Morgunblaðið - 06.02.2007, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 2007 39
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10:30
-bara lúxus
Sími 553 2075
www.laugarasbio.is
KVIKMYND EFTIR BALTASAR KORMÁK
eee
Ó.H.T RÁS 2
eeee
-ROKKLAND Á RÁS2
eeeee
BAGGALÚTUR.IS
* Gildir á allar sýningar
í Regnboganum merktar
með rauðu
450 KR.
Í BÍÓ
*
Sími - 551 9000
Rocky Balboa kl. 5.40, 8 og 10.20 B.i. 12 ára
Little Children kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 14 ára
Night at the Museum kl. 5.40
Litle Miss Sunshine kl. 5.50, 8 og 10.10 B.i. 7 ára
Köld Slóð kl. 8 B.i. 12 ára
Mýrin kl. 10.20 B.i. 12 ára
- Verslaðu miða á netinu
ÓSKARSTILNEFNINGAR3
eeee
SVALI Á FM 957
eeee
L.I.B. - TOPP5.IS
eeee
DÓRI DNA - DV
eeee
AFB, BLAÐIÐ
eee
SV, MBL
Sýnd kl. 5.45
eee
S.V. - MBL
eee
V.J.V. - TOP5.IS
8TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
Golden Globe
VERÐLAUN
m.a. besta myndin3
ATH: EKKERT HLÉ Á MYNDUM GRÆNA LJÓSSINS
ÓSKARSTILNEFNINGAR
m.a. sem besta mynd ársins4
eeee
MHG - FRÉTTABLAÐIÐ
eeee
H.J. - MBL
eeee
LIB - TOPP5.IS
Sýnd kl. 8 og 10:30 B.I. 14 ára
eeee
DÓRI DNA - DV
eeee
AFB, BLAÐIÐ
eee
SV, MBL
eeee
SVALI Á FM 957
eeee
L.I.B. - TOPP5.IS
Sýnd kl. 10:30 B.I. 16
ÓSKARSTILNEFNINGAR3
EDDIE
MURPHY
BEYONCÉ
KNOWLES
JAMIE
FOXX
20% AFSLÁTTUR
EF GREITT ER MEÐ
SPRON-KORTI
DÖJ, KVIKMYNDIR.COM
eeee
LIB, TOPP5.IS
Sýnd kl. 6 Ísl. tal
450 KR
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Morgunsöngur
kl. 9. Fermingarfræðsla kl. 16 (hóp-
ur 2).
Árbæjarkirkja | Foreldramorgnar
kl. 10-12. Kaffi, spjall, fræðsla,
helgistund.
Áskirkja | Kl. 10 föndur með kerti
og íkona. Kl. 12 hádegisbæn í
umsjá sóknarprests. Súpa og brauð
á eftir. Kl. 14 brids eða vist. Allir
velkomnir.
Digraneskirkja | Leikfimi ÍAK kl.
11.15. Kirkjustarf aldraðra kl. 12.
Léttur málsverður. Helgistund í
umsjá Valgerðar Gísladóttir, kaffi
og bingó. Starf KFUM&KFUK 10-12
ára kl. 17. Opið frá 16.30. Æsku-
lýðsstarf Meme fyrir 14-15 ára kl.
19.30-21.30. www.digraneskirkja.is
Fríkirkjan í Hafnarfirði | Aðal-
fundur Fríkirkjunnar í Hafnarfirði,
verður haldinn, þriðjudaginn 6.
febrúar, í safnaðarheimilinu v/ Lin-
netstíg 6, Hafnarfirði.
Fríkirkjan í Reykjavík | Laufásvegi
13. Kl. 12 bænastund í Kapellu í
Safnaðarheimilisins. Allir velkomnir.
Fyrirbænum má koma með net-
pósti á netfangið: fyrirbaen-
ir@hotmail.com.
Fríkirkjan Kefas | Í kvöld verður
brauðsbrotning kl. 20.30. Að henni
lokinni verður almenn bænastund
og eru allir velkomnir.
Garðasókn | Opið hús í Kirkjuhvoli,
Vídalínskirkju á þriðjudögum kl. 13
til 16. Við púttum, spilum lomber,
vist og bridge. Röbbum saman og
njótum þess að eiga samfélag við
aðra. Kaffi og meðlæti kl. 14.30.
Helgistund í kirkjunni kl. 16. Akstur
fyrir þá sem vilja, upplýsingar í
síma 895 0169. Allir velkomnir.
Grafarholtssókn | Unglingastarf
KFUM & KFUK í Ingunnarskóla kl.
17-18.30. Allir í 7.-10. bekk vel-
komnir. Umsjón María og Þorgeir.
Grafarvogskirkja | Þorragleði eldri
borgara í dag kl. 12. Geir H. Haarde
flytur ræðu á léttum nótum. Þor-
valdur Halldórsson spilar og syng-
ur. Að lokum verður stiginn dans.
TTT fyrir börn 10-12 ára í Engja-
skóla, kl. 17-18 TTT fyrir börn 10-12
ára í Borgaskóla, kl. 17-18.
Grensáskirkja | Á þriðjudögum kl.
12 er kyrrðarstund. Góð stund til
að staldra við í amstri dagsins. Í
safnaðarheimili er seldur matur
gegn vægu gjaldi eftir stundina.
Allir velkomnir.
Alla þriðjudaga kl. 17-18 eru 10-12
ára stelpur velkomnar í Grens-
áskirkju til starfa með KFUK.
Hallgrímskirkja | Fyrirbænaguðs-
þjónusta alla þriðjudaga kl. 10.30.
Beðið fyrir sjúkum.
Starf fyrir eldri borgara alla þriðju-
daga og föstudaga kl. 11-14. Leik-
fimi, súpa, kaffi og spjall.
Háteigskirkja - starf eldri borgara
| Á morgun er stund í kirkjunni kl.
11. Súpa og brauð kl. 12. Brids kl.
13. Kaffi kl. 15. Allir velkomnir.
Hjallakirkja | Prédikunarklúbbur
presta er á þriðjudögum kl. 9.15-11 í
umsjá sr. Sigurjóns Árna Eyjólfs-
sonar, héraðsprests.
Bæna- og kyrrðarstund þriðjudaga
kl. 18.
KFUM og KFUK | Holtavegi 28.
Fundur í AD KFUK þriðjudaginn 6.
febrúar kl. 20. „Hirðir í ríki Krists.“
Sr. Frank M. Halldórsson fjallar um
Hirðisbréfin í Nýja testamentinu.
Kaffi eftir fund. Allar konur eru vel-
komnar.
Fundur í AD KFUM fimmtudaginn
8. febrúar kl. 20. „Vinaleið þjóð-
kirkjunnar.“ Efni og hugleiðing: Sr.
Hans Guðberg Alfreðsson. Kaffi
eftir fund. Allir karlmenn eru vel-
komnir.
Kristniboðssalurinn | Háaleit-
isbraut 58-60. Samkoma miðviku-
daginn 7. febrúar kl. 20. „Af náð
eruð þér hólpnir orðnir.“ Birna G.
Jónsdóttir talar. Fréttir af starfinu í
Addis Abeba: Bjarni Gíslason. Kaffi.
Allir eru velkomnir.
Langholtskirkja | Opið hús fyrir
foreldra ungra barna kl. 10-12.
Spjall, fræðsla, kaffisopi, söngur
fyrir börnin. Umsjón hefur Lóa
Maja Stefánsdóttir, sjúkraliði og
móðir. Verið velkomin. Upplýsingar
í síma 520 1300.
Aðalfundur Kvenfélags Langholts-
sóknar í kvöld, þriðjudag, kl. 20.
Matur í boði sóknarnefndar. Venju-
leg aðalfundarstörf. Mætum vel.
Laugarneskirkja | Kvöldsöngur kl.
20, Þorvaldur Halldórsson og
Gunnar Gunnarsson leiða. Sig-
urbjörn Þorkelsson segir nokkur
orð og hefur bæn. Allir velkomnir.
Kl. 20.30 að loknum kvöldsöng
mun Sigurbjörn Þorkelsson rithöf-
undur og framkvæmdastjóri kirkj-
unnar fjalla um fyrirgefninguna,
velta upp spurningum og bjóða upp
á spjall því tengt. Er fyrirgefningin
raunhæfur valkostur? Hver á að
fyrirgefa og þá hverjum og hvern-
ig?
Kl. 20.30 að loknum kvöldsöngnum
er einnig boðið upp á opinn 12
spora fund. 12 sporin eru andlegt
ferðalag til uppbyggingar og sjálfs-
hjálpar, til að rækta trúna og kær-
leikann hið innra og í samfélagi við
aðra. Umsjón Guðrún K. Þórsdóttir
djákni. Allir velkomnir.
Njarðvíkurkirkja | Foreldramorg-
unn í Safnaðarheimilinu kl. 10-12.
Umsjón hefur Erla Guðmundsdóttir
guðfræðingur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
ALLT frá stofnun Blásarasveitar
Reykjavíkur 1999 hefur hún átt
mikinn þátt í að efla framgang
blásarasveitartónlistar á Íslandi,
sérstaklega með tilliti til nýsköp-
unar, en sveitin hefur frumflutt á
annan tug nýrra verka sem sum
hver hafa verið samin sérstaklega
fyrir hana. Fyrst á dagskrá sveit-
arinnar sunnudaginn 28. janúar
var frumflutningur á Trufluðum
Tangó eftir Eirík Árna Sigtryggs-
son. Í verkinu takast margar ólík-
ar hugmyndir á og upplifði ég það
sumpart eins og ferð í gegnum
skemmtigarð, þar sem stemningin
var oft vissulega trufluð en eins
stundum mjög ómþýð og ljúf.
Slagverkspartarnir voru mjög
drífandi, en í sumum slagverks-
lausum köflum sá píanóið um að
halda uppi taktinum, sem mér
fannst koma mjög vel út. Eins var
ég sérstaklega hrifin af köflunum
þar sem saxófónsóló var leikið of-
an á þunna taktvissa textúru af
málmblásurum.
Næst kom Konsert fyrir klarin-
ettu og blásarasveit eftir stjórn-
andann, Tryggva M. Baldvinsson.
Einleikaranum, Helgu Björg Arn-
ardóttur, fórst flutningurinn mjög
vel úr hendi. Hún sýndi skýr
merki ríks innri púls, listfengis og
hélt áhorfendunum vel við efnið.
Ég naut þess mjög að heyra ólík
blæbrigði blásarasveitarinnar sem
Tryggva tókst að laða fram í tón-
smíðum sínum, sem eru í senn sí-
gildar, tímalausar og forvitnilegar
á margan hátt. Einnig spillti ekki
fyrir upplifuninni að Tryggvi er
greinilega ástríðufullur stjórnandi
og virtist vera í góðu sambandi við
hljómsveitina og einleikarann.
Verk Tróndar Bogasonar,
Konstantin, sem flutt var í fyrsta
sinn á Íslandi fannst mér ein-
staklega hrífandi og í raun eft-
irminnilegasta númerið á dag-
skránni. Tónefniviðurinn byggist á
síendurteknum fallandi moll-
tónstiga sem er hið stöðuga í
verkinu, ásamt slagverkinu, með-
an ákveðnar nótur og ryþmamótíf
rísa og falla. Í mín eyru var
Konstantin mjög grípandi verk,
einfalt og markvisst að gerð og
hljóðan en kom samt sífellt á
óvart með óvæntum útspilum.
Köld sturta eftir Tryggva M.
Baldvinsson var næst á dagsskrá.
Þar gældi Tryggvi við frumkraft
rokktónlistarinnar, en verkið er
innblásið af tónlist rokksveit-
arinnar Rammstein, sem kom höf-
undinum til bjargar þegar eyru
hans og sál voru stútmettuð af að-
ferðafræði tónsmíðaaðferða á Ung
Nordisk Musik hátíðinni í Osló.
Mér þótti sagan góð og verkið
fyndið og frískandi, án þess þó að
það skildi beint mikið eftir. En
frumkrafturinn komst vel til skila
þegar sveitin dúndraði út nótunum
af miklum ofsa. Að lokum var svo
verkið Truflaður tangó eftir Eirík
Árna Sigtryggsson aftur á dag-
skrá, sem mér þótti harla óvenju-
legt en upptaka á tónleikunum
gæti hugsanlega hafa verið ástæð-
an. Í heildina voru tónleikar Blás-
arasveitar Reykjavíkur frábært
innlegg í þá fjölbreyttu tónlist-
arflóru sem sprettur fram á sjón-
arsviðið á Myrkum músíkdögum
og er ég vongóð um að blás-
arasveitartónlistin muni eiga góða
lífdaga hérlendis, allavega meðan
svo spilaglaðir hljóðfæraleikarar,
ástríðufullur stjórnandi og opin og
frjálsleg tónskáld eru í stakk búin
til að halda áfram að gleðja tón-
listarunnendur með list sinni.
Hrífandi innblástur
TÓNLIST
Seltjarnarneskirkja
Blásarasveit Reykjavíkur flutti tónlist
eftir Eirík Árna Sigtryggsson, Tryggva M.
Baldvinsson og Trónd Bogason. Stjórn-
andi: Tryggvi M. Baldvinsson. Einleikari:
Helga Björg Arnardóttir, klarinetta. 28.
janúar.
Myrkir músíkdagar –
Blásarasveit Reykjavíkur
Ólöf Helga Einarsdóttir
Vinir söngkon-unnar Kylie
Minogue segja
hana hafa gert
sér grein fyrir því
að fjögurra ára
sambandi hennar
og franska leik-
arans Olivier Martinez væri lokið er
hann ákvað að koma ekki til Ástralíu
til að vera viðstaddur upphaf Showg-
irl Homecoming-tónleikaferðar henn-
ar í nóvember, en einu og hálfu ári
fyrr hafði hún þurft að aflýsa tón-
leikaferðinni eftir að hún greindist
með brjóstakrabbamein.
„Honum virðist standa nákvæm-
lega á sama,“ segir ónefndur vinur
Kylie. „Hann hefur greinilega engar
áhyggjur af tilfinningum hennar.
Hann gaf sig á tal við Penelope
nokkrum sekúndum eftir að hún sett-
ist til borðs með vinum sínum,“ segir
vinur söngkonunnar og vísar þar til
leikkonunnar Penelope Cruz sem
Martinez sást á tali við nokkrum
klukkutímum eftir að tilkynnt var um
sambandsslit þeirra Minogue.
Fólk folk@mbl.is