Morgunblaðið - 14.01.2007, Qupperneq 18
18 B SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Þyrluflugmenn óskast
Norðurflug ehf óskar eftir að ráða til starfa
þyrluflugmenn á Eurocopter SA365 Dauphin,
EC120 Colibri & Bell B206 þyrlur.
Lágmarkskröfur til starfsins er að viðkomandi
hafi gilt íslenskt eða JAA atvinnuflug-
mannsskírteini á þyrlu með blindflugsáritun
auk 500 tíma flugreynslu á þyrlu.
Æskilegt er að viðkomandi hafi tegundar-
réttindi á B206, EC120 og SA365. Einnig er góð
tölvukunnátta og þekking á JAR reglum
æskileg en ekki nauðsynleg.
Umsækjendur eru beðnir að senda ferilskrá
ásamt ljósriti af skírteinum og síðustu blaðsíðu
í flugbók til framkvæmdastjóra, Sigtryggs
Kristóferssonar í kristoff@simnet.is sem jafn-
framt mun veita nánari upplýsingar um starfið.
Umsóknir verður farið með sem trúnaðarmál.
Umsóknir óskast sendar inn fyrir 25. janúar
2007. Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar.
Umsækjendur sem ekki uppfylla skilyrði þurfa
ekki að sækja um. Öllum umsóknum sem upp-
fylla kröfur verður svarað fljótlega eftir að skila-
frestur rennur út.
Umsóknir til starfa hjá Norðurflugi verður fjallað
um á grundvelli þess að umsækjendur eru jafnir
óháð kynferði, kynflokki, stöðu, tengsla eða
annarra sambanda.
Störf í boði
Vörumóttaka og tiltekt pantana.
GÆÐI Á LÆGRA VERÐI
VÖRUHÚS BYKO
A L M E N N T L A G E R S T A R F
Vinnutími
Þrjár vikur í mánuði 8:00-18:00
Ein vika í mánuði 17:00-24:00
S T A R F S L Ý S I N G :
A F G R E I Ð S L A O G S Í M S V Ö R U N
5 0 % S T A R F
Almenn móttaka, afgreiðsla viðskiptavina
og símsvörun.
Umsjón með gerð varúðar- og strikamerkja
og önnur tilfallandi verkefni.
S T A R F S L Ý S I N G :
Stundvísi og nákvæm vinnubrögð.
Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
Lipurð, gleði og drifkraftur til að ná árangri.
H Æ F N I S K R Ö F U R :
Nánari upplýsingar veita
Sigurður Pálsson,rekstrarstjóri
vörustjórnunarsviðs, í símum
515 4063 og 821 4062 og með
tölvupósti siggip@byko.is og
Elfa, starfsþróunarstjóri, í síma
5154161 eða með tölvupósti
elfa@byko.is.
Umsóknir berist fyrir 22. janúar
til Elfu B. Hreinsdóttur,
Skemmuvegi 2, 200
Kópavogi eða með tölvupósti
elfa@byko.is.
Farið verður með allar
umsóknir sem trúnaðarmál og
öllum umsóknum verður svarað.
Verðbólga mældist 6,9% nú í janúar og hækkaði vísitala neyslu-
verðs um 0,26% frá því í desembermánuði. Mest áhrif til hækk-
unar á vísitölunni nú eru vegna matar- og drykkjarvara sem
hækkuðu um 2% í verði á milli mánaða.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu hagstofunnar.
Dýrari opinber þjónusta
Verðhækkanir á opinberri þjónustu vega einnig þungt en sá
liður hækkaði um tæp 3% nú um áramót.
Eins og fram hefur komið hækkuðu gjaldskrár opinberra aðila
víða í upphafi árs og má þar nefna gjöld fyrir þjónustu eins og
leikskóla og skóladagvist, og ýmis gjöld sem innheimt eru af fast-
eignaeigendum, eins og sorphirðu- og holræsagjöld, auk annarra
hækkana á almennum gjaldskrám fyrir þjónustu opinberra aðila.
Þá hækkaði verð á nýjum bílum um 2,3% á milli mánaða. Útsöl-
ur á fötum og skóm sem nú standa yfir hafa áhrif til lækkunar á
vísitölunni en sá liður lækkaði um ríflega 12% milli mánaða.
Á vefsíðu ASÍ kemur fram að athygli veki að húsnæðisliður
vísitölunnar standi í stað milli mánaða og þar af lækki liðurinn
reiknuð húsaleiga, sem mælir breytingar á verði og vaxtakostn-
aði af eigin húsnæði, um 0,2%, en sá liður hafi hækkað stöðugt
síðan í ársbyrjum 2004.
ASÍ hefur áhyggjur
Mikil verðhækkun á matar- og drykkjarvörum veldur nokkr-
um áhyggjum og ýtir enn undir mikilvægi þess að fylgjast vel
með þróun á þeim markaði á næstu mánuðum í aðdraganda að-
gerða til lækkunar á matvöruverði, segir á vefsíðu ASÍ.
Á vefsíðunni er því slegið föstu að ábyrgð opinberra aðila í
hækkun vísitölunnar nú sé mikil og fordæmi þeirra til annarra
aðila í atvinnulífinu slæmt og ekki til þess fallið að draga úr verð-
bólguvæntingum almennings.
Verðbólga Matar- og drykkjarvörur hafa hækkað mest.
ASÍ hefur áhyggj-
ur af hækkandi
neysluverði
Morgunblaðið/Ómar
Álagður tekjuskattur fyrirtækja árið 2006 vegna tekna á
árinu 2005 nam 34,7 milljörðum króna. Þar af nam álagður
tekjuskattur á fjármálafyrirtæki 13 milljörðum króna eða
tæplega 40% af tekjuskatti fyrirtækja í heild. Þetta kemur
fram á vefsíðu Samtaka atvinnulífsins.
Sexföldun tekjuskatts
Álagður tekjuskattur fjármálafyrirtækja hefur rúmlega
sexfaldast frá árinu 2004 þegar hann nam rúmum tveimur
milljörðum króna. Þessar upplýsingar er að finna á vef RSK
sem nýlega hefur birt sundurliðun álagningar á fyrirtæki eft-
ir atvinnugreinum.
Næst á eftir fjármálafyrirtækjunum kemur atvinnugrein
sem nefnist fasteignaviðskipti, leigustarfsemi og ýmis sér-
hæfð þjónusta þar sem álagður tekjuskattur nam rúmum sex
milljörðum króna. Til hennar heyrir m.a. leiga atvinnu-
húsnæðis, starfsemi tengd tölvum og hugbúnaðargerð, endur-
skoðun, lögfræðiþjónusta, rekstrarráðgjöf, starfsemi arki-
tekta, auglýsingastofa, verkfræðiráðgjöf og starfsemi
eignarhaldsfélaga.
Aukning í byggingariðnaði
Álagður tekjuskattur af starfsemi eignarhaldsfélaga einna
nam rúmum 2,2 milljörðum króna. Í þriðja sæti var verslun
og ýmis viðgerðarþjónusta með 4,6 milljarða króna í álagðan
tekjuskatt, en sú atvinnugrein greiddi um langt árabil hæsta
tekjuskatta. Í fjórða sæti kemur byggingariðnaður með 3,5
milljarða sem er mikil aukning frá fyrri árum og í fimmta
sæti er iðnaðurinn með tvo milljarða í álagðan tekjuskatt. Þá
koma samgöngur og flutningar með einn og hálfan milljarð,
sem er mikil aukning frá fyrri árum, og síðan kemur sjávar-
útvegurinn með tæpa 1,2 milljarða króna í álagðan tekju-
skatt.
Fjármálafyrir-
tækin með aukinn
tekjuskatt
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn