Morgunblaðið - 14.01.2007, Page 4
4 B SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Um tímabundna ráðningu er að ræða til a.m.k. eins árs. Laun eru samkvæmt kjarasamningum SÍB og
bankanna. Góð störf og árangur er metinn að verðleikum.
Nánari upplýsingar veitir starfsmannaþjónusta SPRON (550 1200) og Geir Þórðarson, framkvæmdastjóri
Netbankans (550 1800). Umsóknir óskast sendar á starfsmannathjonusta@spron.is, fyrir 22. janúar nk.
Netbankinn leitar að markaðsstjóra
Staða markaðsstjóra er laus til umsóknar.
Markaðsstjóri er jafnframt staðgengill framkvæmdastjóra.
Netbankinn (nb.is-sparisjóður hf.) er eingöngu starfræktur á Netinu. Hann hefur
það á stefnuskrá sinni að vera frumkvöðull í þróun fjármálaþjónustu á Internetinu
og veita viðskiptavinum sínum ávallt hagstæðustu kjör í bankaviðskiptum.
Netbankinn er dótturfélag SPRON.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun á sviði markaðsmála eða önnur sambærileg menntun
• Umsækjendur þurfa að hafa frumkvæði, skipulagshæfileika og ríka þjónustulund ásamt hæfni
í mannlegum samskiptum
• Starfsreynsla í banka eða reynsla af fjármálaráðgjöf fyrir einstaklinga er æskileg
• Góð tölvukunnátta og góð þekking á Internetmálum
Helstu verkefni
• Þjónustuþróun, vöruþróun, almannatengsl, gerð markaðsáætlana og skýrslugerð
• Samskipti og samningar við auglýsingastofur, auglýsingamiðla og samstarfsaðila
• Skipulagning, markmiðasetning og stjórnun sölumála
• Þjónustustjórnun og rekstrar- og starfsmannamál í fjarveru framkvæmdastjóra
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Vodafone leitar að rauðu,
traustu og kraftmiklu starfsfólki!
Vodafone óskar eftir að ráða starfsmenn á tæknisvið. Um er að ræða lifandi
störf í öflugum hópi sérfræðinga og tæknimanna.
Við leitum að fólki með góða samskiptahæfileika og vilja til að leggja sitt af
mörkum til að ná metnaðarfullum markmiðum Vodafone. Viðkomandi aðilar
þurfa jafnframt að vera tilbúnir að tileinka sér nýjungar í fjarskiptaheiminum.
Símstöðvadeild
Starfslýsing
Starfið felur í sér rekstur og þróun miðlægs hluta fjarskiptakerfis
Vodafone. Má þar nefna símstöðvar, talhólf, frelsiskerfi, SMS-kerfi,
GPRS-kerfi o.fl.
Hæfniskröfur
Þekking og reynsla af vinnu við ofangreind fjarskiptakerfi er mjög
æskileg, en ekki skilyrði hafi viðkomandi BS gráðu í tölvunarfræði
eða rafmagns-, verk- eða tæknifræði.
Radíó og þráðlaus aðgangur
Starfslýsing
Starfið felur í sér rekstur á radíókerfum Vodafone, sem staðsett eru
víða um landið, svo sem GSM-búnaði, örbylgjukerfi og endurvarpa.
Unnið er í nánu samstarfi við aðrar rekstrar- og uppsetningareiningar
félagsins.
Hæfniskröfur
Rafeindavirkjun og/eða rafmagnstæknifræði.
Reynslu af rekstri fjarskiptakerfa.
Nánari upplýsingar veitir Kristín Guðmundsdóttir hjá Hagvangi,
kristin@hagvangur.is, sími 520 4700.
Umsóknir óskast útfylltar á www.hagvangur.is fyrir 22. janúar 2007.
Við sem störfum undir nýju merki Vodafone ætlum
okkur að gera viðskiptavinum kleift að nýta tímann
til hins ýtrasta, því hvert augnablik er dýrmætt.
Gríptu augnablikið og lifðu núna.
Aðstoðardeildarstjóri
Sjúkraliði með framhaldsnám í
öldrunarhjúkrun
Vegna skipulagsbreytinga á hjúkrunardeild er
laus til umsóknar staða aðstoðardeildarstjóra í
80-100% starf nú þegar eða eftir nánara sam-
komulagi.
Sjúkraliðar - hópstjórar
Okkur á Grund langar að bæta við þann góða
hóp sjúkraliða sem þegar er starfandi við heim-
ilið.
Ýmsir vaktamöguleikar í boði, m.a. styttri vak-
tir, kvöld- og helgarvaktir. Starfshlutfall sam-
komulag.
Starfsfólk í aðhlynningu
Okkur vantar einnig starfsfólk í aðhlynningu,
bæði heilsdags- og hlutastörf.
Allar nánari upplýsingar veitir Helga Jóhanna
Karlsdóttir starfsmannastjóri, virka daga frá
kl. 8.00-15.00 í síma 530-6165, netfang
helga@grund.is.
Við hvetjum áhugasama að koma til okkar og
skoða heimilið en á Grund búa 240 heimilis-
menn á dvalar-og hjúkrunardeildum þar sem
færni heimilisfólks er nokkuð breytileg.
www.grund.is
Húnaþing
vestra
Umhverfis- og
garðyrkjustjóri
Húnaþing vestra leitar að áhuga-
sömum og framsæknum einstak-
lingi til að sinna starfi umhverfis-
og garðyrkjustjóra.
Starfssvið:
Umsjón með skipulagningu og hirðingu
opinna svæða.
Umsjón með skipulagi sorphirðu og en-
durvinnslu.
Umsjón með skipulagi umhverfismála
og gerð umhverfisáætlana.
Umsjón með starfi nefndar um
Staðardagskrá 21 í Húnaþingi vestra.
Umsjón með rekstri vinnuskóla.
Önnur verkefni á sviði umhverfismála.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Menntun á sviði skrúðgarðyrkjufræða,
umhverfisskipulags eða annað
sambærilegt nám.
Góðir samskipta- og samstarfshæfileikar.
Sjálfstæði í vinnubrögðum.
Skipulagshæfileikar og frumkvæði við
lausn verkefna.
Stjórnunarreynsla er æskileg.
Umsóknarfrestur um starf umhverfis- og
garðyrkjustjóra í Húnaþingi vestra er til og
með 1. febrúar nk.
Umsóknir skulu vera skriflegar og skal
senda þær til skrifstofu Húnaþings vestra,
Klapparstíg 4, 530 Hvammstanga.
Nánari upplýsingar veita Skúli Þórðarson
sveitarstjóri í síma 455 2400 og á netfang-
inu skuli@hunathing.is og Ólafur H.
Stefánsson, forstöðumaður tæknideildar, í
síma 455 2400 og á netfanginu bygginga-
fulltrui@hunathing.is .
AUGLÝSINGASÍMI 569 1100
ÁSKRIFTASÍMI
569 1100