Morgunblaðið - 06.02.2007, Page 44

Morgunblaðið - 06.02.2007, Page 44
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 37. DAGUR ÁRSINS 2007 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is  A 3–8 m/s S- og V-til, annars hæg- viðri. Víðast létt- skýjað, skýjað eða hálfskýjað NA-til. Frost um allt land. » 8 Heitast Kaldast 0°C -15°C Morgunblaðið/Árni Sæberg FRAMLEIÐSLA metangass hjá Metani hf. í Álfsnesi á Kjalarnesi fullnægir þörf um 4.000 smærri ökutækja á ári eða sem svar- ar öllum skráðum bifreiðum í Mosfellsbæ, en nú eru um 55 ökutæki hérlendis sem ganga fyrir metani að hluta eða öllu leyti. Árið 1999 stofnaði Sorpa bs. ásamt Afl- vaka hf. fyrirtækið Metan hf. til að þróa, framleiða og markaðssetja orku úr haug- gasi. Í fyrra tók Sorpa í notkun nýja hreinsi- stöð í Álfsnesi og getur hún annað því magni af metani sem ætlað er að geti komið úr haugnum. Sorpa hefur leyfi til að urða í Álfsnesi til ársins 2014 en þó svo að hætt verði að urða það árið er gert ráð fyrir að framleiðsla á gasi verði í haugnum í vinn- anlegum mæli að minnsta kosti til ársins 2035. Björn H. Halldórsson, framkvæmda- stjóri Metans hf., segir að auk þess sé möguleiki að framleiða metan úr úrgangi og með ræktun á sérstökum plöntum. | 11 Fullnægir þörf allra bíla í Mosfellsbæ LÖGREGLUNNI á höfuðborgarsvæðinu tókst nýverið að stöðva inn- brotahrinu sem stóð yfir í seinni hluta janúar. Fimm manns voru úr- skurðaðir í gæsluvarðhald vegna aðskilinna mála en þeir höfðu brotist inn í bíla, fyrirtæki og heimili. Lagði lögreglan hald á mikið þýfi, eink- um geisladiska, hljómflutningstæki og myndavélar. Aðgerðir lögreglu höfðu sín áhrif því mjög lítið var um innbrot síðastliðna helgi. Menn- irnir sem hnepptir voru í gæsluvarðhald höfðu verið mjög virkir í inn- brotum sínum. Þrír hinna handteknu áttu tiltölulega stuttan brotaferil að baki en ferill hinna tveggja var lengri. Taldi lögreglan nauðsynlegt að taka þá úr umferð með því að krefjast síbrotagæslu yfir þeim. Einn fimmmenninganna hafði verið sérstaklega djarfur við innbrotin. Í innbrotunum sem framin voru í fyrirtæki var ekki miklu stolið að sögn lögreglu en þeim mun meira eyðilagt og rótað. Einn hinna hand- teknu er grunaður um hvert fyrirtækjainnbrotið á fætur öðru í Ármúla og í kringum Suðurlandsbraut. Á myndinni er verið að handtaka ung- menni á eftirlýstum bíl í gær sem stolið var í Mosfellsbæ. Morgunblaðið/Júlíus Slegið á innbrotahrinu með handtökum Í SÉRFRÆÐIÁLITI sem gert hefur verið fyr- ir embætti skattrannsóknastjóra varðandi kröfu ríkislögreglustjóra um skattagögn níu núverandi og fyrrverandi starfsmanna og stjórnarmanna Baugs er komist að þeirri nið- urstöðu að lögregla sé ekki bær til að hefja op- inbera rannsókn á meintum skattalagabrotum einstaklinga þegar málum þeirra hefur verið lokið með endanlegum úrskurði yfirskatta- nefndar eða sekt af hálfu skattrannsóknastjóra. Sagt var frá þessu máli í fréttum RÚV í gær en skv. RÚV var það Róbert Spanó lagapró- fessor sem skrifaði umrætt sérfræðiálit. Fram kom að skattrannsóknastjóri hefði neitað að afhenda ríkislögreglustjóra umrædd skattagögn, m.a. skattagögn Jóns Ásgeirs Jó- hannessonar, forstjóra Baugs, Tryggva Jóns- sonar, fv. aðstoðarforstjóra, og Óskars Magn- ússonar, fv. stjórnarformanns. Getur verið brot á lögum Bryndís Kristjánsdóttir skattrannsókna- stjóri sagði í samtali við Morgunblaðið að skipt- ar skoðanir væru um aðgang að gögnum og valdmörk þessara embætta. Helgi Magnús Gunnarsson, yfirmaður efna- hagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra, segist hissa á því að bréf fyrrverandi og núverandi skattrannsóknastjóra frá því um miðjan desem- ber hafi borist fjölmiðlum. „Þetta er þess eðlis að ekki er hægt að tjá sig um þetta, snýr m.a. að afgreiðslu á málefnum manna hjá skattkerf- inu og yfirskattanefnd sem á að fara leynt.“ Hann segir ljóst að ef bréfið hefur verið afhent af einhverjum sem bundinn er þagnarskyldu geti það verið brot á lögum, og tekur fram að verjendur sakborninga falli undir þá skyldu. Sakborningar séu hins vegar ekki bundnir þagnarskyldu. „Þetta er enn ein staðfesting þess sem við höfum alltaf haldið fram, að ríkislögreglustjóri gengur að því er virðist miklu harðar fram í þessu máli en nokkru öðru,“ segir Gestur Jóns- son, verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, for- stjóra Baugs, um kröfu ríkislögreglustjóra. Ríkislögreglustjóri og skattayfirvöld takast á Má lögreglan rannsaka mál sem skattayfirvöld hafa afgreitt frá sér? Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is VESTUR-ÍSLENDINGURINN Robert Samuel Morris fagnaði sigri með félögum sín- um í liði Indianapolis Colts, sem vann Chicago Bears 29-17 í úrslitaleik ameríska fótboltans í Miami í fyrrinótt. Robert Morris á ættir að rekja til íslenskra mormóna í Utah og er fyrstur manna af ís- lenskum ættum til að verða meistari í NFL- deildinni. Eyjólfur Eiríksson frá Nýjabæ í Rangárvallasýslu flutti til Utah í Bandaríkj- unum 1886 og Jarþrúður Runólfsdóttir frá Mýrarholti í Borgarfirði hélt sömu leið 1887. Þau voru langalangafi og langalangamma Robs í móðurætt. Rob fæddist 1975 og gekk í Brigham Young-háskólann í Utah. Hann lék með fót- boltaliði skólans og er talinn einn besti varn- armaðurinn í sögu skólaliðsins. Hann hefur verið leikmaður Indianapolis Colts síðan 2000, lengst af sem varnarmaður á miðjunni, en var færður út á kantinn í vetur með góðum ár- angri. Ameríski fótboltinn er vinsælasta íþróttin í Bandaríkjunum og fleiri horfa á úrslitaleikinn í NFL-deildinni í sjónvarpi en nokkurn annan viðburð. Talið er að um 90 milljónir manna hafi horft á sjónvarpsútsendinguna í fyrrinótt. Vestur-Íslendingur í meistaraliði Colts Meistarar Robert Samuel Morris með þjálfara sínum Tony Dungy. NÝSTOFNAÐ alþjóðlegt fjárfestingar- fyrirtæki á orkusviðinu, Geysir Green Energy ehf., hefur ákveðið að setja höf- uðstöðvar sínar upp í Reykjanesbæ. Bær- inn mun kaupa lítinn hlut í fyrirtækinu sem jafnframt mun standa að uppbygg- ingu þekkingarseturs á sviði vistvænnar orku í Reykjanesbæ. „Það er langþráður draumur að rætast, að hér verði miðstöð rannsókna á vistvæn- um orkugjöfum,“ sagði Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, þegar sam- komulagið var staðfest og starfsemi Geysis Green Energy ehf. kynnt. | 17 Geysir og Reykjanesbær vinna saman ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.