Morgunblaðið - 06.02.2007, Side 18

Morgunblaðið - 06.02.2007, Side 18
Japanska söngkonan Kumi Koda hlaut háls- men þegar henni voru veitt verðlaun fyrir að nota oft marga og fal- lega skartgripi á stærstu alþjóðlegu skartgripasýningunni sem haldin var 18. sinni í Tókýó í Japan nú fyrir skömmu. Reuters Glitrandi |þriðjudagur|6. 2. 2007| mbl.is daglegtlíf Matráðurinn í Klébergsskóla segir 95% nemenda borða í skólanum og þar er hollustan í fyrirrúmi. » 20 matur Það er ekki víst að allir myndu þora að skella sér í slökunar- nudd þar sem litríkir snákar sjá um nuddið. » 21 daglegt líf Skór eru ekki fylgihlutir heldur einkenni, segir Christian Lou- boutin sem er vinsæll skóhönn- uður um þessar mundir. » 20 tíska Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur join@mbl.is Það er mikið púlað og svitn-að og þetta tekur svosannarlega á öllum lík-amshlutum. Aðalatriðið finnst mér vera það að þessi hreyf- ing er svo svakalega skemmtileg, finnst okkur. Þetta eru einföld dansspor með leikfimiívafi og engin hætta er á að konur gefist upp á ræktinni og drepist úr leiðindum í þessu,“ segir Kolbrún Ýr Gunn- arsdóttir, sem býður upp á svokall- aða dansleikfimi fyrir konur á öll- um aldri yfir tvítugt í húsakynnum Hreyfilands við Stangarhyl tvisvar í viku. Kolbrún hannaði hreyfinguna og sporin eftir eigin höfði enda hefur dansinn verið stórt áhugamál hjá henni allt frá sex ára aldri. „Dans- leikfiminn er fyrir þær konur sem langar að breyta út af venjunni og dansa og gleyma sér í brennslunni í staðinn fyrir að fara í hefðbundna leikfimi eða tækjasal, sem sumum reynist erfitt að stunda reglulega, kannski vegna þess að það er bara ekki nógu skemmtilegt. Vill ekki unglinga-„fílinginn“ Dansleikfimin samanstendur af djassdansi, hip-hop, salsa, nútíma- dansi og eróbikksporum og svo notum við skemmtilega tónlist á borð við r’n’b, hip-hop, salsa og diskó. Ég byggi tímann þannig upp að við hitum upp í tuttugu mínútur, tökum styrktaræfingar í tíu til fimmtán mínútur, dönsum síðan á fullu í rúmar tuttugumínútur og teygjum svo vel í lokin. Ég er að reyna að hafa þetta skemmtilegt og einfalt fyrir fullorðnar konur og þess vegna miða ég við tuttugu ára aldurstakmark af því að ég vil ekki fá unglinga-„fílinginn“ inn í þessa tíma,“ segir Kolbrún Ýr, en hún sér nú einnig um mæðrafimina í Hreyfilandi. Sjálf á hún sjö og þriggja ára börn. Hún er menntaður fatahönn- uður og rekur verslunina KVK við Laugaveg þar sem hún selur eigin hönnun. Hannar föt á daginn „Fatnaðurinn minn er fallegur, sérstakur og þægilegur og hentar konum á öllum aldri. Ég er sem sagt sjálf að hanna föt á daginn og fæ svo útrás í dansinum á kvöldin. Þetta er mín líkamsrækt og mín uppskrift að góðri hreyfingu. Og sem betur fer „fíla“ aðrar konur þetta í botn með mér,“ segir Kol- brún Ýr að lokum. „Við leggjum fyrst og fremst áherslu á að vera fjölskyldu- og barnvæn enda höfum við hannað allt umhverfi okkar í samræmi við það," segir Krisztina G. Agueda, framkvæmdastjóri Hreyfilands, og á m.a. við litríka skápa, dýnur og dót auk þess sem hún bendir á skiptiaðstöðu fyrir ungbörnin og sér salerni fyrir þau börn sem eru orðin aðeins eldri. „Við bjóðum m.a. upp á leikfimi fyrir óléttar konur, nýbakaðar mæður og krílin þeirra auk þess sem boðið er upp á brjósta- gjafaráðgjöf vikulega." Enginn drepst úr leiðindum í dansleikfimi Morgunblaðið/Árni Sæberg Danskennarinn Kolbrún Ýr Gunnarsdóttir hefur dansað frá sex ára aldri og hefur nú hannað dansleikfimi, sem hún segir að engum geti leiðst í. Líkamsræktin Dansleikfimin felur í sér einföld dansspor með leikfimiívafi sem taka á öllum vöðvum líkamans. www.hreyfiland.is „ÞETTA er rosalega gaman og ég mæli með þessari hreyf- ingu fyrir konur sem eru orðn- ar hundleiðar á tækjum og eróbikki,“ segir Caroline Le- fort, sem byrjaði í dansleikfim- inni eftir áramót. Hún segist þó ekki hafa verið að koma í Hreyfiland í fyrsta skipti því hún hafi byrjað með son sinn í mæðrafiminni nýfæddan til að styrkja bæði sjálfa sig eftir barnsburðinn, örva soninn og síðast en ekki síst að vera í skemmtilegum félagsskap með öðrum mömmum og litlum krílum. „Ég ákvað að dans- leikfimin væri rökrétt fram- hald og alltaf má koma með börnin með því hér í Hreyf- ilandi er bæði fjölskylduvænt og barnvænt umhverfi.“ „Ég er mest í mæðrafiminni á morgnana með Huldu, átta mánaða dóttur mína, en fæ út- rás í dansleikfiminni á kvöldin ef eitthvað kemur upp á og ég kemst ekki í hreyfinguna á morgnana,“ segir Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir og bætir við að eldri dóttirin, Inga Vildís, mæti svo í sína tíma á laug- ardagsmorgnum. Mikil samhæfing „Dansleikfimin er mjög skemmtileg og svakalega styrkjandi. Í dansinum felst mikil samhæfing og þarf smá- æfingu til að ná almennilegum tökum á því að nota hendur og fætur samtímis. Það er svolítið flókið í fyrstu. Svo er gott að hafa 20 ára aldurstakmark svo að við konurnar þurfum ekki að hrista okkur innan um smá- stelpur.“ Konurnar þurfa ekki að hrista sig innan um smástelpur Styrkjandi Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir, sem hér heldur á dótturinni Ingu Vildísi, segir dansleikfimina skemmtilega. Gaman Caroline Lefort segir dansleikfimina hafa verið rök- rétt framhald á mömmuleikfiminni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.