Morgunblaðið - 06.01.2007, Side 64
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 6. DAGUR ÁRSINS 2007 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Hæg suðlæg og
síðan austlæg átt,
skúrir eða él.
Bjartviðri á NA- og
A-landi. NA 8–15 m/s á Vest-
fjörðum með snjókomu. » 8
Heitast Kaldast
3°C -1°C
Í ÍSLENSKU neyslusamfélagi þykir
nánast eðlilegt að í hverju herbergi
á heimili hverrar fjölskyldu sé sjón-
varpstæki. En svo er ekki hjá sex
manna fjölskyldu í Vesturbænum
sem býr í litlu, gömlu húsi þar sem
börnin deila með sér herbergjum
og ekki eitt einasta sjónvarpstæki
finnst á heimilinu. Og þau geta vart
beðið eftir því að losa sig við bílinn.
Áherslurnar eru aðrar og fjöl-
skyldan leggur mikið upp úr sam-
verustundum. | 30
Morgunblaðið/Kristinn
Heima er best Heimasætan Belinda
lætur fara vel um sig í stofunni.
Fjölskyldu-
líf án sjón-
varpsins
ÍSLENDINGAR sem breyttu um
mataræði að ráði Íslensku vigtar-
ráðgjafanna misstu samtals um
25.000 kg á síðasta ári, segir í
fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.
Mataræðið, sem gengur undir
nafninu „danski kúrinn“ á meðal
landsmanna, gengur út á mikla
neyslu grænmetis og ávaxta og
nákvæma vigtun allra matvæla áð-
ur en þeirra er neytt. Markmiðið
með vigtuninni er að gera fólk
meðvitaðra um magn þess matar
sem það borðar. ,,Það sem mér
finnst mjög gefandi er að sjá
hversu miklu lífsstílsbreyting, eins
og þessi, getur breytt í lífi fólks,
allt frá fermingu og til áttræðs.
Það hreinlega blómstrar,“ segir
Katrín V. Óladóttir, hjúkr-
unarfræðingur og stofnandi Ís-
lensku vigtarráðgjafanna. | 25
Misstu 25 tonn
í danska megr-
unarkúrnum
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
„VIÐ erum kvíðnir um framhald-
ið,“ segir Geir Jón Þórisson, yf-
irlögregluþjónn í Reykjavík, en
undanfarna daga hefur borið á til-
kynningum til lögreglu vegna vist-
manna sem yfirgefið hafa meðferð-
arheimilið Byrgið í kjölfar
umfjöllunar í fjölmiðlum um mál-
efni heimilisins og forstöðumanns
þess, Guðmundar Jónssonar. Um
20 manns hafa yfirgefið vistheim-
ilið, að því er fram kom í Morg-
unblaðinu í vikunni.
Geir Jón segir að lögreglan sé
farin að taka eftir breytingum
vegna þessa. „Menn sem við vissum
að væru þarna inni [í Byrginu] og
vorum afskaplega glaðir með að
væru ekki úti á götunni eru komnir
út,“ segir hann.
Geir segir að þarna á meðal séu
einstaklingar sem séu þekktir hjá
lögreglunni fyrir fíkniefnaneyslu og
erfið samskipti og mikið hafi borið
á. Þann tíma sem þessir menn hafi
ekki verið á götunni hafi róast yfir.
Þau mál sem tilkynnt hafi verið
lögreglu varði ofbeldi, neyslu fíkni-
efna og ýmislegt sem því fylgi.
Það hafi verið sorglegt að frétta
af því að um 20 manns hafi yfirgefið
Byrgið. Fólkið fari ekki allt beint á
götuna, „en við merkjum að það er
byrjað,“ segir Geir. Þegar Byrgið
hafi farið í fulla starfsemi á sínum
tíma hafi farið af götunni nokkuð
stór hópur ungs fólks sem hafi
verið illa farinn af neyslu fíkniefna
og búið á götunni.
„Við kvíðum því að það fari aftur
í sama munstrið og sama ferilinn og
áður þekktist,“ segir hann. Fólkið
eigi í hús að venda til að byrja með
en fari það á kaf í neyslu endi það á
götunni.
Lögreglan í Reykjavík
kveðst kvíða framhaldinu
Í HNOTSKURN
»Félagsmálaráðuneytiðstöðvaði á dögunum tíma-
bundið greiðslur til Byrgisins
að tilmælum Ríkisendurskoð-
unar sem nú fer yfir mál þess.
»Sigurður Þórðarson rík-isendurskoðandi segir að
stefnt sé að því að ljúka skoð-
uninni í næstu viku. Unnið sé
að málinu af fullum krafti.
»Um 20 manns munu hafayfirgefið Byrgið undan-
farna daga.
Hópur vistmanna sem hefur yfirgefið meðferðarheimilið Byrgið er á götunni
ÁKAFANN vantaði ekki hjá ungu stúlkunni og víst er að sársoltnar, eða
gráðugar, gæsirnar voru henni þakklátar fyrir brauðgjöfina nú á dög-
unum þegar ljósmyndari Morgunblaðsins var á ferð við Lækinn í Hafn-
arfirði. Gæsirnar hópuðust að úr öllum áttum og mátti stúlkan hafa sig alla
við svo brauðið yrði ekki rifið úr höndum hennar. Bersýnilegt er að fleiri
mættu gefa sér tíma til að gefa fuglunum á köldum vetrardögum.
Morgunblaðið/Ómar
Gráðugar gæsirnar sólgnar í brauðið
ÍSLENSK stjórnvöld voru ekki ein um að hafa
áhyggjur af sovéskum síldveiðiskipum í nágrenni
Íslands um miðja síðustu öld. Bandaríska herfor-
ingjaráðið hafði miklar áhyggjur af sovéska flot-
anum og sendi herskip til að fylgjast með skip-
unum án hvatningar íslenskra stjórnvalda. Þetta
kemur fram í grein Björns Bjarnasonar dóms-
málaráðherra í Morgunblaðinu í dag.
Í greininni vitnar Björn orðrétt í samtímafrá-
sagnir föður síns Bjarna Benediktssonar, þáver-
andi utanríkisráðherra, af fundum sem Bjarni átti
með sendiherra Bandaríkjanna 18. ágúst 1948 og
með herforingjum í Washington 19. september
1950. Björn segir í grein sinni að íslensk stjórnvöld
hafi búið yfir vitneskju um að stjórnendur rúss-
nesku skipanna væru í rússneska herflotanum.
„Þá sáust byssustæði á sovéskum skipum í fiski-
flotanum. Töldu stjórnvöld einfaldlega eðlilegt, að
þeir, sem vildu styrkja varnir Íslands, fylgdust
með ferðum flotans. Bandaríkjastjórn var sama
sinnis og þess vegna var brugðist við á þann veg
sumarið 1950 að senda herskip á vettvang og
kanna flotann nánar. Það hefði að sjálfsögðu ekki
verið gert, ef flotastjórnin hefði talið þessar grun-
semdir út í hött,“ segir Björn.
Fram kemur að 19. september 1950 hitti Bjarni
Benediktsson fulltrúa í svonefndri Standing
Group NATO, eða fastanefnd herforingja, í Penta-
gon. Vék Bjarni að því að þá um sumarið hefði ver-
ið mikill floti af rússneskum skipum í nágrenni Ís-
lands. Orðrétt segir í frásögn Bjarna af fundinum:
„Samkvæmt fregnum, sem við höfum, eitt stórt
Liberty skip, um 10.000 tonn, 3 móðurskip um
3.000 tonn og 3 eða 4 e.t.v. 400 til 500 tonn. Og við
höfum getað talið h.u.b. 40 fiskibáta, en menn
halda, að þeir kunni að vera 80–90. Nú er auðvitað
ekkert við því að segja á friðartímum, en á miklum
hættutímum hefðum við haldið, að það kynni að
vera nokkur hætta af þessum rússnesku skipum í
nágrenni landsins […]“
Fram kemur að Omar Bradley, hershöfðingi í
Bandaríkjaher, sat fundinn og brást við þessum
orðum Bjarna með því að segja: „Við vissum um
þennan flota, þegar þið sögðuð okkur frá honum,
og tókum ákvörðun um að senda þessi skip þangað
þessar ferðir. En það er erfitt að hafa þessi skip úti
á hafi allt sumarið, þegar þau geta ekki komið inn
og verið í einhverri höfn, sérstaklega þar sem við
höfum skuldbindingar um heim allan og svo mikið
lið fast í Kóreu um þetta leyti, svo að herforingja-
ráð okkar taldi, að þeir hefðu ekki efni á að halda
þessum herskipum þarna allan tímann, en þeir
hafa sent þau þangað, eins og þér sögðuð, í þrjú
mismunandi skipti. Návist þessa flota er eitt af því,
sem hefur fengið okkur svo mikillar áhyggju, að
við höfum beðið ykkur að ræða þetta [það er her-
afla á Íslandi] og hugsa um það[…]“ | Miðopna
Bandaríkin áttu frumkvæðið
Bandarískir herforingjar lýstu áhyggjum af rússneskum skipum við Ísland 1950
LÖGREGLAN í Neskaupstað
grennslaðist í gærkvöldi fyrir um
ferðir 15 ára gamallar stúlku, sem
hugsanlega fékk far með bifreið yf-
ir til Eskifjarðar og ef til vill áfram
þaðan á milli klukkan eitt og tvö í
gærdag.
Stúlkan er svarthærð, í meðallagi
há og var í svartri peysu og galla-
buxum. Þeir sem kunna að hafa
gefið henni far eða séð til hennar
eru beðnir um að hafa samband við
lögregluna í Neskaupstað.
Grennslast
fyrir um ferðir
15 ára stúlku