Morgunblaðið - 06.02.2007, Side 10

Morgunblaðið - 06.02.2007, Side 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ ALÞINGI Sími 590 5000 Opið kl. 10–18 á Laugavegi 174 13.990 kr. afborgun á mánuði fyrir hverja milljón * * M.v. 10% útborgun og gengistryggðan bílasamning til 84 mánaða. H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 8 1 0 2 Eigum frábært úrval nýlegra lúxusfólksbíla og jeppa frá Volkswagen, Audi og Mercedes Benz með allt að 90% lánum á afar hagstæðum kjörum. Í boði eru jafnlöng lán og á nýjum bílum, sem lækkar greiðslubyrðina til muna. Bílarnir eru til sýnis á Bílaþingi, Laugavegi 174. Audi A6 quattro V8 4,2 Leðurinnrétting,18" álfelgur sex geisladiska spilari fjórhjóladrif, hiti í sætum hraðastillir, leðurinnrétting loftkæling, rafmagn í sætum regnskynjari, sóllúga, xenon-ljós Verð 6.950.000 kr. ÍSLAND er enginn eftirbátur annarra þjóða og mun ekki skerast úr leik þeg- ar kemur að því að vinna gegn lofts- lagsbreytingum. Þetta sagði Geir H. Haarde forsætis- ráðherra á Alþingi í gær er hann svaraði fyrirspurn Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, um loftslagsbreytingar. „Það er rangt að gera því skóna að eitthvað af því sem hér er að gerast sé með ein- hverjum hætti Íslendingum að kenna,“ sagði Geir og áréttaði að Ís- land hefði lagt sitt af mörkum til að draga úr mengun. Ingibjörg benti á þann fjölda þjóð- arleiðtoga sem hefur gefið yfirlýs- ingar um nýja skýrslu Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar og spurði hvort íslensk stjórnvöld ætl- uðu að taka undir með Evrópu- þjóðum og draga verulega úr meng- un eða hvort þau ætluðu að halda uppteknum hætti og reyna að fá sér- meðferð í þessum efnum. Hún var ekki sátt við þau orð Geirs að spurn- ingum hennar væri erfitt að svara í óundirbúnum fyrirspurnartíma. „Það eru sem sagt Bush og Geir Haarde sem standa eftir eins og salt- stólpar í þessu máli og geta ekki tek- ið afstöðu til málsins meðan allir aðrir geta gert það.“ Mun ekki skerast úr leik Geir H. Haarde „ÞETTA er loforðabæklingur og í honum er hvergi sagt hvernig ástandið er,“ sagði Ásta R. Jóhann- esdóttir, þingmaður Samfylking- arinnar, í fyrirspurnatíma á Al- þingi í gær, og gagnrýndi heilbrigðisráðherra harðlega fyrir að hafa notað peninga úr fram- kvæmdasjóði aldraðra í kynning- arbækling um öldrunarmál. „Ég get ekki séð að ráðherra hafi nokkra heimild til að taka peninga úr sjóðnum í svona verkefni fyrir sjálfa sig,“ sagði Ásta og bætti við að þetta væri dæmigerður kosn- ingabæklingur þar sem ráðherra segði frá því í fyrstu persónu hvað hún hygðist gera eftir kosningar. Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- ráðherra sagði um nýja stefnumót- un að ræða og að ráðherra væri skylt að upplýsa um hana. „Það er alveg skýrt að það er heimilt að veita fé úr sjóðnum til annarra verkefna en byggingar öldr- unarstofnana enda mjög mikilvægt að geta veitt styrki, t.d. til þróun- arverkefna, rannsóknarverkefna og til að koma upplýsingum á fram- færi til að efla öldrunarþjónustuna um allt land,“ sagði Siv og bætti því við að það væri fráleitt að tala um þetta sem persónulegt mál. Loforðabæklingur um öldrunarþjónustu? Morgunblaðið/RAX Spennan magnast Þingmenn gefa sér tíma til að slá á létta strengi þótt spennan fari vaxandi nú þegar kosningabaráttan er að hefjast fyrir alvöru. Eftir Höllu Gunnarsdóttur halla@mbl.is ÞAÐ ER álitaefni hvort leynilegir viðaukar við varnarsamning Íslands og Bandaríkjanna 1951 hafi staðist 21. grein stjórnarskrárinnar. Þetta kom fram í máli Valgerðar Sverris- dóttur, utanríkisráðherra, í utandag- skrárumræðum á Alþingi í gær. „Ég kýs að fjölyrða ekki um þetta atriði hér enda er þetta fyrst og fremst lög- fræðilegt álitaefni,“ sagði Valgerður en umrædd stjórnarskrárgrein kveð- ur á um að ekki megi gera við önnur ríki neina samninga sem fela í sér af- sal eða kvaðir á landi eða landhelgi, án samþykkis Alþingis. Steingrímur J. Sigfússon, þing- maður Vinstri grænna, hóf um- ræðuna og benti á að Alþingi hefði ekki fengið herverndarsamninginn til umfjöllunar á sínum tíma. „Þetta var nógu slæmt, þótt ekki bættist það við sem nú liggur fyrir, að á bak við her- verndarsamninginn voru gerðir leyni- samningar sem Alþingi og þjóð voru leynd í meira en hálfa öld, að því er best verður séð eingöngu af pólitísk- um ástæðum,“ sagði Steingrímur og gagnrýndi harðlega þau ákvæði í leynilegu viðaukunum að Bandaríkja- menn gætu tekið í sínar hendur fulla stjórn og ábyrgð á flugi um Keflavík- urflugvöll. „Hvaða stöðu hafa viðauk- arnir núna?“ spurði Steingrímur. „Er hægt að ýta lögum um flugmálastjórn á Keflavíkurflugvelli og loftferðir til hliðar með samningi úti í bæ við er- lenda ráðherra sem hefur enga laga- stoð?“ Valgerður sagði aðstæður við gerð varnarsamningsins hafa verið allt aðrar en í dag og að hann hefði líklega verið umdeildasti tvíhliða samningur sem Ísland hefði gert. „Tveimur árum áður höfðu átt sér stað uppþot á Aust- urvelli þegar Alþingi samþykkti aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu,“ sagði Valgerður en hún sagðist jafn- framt hafa viljað sjá meiri skuldbind- ingu af hálfu Bandaríkjanna hvað varðar hreinsun á landi eftir brott- hvarf hersins sl. haust. Geir H. Haarde, forsætisráðherra, sagði leynilegu viðaukana endur- spegla tíðarandann sem var 1951 og að núverandi stjórnvöld gætu ekki borið ábyrgð á því. Í hans augum væri ekkert í samningnum sem þyrfti að halda leyndu, en að það hefði horft öðruvísi við þeim sem gerðu samning- inn á sínum tíma. Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði himin og haf vera milli viðhorfa utanríkisráð- herra og forsætisráðherra í málinu. „Forsætisráðherra lýsti því yfir síðast fyrir örfáum dögum að hann teldi að skilasamningarnir frá því í haust hefðu verið fullnægjandi,“ sagði Öss- ur og bætti við að utanríkisráðherra hefði hins vegar sagt skýrt að hendur Íslendinga hefðu verið bundnar í samningaviðræðunum vegna leyni- samninganna frá árinu 1951. Álitaefni hvort leynilegir viðaukar standist stjórnarskrá Í HNOTSKURN » Steingrímur J. Sigfússonsegir leynilega viðauka við varnarsamninginn hafa falið í sér miklu meira afsal á landi en samningurinn sjálfur. » Utanríkisráðherra segirþað vera lögfræðilegt álitaefni. ● Umræður um fundarstjórn forseta fóru út um víðan völl á Alþingi í gær og gengu skotin í allar áttir. Ögmund- ur Jónasson byrjaði á því að gera at- hugasemd við ákvörðun um það hvaða fyrirspurnir voru teknar á dag- skrá í óundirbúnum fyrirspurnartíma. Sagði hann undarlegt að fyrirspurn Ingibjargar Sólrúnar um loftslags- breytingar kæmist að, þegar VG hefði þegar óskað eftir utan- dagskrárumræðu um sama efni. Ósáttur við fundarstjórn ● Sigurður Kári Kristjánsson sagði greinilegt að samstarf stjórnarandstöð- unnar virkaði illa þar sem VG og Samfylking gætu ekki einu sinni náð samkomulagi um hver „hefði forgang að því að ræða um loftslags- málin.“ „Það er komin upp alvarleg staða hér í þinginu,“ sagði Sigurður Kári. „Ég held það væri ráð, frú for- seti, að þú myndir fresta fundi þann- ig að stjórnarandstaðan gæti fengið sér 10 dropa af kaffi og ráðið ráðum sínum vegna þess að það er alveg ljóst af þessari umræðu að hún er ekki jafnsameinuð og menn í þess- um stjórnarandstöðuflokkum vilja vera láta,“ sagði Sigurður Kári. Þurfa tíu dropa Sigurður Kári Kristjánsson ● Sigurður Kári var sjálfur ekki látinn óáreittur. Mörður Árnason sagði hann hafa sett á svið leikrit í fyrirspurn- artímanum. Í „leikritinu“ hefði Sig- urður Kári vakið athygli á því að sam- kvæmt nýrri skýrslu Hagstofunnar væri tekjudreifing á Íslandi mun jafn- ari en í flestum Evrópuríkjum. Spurði hann forsætisráðherra um afstöðu hans til skýrslunnar, og auðvitað var svarið hið jákvæðasta. Arnbjörg Sveinsdóttir var ósátt við að talað væri um leikrit í þessu sam- hengi. Össur Skarphéðinsson sagðist hafa skilning á því, enda hefði Sig- urður Kári málfrelsi á þingi eins og aðrir. „Ég held þó að ég og formaður þingflokks sjálfstæðismanna getum þó verið sammála um að hann lék þetta mjög vel,“ sagði Össur og upp- skar hlátur. Góður leikari ● Fundur Alþingis hefst kl. 13.30 í dag og fjöldi mála er á dagskrá. Fé- lagsmálaráðherra mælir meðal ann- ars fyrir frumvarpi um skyldur er- lendra fyrirtækja og starfskjör starfsmanna þeirra. Dagskrá þingsins ÞETTA HELST …

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.