Morgunblaðið - 06.02.2007, Side 14

Morgunblaðið - 06.02.2007, Side 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT París. AFP. | Talið er að um fjórð- ungur úr milljón barna undir 18 ára aldri, reyndar oft mun yngri, séu hermenn, einkum í Afríku, Róm- önsku Ameríku og sumum löndum Asíu, að sögn Sameinuðu þjóðanna. Alþjóðleg ráðstefna um leiðir til að stemma stigu við þessari meðferð á börnum og auðvelda þeim að hefja nýtt líf hófst í París í gær. Ishmael Beah var 11 ára þegar hann gekk til liðs við einn vígahóp- anna sem herjuðu á landsmenn í Vestur-Afríkuríkinu Síerra Leone þegar þar braust út borgarastríð fyrir 15 árum. Gerðist þetta eftir að foreldrar hans og tveir bræður höfðu týnt lífi í átökunum. „Það var jafnauðvelt fyrir mig að taka upp byssu og skjóta einhvern eins og að drekka glas af vatni,“ sagði Beah, sem nú er 26 ára, á ráðstefnunni. Hann sagði að gefa yrði börnunum tíma til að jafna sig andlega eftir þessa reynslu. „Erfiðast er að end- urheimta eigin mennsku.“ Beah var hermaður í tvö ár en var þá sendur í endurhæfing- armiðstöð fyrir barnahermenn í höfuðborg landsins, Freetown. Hann býr nú í New York og senn kemur út bók sem hann skrifaði um reynslu sína. Oft eru börnin ekki aðeins notuð sem hermenn heldur gerð að sendi- boðum og njósnurum eða notuð sem kynlífsþrælar. Philippe Douste- Blazy, utanríkisráðherra Frakk- lands, sagði að umrædd börn væru nú eins og glötuð þjóðum sínum. AP Frjáls Ishmael Beah varð 11 ára að aldri hermaður í einni af mörgum víga- sveitum Sierra Leone í borgarastyrjöldinni í landinu. Gegn barnahermennsku Kandahar. AFP, AP. | Um 1500 fjöl- skyldur hafa flúið heimili sín í bæn- um Musa Qala í sunnanverðu Afg- anistan af ótta við að alþjóðlega herliðið geri loftárásir á hann. Tal- íbanar hertóku bæinn um helgina. Yfirleitt er gert ráð fyrir að í fjöl- skyldu séu sex manns að meðaltali í Afganistan. Dreift hefur verið flug- ritum yfir Musa Qala þar sem her- menn talíbana eru hvattir til að hafa sig á brott, ella verði hafnar árásir á þá. Á föstudag gerði hópur talíbana árás á bæinn, sem er mjög af- skekktur. Breskir hermenn í hér- aðinu sömdu í fyrra við öldungaráð Musa Qala um að halda sig fjarri bænum en ráðið sagði bæjarbúa geta haft hemil á talíbönum. Hinir síðarnefndu hafa nú leyst upp öld- ungaráðið og lagt byggingar bæj- arstjórnar og lögreglu í rúst með jarðýtum. Leiðtogi hópsins, múllah Ghafour, var felldur með flugskeyti á sunnudag ásamt nokkrum ráð- gjöfum sínum. Talíbanar hertóku bæ AP Fjarri Breskir hermenn í Kabúl. Moskva. AFP. | Saksóknarar í Rússlandi hafa lagt fram nýjar ákærur um fjárdrátt og peningaþvætti á hendur auðkýfingnum Míkhaíl Khodorkovskí sem nú er í fang- elsi í Síberíu. Verði hann sekur fundinn gætu þessar ákærur merkt að bætt verði mörgum árum við dóm hans, að sögn verjenda hans. Khodorkovskí var árið 2005 dæmdur í fangelsi fyrir fjármálamisferli og skattsvik. Hann hafnaði nýju ákær- unum, að sögn eins verjenda hans, Karínnu Moskalenkó, í gær. „Þetta eru fáránlegar ásakanir,“ sagði hún. Við- skiptafélagi Khodorkovskís, Platon Lebedev, var einnig ákærður fyrir sams konar sakir í gær. Líklegt þykir að nýju ákærurnar geri að engu vonir Khodorkovskís um að fá reynslulausn fyrir tímann. Hafa þær ýtt undir grunsemdir um að Vladímír Pútín forseti og menn hans misbeiti valdi sínu til að ofsækja olíu- furstann fyrrverandi sem áður réð yfir olíurisanum Yukos. Ákærður fyrir peningaþvætti Míkhaíl Khodorkovskí ÍRÖNSK stjórnvöld hafa sett upp 300 skilvindur til úranauðgunar á tveimur stöðum í Natanz-neðan- jarðarsamstæðunni, að sögn vest- rænna diplómata. 300 skilvindur NJÓSNAFORINGINN fyrrverandi Alexander Lítvínenko, sem lést af völdum póloneitrunar, taldi Andrei Lugovoi hafa átt þátt að máli, að sögn vinar hans Borisar Berezovskí. Benti á Lugovoi ÁÆTLANIR Bandaríkjastjórnar um að reisa gagneldflaugavarnarkerfi í Mið-Evrópu eru „ógn“ við Úkraínu, að því er Mykola Azarov aðstoðar- forsætisráðherra lýsti yfir í gær. Hann þykir hallur undir Rússa. Ógn við Úkraínu ALAN Johnson, menntamálaráð- herra Bretlands, hefur ákveðið að sonnettur leikritaskáldsins Will- iams Shakespeare, heimsstyrjald- irnar tvær og helförin séu „ósnert- anlegt“ kennsluefni sem ekki megi með nokkrum hætti vinsa úr náms- bókum fyrir 11 til 14 ára börn. Jafnframt eru skólar hvattir til að kenna „efnahagslega gagnleg“ tungumál, á borð við úrdú og mand- arínsku, í stað frönsku og þýsku. Ósnertanlegt efni Sígildur Ljóð Shakespeares fara hvergi. FRÉTTASKÝRING Eftir Ásgeir Sverrisson asv@mbl.is LÖGMENN Chung Mong-Koo höfðu hvatt til þess að tekið yrði mildilega á máli hans; vist innan fangelsismúra myndi ekki aðeins skaða risafyrirtækið sem hann stjórnar, sjálft hagkerfi Suður-Kór- eu myndi verða fyrir þungu höggi. Þetta ákall dugði skammt. Sannað þykir að Chung hafi sem forstjóri Hyundai-fyrirtækisins beitt hugvits- samlegum brögðum til að koma sér upp digrum sjóði sem hann hafi síðan nýtt til að múta stjórnmála- og emb- ættismönnum. „Skapandi bókhald“ Chung var í gær dæmdur í þriggja ára fangelsi eftir að hafa verið fund- inn sekur um svik og fjárdrátt. Sann- að þykir að hann hafi með „skapandi bókhaldi“, eins og það kallast nú um stundir, komist yfir 90 milljarða won, sem svara til um 96 milljóna Banda- ríkjadala eða um 6.600 milljóna króna. Fjármunum þessum kom hann fyrir í sérstökum sjóði til að standa straum af mútugreiðslum. Hluta upphæðarinnar var varið til að greiða fyrir því að Euisun, sonur Chungs, tæki við sem forstjóri Kia, sem er eitt fyrirtækja Hyundai. Þriggja ára fangelsi fyrir þessar sakir þætti tæpast lýsa hamslausri refsigleði í Evrópu eða Bandaríkjun- um en í Suður-Kóreu þykir dómur- inn marka tímamót; greinilegt sé að yfirvöld dómsmála hyggist nú „hreinsa til“ í viðskiptalífinu sem löngum hefur verið annálað fyrir spillingu. Og það ástand mála tengist beint stjórnmálastéttinni í landinu. Forseti dómsins, Kim Dong-Oh, sagði er hann opinberaði úrskurðinn að ekki léki vafi á sekt Chungs. Upp- ræta þyrfti slíkt framferði og það bæri ekki síst að gera í því skyni að tryggja vöxt og viðgang hagkerfis- ins. Þrír undirsáta Chungs hjá Hy- undai fengu skilorðsbundna dóma en þeir lýstu yfir því að þeir hefðu ein- ungis farið að fyrirmælum hans. Mildir dómar Talsmaður Hyundai sagði að refs- ingin væri úr hófi fram hörð. Og vís- ast hefur sá ágæti maður eitthvað til síns máls þegar skoðuð eru viðlíka hneyksli sem afhjúpuð hafa verið í Suður-Kóreu á undanliðnum árum. Stjórnvöld hafa að vísu reynt að koma böndum á auðhringina almátt- ugu, sem nefnast chaebol þar eystra, en dómar sem felldir hafa verið yfir þekktum mönnum í viðskiptalífinu hafa þótt mildir. Ákæruvaldið hafði raunar farið fram á að Chung yrði dæmdur í sex ára fangelsi og þær raddir heyrðust í gær að enn væri dómskerfið sýnilega ekki tilbúið að taka af fullri hörku á spillingu á þessu sviði þjóðlífsins. Sjálfur var Chung sem steinrunninn er dómur- inn var kveðinn upp og neitaði að tjá sig. Málinu verður nú áfrýjað og Chung nýtur frelsis þar til dómur fellur á ný. Iðnaðar- og viðskiptaráð Suður-Kóreu hefur þegar hvatt til þess að dómurinn verði mildaður. Sjötti stærsti bíla- framleiðandinn Hyundai yfirtók Kia Motors árið 1998 og er nú sjötti stærsti bílafram- leiðandi í heimi hér. Fyrirtækið ræð- ur nú yfir um 70% markaðarins í Suður-Kóreu og leggur til um 5,4% af vergri landsframleiðslu. Chung, sem er sonur stofnanda Hyundai-fyrirtækisins, tók við sem forstjóri árið 1998. Hann þykir hafa náð góðum árangri í starfi, Hyundai hefur náð traustri fótfestu í Banda- ríkjunum og áhersla Chungs á aukin gæði er talin hafa gjörbreytt ímynd fyrirtækisins. Forstjórinn, sem þyk- ir afar kröfuharður, er annálaður fyrir vinnusemi og skipulagsgáfu. Heldur hefur þó hallað undan fæti síðustu misserin. Chung var hand- tekinn í apríl í fyrra og var þá í fang- elsi í tvo mánuði uns honum var sleppt gegn tryggingu. Mál forstjór- ans er talið hafa spillt fyrir áformum um frekari sókn í Evrópu og Banda- ríkjunum. Að auki hafa kröfur verka- manna um launahækkanir komið illa við fyrirtækið, sem stendur frammi fyrir harðnandi samkeppni, einkum frá Japan. Breytt staða hvað sam- keppni varðar er ekki síst rakin til þess hversu sterkur gjaldmiðill won- ið er nú um stundir. Að sögn tals- manna fyrirtækisins dróst fram- leiðslan saman um 115.000 bifreiðar í fyrra sökum verkfalla. Hagnaður minnkaði um 34% frá árinu 2005 sem aftur varð til þess að verðmæti hluta- bréfa rýrnaði um þriðjung. Hét frekari sókn og bættum árangri gegn vægum dómi „Fyrirtækið stendur frammi fyrir margvíslegum vanda. Gefi rétturinn mér tækifæri mun ég launa það með því að gera Hyundai eitt af fimm stærstu fyrirtækjum heimsins á sviði framleiðslu ökutækja,“ sagði Chung í réttarsal er hann viðurkenndi brot sín og baðst vægðar. Innvígðir sögðu í gær að dómurinn yfir Chung myndi skaða hagsmuni Hyundai. Ljóst væri að þar til loka- dómur félli í máli hans myndi Chung enn koma að öllum stærri ákvörðun- um og fjárfestingum. Milljarðasjóður til að múta ráðamönnum Reuters Orðlaus Chung Mong-Koo, forstjóri Hyundai, neitaði að svara spurningum fréttamanna er dómur hafði verið kveðinn upp yfir honum. Chung Mong-Koo, forstjóri suður-kóreska risafyrirtækisins Hyundai, dæmdur í fangelsi fyrir fjárdrátt Í HNOTSKURN »Chung Mong-Koo, for-stjóri Hyundai, er 68 ára gamall. Faðir hans stofnaði fyrirtækið árið 1967. Það var í fyrstu eins konar útibú Ford í Asíu. Fyrsta frumhönnun fyr- irtækisins, sem nefndist Pony, rann af færibandinu árið 1975 og árið 1986 hófst útflutn- ingur til Bandaríkjanna. »Chung Mong-Koo hefurlagt áherslu á að bæta ímynd fyrirtækisins og náð góðum árangri. Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is VARAFORSETI Íraks, súnní-arab- inn Tariq Hashimi, sagði í gær að Bandaríkjamenn yrðu að hraða því að koma fyrir bandarísku herliði á mikilvægum stöðum í landinu til að hindra átök og hryðjuverkaárásir. Alls féllu yfir 130 manns í höfuðborg- inni Bagdad um helgina og minnst 47 manns í gær. Tony Fratto, talsmaður George W. Bush Bandaríkjaforseta, neitaði því í gær að tafir á fram- kvæmd áætlunar um aukið, banda- rískt herlið hefðu skapað betri að- stæður fyrir ofbeldismenn. „Ég held ekki að við höfum farið okkur of hægt,“ sagði Fratto. „Ég held að við séum á þeim hraða sem hægt er að ætlast til að við náum á þessu stigi málsins,“ sagði hann. „Þetta eru ekki vandamál sem hægt er að leysa á einni nóttu. Áætluninni er ætlað að stuðla að langvarandi ör- yggi í Bagdad og það mun taka ákveðinn tíma að koma öllum hlutum í sinn rétta farveg.“ Bush ákvað fyrir skömmu að senda um 21.000 manna lið í viðbót til Íraks til að aðstoða íraska herinn við að koma á lögum og reglu. Gagnrýn- endur Bandaríkjastjórnar hafa hald- ið því fram að þær tafir sem orðið hafi á því að hrinda áætlun Bush í fram- kvæmd hafi veitt liðsmönnum her- skárra samtaka Íraka svigrúm til að fara í felur áður en liðsstyrkur Bandaríkjahers í landinu verður auk- inn. Jafnframt hafi liðsmenn víga- sveita sjía-araba, sem haldið hafi uppi nokkru öryggiseftirliti sums staðar í hverfum sjíta í höfuðborg- inni, horfið á braut eða verið hraktir burt án þess að nokkuð hafi komið í staðinn. Stjórn Bush kynnir fjárlagatillögur Bush forseti kynnti í gær fjárlaga- tillögur sínar fyrir næsta fjárlagaár, þar á meðal tillögur um hversu miklu verði varið í hernað í Írak og Afgan- istan frá 1. október á þessu ári og fram til 1. október 2008. Er um að ræða 235 milljarða dollara aukalega vegna hernaðarins í löndunum tveim. Samkvæmt frumvarpinu verða heild- arútgjöld bandaríska alríkisins 2,9 billjónir dala, eða 2,9 milljónir millj- óna.Gert er ráð fyrir að spara 66 milljarða dala útgjöld til bandaríska heilbrigðistryggingakerfisins. Saka Bush um seinagang

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.