Morgunblaðið - 06.01.2007, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007 57
dægradvöl
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4. cxd5
Rxd5 5. Bd2 Rb6 6. Rf3 Bg7 7. Hc1 0–0
8. Bg5 h6 9. Bh4 g5 10. Bg3 c5 11. d5 e6
12. d6 Rd5 13. h4 g4 14. Re5 Dxd6 15.
e4 f5 16. exf5 Bxe5 17. Rb5 Dc6 18.
Bxe5 exf5 19. Rd6 Rb6 20. f3 Be6 21.
Bb5 Dd5 22. De2 R8d7 23. Bf4 gxf3 24.
gxf3 Kh7 25. Hd1 Dxa2 26. Kf2 Hf6 27.
Hhg1 Haf8 28. Be5 Rxe5 29. Dxe5 Rd7
30. Bxd7 Bxd7
Staðan kom upp á alþjóðlegu móti
sem lauk fyrir skömmu í Pamplona á
Spáni. Rússneski ofurstórmeistarinn
Alexander Morozevich (2.747) hafði
hvítt gegn kollega sínum Alexei Shirov
(2.720). 31. Re4! fxe4 32. Hxd7+ Kh8
33. Hg6 og svartur gafst upp enda fátt
til varnar.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.
Þú átt út.
Norður
♠Á1097
♥Á1086
♦G93
♣108
Vestur Austur
♠D86 ♠G42
♥D ♥975
♦1087654 ♦--
♣G32 ♣ÁKD9754
Suður
♠K53
♥KG432
♦ÁKD2
♣6
Suður spilar 5♥.
Austur sýndi hugprýði í sögnum og
tókst að ýta NS upp á hið óvinsæla
fimmta þrep. Suður vakti á hjarta,
norður stökk í fjögur hjörtu og austur
læddi sér inn á fimm laufum. Suður
hefði kannski átt að dobla (og trompa
út), en hann valdi að reyna frekar fimm
hjörtu. Í ævintýrunum myndi austur
dobla fimm hjörtu og vestur spila út
smæsta tígli. Austur myndi trompa,
spila laufi undan blokkinni og fá aðra
stungu! Í reynd er erfitt fyrir austur að
dobla, hvað þá að spila undan háspil-
unum í laufi. Hitt er kannski ekki eins
fráleitt að vestur leggi af stað með lauf-
gosann, frekar en lítið lauf. Þá fengi
austur tækifæri til að panta tígul með
smæsta laufi. Þessi hugmynd er sett
fram í nýrri bók eftir Kanadamanninn
Jim Priebe, Matchpoint Defense (Tví-
menningsvörn).
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
Krossgáta
Lárétt | 1 kinnhestur, 8
styggjum, 9 járnkróks,
10 stúlka, 11 drekka, 13
ákveð, 15 svínakjöt, 18
dreng, 21 stefna, 22 af-
komandi, 23 hefur tíma
til, 24 þrotlaus.
Lóðrétt | 2 ósínk, 3 beiskt
bragð, 4 blökkumann, 5
ótti, 6 eldstæðis, 7 óvana,
12 blóm, 14 lengdarein-
ing, 15 flagg, 16 sjúk-
dómur, 17 skáld, 18 staut,
19 hlupu, 20 groms.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 björt, 4 bógur, 7 ódæði, 8 ávali, 9 náð, 11 alin,
13 miði, 14 ólæti, 15 lest, 17 skot, 20 gil, 22 sigla, 23 jag-
ar, 24 afræð, 25 teiti.
Lóðrétt: 1 blóta, 2 ölæði, 3 táin, 4 bráð, 5 grafi, 6 reiði, 10
ásæki, 12 nót, 13 mis, 15 lesta, 16 sigur, 18 kaggi, 19
Torfi, 20 garð, 21 ljót.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
1 Þrír nýliðar voru fluttir í heið-ursflokk listamannalauna í fyrra-
dag. Hverjir eru listamennirnir?
2 Framkvæmdastjóraskipti hafaorðið hjá Sjálfstæðisflokknum í
Valhöll og Kjartan Gunnarsson hverf-
ur á braut eftir áratugastarf. Hver
tekur við?
3 Nokkur umræða hefur orðið umný afsláttarkort Tryggingastofn-
unar ríkisins. Hver er forstjóri Trygg-
ingastofnunar?
4 Ungur barítónsöngvari hefur ver-ið fastráðinn hjá Íslensku óp-
erunni. Hver er hann?
Svör við spurningum gærdagsins:
1. Íslenskt stórfyrirtæki hefur sagt hval-
veiðar Íslendinga vera farnar að skaða ís-
lensk fyrirtæki. Hvaða fyrirtæki er þetta?
Svar: Baugur. 2. Sómamaðurinn Guðbjörn
Jónsson klæðskerameistari er látinn á ní-
ræðisaldri. Fyrir hvað er hann þó þekkt-
astur? Svar. Sem KR-ingur. 3. Ný glæpa-
þáttaröð, Pressan, fer senn í framleiðslu
fyrir Stöð 2. Hverjir eru framleiðendur þátt-
anna? Svar: Óskar Jónasson og Sigurjón
Kjartansson. 4. Íslenskur handknattleiks-
maður samdi við franska liðið Nimes til
þriggja ára. Hver er hann? Svar: Ragnar
Óskarsson.
Spurt er …
ritstjorn@mbl.is
ÞAÐ verður ekki þverfótað fyrir
þrettándaveislum í kvöld þegar
jólahátíðin verður kvödd með virkt-
um um allt land. Ein þeirra hljóm-
sveita sem boðar til fagnaðar er
hljómsveitin Dikta sem treður upp á
Grand Rokki ásamt reykvísku sveit-
inni Our Lives.
Fernir tónleikar á Englandi
Rúmt ár er síðan sveitin sendi frá
sér plötuna Hunting for Happiness
en hún rauk úr hillum plötuverslana
á árinu sem leið og svo fór að fyrir jól
varð að panta nýtt upplag af henni.
Um leið og Dikta og Our Lives
kveðja jólin með þrumandi bassagný
og gítarsargi verða þetta síðustu
tónleikar fyrrnefndu sveitarinnar
áður en hún heldur í víking til Eng-
lands í næstu viku. Framundan hjá
drengjunum eru þrennir tónlekar í
London og einir á hinni goðsagna-
kenndu eyju Isle of Wight, eða sem
hér segir:
11. janúar: Hope & Anchor, Lond-
on.
16. janúar: Windmill, London.
17. janúar: Industry, Hoxton.
London.
19. janúar: Platform One, Isle of
Wight.Ferðin er farin til að kynna
sveitina því í lok janúar verður lagið
„Breaking the Waves“ gefið út á
vegum Smekkleysu í Englandi og í
kjölfarið kemur Hunting for Happ-
iness út þann 5. febrúar.
Hvað síðarnefndu hljómsveitina
varðar spilar hún loksins á Íslandi
eftir að hafa spilað á yfir 40 tónleik-
um í Bretlandi á síðasta ári. Sveitin
hefur nýlega skrifað undir hjá einni
stærstu umboðsskrifstofu í Evrópu
og leggur því í enn frekara tónleika-
hald um Bretland og Bandaríkin í
mars á þessu ári. Tónleikarnir með
Diktu og Our Lives hefjast stundvís-
lega á miðnætti á Grand Rokki og
aðgangseyrir er litlar 500 krónur.
Þrettánda-
fagnaður og
kveðjutónleikar
Tónlist | Dikta og Our Lives
Víkingar Félagarnir í Diktu stefna á útgáfu smáskífu og breiðskífu í Englandi á næstunni.
www.myspace.com/ourlives
www.myspace.com/dikta
Morgunblaðið/Árni Torfason