Morgunblaðið - 06.02.2007, Page 36

Morgunblaðið - 06.02.2007, Page 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ menning Kalvin & Hobbes SOLLA, Á ÉG AÐ SEGJA ÞÉR LEYNDARMÁL? JÁ! ÉG HELD AÐ SKÓLA- STJÓRINN SÉ NJÓSNARI FRÁ ANNARI PLÁNETU HANN ÆTLAR AÐ HEILAÞVO OKKUR SVO VIÐ SÝNUM ENGAN MÓTÞRÓA ÞEGAR GEIMVERURNAR GERA ÁRÁS Á JÖRÐINA LOFARÐU AÐ SEGJA ENGUM FRÁ ÞESSU? EKKI HAFA ÁHYGGJUR Kalvin & Hobbes HOBBES, HVAÐ RÁÐLEGGUR ÞÚ MÉR AÐ GERA NÆST ÞEGAR MUMMI ÆTLAR AÐ LEMJA MIG Í LEIKFIMI? VEISTU HVAÐ VIÐ TÍGRISDÝRIN GERUM ÞEGAR NASHYRNINGUR RÆÐST Á OKKUR? HVAÐ GERIÐI? VIÐ HLAUPUM EINS OG VITLEYSINGAR UPP Í NÆSTA TRÉ ERU ÞETTA ÞÍN RÁÐ?!? AÐ SITJA UPPI Í TRÉ Í HEILAN DAG!! ÞAÐ HEILLAR EKKI STELP- URNAR. EN ÞAÐ GAGNAST MANNI LÍTIÐ AÐ HEILLA STELPURNAR OG DEYJA SÍÐAN Kalvin & Hobbes HOBBES, ERTU NOKKUÐ TIL Í AÐ GERA MÉR GREIÐA? ERTU TIL Í AÐ MÆTA NIÐUR Í SKÓLA OG ÉTA MUMMA?! VILTU AÐ ÉG ÉTI HANN? TÍGRISDÝR ERU ALLTAF AÐ ÉTA FÓLK EN HVAÐ EF KONURNAR Í MÖTUNEYTINU LEYFA MÉR EKKI AÐ NOTA OFNINN Litli Svalur © DUPUIS EEE... HÆ! MÁ ÉG HRINGJA? JÁ! FYRIR EINUNGIS EINA KRÓNU HMM... DRÍNG DRÍNG HALLÓ NÍNA?! GOTT AÐ ÉG NÁÐI Í ÞIG. MIG LANGAÐI SVO MIKIÐ TIL AÐ TALA VIÐ ÞIG. ÞAÐ ER MIKLU EINFALDARA Í GEGNUM SÍMANN SVALUR! EN ÓVÆNT! MÉR DATT Í HUG AÐ VIÐ GÆTUM HIST Á MORGUN VIÐ HEYBAGGANA VÁ! EN RÓMANTÍSKT! ÉG ER TIL Í ÞAÐ! FRÁBÆRT! ÖÖ...BLESS NÍNA ÖÖÖ... ÞÚ ÁTT AÐ LEGGJA Á JÁ, BLESS BLESS NEI ÞÚ ALLT Í LAGI NEI, ÞÚ FYRST EINN TVEI.. SÉ ÞIG BLESS ÞRÍR ÖÖÖ... HVAÐ KOSTAR AÐ HRINGJA? ÞAÐ FER EFTIR ÝMSU... BORGIÐ ÞÉRMEÐ ÁVÍSUN EÐA KORTI? SÍMI SÍMI SÍMI Lagadeild Háskóla Íslandsefnir til málstofu næst-komandi miðvikudag, 7.febrúar. Málstofan ber yf- irskriftina Eiga stjórnmálaflokkar að vera ríkisreknir?, en þar munu Gunn- ar Helgi Kristinsson, prófessor við félagsvísindadeild HÍ, og Borgar Þór Einarsson, lögfræðingur og formað- ur SUS – sambands ungra sjálfstæð- ismanna, ræða stöðu og hlutverk stjórnmálaflokka í lýðræðisskipulagi og rökin að baki nýrri lagasetningu um fjármál þeirra. Málstofan er haldin í stofu 101 í Lögbergi frá kl. 12.15 til 13.30. „Skömmu fyrir jól voru samþykkt á Alþingi lög þar sem settar voru strangar skorður við stuðningi ein- staklinga og lögaðila við stjórn- málaflokka, en með lögunum eru stjórnmálaflokkar nær eingöngu fjármagnaðir af ríkisvaldinu,“ út- skýrir Borgar Þór. „Af öllum þeim málum sem SUS lætur sig varða telj- um við þetta vera eitt það mikilvæg- asta, og varða sjálft lýðræðið og inn- tak þess.“ Borgar Þór segir margvísleg rök mæla gegn því fyrirkomulagi sem komið var á með lögunum: „Höf- undum laganna hefur gengið það til að koma í veg fyrir að stjórn- málaflokkar yrðu ofurseldir áhrifum fjármagnsins,“ segir Borgar Þór. „SUS telur hins vegar að með nýju lögunum missi stjórnmálaflokkarnir nauðsynlegt aðhald sem þeim er veitt ef þeir eru háðir framlögum kjósend- anna sjálfra.“ „Þótt stöðugleiki sé af hinu góða er það álit SUS að mikilvægt sé fyrir eðlilega lýðræðislega þróun að fyrir hendi sé möguleikinn á stöðugum breytingum,“ bætir Borgar Þór við. „Með því ríkisstyrkjakerfi sem lögin kveða á um er í raun verið að festa í sessi núverandi stjórnmálaflokka. Nýjar stjórnmálahreyfingar sem kynnu að koma fram á sjónarsviðið munu eiga erfitt uppdráttar í þessu kerfi, og það sem verra er; núverandi stjórnmálaflokkar missa nauðsynlegt aðhald til að endurnýja sig stöðugt.“ En hvernig koma lögin í veg fyrir innri endurnýjun flokkanna? „Lögin setja skorður við kostnaði við próf- kjör og stuðningi við einstaka próf- kjörsframbjóðendur. Það hefur í för með sér að ef nýtt fólk hyggst hasla sér völl og velta úr sessi sitjandi þingmönnum eða öðrum framjóð- endum standa þeir alltaf mun betur að vígi sem fyrir sitja þegar kemur að kynningu og aðgangi að sviðsljós- inu,“ útskýrir Borgar Þór og nefnir dæmi um aðrar lausnir á því vanda- máli sem lögin kljást við: „Lög sem kvæðu á um upplýsingaskyldu um helstu fjármál stjórnmálaflokkanna myndu gera sama gagn, án þess að setja stjórnarskrárbundnum rétt- indum einstaklinga svo miklar skorð- ur.“ Að loknum erindum Borgars Þórs og Gunnars Helga verða fyrirspurnir og umræður. Fundurinn er öllum op- inn og aðgangur ókeypis, en mál- stofan er haldin í tengslum við nám- skeið í stjórnskipunarrétti við lagadeild. Fundarstjóri er Björg Thorarensen, prófessor við lagadeild. Nánari upplýsingar má finna á www.lagadeild.hi.is. Lögfræði | Málþing lagadeildar HÍ um fjár- mögnun og fjármál stjórnmálaflokka á Íslandi Ríkisreknir stjórn- málaflokkar?  Borgar Þór Einarsson fædd- ist á Akranesi 1975. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1995, emb- ættisprófi í lög- fræði frá laga- deild Háskóla Íslands 2004 og hlaut hdl.-réttindi 2006. Borgar Þór var blaðamaður á Morgunblaðinu frá 1997–2000, aðstoðarmaður menntamálaráðherra 2003–2004 og starfaði á Lex lögmannsstofu 2004– 2005. Hann hefur starfað á lög- fræðisviði Landsbankans frá 2005 og verið formaður SUS – sambands ungra sjálfstæðismanna. SÓLIN séð í gegnum útblástur orkuvers í útjaðri Sjanghæ. Kínverjar segjast nú vera að undirbúa áætlun sem muni taka á loftslagsbreytingum en líklegt þykir að sú áætlun muni hafa áhrif á hraðan vöxt efnahagsins í landinu. Reuters Sól sortnar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.