Morgunblaðið - 06.02.2007, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 06.02.2007, Qupperneq 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns- son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Morgunblaðið í dag þriðjudagur 6. 2. 2007 íþróttir mbl.isíþróttir NFL-titillinn er fyrsti meiriháttar liðstitill í sögu Indianapolisborgar >> 4 REYNSLULEYSI Á HM? VARNARLEIKUR LANDSLIÐSINS VAR Í MIKLU LAMASESSI OG HEFUR REYNDAR VERIÐ ÞAÐ ALLT FRÁ ÞVÍ Í HAUST >> 2 Eftir Guðmund Hilmarsson ummih@mbl.is ,Það var allt í góðu hjá mér framan af degi en síðan fékk ég þvílíkan höf- uðverk og ældi í kjölfarið og það var ekkert vit í því að reyna að spila, þó vo ég hafi að mestu verið búinn að afna mig fyrir leikinn. Rijkaard var búinn að segja mér að ég ætti að byrja inná en eins mikið og mig angaði til þess að spila þá var engin glóra í því að ætla að vera inni á vell- num hálf ringlaður og slappur,“ agði Eiður Smári við Morgunblaðið gær. Eiður sagðist hafa verið eftir sig í gær en hann gat þó æft með liðinu og býst ekki við öðru en hann verði ilbúinn í baráttuna um næstu helgi þegar Barcelona tekur á móti Rac- ng Santander í spænsku úrvals- deildinni. Fyrir leikinn gegn Osasuna hafði Eiður ekki verið í byrjunarliði Barcelona í fimm leikjum í röð en Argentínumaðurinn Javier Saviola ók stöðu Eiðs í byrjun ársins og hefur haldið sæti sínu. Saviola hafði ig lítt frammi gegn Osasuna og ömuleiðis gegn Real Zaragoza í bikarnum í síðustu viku þar sem Barcelona tapaði á heimavelli, 0:1. ,,Ég verð bara að bíða eftir næsta tækifæri og vonandi fæ ég það um næstu helgi. Það er búið að vera eitthvert slen yfir mannskapnum á þessu nýja ári en það á líka við um fleiri. Sevilla hefur gefið eftir og ekki er Real Madrid að gera góða hluti um þessar mundir. Það sem er pirrandi er að okkur hefur ekki tek- ist að nýta okkur þetta. Við erum nú samt enn í toppsætinu en við vitum sjálfir að við getum spilað betur en við höfum gert. Ég tel mjög mik- ilvægt að við rífum okkur upp í næstu leikjum fyrir leikinn á móti Liverpool í Meistaradeildinni,“ sagði Eiður en fyrri rimma Evrópumeist- ara Barcelona og Evrópumeistar- anna frá árinu 2005 fer fram á Nou Camp miðvikudaginn 21. þessa mán- aðar. Er hjá besta liði í heimi Eiður Smári hefur skorað 10 mörk fyrir Börsunga í öllum keppn- um liðsins á leiktíðinni en honum hefur ekki tekist að finna netmöskv- ana á nýju ári. Hann hefur reyndar ekki spilað margar mínútur með meistaraliðinu á árinu en hann skor- aði síðast fyrir liðið í 4:0 sigri á Villa- real þann 25. nóvember. ,,Fólk verður bara að gera sér grein fyrir því að ég er hjá besta fé- lagsliði í heimi og það er ekkert sjálfgefið að spila hverja einustu mínútu. Ég vissi það þegar ég kom til liðsins. Ég mun halda áfram að berjast fyrir mínu sæti og ég þrífst best þegar samkeppnin er mikil,“ sagði Eiður Smári. Eiður Smári átti að byrja EIÐUR Smári Guðjohnsen átti að vera í byrjunarliði Evrópu- og Spánarmeistara Barcelona í leikn- um gegn Osasuna í fyrrakvöld en þar sem hann fékk heiftarlegt mí- grenikast var tekin sú ákvörðun að efla honum ekki fram í leiknum. Fékk heiftarlegt mígrenikast ALAIN Quintallet, sjúkraþjálfari franska landsliðsins í handknatt- leik, hefur verið úr- skurðaður í tveggja ára bann frá alþjóðlegum leikjum af IHF, Al- þjóðahandknattleiks- sambandinu. Quintallet réðst á norska dómarann Ken- neth Abrahamsen eftir að franska liðið tapaði í undanúrslitunum á HM í Þýskalandi síðasta fimmtudag. Hann fór þar mannavillt en leik- inn dæmdu sænsku dómararnir Patrick Håkansson og Maths Nilsson, og þeir gerðu afdrifarík mistök á loka- sekúndum leiksins þeg- ar þeir dæmdu löglegt mark af franska liðinu. Franska handknattleiks- mótmælt þessum úr- skurði. Þá var þýska handknattleikssamband- ið sektað um 5.000 evr- ur, um 450 þúsund ís- lenskar krónur, vegna of mikillar hlutdrægni hjá kynninum á leik Þýska- lands og Frakklands Hann þótti fara yfir strikið í að hvetja sína menn og Frakkar gerðu athugasemd við fram- Sjúkraþjálfari Frakka í tveggja ára bann LITHÁSKI auðjöfurinn Vladimir Romanov, eigandi skoska úrvals- deildarliðsins Hearts í Edinborg, egist ekki ætla að sleppa taki ínu á félaginu en eins og fram kom í Morgunblaðinu á sunnudag- nn hefur hópur skoskra fjárfesta og smárra hluthafa í Hearts í hyggju að gera yfirtökutilboð í fé- agið og hefur hópurinn leitað til slenskra fjárfesta í því sambandi. Talsmaður Romanovs sagði við koska fjölmiðla að Romanov tæki neitaði þeim möguleika að yfir- taka væri í aðsigi. „Herra Romanov væri áhuga- samari ef tilboðið væri frá Mari- lyn Monroe en frá Pat Munro. Hann hefur ekki uppi nein áform um að selja Hearts og hefur ekki áhuga á neinum tilboðum,“ sagði talsmaður Romanovs. Munro, sem er verktaki og fjár- festir í Edinborg, fer fyrir hópn- um sem vill eignast Hearts en hann sagði við Morgunblaðið að hald Romanovs og hvernig staðið væri að málum hjá félaginu undir hans stjórn. Hearts er á góðri leið með að verða litháskt félag. Fé- lagið hefur fengið 13 leikmenn frá litháska félaginu Kaunas tíma- bundið til liðs við sig en það félag er líka í eigu Romanovs. Stjórn skosku úrvalsdeildarinn- ar og skoska knattspyrnusam- bandið skoðuðu þau mál en þau segjast ekkert geta aðhafst til að koma í veg fyrir að Hearts fái Romanov ætlar ekki að sleppa takinu á Hearts Morgunblaðið/Günter Schröder Brotið blað Það má segja að Guðjón Valur Sigurðsson, landsliðsmaður í handknattleik, hafi brotið blað í sögu heimsmeistarakeppninnar í handknattleik þegar hann varð markakóngur með 66 mörk. Í gegnum tíðina hafa stórskyttur hampað markakóngstitlinum, en það sýnir sig kannski best hvað miklar breytingar hafa orðið á hand- knattleiknum að hornamaður sem er fljótur fram í hraðaupphlaup verður markakóngur. Yf ir l i t                                 ! " # $ %          &         '() * +,,,                              Í dag Sigmund 8 Bréf 25 Staksteinar 8 Minningar 26/30 Veður 8 Brids 32 Úr verinu 12 Skák 32 Viðskipti 13 Menning 33/37 Erlent 14/15 Leikhús 35 Menning 15 Myndasögur 36 Akureyri 16 Dægradvöl 37 Austurland 16 StaðurStund 38/39 Suðurnes 17 Dagbók 40/41 Landið 17 Víkverji 40 Daglegt líf 18/21 Velvakandi 40 Forystugrein 22 Bíó 38/41 Umræðan 24/25 Ljósvakamiðlar 42 * * * Það er álitaefni hvort leynilegir viðaukar við varnarsamning Íslands og Bandaríkjanna frá 1951 hafi stað- ist 21. grein stjórnarskrárinnar. Þetta kom fram í máli Valgerðar Sverrisdóttur utanríkisráðherra í utandagskrárumræðum á Alþingi í gær. » 10 Viðskipti  Glitnir banki heldur áfram útrás sinni á Norðurlöndum en í gær var tilkynnt um kaup bankans á 68% hlut í finnska fjármálafyrirtækinu FIM Group. » 13 Erlent  Um 1.500 fjölskyldur hafa flúið heimili sín í bænum Musa Qala í Innlent  Skattrannsóknastjóri hefur neit- að að afhenda ríkislögreglustjóra skattagögn, m.a. skattagögn Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, en í sér- fræðiáliti skattrannsóknastjóra varðandi kröfu ríkislögreglustjóra um skattagögn níu núverandi og fyrrverandi starfsmanna Baugs er komist að þeirri niðurstöðu að lög- regla sé ekki bær til að hefja op- inbera rannsókn á meintum skatta- lagabrotum einstaklinga þegar málum þeirra hefur verið lokið með endanlegum úrskurði yfirskatta- nefndar. » 44  Nýstofnað alþjóðlegt fjárfesting- arfyrirtæki á orkusviðinu, Geysir Green Energy ehf., hefur ákveðið að setja höfuðstöðvar sínar upp í Reykjanesbæ. » 17 sunnanverðu Afganistan af ótta við að alþjóðlega herliðið geri loftárásir á hann. Talíbanar hertóku bæinn um helgina. Yfirleitt er gert ráð fyrir að í fjölskyldu séu sex manns að meðal- tali í Afganistan. »14  Þriggja ára fangelsisdómur yfir Chung Mong-Koo, forstjóra bílaris- ans Hyundai, þykir sæta tíðindum í fjármála- og stjórnmálalífi Suður- Kóreu en hann var dæmdur fyrir að stofna sérstakan milljarðasjóð til að múta ráðamönnum. » 14  Talið er að um fjórðungur úr milljón barna undir 18 ára aldri, reyndar oft mun yngri, séu her- menn, einkum í Afríku, Rómönsku Ameríku og sumum löndum Asíu, að sögn Sameinuðu þjóðanna. Al- þjóðleg ráðstefna um leiðir til að stemma stigu við þessari meðferð á börnum og auðvelda þeim að hefja nýtt líf hófst í París í gær. » 14 VILJAYFIRLÝSING um að auka til muna húsnæðisframboð fyrir stúdenta við Háskóla Íslands á næstu þremur árum var undirrituð í gær af hálfu Reykjavíkurborgar, Stúdentaráðs Háskóla Íslands og Félagsstofnunar stúdenta. Að sögn Sigurðar Arnar Hilmarssonar, for- manns Stúdentaráðs, er að rætast langþráður draumur stúdenta í húsnæðismálum þeirra og segir hann viljayfirlýsinguna fela í sér ein mestu tímamót í sögu húsnæð- ismála stúdenta. Í viljayfirlýsingunni lýsa aðilar sig sammála um að á næstu þrem- ur árum fari framtíðaruppbygging fram á þremur svæðum í Reykja- vík. Í fyrsta lagi er um að ræða svæði við Hverfisgötu í nágrenni við nýlegar stúdentaíbúðir við Lindargötu, í öðru lagi á nýju íbúðasvæði við Sléttuveg í Foss- vogi og í þriðja lagi í Vatnsmýr- inni í samráði við Háskóla Íslands. Skipaður verður sérstakur sam- ráðshópur fulltrúa Stúdentaráðs Háskóla Íslands, Félagsstofnunar stúdenta og skipulagsyfirvalda í Reykjavík, sem vinnur í framhald- inu að nánari útfærslu og leggur fram áætlun um uppbyggingu í maí næstkomandi. Hefur mjög mikla þýðingu „Þetta hefur mjög mikla þýð- ingu fyrir stúdenta, enda eru á hverju hausti um 700 stúdentar á biðlista eftir úthlutun stúdenta- íbúða,“ segir Sigurður Örn. „Nú hefur verið stigið stórt skref í þá átt að mæta þessari miklu eftir- spurn. Félagsstofnun stúdenta hefur sett sér það markmið að tvö- falda fjölda stúdentaíbúða til að mæta eftirspurninni og ég tel að við förum langleiðina með það á þeim reitum sem talað er um í viljayfirlýsingunni. Það á síðan eft- ir að koma í ljós hversu margar íbúðir er um að ræða, en það skýr- ist vonandi í maí þegar starfshóp- urinn lýkur störfum sínum,“ segir Sigurður Örn. Stúdentaíbúðum fjölgað Ein stærstu tímamót í húsnæðis- málum stúdenta við HÍ eru í nánd Samkomulag Samið var í gær um fjölgun stúdentaíbúða. Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson borgarstjóri og Sigurður Örn Hilmarsson, formaður stúdentaráðs. SAGAN segir að iðnaðarmenn séu vandfundnir í allri framkvæmdagleði landans. Þó varð á vegi ljósmyndara Morgunblaðsins málari sem vann hörðum höndum við að dytta að Kaffi Reykjavík niðri í bæ. Trúlega öfunda hann fáir af því að þurfa að mála upp fyrir sig. Hann mun þó án efa þykja öfundsverður í innivinnunni í dag, því spáð er frosti um allt land, mest fimmtán stiga frosti í innsveitum. Morgunblaðið/G. Rúnar Viltu mála allan heiminn …? GLITNIR hefur keypt 68% hlut í finnska fjármálafyrirtækinu FIM Group, sem er með höfuðstöðvar sínar í Helsinki. Öðrum hluthöfum verður gert yfirtökutilboð en mið- að við að Glitnir greiði átta evrur á hlut er kaupverðið fyrir allt fyr- irtækið um 30 milljarðar króna. Bjarni Ármannsson, forstjóri Glitnis, segir aðspurður hvort þessi kaup gefi fyrirheit um frek- ari útrás Glitnis á árinu að bank- inn sé stöðugt að „fylla inn í eyð- ur“ í vöruframboði sínu á Norðurlöndunum og í Bretlandi. Kaupin á FIM gera Glitni að þriðja stærsta verðbréfamiðlara á Norðurlöndunum, miðað við veltu, næst á eftir Enskilda Banken og Carnegie. Bjarni segir að nýkynnt- ar skipulagsbreytingar hjá Glitni geri bankann enn betur í stakk bú- inn til að takast á við aukinn vöxt. Framundan sé mikil vinna við að samþætta starfsemi bankans á er- lendum vettvangi. | 13 Glitnir fyllir í eyðurnar „HÁLENDIÐ er afar verðmætt svæði vegna náttúru, landslags og víðerna, bæði á landsvísu og alþjóð- lega vísu. Vegna neikvæðra áhrifa ber að stöðva frekari gerð upp- byggðra vega á hálendinu, nema afar ríkir þjóðhagslegir hagsmunir séu í húfi. Jafnframt ber að takmarka gerð annarra vega eins og kostur er og jafnvel loka tilteknum slóðum eða skilgreina þá til takmarkaðra nota. Hafa ber í huga að nýr vegur kallar yfirleitt á annan.“ Þetta segir í nið- urstöðu skýrsludraga um hálendis- vegi sem Landvernd lagði fram á síð- asta ári. Landvernd er að ljúka vinnu við skýrsluna og ætlar að leggja hana fram á aðalfundi samtakanna í apríl. Bergur Sigurðsson, framkvæmda- stjóri Landverndar, sagði að það lægi vegur yfir Kjöl, en það væri ljóst að ef hann yrði byggð- ur upp og malbik- aður myndi um- ferð aukast mikið og sú ró sem væri á þessu svæði spillast. „Við erum ekki á móti malbikinu sem slíku,“ sagði Bergur. „Vel lagður, malbikaður ferðamannavegur þarf ekki að valda sama raski og upp- byggð hraðbraut þvert yfir landið. Það er okkar meginsjónarmið í þessu máli.“ Vanti heildarsýn á vegagerðina Í drögum að skýrslu Landverndar um hálendisvegi er bent á að heild- stæð sýn á vegagerð á hálendinu sé ekki fyrir hendi í áætlunum stjórn- valda. Í samgönguáætlun séu til- greindir fjórir sk. landsvegir sem áformað sé að bæta en ekki tilgreint hvernig. „Í öðrum áætlunum stjórn- valda er umfjöllun um hálendisvegi mjög misvísandi. Í stefnumörkun um byggðamál er hvergi fjallað um upp- byggða hálendisvegi á milli lands- hluta sem leið til að efla byggð og bú- setu um landið. Núverandi vegasamgöngur inn á hálendið eru ekki hindrun fyrir ferða- menn sem þangað vilja sækja. Marg- ir eftirsóttir áningarstaðir eru öllum aðgengilegir á sumrin með áætlunar- ferðum og jafnvel fólksbílum. Ferða- menn á hálendinu eru almennt ekki hliðhollir uppbyggðum vegum.“ Í skýrslunni er bent á að margar virkjanir, tilgreindar í rammaáætlun, muni kalla á uppbyggða vegi komi til þess að þær verði byggðar. Stöðva ber gerð upp- byggðra hálendisvega Landvernd ekki á móti öllum malbikuðum vegum á hálendinu Bergur Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.