Morgunblaðið - 14.01.2007, Page 16
16 B SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Háseta
Háseta vantar á 140 rúmlesta dragnótarbát
sem gerður er út frá Hafnarfirði.
Skiptikerfi er á umræddu skipi og mun viðkom-
andi róa tvær vikur í senn og vika í frí.
Upplýsingar í símum 840 0841 – Jóhann
eða 840 0840 – Arnar.
Viltu bætast í okkar
góða hóp ?
Við leitum að áhugasömum einstaklingum sem
vilja starfa við umönnun heimilisfólksins í
Skjóli.
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa, ýmsir
vaktamöguleikar.
Einnig er laus 40% staða hjúkrunarfræðings á
næturvöktum í húsinu.
Sjúkraliðar, félagsliðar og starfsfólk í
umönnun
Lausar eru stöður á hinum ýmsu deildum.
Vaktir og starfshlutfall samkomulagsatriði.
****************************************
Gott starfsumhverfi þar sem góður starfsandi
er í heiðri hafður. Bjóðum traust, jákvætt og
duglegt fólk velkomið til starfa strax og/eða eft-
ir samkomulagi.
Áhugasamir vinsamlegast leitið upplýsinga
sem fyrst hjá
Aðalheiði Vilhjálmsdóttur hjúkrunarforstjóra,
(alla@skjol.is) virka daga í síma 522 5600.
Í SKEMMTILEGU
STARFSUMHVERFI?
VILTU VINNA
MEÐ BÖRNUM
Íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkur I Fríkirkjuvegi 11
Sími 411 5000 I Bréfsími 411 5009 I www.itr.is I itr@itr.is
FRÍSTUNDARÁÐGJAFAR
/LEIÐBEINENDUR
Á FRÍSTUNDAHEIMILUM
Til starfa óskast fólk Í hlutastörf sem hefur náð
20 ára aldri og getur tekið að sér skapandi starf
með 6–9 ára börnum á eftirfarandi sviðum:
List- og verkgreinum, s.s. tónlist, myndlist,
leiklist, smíði, textíl.
Íþróttum og leikjum
Útivist og umhverfismennt
Barnalýðræði og lífsleikni (hópastarf,
barnafundir, vinátta og samvera)
Hægt er að nálgast frekari upplýsingar og
sækja um störfin á heimasíðu ÍTR, www.itr.is
og hjá starfsmannaþjónustu ÍTR, Fríkirkju-
vegi 11, í síma 411 5000.
.
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, Starfsmannasvið
Álfabakka 16, 109 Reykjavík
www.heilsugaeslan.is
Reykjavík 14. janúar 2007.
Sálfræðingar á heilsugæslustöðvum
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins auglýsir stöður sálfræðinga við nokkrar heilsugæslustöðvar
lausar til umsóknar. Um er að ræða ný störf sálfræðinga í grunnþjónustu á heilsugæslu-
stöðvum. Störf þeirra munu fyrst og fremst beinast að frummeðferð á börnum og ungmen-
num með geðræn vandamál og fjölskyldum þeirra. Ætlunin er að sálfræðingar starfi í teymi
með læknum, hjúkrunarfræðingum og öðru heilbrigðisstarfsfólki innan heilsugæslustöðva og
í náinni samvinnu við skóla og félagsþjónustu á svæðinu. Munu þeir taka þátt í uppbyggingu
þessarar starfsemi á heilsugæslustöðvunum.
Leitað er að sálfræðingum, sem hafa menntun og reynslu af meðferð geðrænna vandamála
barna og unglinga. Æskilegt er að þeir hafi reynslu í frumþjónustu. Starfhlutfall getur verið
samkomulagsatriði.
Laun samkvæmt kjarasamningum Stéttarfélags sálfræðinga á Íslandi og fjármálaráðherra
fyrir hönd ríkissjóðs.
Nánari upplýsingar veitir Lúðvík Ólafsson, lækningaforstjóri, í síma 585 1300 eða á net-
fangi: ludvik.olafsson@stj.hg.is og Grétar Guðmundsson, framkvæmdastjóri starfsmanna-
sviðs í síma 585 1300 eða á netfangi: gretar.gudmundsson@stj.hg.is.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf sendist til starfsmannasviðs Heilsugæslu
Höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík, fyrir 29. janúar 2007.
Innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins eru heilsugæslustöðvarnar í Reykjavík, Garðabæ,
Hafnarfirði, Kópavogi, Mosfellsbæ og á Seltjarnarnesi, alls 15 heilsugæslustöðvar, auk Miðstöðvar
heilsuverndar barna, Miðstöðvar mæðraverndar, Lungna- og berklavarnadeildar, Deildar atvinnu-
sjúkdóma og ónæmisvarna, Miðstöðvar tannverndar, Miðstöðvar heimahjúkrunar í Reykjavík og
Geðheilsu-eftirfylgdar/iðjuþjálfun. Starfsmenn stofnunarinnar eru alls um 700.