Morgunblaðið - 06.02.2007, Side 41

Morgunblaðið - 06.02.2007, Side 41
er Hudson tilnefnd fyrir bestan leik í aukahlutverki. Auk þess fékk hún Golden Globe verðlaun fyrr á árinu fyrir hlutverk sitt í myndinni. „Ég hefði aldrei trúað því að allt þetta myndi koma fyrir mig á svo stuttum tíma,“ sagði Hudson í við- tali á dögunum og bætti við að hún hefði lært mikið um það að höndla frægðina af samleikkonu sinni Beyoncé Knowles. „Beyoncé er gyðja og hún hefur haft mikil áhrif á mig.“    Bandaríski kvikmyndaleikarinnRyan O’Neal var handtekinn í Kaliforníu í fyrradag eftir að hafa lent í átökum við Griffin son sinn. Lögregla handtók O’Neal á heimili hans á Malibu í gær vegna gruns um að hann hefði framið árás og hleypt af skotvopni. Að sögn fjölmiðla var O’Neal í haldi í fimm stundir áður en honum var sleppt. Lögregla sagði að um hefði verið að ræða fjölskyldudeil- ur. Griffin O’Neal, sem er 42 ára, meiddist ekki en 22 ára gömul kona hlaut áverka, þó ekki af völdum byssu. Ryan O’Neal, sem er 65 ára, eignaðist Griffin með leikkonunni Joanna Moore. Þau eignuðust einn- ig dótturina Tatum O’Neal. O’Neal eignaðist einnig soninn Redmond með leikkonunni Farrah Fawcett. Ryan O’Neal lék m.a. í sápuóper- unni Peyton Place á árunum 1964 til 1969 en öðlaðist heimsfrægð þegar hann lék í myndinni Love Story. Þá lék hann í myndinni Pa- per Moon ásamt Tatum dóttur sinni. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 2007 41 SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is MAN OF THE YEAR kl. 5:50 - 8:10 - 10:30 B.i. 7 ára BLOOD DIAMOND kl. 8 - 10:50 B.i. 16 ára DIGITAL VEFURINN HENNAR KARLOTTU m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ DIGITAL CHARLOTTE´S WEB m/ensku tali kl. 8 LEYFÐ DIGITAL THE PRESTIAGE kl. 10 B.i. 12 ára FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 5:50 LEYFÐ DIGITAL / KRINGLUNNI/ ÁLFABAKKA MAN OF THE YEAR kl. 5:40 - 8 - 10:30 B.i. 7 .ára. BLOOD DIAMOND kl. 5 - 8 - 10:50 B.i.16 .ára. BLOOD DIAMOND VIP kl. 5 - 8 - 10.50 VEFURINN HENNAR KARLOTTU m/ísl. tali kl. 3:40 - 5:50 LEYFÐ BABEL kl. 8 - 10:50 B.i.16 .ára. FORELDRAR kl. 8:15 LEYFÐ THE PRESTIGE kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.12 .ára. STRANGER THAN FICTION kl. 10:10 LEYFÐ FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 3:40 LEYFÐ HAPPY FEET m/ensku tali kl. 5:50 LEYFÐ ÓSKARSTILNEFNINGAR m.a. sem besta mynd ársins7 eeeee - B.S. FRÉTTABLAÐIÐ eeee - LIB, TOPP5.IS HJÁLPIN BERST AÐ OFAN SÝND BÆÐI MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI ÓSKARSTILNEFNINGAR2 MEÐ CHRISTIAN BALE, HUGH JACKMAN OG ÓSKARSVERÐLAUNAHAFANUM MICHAEL CAINE. eeee Þ.T. KVIKMYNDIR.IS eeee B.B.A. PANAMA.IS eeee V.J.V. TOPP5.IS eeee RÁS 2 eeee B.S. FRÉTTABLAÐIÐ GOLDEN GLOBE TILNEFNING BESTI LEIKARI : WILL FERRELLABÍÓI ÓSKARSTIL- NEFNINGAR5 MARTIN SCORSESE BESTI LEIKSTJÓRINN ÓSKARSTILNEFNING besta teiknimynd ársins1 eeee H.J. MBL. eeee LIB - TOPP5.IS eeee FRÉTTABLAÐIÐ GOLDEN GLOBE BESTA MYND ÁRSINS eee S.V. - MBL 03.02.2007 4 11 14 34 36 7 2 6 6 4 7 9 5 3 8 3 31.01.2007 4 20 22 39 42 47 4331 44 Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Fyrirgefning er meira en tákn frá guði. Hún táknar breytingu, og án hennar getur þú ekki haldið áfram. Það lítur út fyrir að þú sért á nýjum stað, en það sama gerist alltaf aftur. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú þarf að eiga við vandræðageml- inga, erfitt fólk. Fólk sem lætur þig þykjast vera einhver annar/önnur en þú ert. Haltu áfram að brosa, líka þegar þú ert orðin/n ráðþrota. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Æskan er yndisleg. Þú hangir í þeim unaði, sama hver aldur þinn er, því eðlislæg forvitni þín heldur þér ung- um/ungri. Kvöldið verður áhugavert vegna spurninganna sem þú spyrð. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Morgunninn er hægur í gang, jafnvel eftir kaffibollann. Kannski þú sért á taugum vegna komandi kynningar eða eindaga. Orka og innblástur koma seinna í dag. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Trú kemur til fólks eftir misjöfnum leiðum. Umburðarlyndi þitt í því ferli og fjölbreytileika þess veitir þér þakklæti í stað dómhörku, sér- staklega í því sem lýtur að þér sjálf- um. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Besta leiðin til að sýna mátt þinn er sveigjanleiki. Vilji til samvinnu og að ná raunsæju samkomulagi hentar þér vel. Vinsamleg þrjóska getur gert kraftaverk. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Jafnvel þótt hlutirnir líti út fyrir að vera einfaldir þýðir ekki að svo sé í raun og veru. Það er ekki oft sem innsæi þitt bregst þér. Trúðu því sem þín innri rödd segir þér. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Það er fín lína milli þess að gera öðr- um gott og ganga á sjálfan sig. Var- astu að taka of mikið að þér. Að segja nei er stundum það besta sem maður gerir fyrir alla aðila. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þegar harðnar í ári og fólk byrjar að þverskallast getur reynst best að gefa upp stjórnvölinn. Þú getur gengið í burtu hvenær sem þú vilt. Það gefur þér mikil áhrif. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Ástin getur komið til manns á ólík- legustu stöðum – í kjörbúðinni eða bankanum. Hún gæti verið rétt fyrir framan nefið á þér, ef þú myndir bara opna augun og hætta að dæma hana. Gefðu fyrirfram ákveðnum hugmyndum um ástina reisupass- ann. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú munt fá jákvæð viðbrögð við verkefni sem þú hefur unnið að. Ekki láta það stöðva þig í að gera enn betur. Meyja með fullkomnunar- áráttu getur hjálpað þér! Fiskar (19. feb. - 20. mars) Helsti andstæðingur þinn eru leið- indi. Þótt vinnan sé þreytandi ætti ekki að vera erfitt að finna leiðir til að skemmta sér. Láttu bara ekki yf- irmann þinn koma að þér að versla á netinu eða senda vinunum skilaboð. stjörnuspá Holiday Mathis Nærvera þín veitir öðrum innblástur. Breyting í vinnuumhverfi þínu gefur þér meira frelsi í mars- mánuði. Í maí mun eiga sér stað bæði niðurrif og uppbygging. Þú munt þenja sköpunargáf- una til hins ýtrasta í júlí. Einleypir munu ganga í hjónaband í ágúst. Ástarmerkin eru meyja og tvíburar. Happatölurnar þínar eru: 4, 39, 22, 19 og 45. AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 EINN skemmtilegasti óperusöngv- ari sem við eigum er án efa Bjarni Thor Kristinsson bassi. Eins og menn muna sló hann rækilega í gegn í Brottnáminu úr kvenna- búrinu eftir Mozart, en ég féll þó kylliflatur fyrir honum talsvert fyrr, eða þegar hann hélt tónleika í Saln- um í Kópavogi fyrir nokkrum árum undir yfirskriftinni „Kóngur, kjáni, illmenni“. Fyrirsögnin vísaði til hefðbundinna hlutverka bassa- söngvarans í óperum, en bassinn fær sjaldnast að vera elskhuginn eða hetjan. Nú veit ég ekki alveg af hverju; bassar hljóta að vera með meira testósterón en tenórar og því meiri elskhugar! Óneitanlega virkar skær tenórrödd óttalega veim- iltítuleg á köflum og tenórar geta verið skelfilegar prímadonnur eins og alkunna er. Að öllu gamni slepptu þá var eng- inn veimiltítublær á tónleikunum í Salnum í Kópavogi á laugardaginn var. Þar kom Bjarni Thor fram ásamt Jónasi Ingimundarsyni pí- anóleikara og söng af mikilli karl- mennsku nokkuð hefðbundna dag- skrá, þ.e.a.s. lög eftir Karl Ó. Runólfsson, Sigfús Halldórsson, Sveinbjörn Sveinbjörnsson, Carl Loewe og fleiri. Lítið er um sjálfa dagskrána að segja, stór hluti hennar hefur heyrst oft áður, og tilþrif söngv- arans voru ekki meiri eða merki- legri en víða annars staðar und- anfarið. Þar með er ekki sagt að tónleikarnir hafi verið ómerkilegir; þvert á móti. Vissulega eru sum ís- lensku laganna, auk þeirra eftir Kern og Clutsam, orðin að marg- þvældri tuggu, en margir hafa samt enn gaman af þeim. Ég er sann- færður um að þeim hefur fundist þau ákaflega skemmtileg í með- förum Bjarna Thors. Söngurinn var líka magnaður eins og endranær, sérstaklega eftir því sem á leið. Og burtséð frá tónlistinni þá er rödd söngvarans svo óvenju- lega svört og kraftmikil að það er alltaf gaman að hlusta á hana. Bjarni Thor sjálfur er líka sjarm- erandi, skemmtilega afslappaður fyrir sjálfum sér og oft fyndinn. Maður fellur alltaf fyrir svoleiðis. Jónas stóð sig ágætlega, píanó- leikurinn var yfirleitt tær og vand- aður, hljómmikill án þess að yf- irgnæfa raust söngvarans. Þannig á það einmitt að vera. Karlmannlegur söngur Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Skemmtilegur Bjarni Thor Kristinsson bassi söng í Salnum á laugardag. TÓNLIST Salurinn í Kópavogi Bjarni Thor Kristinsson flutti lög eftir Sig- fús Halldórsson, Karl Ó. Runólfsson, Carl Loewe, Sveinbjörn Sveinbjörnsson, Kern, Clutsam og Speaks. Meðleikari: Jónas Ingimundarson. Laugardagur 3. febrúar. Söngtónleikar Jónas Sen

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.