. fjallað um:
7.500 þátttakendur frá upphafi
Leiðbeinandi á
námskeiðinu er
sr. Þórhallur Heimisson.
fl group er aðalstyrktaraðili
sinfóníuhljómsveitar íslands SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS
Hljómsveitarstjóri ::: Christopher Warren-Green
Einsöngvari ::: Þóra Einarsdóttir
Vínartónlist eftir Strauss-feðga o.fl.
tónleikar í háskólabíói
Í DAG, LAUGARDAG KL.17.00 ÖRFÁ SÆTI LAUS
Vínartónleikar
Vínartónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar eru í
huga margra jafn ómissandi hluti af því að fagna
nýju ári og flugeldar og brennur. Líklega verður
uppselt á Vínartónleika og því er ráðlegt að tryggja
sér miða í tíma á www.sinfonia.is
JÓGA – DANS – PILATES
www.man.is
MANNRÆKT Í MOSÓ
Síðumúla 34 - sími 568 6076
Ýmislegt áhugavert
fyrir safnara
Ýmislegt áhugavert fyrir safnara
Borðstofuhús ögn
Stakir skápar
Fréttir
í tölvupósti