Morgunblaðið - 06.02.2007, Síða 33
|þriðjudagur|6. 2. 2007| mbl.is
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
BORGARLEIKHÚSIÐ í Vasa í
Finnlandi setur upp barnaleikritið
Bláa hnöttinn eftir Andra Snæ
Magnason á stóra sviði hússins vor-
ið 2009. Leikstjóri þess verður
Stefán Sturla Sigurjónsson og í
tengslum við frumsýningu verksins
verður haldin íslensk menning-
arvika í Vasa á sama tíma.
„Ég og Petra Högnäs konan mín
fluttum til Vasa í fyrrasumar en
hún er sænskumælandi Finni. Sem
leikhúsmaður byrjaði ég að skoða
hvað væri á döfinni í leikhúsunum
hérna og kynna mig. Ég heimsótti
leikhússtjórann í borgarleikhúsinu
en hann er mikill áhugamaður um
Ísland. Blái hnötturinn verður síð-
asta sýningin sem hann stendur að
í leikhúsinu, hann er að hætta og
vill ljúka sínum ferli á annarri ís-
lenskri menningarviku. Árið 1992
var borgarleikhúsið opnað aftur
eftir nokkurra ára enduruppbygg-
ingu með íslenskri menningarviku.
Þá var leikhópurinn Bandamenn,
sem ég er meðlimur í, fenginn til að
koma þarna út ásamt Vigdísi Finn-
bogadóttur til að opna leikhúsið,“
segir Stefán.
Vigdís heiðursgestur
Það er leikhúsið í samvinnu við
Pohjola-Norden sem stendur að
komandi menningarviku og hefur
Vigdís Finnbogadóttir samþykkt að
endurtaka leikinn og vera heið-
ursgestur og verndari menning-
arvikunnar í Vasa í apríl 2009.
„Við erum að byrja að skipu-
leggja vikuna með því að fá liðsinni
menningarstofnana og atvinnulífs-
ins. Hafþór Ingvarsson hjá Lista-
safni Reykjavíkur verður tengiliður
fyrir myndlistina og Guðni Franz-
son við klassísku tónlistina, það er
mjög líklegt að Caput hópurinn
komi og flytji verk, jafnvel í sam-
vinnu við Sinfóníuna í Vasa.
Vignir Jóhannsson mun sjá um
leikmynd og búninga í Bláa hnett-
inum og verður líka með stóra
myndlistarsýningu á menning-
arvikunni,“ segir Stefán en bætir
við að allt eigi eftir að koma betur í
ljós þegar nær dregur.
Barnaleikrit og bók
Uppsetning Bláa hnattarins í
Vasa yrði ekki sú fyrsta í Finnlandi
því nú standa yfir sýningar á verk-
inu í stóru leikhúsi rétt fyrir utan
Helsinki. Finnska er fimmta tungu-
málið sem Blái hnötturinn er sett
upp á og að sögn Stefáns er hann
nú í samskiptum við leikhús í Sví-
þjóð sem hefur líka mikinn áhuga á
að setja verkið upp.
Stefán hefur kynnt íslensku leik-
verkin Bláa hnöttinn og Græna
landið eftir Ólaf Hauk Símonarson í
leikhúsum í Finnlandi og hefur
honum verið boðið að leikstýra vor-
ið 2008 við Vasa Teater sem er
sænskumælandi leikhúsið í Vasa og
er verið að skoða uppsetningu á
Græna landinu.
„Þau í sænska leikhúsinu
hringdu í mig og spurðu hvort ég
væri til í að setja upp verk, helst ís-
lenskt. Mér finnst Græna landið
eitt besta leikrit sem skrifað hefur
verið á íslenskri tungu og nú er
verið að skoða hvort það verði tekið
upp.“
Það er nóg að gera hjá Stefáni en
þar með er ekki allt upptalið því
næstkomandi haust mun leikfélagið
á Sauðárkróki frumsýna nýtt leik-
rit eftir hann.
„Þetta er ævintýraverk fyrir
börn. Bókaforlagið Fjölvi komst
svo yfir leikverkið og vildi gefa það
út sem bók, þannig að það kemur
út barnabók eftir mig í haust í sam-
floti við leikritið,“ segir Stefán sem
sendi frá sér barnabókina Trjálfur
og Mimmli árið 2000.
„Ég hef dálítið helgað ævistarfið
börnum enda er það ákaflega
þroskandi og gefur manni eilífa
æsku,“ segir hann að lokum.
Íslensk menningarvika í Finnlandi
Morgunblaðið/Ásdís
Vinsælt Blái hnötturinn verður settur upp í annað sinn í Finnlandi leikárið 2008-2009 við borgarleikhúsið í Vasa.
Stefán Sturla Sigurjónsson leikstýrir
Bláa hnettinum í Vasa vorið 2009
Frömuður Stefán Sturla Sigur-
jónsson leikari og leikstjóri.
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
ÆFINGAR fyrir söngleikinn Leg
sem frumsýndur verður í Þjóðleik-
húsinu þann 8. mars hófust nú eft-
ir áramót, en verkið er eftir Hug-
leik Dagsson og í leikstjórn
Stefáns Jónssonar. Verkið verður
forsýnt fyrstu þrjá daga marsmán-
aðar og þeim sem kaupa miða á
þær sýningar býðst að sækja sér-
stakt námskeið um verkið. „Grunn-
hugsunin varðandi þetta námskeið
er að fara í pælingaferlið þannig
að þeir sem koma geta fengið
nasasjón af því hvernig listrænir
stjórnendur sýningarinnar eru að
hugsa, og hvað þeir vilja fá fram
með sýningunni,“ segir Vigdís Jak-
obsdóttir, verkefnastjóri fræðslu-
starfs Þjóðleikhússins, en alls er
um þrjú kvöld að ræða. „Fyrsta
kvöldið [í kvöld] koma Hugleikur
og Stefán til með að setja þátttak-
endur inn í verkið, því það þekkir
það náttúrulega enginn, þetta er
ný saga og nýjar persónur. Þetta
verður myndskreytt kynning á
persónum verksins og söguþræði
þess,“ segir Vigdís, og bætir því
við að persónurnar í sýningunni
séu með sérstakar MySpace síður
sem leikararnir halda úti. „Þetta
er hluti af persónusköpun og vinnu
leikaranna, því svo eiga þeir í sam-
skiptum við almenning og fólk get-
ur skrifað inn færslur og fleira.“
Tæknilega krefjandi
Vigdís segir að tæknilega séð sé
um að ræða eina erfiðustu sýningu
Þjóðleikhússins frá upphafi.
„Þetta er náttúrulega söngleikur
með öllu sem honum tilheyrir. Það
er danshöfundur og hljómsveit og
svo er fullt af myndbands-
upptökum sem þarf að gera fyr-
irfram, auk þess sem það eru bein-
ar útsendingar í sýningunni annars
staðar úr húsinu. Svo er leik-
myndin líka mjög tæknileg,“ segir
hún.
Eins og áður segir eru forsýn-
ingar 1., 2. og 3. mars, en nám-
skeiðið fer fram í kvöld, 6. febrúar,
og svo 13. febrúar og 13. mars.
Síðasta kvöldið er því eftir frum-
sýningu og er þá gert ráð fyrir al-
mennum umræðum um sýninguna.
Miðaverð á forsýningu og nám-
skeiðið er 1.500 krónur.
Námskeið um söngleikinn Leg haldið í Þjóðleikhúsinu
Leg Leikarar og aðrir aðstandendur sýningarinnar á fyrsta samlestri.
www.leikhusid.is
www.myspace.com/hugleikur
staðurstund
Jón B.K. Ransu fjallar meðal
annars um endurgerðir laga,
hugmynda og kvikmynda í
listapistli dagsins. » 35
af listum
Þorgeir Tryggvason fjallar um
leiksýninguna 50 Ways To
Leave Your Lover sem sýnd er
í Austurbæ. » 35
leiklist
Einungis helmingur Smashing
Pumpkins vill taka þátt í end-
urkomu sveitarinnar en Wham!
ætla að taka saman á ný. » 40
fólk
Gamanmyndin Night at the Mu-
seum er enn mest sótta kvik-
myndin í íslenskum bíóhúsum,
þriðju vikuna í röð. » 34
bíó
Einn skemmtilegasti óperu-
söngvari sem við eigum er án
efa Bjarni Thor Kristinsson
bassi, segir Jónas Sen. » 41
dómur