Morgunblaðið - 06.02.2007, Side 31

Morgunblaðið - 06.02.2007, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 2007 31 Atvinnuauglýsingar Vélavörður Vélavörður óskast á dragnótabát sem gerður er út frá Sv-horninu. Upplýsingar í síma 843 4254 og 843 4205. Tískuvöruverslun Starfsmaður óskast í tískuvöruverslun í miðbæ Reykjavíkur í 60-70% stöðu og annan hvern laugardag. Umsóknir sendist á netfangið hob@xnet.is. Raðauglýsingar 569 1100 Nauðungarsala Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins í Hafnarstræti 107, Akureyri, sem hér segir á eftirfarandi eignum: Fagrasíða 5b, Akureyri, (214-6150), þingl. eig. Kristbjörg Jörgensdóttir og Björgvin Jónsson, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Akureyri, föstudaginn 9. febrúar 2007 kl. 10:00. Hafnarbraut 25, íb. 01-0101, Dalvíkurbyggð (215-4901), þingl. eig. Gísli Steinar Jóhannesson, gerðarbeiðendur Dalvíkurbyggð og Landsbanki Íslands hf., föstudaginn 9. febrúar 2007 kl. 10:00. Hafnarstræti 20, íb. 01-0301, (214-6872), Akureyri, þingl. eig. Inga Mirra Arnardóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, föstudaginn 9. febrúar 2007 kl. 10:00. Hjallalundur 17i, íb. 03-0402, Akureyri, (214-7488), þingl. eig. Sigur- björn Arnar Sigurgeirsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, föstu- daginn 9. febrúar 2007 kl. 10:00. Hvammur, Hrísey, Akureyri, (215-6376), þingl. eig. Kristján Ingimar Ragnarsson, gerðarbeiðendur Lundur rekstrarfélag og Samkaup hf., föstudaginn 9. febrúar 2007 kl. 10:00. Höfðahlíð 15, íb. 01-0201, Akureyri (214-8018), þingl. eig. Guðrún Þór- dís Þorláksdóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Lögheimtan ehf., föstudaginn 9. febrúar 2007 kl. 10:00. Jódísarstaðir, eignarhl. Eyjafjarðarsveit, (215-9019), þingl. eig. Val- gerður Lilja Daníelsdóttir, gerðarbeiðandi Vátryggingafélag Íslands hf., föstudaginn 9. febrúar 2007 kl. 10:00. Kjalarsíða 16f, 01-0206, Akureyri, (214-8281), þingl. eig. Enikö Reynis- son og Pétur Ingimar Reynisson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Sparisjóður Norðlendinga, föstudaginn 9. febrúar 2007 kl. 10:00. Klettaborg 28, íb. 08-0203, eignarhl. Akureyri, (227-5157), þingl. eig. Leó Magnússon, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Akureyri, föstu- daginn 9. febrúar 2007 kl. 10:00. Norðurtangi 5, iðnaður, 01-0106, Akureyri, (228-2025), þingl. eig. Gull- strönd ehf., gerðarbeiðandi Sjóvá-Almennar tryggingar hf., föstu- daginn 9. febrúar 2007 kl. 10:00. Tröllagil 9, íb. 09-0101, Akureyri, (215-1395), þingl. eig. Júlio Júlíus E. Soares Goto og Arlinda Rós Pereira Dias Goto, gerðarbeiðendur Akur- eyrarkaupstaður, Íbúðalánasjóður, Landsbanki Íslands hf. og Vátrygg- ingafélag Íslands hf., föstudaginn 9. febrúar 2007 kl. 10:00. Þingvallastræti 22, 01-0101, Akureyri, (215-1857), þingl. eig. Danielle Somers, gerðarbeiðendur Akureyrarkaupstaður og sýslumaðurinn á Akureyri, föstudaginn 9. febrúar 2007 kl. 10:00. Þingvallastræti 22, 01-0201, og bílskúr, 02-0101, Akureyri, (215-1858), þingl. eig. Danielle Somers, gerðarbeiðendur Akureyrarkaupstaður og sýslumaðurinn á Akureyri, föstudaginn 9. febrúar 2007 kl. 10:00. Sýslumaðurinn á Akureyri, 5. febrúar 2007. Eyþór Þorbergsson, ftr. Til sölu Tilboð óskast í sumarbústaðaland í Skorradal 14164 - Dynhvammur 1 í Skorradal Tilboð óskast í 3.414 fm sumarbústaðalóð í Skorradal (landnúmer 196-380). Landið er til sýnis í samráði við Ríkiskaup, Borg- artúni 7, 105 Reykjavík, í síma 530 1400. Tilboðsblöð liggja frammi á sama stað ásamt regl- um um frágang og útfyllingu á tilboðseyðublaði. Tilboð skulu berast Ríkiskaupum fyrir kl. 10.00 þann 20. febrúar 2007 þar sem þau verða opnuð í viðurvist bjóðenda er þess óska. Tilboð óskast í íbúðarhúsnæði á Eiðavöllum 4, Fljótsdalshéraði 14217 Einbýlishús á Eiðavöllum 4, Fljótsdalshéraði Um er að ræða einbýlishús á einni hæð. Stærð íbúðarhúsnæðisins samkv. FMR er talin vera 132,3 fm og stærð lóðar 1.305 fm, sem er leigulóð. Húsið er steinsteypt, byggt árið 1972. Brunabótamat húsnæðisins er kr. 19.950.000,- og fasteigna- og lóðamat er kr. 4.648.000,- . Húseignin er til sýnis í samráði við Eggert Sig- tryggsson í síma 899 3768 og Ríkiskaup, Borgar- túni 7, 105 Reykjavík í síma 530 1400. Tilboðseyðublöð liggja frammi á sama stað ásamt reglum um frágang og útfyllingu á tilboðseyðu- blaði. Tilboð skulu berast Ríkiskaupum fyrir kl. 10.00 þann 20. febrúar 2007 þar sem þau verða opnuð í viðurvist bjóðenda er þess óska. Tilkynningar Mat á umhverfisáhrifum Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmda Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að eftirtaldar framkvæmdir skuli ekki háðar mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum. nr. 106/2000 m.s.br. Sjókvíaeldi á laxi, allt að 1000 tonn á ári, fyrir utan Ystu-Vík í Grýtubakkahreppi, Eyjafirði. Lagning Norðfjarðarvegar um Hólmaháls, Fjarðabyggð. Ákvarðanirnar liggja frammi hjá Skipulags- stofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þær er einnig að finna á heimasíðu Skipulagsstofnu- nar: www.skipulag.is. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til um- hverfisráðherra og er kærufrestur til 7. mars 2007. Skipulagsstofnun. Félagslíf  HLÍN 6007020619 IV/V I.O.O.F. Rb.4156268-81/2 * HAMAR 6007020619 III FJÖLNIR 6007020619 II Félagsfundur í kvöld! VÚDÚ Félagsfundur Lífssýnar verður haldinn í Bolholti 4 (4. hæð) í kvöld, þriðjudaginn 6. febrúar. Jónas Sen verður með fyrirlest- ur um VÚDÚ. Kaffiveitingar. Aðgangseyrir 500 kr. Allir velkomnir. Stjórnin. EDDA 6007020619 III Fréttir á SMS FRÉTTIR OPINN hádegisfyrirlestur verður haldinn í fyrirlestrasal Öskju – Náttúrufræðahúsi HÍ í dag, þriðjudag, um nýja rannsókn á þætti kvótakerfisins í byggðaröskun. Annas Sig- mundsson, sem er að ljúka námi í stjórn- málafræði við HÍ, mun kynna niðurstöður úr BA-ritgerð sinni sem ber heitið Rann- sókn á byggðaþróun; þáttur kvótakerfisins í byggðaröskun á landsbyggðinni. Rannsókn Annas byggðist m.a. á spurn- ingakönnun, sem lögð var fyrir 1.000 brott- flutta Ísfirðinga á árunum 1990 til ársins 2004, þar sem brottfluttir voru m.a. spurðir um hversu stóran þátt kvótakerfið átti í brottflutningi þeirra. Að loknum fyrirlestr- inum munu sérstakir gestir fundarins, þau Einar Kristinn Guðfinnsson sjávarútvegs- ráðherra og Anna Kristín Gunnarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, ræða um niðurstöður ritgerðarinnar og um sína sýn á byggðaþróun síðustu áratuga. Fundurinn hefst um kl. 12 og lýkur um kl. 13.10. Þetta er fyrsti fundur Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála um áhuga- verðar rannsóknir í lokaritgerðum nem- enda við stjórnmálafræðiskor HÍ. Rætt um þátt kvótakerfisins í byggðaröskun Ekki fyrsta prjónakaffið ÞAU leiðu mistök urðu í grein um prjónakaffi í Iðu sem birtist í blaðinu síðastliðinn laugardag 3. febrúar, að fullyrt var að þar væri um fyrsta prjónakaffi á Íslandi að ræða. Þetta er ekki rétt, því sl. vor var opnað prjónakaffi í Hrísalundi á Akureyri og er það haldið tvisvar í viku. Beðist er velvirðingar á þessu. Röng mynd af vettvangi MISTÖK urðu við vinnslu fréttar sem birt- ist í Morgunblaðinu í gær, af umferðaróhappi sem átti sér stað á Miklubraut um helgina. Mynd sem fylgdi fréttinni var af vett- vangi annars óhapps á svipuðum slóðum þar sem ökumaður bifreið- ar, sem hafnaði á ljósa- staurum, er ekki grun- aður um ölvun við akstur. Hlutaðeigendur eru beðnir afsökunar. LEIÐRÉTT HEIMDALLUR hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem athugasemdir eru gerðar við að Ís- landspóstur hafi verið að fikra sig inn á svið sem ekki tengjast kjarnastarfsemi þess. Heim- dallur lýsir yfir áhyggjum af þessari þróun og vill að fyrirtækið verði frelsað úr viðjum hins opinbera við fyrsta tækifæri. Í ályktun Heimdallar segir að Íslandspóstur hafi fyrir stuttu keypt prentþjónustuna Sam- skipti og í janúar hafi fyrirtækið fest kaup á 17% hlut í vefmælingarfyrirtækinu Modernus. „Íslandspóstur er vel rekið hlutafélag í eigu rík- isins og sér Heimdallur ekkert því til fyrirstöðu að einkaaðilar sjái um rekstur sem þennan.“ Íslandspóstur verði frelsaður

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.