Morgunblaðið - 06.02.2007, Blaðsíða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Spádómar
Fæðubótarefni
Heilbrigði-hollusta-árangur!
Herbalife leggur grunninn.
Ráðgjöf og stuðningur alla leið.
Hanna hjúkrunarfræðingur.
S. 557 6181/897 4181.
www.internet.is/heilsa
Nudd
Guðjón og Valborg nuddarar
komnir til starfa!
Heilnudd, íþróttanudd, svæðanudd
og meðgöngunudd.
Snyrtistofan Hrund,
Grænatúni 1, Kópavogi.
Sími 554 4025.
Hljóðfæri
Glæsilegt. Þetta glæsilega píanó
bíður eftir því að komast á gott heim-
ili.) Samick SU 127. Verð 285.000.
Upplýsingar í síma 897 2927.
Húsgögn
3+2+1 koníaksbrúnt leðursófa-
sett. Glæsilegt, stílhreint og vel með
farið 3+2+1 koníaksbrúnt leðursófa-
sett. Upplýsingar í síma 867 1470.
Húsnæði í boði
Húsnæði í boði. Rúmgott ein-
staklingsherb. með hreinlætisað-
stöðu og litlu eldhúsi miðsvæðis í
borginni (105 Rvík). Langtímaleiga.
Reglusemi algjört skilyrði. Upplýs-
ingar í síma 551 5158 til kl. 20.00.
Sumarhús
Sumarhús — orlofshús
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratuga reynsla.
Höfum til sýnis á staðnum fullbúin
hús og einnig á hinum ýmsu bygging-
arstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Námskeið
www.listnám.is
Hannið og gerið sjálf skartgripi á
einfaldan hátt. Kennum í Reykjavík
og á landsbyggðinni. Pantið nám
fyrir ykkar heimabyggð. Ath. okkar
nemendur fá allt efni í heildsölu.
www.listnam.is. Upplýsingar í síma
699 1011 og 695 0495.
Til sölu
Rafstöðvar 5 - 150KW - Hátíðniraf-
suðutæki - Fjólhjól - Kerrur - Gáma-
vagnar - Rafalar - Túrbínur fyrir virkj-
anir 20-6400 kw. Uppl. á Haninn.is og
í s. 895 6662. Bíla og búvélaverk-
stæðið Holti v/Vegamót. Beinn inn-
flutningur, betra verð.
Þjónusta
Þægileg tölvuþjónusta. Komum
heim og gerum við tölvuna. Erum
með 10 ára reynslu og viðurkenndir
af Microsoft. Kvöld- og helgarvaktir.
Garðar 693 5370.
Hitaveitur/vatnsveitur
Þýskir rennslismælar fyrir heitt og
kalt vatn.
Boltís sf.,
s. 567 1130 og 893 6270.
Tangarhöfða 9
Sími 893 5400 • lms.is
Byggingavörur
www.vidur.is
Harðviður til húsbygginga. Vatns-
klæðning, panill, pallaefni, parket
o.fl. o.fl. Gæði á góðu verði.
Sjá nánar á vidur.is.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Ýmislegt
Víngerðarefni - Útsala. 30-50%
afsláttur. Verslunin flytur. 30-50%
afsláttur af öllu víngerðarefni. Allt
fyrsta flokks vínþrúgur. 7-16 lítra.
Víngerðin Bíldshöfða 14, s. 564
2100 /895 6336.
Tilboð
Dömu kuldastígvél með hlýju fóðri
Verð aðeins: 2.500.-
Misty skór, Laugavegi 178,
sími 551 2070.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf
Nýkominn, mjög flottur, mjalla-
hvítur í BC skálum á kr. 2.350, buxur í
stíl kr. 1.250.
Nýkominn aftur þessi tæri blái
litur í BCD skálum á 2.350 kr., buxur í
stíl á 1.250 kr.
Slétt skál mildur litur, passa undir
allt! í BC skálum á 2.350 kr., buxur í
stíl 1.250 kr.
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf
www.misty.is
Mjög góðir leður kuldaskór fyrir
dömur og herra í úrvali. Gæruskinns-
fóðraðir, með innleggi og höggdeyfi.
Verð: 6.500, 8.950.-, 9.500.-, 10.500.-
og 12.500.-
Misty skór, Laugavegi 178,
sími 551 2070.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf
Bílar
Toyota Previa. Til sölu Toyota Previa
árg. 2001, ekinn 69 þús. km. Dráttar-
kúla, litað gler, bakkskynjari o.fl. Verð
1.690.000. Uppl. 554 2004/862 6338.
TOYOTA LAND CRUISER
120 GX. Árgerð 2005, ekinn
49 þ.km, Dísel, Sjálfskiptur.
lán 4.290.þús. TILBOÐ,
FÆST Á 180.þús út og yfir-
taka Rnr.122865
hofdabilar.is
Höfðabílar, Fosshálsi 27
S. 577 4747.
Þjónustuauglýsingar 5691100
Spenna að venju
hjá Bridsfélagi Akureyrar
Nú stendur yfir Akureyrarmótið í
sveitakeppni og aðeins eru tveir leik-
ir eftir af tíu. Þátt taka 8 sveitir og
fyrst spiluðu allir við alla en þá var
skipt í A og B úrslit eftir stöðu þar
sem 4 sveitir spila innbyrðis 3 leiki.
Sveitir taka aðeins með sér helm-
ing stiga sinna inn í úrslitin en það er
gert svo að síðustu 3 leikirnir hafi
meira vægi. Aldrei hefur baráttan
um Akureyrarmeistaratitilinn verið
jafn hörð. Staðan eftir fyrsta leik
A-úrslitanna er:
Gylfi Pálsson 78
Sparisjóður Norðlendinga 78
Stefán Vilhjálmsson 77
Una Sveinsdóttir 70
B-úrslit:
Stefán Sveinbjörnsson 76
Gissur Jónasson 59
Sigfús Aðalsteinsson 56
Lokastaðan sunnudaginn 14. jan.:
Reynir Helgason - Frímann Stefánsson 23
Gissur Gissurarson - Gissur Jónasson 12
Stefán Sveinbjss - Ragnheiður Haraldsd. 6
Og sunnudaginn 28. jan:
Reynir Helgason - Frímann Stefánsson 13
Sveinbj.Sigurðsson - Sigurður Marteinss. 6
Björn Þorlákss. - Sigurður Erlingsson 4
Að lokum minnum við á 4 kvölda
bridgenámskeið sem á að hefjast í
febrúar á vegum B.A. og Símey.
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Föstudaginn 2. feb. var spilað á 13
borðum. Meðalskor var 312.
Úrslit í N/S
Sæmundur Björnss. – Albert Þorsteinss. 406
Ragnar Björnss. – Gísli Víglundsson 385
Rafn Kristjánss. – Oliver Kristóferss. 383
A/V
Sigurður Herlufs. – Steinmóður Einars. 380
Magnús Oddsson – Magnús Halldórsson 357
Kristján Þorlákss. – Jón Sævaldsson 351
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
ARMENÍA varð ólympíumeistari
í opnum flokki sl. júní á ólympíu-
mótinu sem haldið var á Ítalíu. Frá-
bær frammistaða stigahæstu ar-
mensku stórmeistaranna, Levons
Aronjans (2.743) og Vladimirs
Akopjans (2.700), á ólympíumótinu
lagði grunninn að þessum fyrsta
meistaratitli Armena. Báðir þessir
meistarar urðu efstir á afar öflugum
mótum sem lauk fyrir skömmu. Ar-
onjan varð efstur í A-flokki Corus-
skákhátíðarinnar ásamt Azeranum
Radjabov (2.729) og Búlgaranum
Topalov (2.783) en Akopjan varð
einn efstur á Gibtelecom-mótinu sem
lauk fyrir skömmu í Gíbraltar. Í ljósi
framangreinds er ekki úr vegi að
rekja nokkra snilldartakta þeirra fé-
laga á þessum mótum.
Aronjan tefldi afar traust á Corus-
ofurmótinu í Wijk aan Zee í Hol-
landi. Hann gerði níu jafntefli og
vann fjórar skákir. Af þeim þremur
sem urðu efstir var hann með flest
mótsstigin. Í lokaumferðinni hafði
hann hvítt gegn heimamanninum
Sergei Tivjakov (2.667) og eftir 22.
leik svarts kom eftirfarandi staða
upp:
Sjá stöðumynd 1.
Svartur hafði þegið peð í byrjun
tafls en í staðinn sat liðskipan hans
eftir. Í síðasta leik drap hann aftur
peð en nú á e5 með riddara sem stóð
á d7. Armeninn svaraði því með að
leika 23. De3!
Nú hefði svartur átt að halda
áfram með að leika 23. … Bc5 24.
Bxh7+ Kxh7 25. De4+ Kg8 26. Rxe5
og standa aðeins verr að vígi en þess
í stað kaus hann að fórna hrók eftir
23. … Rg4? Framhaldið varð þá:
24. Dxa7 Dxh5 25. Kg2 Bc5 26.
Dxa5 Dh2+ 27. Kf3 Bxf2
Hvítur hefði nú getað gert út um
skákina með að leika 28. Bxh7+! þar
sem bæði eftir 28. … Dxh7 29. Kxg4
og 28. … Kxh7 29. Hh1 hefur hvítur
léttunnið tafl. Hvítur lék þess í stað
28. Hd8 og vann eftir nokkurn barn-
ing: 28. … Dxg3+ 29. Ke2 Bc5 30.
Hxf8+ Bxf8 31. Da7 Dh2+ 32. Kd1
f6 33. Dd7 Rf2+ 34. Ke1 Rxe4 35.
Dxe6+ Kh8 36. Dxe4 Dxa2 37. De8
Kg8 38. Hf3 Db1+ 39. Kf2 c5 40.
De6+ Kh8 41. Re5 h6 42. Rd7 Dc2+
43. De2 og svartur gafst upp.
Félagi og landi Aronjans, Akopj-
an, hóf mótið í Gíbraltar með tapi
gegn bandarísku skákkonunni Irinu
Krush (2.449). Eftir það vann hann
hverja skákina á fætur annarri og
leyfði eingöngu fyrrverandi heims-
meistara kvenna, Zhu Chen (2.518),
að gera jafntefli við sig. Aðrir and-
stæðingar, sem allir voru karlkyns,
lutu í lægra haldi fyrir Armenanum
sterka. Af þeim fjórtán skákmönn-
um öðrum sem voru með fleiri stig
en 2.600 á mótinu tefldi Akopjan ein-
göngu við Íslandsvininn Ivan Soko-
lov (2.652). Sumir sigrar Akopjans
voru snaggaralegir eins og sá gegn
bandaríska alþjóðlega meistaranum
Dean Ippolito (2.397) en eftir 23. leik
Bandaríkjamannsins, Ke8-Kf7, kom
eftirfarandi staða upp:
Svartur hótar í senn biskupnum á
f6 og peðinu á g2. Við þessu var ein-
föld lausn eins og Akopjan sýndi
fram á: 24. Be4!
Snjallt línurof. Svartur stæði uppi
með tapað tafl eftir 24. … fxe4 25.
Dxh7+ og ekki var staða hans mikið
fýsilegri í framhaldinu:
24. … Dxf6 25. Hxf5 Bxe4 26.
Hxf6+ Kxf6 27. Dh4+! Kf5 28.
Dxh7+ Hg6 29. He1!
Hvítur hefur nú léttunnið tafl.
29. … Hd8 30. Dh5+ Hg5 31.
Df7+ og svartur gafst upp enda fátt
til varnar.
Það verður áhugavert að fylgjast
með gengi þessara tveggja Armena í
framtíðinni en þó sérstaklega Aronj-
ans. Hann er eingöngu 24 ára og er
7. stigahæsti skákmaður heims.
Hann hefur tekið þátt í mörgum af
öflugustu skákmótum heims á und-
anförnum misserum og náð afar góð-
um árangri. Þessir tveir ásamt fjölda
annarra sterkra armenskra stór-
meistara eru líklegir til þess að halda
merki lands síns lengi á lofti í skák-
listinni.
Meistaramót Taflfélagsins
Hellis er hafið
Eitt fjölsóttasta skákmót hvers
árs, Meistaramót Taflfélagsins
Hellis, hófst í gær, mánudaginn 5.
febrúar, í félagsheimilinu í Mjódd.
Um sjö umferða kappskákmót er að
ræða þar sem vegleg og fjölbreytt
verðlaun eru í boði. Enn geta allir
tekið þátt í því en teflt verður á
mánu-, miðviku- og föstudögum.
Reyndar verður gert hlé á mótinu
vikuna 14.–21. febrúar næstkomandi
vegna Norðurlandamótsins í skóla-
skák. Umferðirnar hefjast kl. 19.00
en nánari upplýsingar um mótið er
að finna á heimasíðu félagsins,
www.hellir.com.
Armenar í stuði
Helgi Áss Grétarsson
SKÁK
Armenskir ofurstórmeistarar
CORUS-SKÁKHÁTÍÐIN OG GIBTELECOM-
MÓTIÐ
Janúar 2007
daggi@internet.is
Stöðumynd 1.