Morgunblaðið - 14.01.2007, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 2007 B 13
Raftækjaverslun
Óskum eftir að ráða hressan og duglegan
starfskraft við almenn verslunarstörf allan dag-
inn eða eftir hádegi.
Fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir áhuga-
sama um rafmagnsvörur, gjarnan eldri en 25
ára. Umsóknir sendist á gloey@gloey.is.
Glóey, Ármúla 19.
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, Starfsmannasvið
Álfabakka 16, 109 Reykjavík
www.heilsugaeslan.is
Reykjavík 14. janúar 2007.
Hjúkrunarfræðingar við Heilsugæsluna Árbæ
Heilsugæslan Árbæ auglýsir eftir hjúkrunarfræðingum til starfa við heilsugæsluhjúkrun. Leitað
að hjúkrunarfræðingum þar sem starfssvið er í ung- og smábarnavernd, skólaheilsugæslu og
almennri móttöku. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Æskilegt er að umsækjendur hafi sérfræðimenntun í heilsugæsluhjúkrun eða búi yfir góðri
reynslu í hjúkrun.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og fjármálaráðherra
fyrir hönd ríkissjóðs.
Innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins eru heilsugæslustöðvarnar í Reykjavík, Garðabæ,
Hafnarfirði, Kópavogi, Mosfellsbæ og á Seltjarnarnesi, alls 15 heilsugæslustöðvar, auk Miðstöðvar
heilsuverndar barna, Miðstöðvar mæðraverndar, Lungna- og berklavarnadeildar, Deildar atvinnu-
sjúkdóma og ónæmisvarna, Miðstöðvar tannverndar, Miðstöðvar heimahjúkrunar í Reykjavík og
Geðheilsu-eftirfylgdar/iðjuþjálfun. Starfsmenn stofnunarinnar eru alls um 700.
Sjúkraliði við Heilsugæsluna Árbæ
Sjúkraliði óskast til starfa við Heilsugæsluna Árbæ. Um er að ræða 100% starf. Umsækjendur
þurfa að búa yfir góðri reynslu og hæfileikum til að vinna sjálfstætt. Sjúkraliði á heilsugæslu-
stöð sinnir almennum störfum sem honum eru falin en starfssvið hans mun vera fjölbreytt.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf strax eða eftir nánara samkomulagi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sjúkraliðafélags Íslands og fjármálaráðherra fyrir hönd
ríkissjóðs.
Nánari upplýsingar um störfin gefur Ingibjörg Sigmundsdóttir, hjúkrunarforstjóri í síma
585 7800 eða á netfangi Ingibjorg.Sigmundsdottir@arbae.hg.is
Umsóknir um störfin, ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf, sendist til starfsmanna-
sviðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík, fyrir 29. janúar n.k.
Á vormánuðum 2006 voru fræðslu-
miðstöðvar á Hallveigarstíg samein-
aðar eftir langvarandi undirbúning
framkvæmdastjóra, ráðgjafa og eig-
enda, segir í fréttatilkynningu frá
Samtökum iðnaðarins.
Við sameiningu fjögurra fræðslu-
miðstöðva varð til ein rekstrareining
sem fékk heitið Iðan fræðslusetur.
Innan Iðunnar starfa nú fimm svið;
byggingasvið, hótel- og matvæla-
svið, málm- og véltæknisvið, prent-
tæknisvið og bílgreinasvið. Fræðslu-
miðstöð bílgreina sameinaðist
Iðunni í desember síðastliðnum og
myndaði fimmta sviðið, bílgreina-
svið. Þá segir í fréttatilkynningunni
að markmið Iðunnar sé að reka sí-
menntunarmiðstöð fyrir þær iðn-
greinar sem að henni standa. Sú
starfsemi sem áður fór fram innan
Prenttæknistofnunar fer nú fram á
prenttæknisviði.
Óbreytt hlutverk
Þá segir meðal annars í frétta-
tilkynningunni að hlutverk prent-
tæknisviðs sé óbreytt frá því sem
var. Símenntun, framkvæmd sveins-
prófa, utanumhald um nemaleyfis-
nefndir og starfsgreinaráð upplýs-
inga- og fjölmiðlagreina, auk
upplýsingamiðlunar til prentiðnað-
arins, eru enn aðalviðfangsefni
sviðsins. Sviðsstjóri prenttæknisviðs
er Björn M. Sigurjónsson sem áður
var framkvæmdastjóri Prenttækni-
stofnunar.
Á Prenttæknisviðinu sjálfu er
markmið að bjóða upp á námskeið í
öllum greinum prentiðnaðar á
hverju ári auk annarra námskeiða
sem viðskiptavinir sviðsins telja þörf
fyrir. Í fréttatilkynningunni er
minnt á að verkefni af þessum toga
sé langtímaverkefni.
Verður
Prent-
tæknisvið
Iðunnar
Nú um áramótin fluttist fæðingarorlofssjóður
frá Tryggingastofnun ríkisins til Vinnu-
málastofnunar. Vefsíða Vinnumálastofnunar
upplýsir að skrifstofa og meginþjónusta fæð-
ingarorlofssjóðs sé nú á Strandgötu 1, 530
Hvammstanga.
Allir umsækjendur eiga að skila umsóknum
sínum á Hvammstanga auk þess sem umsækj-
endur af landsbyggðinni skulu senda skatt-
kort sín þangað kjósi þeir að nýta sér þau hjá
fæðingarorlofssjóði.
Umsækjendur af höfuðborgarsvæðinu eiga
að skila skattkortum sínum til Vinnu-
málastofnunar, Engjateigi 11, 105 Reykjavík,
en öll önnur gögn skal senda á Hvammstanga.
Símanúmer fæðingarorlofssjóðs er 582 4840
og fax 582 4850.
Nánari upplýsingar, eyðublöð, lög og reglur
er að finna á heimasíðu sjóðsins.
Á þjónustuskrifstofum Vinnumálastofnunar
um land allt er hægt að nálgast eyðublöð
vegna umsókna foreldra um fæðingarorlof.
Þar er einnig hægt að fá grunnupplýsingar
um greiðslur í fæðingarorlofi eftir því sem við
á svo og leiðbeiningar um útfyllingu umsókna.
Á vefsíðu Vinnumálastofnunar er vakin at-
hygli á að Tryggingastofnun ríkisins annaðist
greiðslur til foreldra í fæðingarorlofi nú um
áramótin vegna barna sem fæddust á árinu
2005 og 2006 og ber því að beina öllum fyr-
irspurnum vegna þeirra greiðslna til Trygg-
ingastofnunar í síma 560 4400.
Fyrstu greiðslur fæðingarorlofssjóðs eftir
að hann fluttist til Vinnumálastofnunar munu
eiga sér stað um mánaðamót janúar/febrúar
nk.
Morgunblaðið/Ásdís
Flutningur Fæðingarorlofssjóður er fluttur frá Tryggingastofnun ríkisins til Vinnumálastofnunar.
Fæðingarorlofssjóður til Vinnumálastofnunar