Morgunblaðið - 14.01.2007, Síða 12
12 B SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
www.toyota.is
Toyota á Íslandi
Nýbýlavegi 8
200 Kópavogur
Sími: 570-5070
Komdu og keyrðu með okkur
Toyota á Íslandi er innflytjandi
Toyota bifreiða, vara- og aukahluta.
Starfsmenn fyrirtækisins byggja
gildi sín og viðmið í starfi á The
Toyota Way: Stjórnunar-, þjónustu-
og mannauðsstefnu Toyota.
Gagnkvæm virðing og náin
samvinna eru hornsteinar í daglegri
starfsemi Toyota á Íslandi. Hverri
áskorun er tekið fagnandi hendi og
leita starfsmenn stöðugt leiða til að
tryggja áframhaldandi framfarir í
öllu því sem við kemur starfsemi
fyrirtækisins og þjónustu gagnvart
viðskiptavinum þess.
Vegna aukinna umsvifa óskar Toyota á Íslandi
að ráða starfsmann í Þjónustuver.
Starfssvið
Upplýsingagjöf í síma fyrir allar deildir
Innbókanir á verkstæði
Tækniupplýsingar til viðskiptavina
Önnur tilkallandi verkefni
Hæfniskröfur
Góð þekking á bílum er nauðsynleg
Viðgerðarþekking kostur
Góð grunnfærni á tölvur
Toyota á Íslandi leitar eftir einstaklingum sem eru
metnaðargjarnir, samviskusamir og jákvæðir, liprir í
mannlegum samskiptum og með ríka þjónustulund.
Leitað er að drífandi starfskrafti með þægilegt viðmót
og ríka þjónustulund, sem er fljótur að tileinka sér
ný vinnubrögð.
Vinnutími er frá kl. 8-17 og kl. 9-18 aðra hvora viku.
Í boði er spennandi framtíðarstarf hjá framsæknu
fyrirtæki sem hefur á að skipa metnaðarfullu og
samhentu starfsfólki.
Umsóknarfrestur rennur út mánudaginn 22. janúar nk.
Áhugasamir sendi umsóknir ásamt ferilskrá á netfangið
atvinna@toyota.is. Nánari upplýsingar veitir Fanný
Bjarnadóttir í síma 570-5070.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
T
O
Y
35
70
2
01
/0
7
Strákarnir hjá Bón- og þvottastöðinni ehf. í Sól-
túni láta kuldann ekkert á sig fá. Þó að trekk-
urinn standi gegnum þvottastöðina og vatnið
sprautist í allar áttir taka þeir á móti alsnjóug-
um bílum í löngum bunum allan daginn.
Fer alveg eftir veðri
„Þetta er svona miskalt, það fer eftir veðrinu.
En þetta eru harðir strákar og þeir eru vanir að
segja að ef fólk sé ekki duglegt þá geti það al-
veg eins látið vera að vinna,“ segir Guðjón Eiðs-
son, verkstjóri þvottastöðvarinnar.
Raunar er það svo að Bón- og þvottastöðin
þarf að flytja af því að rífa á húsið þar sem
starfsemin fer fram.
„Það er verið að leita að nýju húsnæði og eig-
andinn, Ari Vilbergsson, vonast til að finna
hentugan stað eins fljótt og auðið er,“ segir
Guðjón.
Ekta bílþvottur
Guðjón segir að handþvottur sé besti bíl-
þvotturinn og finnst ekki mikið koma til burst-
aþvottar.
Fyrst er snjórinn sprautaður af og bíllinn
tjöruþveginn á felgum og þar sem annars er
þörf, svo er hann skolaður og undirvagninn
þveginn, þá tekur tjörusvampur og skrúbbur
við áður en bíllinn fær bóngljáann á sig. Þegar
út er komið hinum megin tekur þurrkun við og
hún fer fram með handklæðum. Meira að segja
hurðafölsin eru þvegin og þurrkuð.
„Þetta er ekta bílþvottur og strákarnir sem
vinna hérna gera sína hluti vel hvernig sem
viðrar. Þeir eru samhentir og harðduglegir. Ef
einhver bíll kemur skítugur út fer hann bara
aftur í gegn. Það á bara ekki að fara skítugur
bíll héðan, svo einfalt er það,“ slær Guðjón
föstu.
Og strákunum, sem eru ellefu talsins þegar
allir eru mættir, líkar vinnan vel.
Reyndar segja þeir að þeim hafi verið kalt
svona til að byrja með, en allt venjist. Vinnan
haldi þeim heitum enda alltaf nóg að gera.
„Hér vinna menn frá átta til sex á virkum
dögum og frá níu til fjögur á laugardögum.
Þegar mikið er að gera stoppa menn næstum
ekki, það er óhætt að segja að þetta sé erfitt
starf,“ segir Guðjón.
Samt er því svo varið að margir af starfs-
mönnum Bón- og bílaþvottastöðvarinnar í Sól-
túni hafa unnið þar svo árum skiptir.
Þvo og bóna bíla
í nístingskulda Handþvottur Það skiptir engu máli hvernig veðrið er, strákarnir þvo, bónaog þurrka bílana. Bílarnir fara ekki héðan fyrr en þeir eru orðnir hreinir.
Verkstjóri Guðjón Eiðsson stjórnar vinnunni á Bón- og þvottastöðinni.
Morgunblaðið/Golli
Harðir Þrátt fyrir snjó og kulda þvo strákarnir alla bíla sem koma á Bón- og þvottastöðina.