Morgunblaðið - 06.02.2007, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
STARFSHÓPUR Landbúnaðarstofnunar um við-
brögð við fuglaflensu fundaði í gær með fulltrúa
Tilraunastöðvar Háskóla Íslands að Keldum,
Halldóri Runólfssyni yfirdýralækni og Jóni Gísla-
syni forstjóra stofnunarinnar um það hvort færa
ætti viðbrögð við fuglaflensu af stofni H5N1-veir-
unnar á annað viðbúnaðarstig vegna þess að hún
hefði um helgina greinst í kalkúnabúi á Bretlands-
eyjum. Var niðurstaða fundarmanna sú, að ekki
væri ástæða til að hækka viðbúnaðarstigið.
Spurður um þetta mat segir Halldór Runólfsson
yfirdýralæknir að um sé að ræða einangrað tilfelli
á Bretlandseyjum og allar líkur séu á að breskum
stjórnvöldum takist að ráða niðurlögum þess.
„Okkar áhættumat á að hækka viðbúnaðarstig
miðaðist við að flensan myndi greinast í villtum
fuglum,“ segir Halldór. „Það liggur ekkert fyrir
um að svo hafi gerst. Villtir fuglar koma hingað frá
svæðum norðar en þetta, eftir því sem best er vit-
að. Að þessu samanlögðu er þetta niðurstaðan.“
Kunna að þurfa að hækka viðbúnaðarstigið
Aðspurður um þá ákvörðun franskra stjórn-
valda að hækka viðbúnaðarstigið gagnvart fugla-
flensu vegna málsins á Bretlandseyjum segir
Halldór að reiknað sé með að síðar kunni að þurfa
að hækka það hér á landi. „Við biðjum alla sem eru
með alifugla úti við að fara vel yfir sína hluti og
vera viðbúnir slíkum ákvörðunum. Verði viðbún-
aðarstigið hækkað verður þeim sem hafa fuglana
utandyra skipað að taka þá inn til að koma í veg
fyrir snertingu við villta fugla.“
Halldór segir stigið hafa verið hækkað um eitt
þrep eftir að dauður svanur fannst á Bretlandi í
fyrravor og að stærstu alifuglaframleiðendur séu
þegar við öllu búnir. Ekki sé hægt að fylgjast með
smærri framleiðendum. Þeir verði að sýna ábyrgð.
Viðbúnaður við fuglaflensu
ekki aukinn hér á landi í bili
Starfshópur Landbúnaðarstofnunar telur breska tilvikið ekki réttlæta breytingu
FUGLAFLENSA greindist á
kalkúnabúinu Bernard Matth-
ews í Holton á Englandi um
helgina. Var tekin ákvörðun um
að farga öllum 159.000 kalkún-
unum á búinu og er búist við að
það muni taka nokkra daga. Að
sögn Halldórs Runólfssonar yf-
irdýralæknis var framkvæmd
rannsókn á stóru svæði um-
hverfis búið til að tryggja að
aðrir fuglar hefðu ekki smitast. Í ljósi þess að fyr-
irtækið rekur samskonar bú í Ungverjalandi hefur
þeirri spurningu verið velt upp hvort smit kunni að
hafa borist til Saga Foods búsins þar. Rússar og
Japanar hafa brugðist við með því að banna inn-
flutning á fersku alifuglakjöti frá Bretlandi.
Einangrað tilvik?
Halldór Runólfsson
LÖGREGLAN á Selfossi stöðvaði
ökumann bifreiðar á 159 km hraða á
Suðurlandsvegi rétt austan Hvera-
gerðis í gær og færði hann á lög-
reglustöð. Grunur lék á um að hann
væri undir áhrifum ávana- og fíkni-
efna. Má hann búast við hárri sekt
fyrir hraðabrotið auk þess sem fíkni-
efnaþátturinn verður nánar rann-
sakaður.
Þá varð bílvelta í gær á Landvegi
rétt við Laugaland. Að sögn lögregl-
unnar á Hvolsvelli voru tveir erlend-
ir ferðamenn í bílnum og missti öku-
maður stjórn á honum, en nokkur
hálka var á staðnum. Hvorugur
meiddist, en bíllinn er talsvert
skemmdur og var hann fjarlægður af
slysstað.
Ók á 159
km hraða
SLÁTURFÉLAG Suðurlands (SS)
og Reykjagarður hafa keypt hluta-
félagið Förgun ehf., sem rekur kjöt-
mjölsverksmiðjuna í Flóahreppi.
Verksmiðjunni var lokað um áramót-
in en reksturinn fer af stað á ný á
næstu dögum. Kaupendur gefa ekki
upp verðið í þessum viðskiptum.
Verksmiðjan er sú eina sinnar teg-
undar hér á landi en hún tekur á
móti sláturúrgangi og öðrum lífræn-
um úrgangi og framleiðir úr þessum
afurðum mjöl og fitu. Fitan er að
stærstum hluta notuð til gufufram-
leiðslu fyrir verksmiðjuna og er
verksmiðjan því nær sjálfbær um
orku. Framkvæmdastjóri Förgunar
verður Torfi Áskelsson.
Kjötmjöls-
verksmiðjan
í gang á ný
ÁLAG á raforkukerfi Landsnets
náði sögulegu hámarki 22. janúar
kl. 19, en þá flutti raforkukerfið
1.388 MW. Páll Magnússon, hjá
Landsneti, sagði að ástæðan fyrir
þessari miklu orkunotkun þennan
dag hefði verið sú að mjög kalt
var í veðri, stóriðjufyrirtækin
hefðu verið keyrð á fullum afköst-
um og loðnubræðslur hefðu verið
að fara af stað.
Síðasta met í raforkuflutningi
var frá 18. desember sl. þegar
1.377 MW voru flutt um kerfi
Landsnets.
Páll sagði að orkunotkun væri
hægt og sígandi að aukast. Á
árinu 2005 hefði mesti orkuflutn-
ingurinn verið 1.121 MW. Að und-
anförnu hefði kerfi Landsnets hins
vegar flutt um 1.300 MW. Páll
sagði að raforkuflutningurinn ætti
eftir að aukast enn meira þegar
liði á þetta ár. Í sumar yrði byrjað
að keyra upp ker hjá Fjarðaáli á
Reyðarfirði. Einnig væri stækkun
hjá Norðuráli á Grundartanga að
fara í gang. Hann sagðist því eiga
von á að Landsnet myndi flytja
um 2.000 MW af rafmagni í lok
þessa árs.
Rafmagns-
notkun í
sögulegu
hámarki
SKIPVERJAR á Særifi SH brugðust skjótt við í gær-
kvöldi í höfninni við Arnarstapa þegar eldur varð laus í
Reyni Þór SH, 15 tonna báti sem lá þar bundinn. Skip-
verjum á Særifi varð ljóst hvað hafði gerst þegar þeir
voru að ljúka löndun og hugðust leggja upp að síðunni
á Reyni Þór. Þá mætti þeim svartur reykur frá vél-
arrúmi í mannlausum bátnum og fóru þeir um borð og
hófu slökkvistörf. Að sögn Arnars Laxdals á Særifi
byrjuðu þeir á því að loka öllum loftinntökum og varna
því að eldurinn næði sér almennilega á strik.
„Þetta gekk alveg ótrúlega vel og við teljum okkur
hafa brugðist hárrétt við,“ sagði Arnar. Eigandi Reynis
Þórs kom skömmu síðar á vettvang en þá hafði tekist
að kæfa eldinn. „Við settum í gang slökkvikerfi og
kældum síðan niður eldsvæðið með sjó. Eldurinn var
bundinn við vélarrúmið og dreifðist ekki um bátinn. En
það hefði ekki mátt muna miklu að verr færi,“ sagði
Arnar.
Morgunblaðið/Alfons
Skipverjar afstýrðu eldsvoða í báti
♦♦♦
FRAMKVÆMDASTJÓRN Lands-
sambands eldra borgara lýsir undr-
un sinni og óánægju með að greitt
skuli hafa verið fyrir bækling, sem
Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráð-
herra lét gera á síðasta ári um
áherslur sínar í öldrunarmálum, úr
Framkvæmdasjóði aldraðra.
Í ályktun sem framkvæmdastjórn
LEB sendi frá sér í gær er minnt á
að í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og
Landssambands eldri borgara frá
19. júlí 2006 komi fram að fjármagn
sem gengið hafi til reksturs stofnana
úr Framkvæmdasjóði aldraðra skuli
framvegis ganga til uppbyggingar
öldrunarstofnana.
Framkvæmdastjórnin hafi tekið
undir tilboð ráðherra um að liðsinna
sambandinu og styðja útsendingu fé-
lagsblaðs þess sl. haust, enda hafi yf-
irlýsing ríkisstjórnarinnar og LEB
verið meðal þess efnis sem birt var í
blaðinu. Stjórn LEB hafi ekki séð
neitt óeðlilegt við að stjórnvöld fyrir
sitt leyti styddu við bakið á LEB
vegna þess og bæklingur ráðherrans
hafi fylgt með.
„Hins vegar lýsir LEB undrun og
óánægju með að fjármagnið í þetta
verkefni var tekið úr Framkvæmda-
sjóði aldraðra, kr. 1.324.458 (447.558
prentun bæklings og 876.900 í burð-
argjöld),“ segir svo í ályktuninni.
Lýsir stjórnin jafnframt megnri
óánægju með að sjóðurinn skuli ekki
hafa brugðist nægilega hratt við
brýnasta verkefninu í málefnum
aldraðra og aðstandenda, sem sé
uppbygging hjúkrunarrýma.
Framkvæmdasjóður aldraðra borgaði bækling
LEB lýsir undr-
un og óánægju
STJÓRN Framtíðarlandsins hefur
boðað til fundar á morgun, miðviku-
dag, til að fá úr því skorið með lýð-
ræðislegum hætti hvort félagar í
Framtíðarlandinu samþykki að boð-
ið verði fram í nafni félagsins til Al-
þingis í kosningunum í vor.
Tillagan verður lögð fram af
stjórn félagsins sem einnig leggur
fyrir fundinn drög að stefnuskjali, að
því er kemur fram í fundarboði
stjórnarinnar. Krafist er aukins
meirihluta (2/3 hluta greiddra at-
kvæða) fyrir samþykki tillögunnar,
en félagsmenn eru um 2.600 talsins.
Skiptar skoðanir
Reynir Harðarson, stjórnarmaður
í Framtíðarlandinu, segir hugmynd-
ina um framboð alltaf hafa blundað í
félagsmönnum þótt skoðanir séu
skiptar. „Það hefur alltaf verið talað
um möguleikann eða ógnina um
framboð í Framtíðarlandinu og nú er
komið að því að félagsmenn ákveði
hvort af því verður.
Það eru ýmsar leiðir að þessu
markmiði og þá er umdeilt hvort rétt
sé að bjóða fram. Báðar fylkingar
hafa ýmislegt til síns máls og þess
vegna er eðlilegt að félagsmenn
ákveði þetta sjálfir,“ segir Reynir,
sem sjálfur er hlynntur framboði.
„Það hefur verið þörf á nýju
stjórnmálaafli hægra megin við
miðju sem kemur fram án farangurs.
Það virðist vera að gömlu flokkarnir,
Sjálfstæðisflokkur og Framsóknar-
flokkur, hafi lítinn áhuga á umhverf-
ismálum,“ segir Reynir.
Hvað varðar fyrirkomulag fram-
boðsins, hvar boðið verður fram og
hvernig listum verður stillt upp, seg-
ir Reynir það verða ákveðið á fund-
inum á miðvikudaginn.
Leggja til að boðið
verði fram til Alþingis
Morgunblaðið/RAX
♦♦♦
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest úr-
skurð Héraðsdóms Suðurlands um
að tveir bræður sæti gæsluvarðhaldi
vegna gruns um fíkniefnasmygl.
Annar maðurinn var úrskurðaður í
varðhald til 6. febrúar en hinn til 9.
febrúar.
Sakarefnið varðar rúm 100
grömm af kókaíni, sem send voru til
Íslands í hraðsendingu í pósti frá
Guyana. Annar mannanna var
skráður viðtakandi en hinn sótti
pakkann á pósthúsið í Hveragerði og
var þá handtekinn af lögreglu.
Tollverðir höfðu áður fundið kóka-
ínið í pakkanum og voru fíkniefnin
fjarlægð og gerviefni sett í staðinn.
Í gæslu
fyrir kókaín