Morgunblaðið - 06.01.2007, Page 58
58 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
staðurstund
Fulltrúar foreldra frá grunn-skólunum í Vesturbæ,
Grandaskóla, Landakotsskóla,
Melaskóla og Vesturbæjarskóla,
og Þjónustumiðstöðin Vest-
urgarður efna til þrettándagleði
í Vesturbænum í dag, laugardag-
inn 6. janúar, frá kl. 16–18.
Markmið nefndarinnar er að há-
tíðin verði eftirminnileg og góð
samverustund fjölskyldna í Vest-
urbænum.
Hátíðin hefst við Melaskóla á
ávarpi formanns Hverfaráðs
Vesturbæjar. Skólarnir flytja
síðan skólasöngva sína og kór Neskirkju leiðir fjöldasöng. Heyrst hefur að
hin umdeildu hjón Grýla og Leppalúði muni heiðra samkomuna með nær-
veru sinni. Að því loknu verður gengið fylktu liði með trymbla og fánabera
fremsta í flokki niður að Ægisíðu þar sem þrettándabrennan verður. Það
er sérstaklega jákvætt að skólarnir í Vesturbænum sameini krafta sína í
þessari skipulagningu og stuðli þannig að því að tengja Vesturbæinga
sterkari böndum. Með þessu vilja foreldrafélög skólanna hafa áhrif á það
umhverfi sem börnin lifa og starfa í.
Uppákoma
Foreldrafélög skóla í Vesturbæn-
um efna til þrettándagleði
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða
Tónlist
DOMO Bar | Nettettinn spilar á Domo,
Þingholtsstræti 5, sunnudaginn 7. janúar
og hefjast tónleikarnir um kl. 22. Aðgangs-
eyrir er 500 kr. Funk, djass og fusion.
Grand Rokk | Hljómsveitirnar Dikta og
Ourlives kveðja jólin með stórtónleikum á
Grand Rokki. Þetta eru síðustu tónleikar
Diktu áður en sveitin heldur í tónleikaferð
um Bretland. Aðgangseyrir 500 kr., tón-
leikarnir hefjast á miðnætti.
Myndlist
Art-Iceland.com, | Skólavörðustíg 1a, er
með smámyndasýningu til 14. janúar. Lista-
mennirnir 20 og galleríið gefa 10% af söl-
unni til Barnaheilla. Verkin á sýningunni
eru mjög fjölbreytt og áhugaverð. Opið frá
kl. 12–18. Allir velkomnir.
Gerðuberg | Hugarheimar – Guðrún Bergs-
dóttir sýnir útsaum og tússteikningar. Ein
allsherjarsinfónía fjölskrúðugra lita og for-
ma; eins og íslensk brekka þakin berjum að
hausti eða brúðarklæði frá Austurlöndum.
Verk Guðrúnar vitna um hina óheftu tján-
ingu sem sprettur fram úr hugarheimi
hennar. Sýningin stendur til 21. janúar.
Sýning á myndskreytingum í íslenskum
barnabókum 2006. Sýningin stendur til 21.
janúar 2007. Tekið er á móti 8 ára skóla-
börnum í samstarfi við Borgarbókasafnið.
Gerðuberg á í safni sínu um 1000 listaverk
eftir börn sem unnin voru í listsmiðjunum
Gagn og Gaman sem starfræktar voru
sumrin 1988–2004. Fyrirtæki og stofnanir
geta fengið leigð verk úr safninu til lengri
eða skemmri tíma. Sýningin stendur til 21.
janúar. Sjá www.gerduberg.is.
Hrafnista Hafnarfirði | Ellen Bjarnadóttir
sýnir í Menningarsal til 8. janúar.
Kling og Bang gallerí | Sirra Sigrún Sig-
urðardóttir, Hekla Dögg Jónsdóttir, Ásdís
Sif Gunnarsdóttir og Daníel Björnsson
sýna í Kling & Bang galleríi, Laugavegi 23.
Sýningin heitir Ljósaskipti – jólasýning
Kling og Bang og stendur til 28. janúar.
Listasafn ASÍ | Jóhann Ludwig Torfason
sýnir „Ný leikföng“, tölvugerð málverk af
skálduðum leikföngum fyrir hina meðvit-
uðu yngstu kynslóð, og silkiþrykktar þraut-
ir. Hlynur Helgason sýnir verk sem hann
nefnir „63 dyr Landspítala við Hring-
braut“: kvikmynd, ljósmyndir og málverk.
Til 28. janúar. Aðgangur ókeypis.
Listasafn Íslands | Frelsun litarins/Regard
Fauve, sýning á frönskum expressjónisma í
upphafi 20. aldar. Sýningin kemur frá Mu-
sée des beaux-arts í Bordeaux í Frakklandi,
52 verk eftir 13 listamenn. Sýning á verk-
um Jóns Stefánssonar í sal 2. Opið kl. 11–17
alla daga, lokað mánudaga.
Leiðsögn Rakelar Pétursdóttur safnafræð-
ings á sunnudag kl. 14 um sýninguna Frels-
un litarins/Regard Fauve. Nánar um
fræðsludagskrá sýningarinnar á www.lista-
safn.is. Ókeypis aðgangur.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Lokað í
janúar.
Skaftfell | Framköllun, sýning Haraldar
Jónssonar, stendur til 20. janúar. Opið um
helgar eða eftir samkomulagi.
Zedrus | Litrík og skemmtileg akrýl-
listaverk frá Senegal. Sýning í versluninni
Zedrus, Hlíðasmára 11, Kópavogi, frá kl. 11–
18 virka daga og laugardaga kl. 11–15. Til 14.
jan.
Þjóðminjasafn Íslands | Á Veggnum í Þjóð-
minjasafninu stendur yfir jólasýning með
myndum tvíburabræðranna Ingimundar og
Kristjáns Magnússona. Myndirnar fanga
anda jólanna á sjöunda áratugnum.
Í Myndasal Þjóðminjasafnsins eru til sýnis
þjóðlífsmyndir úr safni hins þjóðþekkta
Guðna Þórðarsonar í Sunnu, blaðamanns,
ljósmyndara og ferðamálafrömuðar. Mynd-
irnar tók hann við störf og ferðalög á tíma-
bilinu 1946–1960. Þær eru eins og tíma-
sneið af miklu umbrotaskeiði í sögu
þjóðarinnar.
Í Bogasal Þjóðminjasafnsins stendur yfir
sýning á útsaumuðum handverkum list-
fengra kvenna frá fyrri öldum. Sýningin
byggir á rannsóknum Elsu E. Guðjónsson
textíl- og búningafræðings.
Söfn
Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Nú stend-
ur yfir á Bókatorgi í Grófarhúsi, Tryggva-
götu 15, 1. hæð, sýningin „… hér er hlið him-
insins“ sem Borgarskjalasafn Reykjavíkur
vann í tilefni af 20 ára vígsluafmæli Hall-
grímskirkju.
Sýningin er opin virka daga kl. 11–19 og um
helgar kl. 13–17. Aðgangur ókeypis, allir vel-
komnir. Til 7. jan.
Gljúfrasteinn – hús skáldsins | Opið alla
daga nema mánudaga kl. 10–17. Hljóð-
leiðsögn á íslensku, ensku, þýsku og
sænsku. Margmiðlunarsýning og göngu-
leiðir í nágrenninu. www.gljufrasteinn.is.
Landnámssýningin Reykjavík 871±2 |
Landnámssýningin Reykjavík 871±2, Að-
alstræti 16, er lokuð í janúar og febrúar
vegna lokaáfanga forvörslu skálarúst-
arinnar. Opnað að nýju 3. mars.
Þjóðmenningarhúsið | Að vanda eru fjöl-
breyttar sýningar í sölum Þjóðmenning-
arhússins. Þær eru: Íslensk tískuhönnun,
með fatalínum frá níu merkjum eða hönn-
uðum í samhengi við íslenska náttúru;
Berlin Excursion, bókagerðarlist frá forlagi
rithöfunda og myndlistarmanna frá Berlín;
Fyrirheitna landið og Handritin að auki.
Þjóðminjasafn Íslands | Skoðunarferð um
grunnsýningu Þjóðminjasafnsins er æv-
intýralegt ferðalag gegnum 1200 ár sem
hefst í skipi landnámsmanna og lýkur í
flughöfn nútímans. Fjölbreyttar sýningar,
fræðsla og leikir fyrir alla fjölskylduna.
Skemmtileg safnbúð og notalegt kaffihúss.
Opið alla daga nema mánudaga kl. 11–17.
Dans
Dansskóli Jóns Péturs og Köru | Hjá
Dansskóla Jóns Péturs og Köru er 4 til 5
ára börnum er boðið upp á dans, söng og
leik. Hjá eldri börnum og unglingum er boð-
ið upp á námskeið í samkvæmisdönsum og
freestyle. Innritun daglega kl. 12–19 í síma
553 6645 eða á www.dansskoli.is.
Dansskóli Jóns Péturs og Köru býður upp á
námskeið í barnadönsum, freestyle, break,
samkvæmisdönsum, tjútti, mambó og
salsa.
Boðið verður upp á einstaklingsnámskeið
fyrir fullorðna í salsa. Innritun kl. 12–19 í
síma 553 6645 eða á www.dansskoli.is.
Kennsla hefst 11. jan.
SÁÁ félagsstarf | Þrettándagleði verður
haldin í Von, Efstaleiti 7, laugardaginn 6.
janúar og hefst kl. 22. Kiddi Bjarna leikur
fyrir dansi fram á nótt. Léttar veitingar um
miðnætti. Miðaverð kr. 1500. Miðasala við
innganginn.
Skemmtanir
Kringlukráin | Unglingahljómsveitin Pops
og Eiríkur Hauksson stíga á svið. Pops hef-
ur fengið aftur til liðs við sig alla leið frá
Noregi engan annan en stórsöngvarann Ei-
rík Hauksson sem sló eftirminnilega í gegn
með sveitinni á síðasta ári.
Vélsmiðjan, Akureyri | Hljómsveit Rúnars
Þórs í kvöld, frítt inn til miðmættis.
Fyrirlestrar og fundir
ITC-Fífa | Bókakynningarfundur Fífu,
Kópavogsdeildar ITC 1, á nýju ári er laug-
ardaginn 6. janúar kl. 12.00 á veit-
ingastaðnum Litlubrekku við Lækj-
arbrekku, Bankastræti 2, Reykjavík. Allir
áhugasamir velkomnir. Uppl. á www.sim-
net.is/itc, itcfifa@isl.is og hjá Guðrúnu í
síma 698 0144.
Fréttir og tilkynningar
GA- fundir (Gamblers Anonymous) | Er
spilafíkn að hrjá þig eða þína aðstand-
endur? Hringdu í síma 698 3888.
Happdrætti bókatíðinda | Númer í Happ-
drætti bókatíðinda 2006: 1. des. 90691; 2.
des. 88144; 3. des. 95685; 4. des. 106130;
5. des. 22269; 6. des. 11721; 7. des. 56451;
8. des. 47200; 9. des. 14990; 10. des.
27358; 11. des. 527; 12. des. 61088; 13. des.
66802; 14. des. 10799; 15. des. 25279; 16.
des. 68; 17. des. 72121; 18. des. 30281; 19.
des. 74492; 20. des. 794; 21. des. 1573;
22. des. 1925; 23. des. 109542; 24. des.
46978.
Frístundir og námskeið
Dansskóli Jóns Péturs og Köru | Dans-
skóli Jóns Péturs og Köru býður upp á
kennslu í break-dansi. Innritun fer fram
virka daga kl. 12–19 í síma 553 6645 eða á
heimasíðu dansskólans, www.dansskoli.is.
Gigtarfélag Íslands | Vetrarnámskeið hefj-
ast mánudaginn 8. janúar. Róleg leikfimi,
stott-pilates, jóga, karlahópur, þyngd-
arstjórnun. Fagfólk sér um alla þjálfun. Ró-
legt umhverfi. Upplýsingar á skrifstofu G.Í.,
Ármúla 5, sími 530 3600.
Lesblindusetrið | Hraðlestur fyrir börn (9–
13 ára). Sérsniðið hraðlestrarnámskeið fyr-
ir börn og unglinga. Kolbeinn Sigurjónsson,
Davis-ráðgjafi hjá Lesblindusetrinu. kol-
beinn@lesblindusetrid.is, sími 566 6664.
Málaskólinn LINGVA, | Faxafeni 10, býður
upp á örnámskeið í ítölsku, spænsku,
ensku, þýsku og frönsku á nýja árinu.
Skráning í síma 561 0315, eða á
www.lingva.is. Icelandic courses for for-
eigners at our school. Free of charge for
everybody! Book at www.lingva.is or phone
561 0315.
Börn
Þjóðminjasafn Íslands | Á Torginu í Þjóð-
minjasafninu stendur yfir sýningin Sér-
kenni sveinanna. Á sýningunni er lítið jóla-
hús og ýmislegt sem tengist
jólasveinunum, svo sem kjöt fyrir Ketkrók
og bjúgu fyrir Bjúgnakræki. Sýningin getur
hjálpað börnunum að skilja hin skrýtnu
nöfn jólasveinanna.
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
- Miðasala í Smárabíó og Regnbogann - Engar biðraðir
Köld slóð kl. 8 og 10 B.i. 12 ára
Tenacious D in the Pick of Destiny kl. 8 og 10 B.i. 12 ára
Artúr & Mínimóarnir kl. 4 (450 kr.) og 6
Eragon kl. 3 (450 kr.) B.i. 10 ára
Casino Royale kl. 5:15 B.i. 14 ára
Litle Miss Sunshine kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10 B.i. 7 ára
Köld slóð kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.15 B.i. 10 ára
Köld slóð LÚXUS kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.15
Artúr & Mínimóarnir kl. 1.30, 3.45 og 5.50
Eragon kl. 1, 3.20, 5.40 og 8 B.i. 10 ára
Casino Royale kl. 10.15 B.i. 14 ára
Mýrin kl. 8 B.i. 12 ára
Borat kl. 10.20 B.i. 12 ára
Hátíð í bæ kl. 1.30
Hnotubrjóturinn kl. 1.30
20% afsláttur fyrir alla
viðskiptavini Kaupþings
ef greitt er með korti
frá Kaupþingi
„ÓBORGANLEG!“
- ROGER EBERT
Óborganleg og bráðfyndin perla
sem hefur farið siguför um heiminn
ATH: EKKERT HLÉ Á MYNDUM GRÆNA LJÓSSINS.
„KÖLD SLÓÐ ER AFBRAGÐS SAKAMÁLA-
SAGA SEM HÆGT ER AÐ MÆLA MEГ
VJV TOPP5.IS
„ÉG MÆLI EINDREGIÐ MEÐ ÞESSARI
MYND. HÚN ER SKEMMTILEG BLANDA
AF RÓMANTÍK, DRAMA, HASAR OG
SMÁ DRAUGAGANGI.“
HUGI.IS/KVIKMYNDIR BM
„MYNDIN VAR
SKEMMTILEG,
HÉLT ATHYGLI
ALLAN TÍMANN
OG PLOTTIÐ
KOM Á ÓVART“
ASB VÍSIR.IS