Morgunblaðið - 19.03.2007, Blaðsíða 14
14 MÁNUDAGUR 19. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
MIÐFLOKKURINN í Finnlandi,
undir forystu Matti Vanhanens for-
sætisráðherra, sigraði naumlega í
þingkosningum í gær, samkvæmt
kjörtölum sem birtar voru í gær-
kvöldi.
Miðflokkurinn, sem hefur verið
við völd ásamt Jafnaðarmanna-
flokknum og Sænska þjóðarflokkn-
um frá 2003, fékk 23,1% kjörfylgi.
Hægriflokkurinn Þjóðarbandalagið
var í öðru sæti með 22,3% fylgi og
Jafnaðarmannaflokkurinn með
21,4%.
Venja er í Finnlandi að leiðtoga
stærsta flokksins sé falið að mynda
stjórn og gegna embætti forsætis-
ráðherra.
Kosningabaráttan þótti nokkuð
daufleg og einkennast af því að stóru
flokkarnir vildu ekki brenna neinar
brýr að baki sér. Allir flokkarnir þrír
hafa einhvern tíma starfað saman í
stjórn á síðustu áratugum.
Vanhanen þykir ekki gæddur
miklum persónutöfrum en nýtur
mikillar virðingar, þykir hæfur
stjórnmálamaður með mikla þekk-
ingu á málefnunum. Hann er fyrr-
verandi blaðamaður og hafði aðeins
gegnt ráðherraembætti í tíu mánuði
þegar hann varð forsætisráðherra
fyrir fjórum árum. Hann er nú álit-
inn einn vinsælasti stjórnmálamað-
urinn í sögu landsins.
Fréttaskýrendur segja að í kosn-
ingabaráttunni hafi Vanhanen eink-
um notið góðs af efnahagslegum
framförum síðustu árin.
Hagvöxturinn í Finnlandi var um
5,5% á síðasta ári, atvinnuleysið
minnkaði úr 9% í 7,5% á fjórum ár-
um, fjárlögin voru með afgangi í stað
halla og kaupmáttur Finna jókst.
Útgáfa umdeildrar bókar eftir
fyrrverandi ástkonu Vanhanens
kann einnig að hafa haft áhrif á vin-
sældir forsætisráðherrans. Í bókinni
er sambandi þeirra lýst og hún varð
strax metsölubók þegar hún var gef-
in út í liðnum mánuði.
„Vanhanen hefur verið álitinn
fremur þurr og dauflegur kerfis-
karl,“ sagði Jan Sundberg, prófessor
í stjórnmálafræði við Helsinki-há-
skóla. „Ég held að vinsældir hans
hafi aukist vegna bókarinnar.“
Miðflokkurinn fékk
mest fylgi í Finnlandi
Vanhanen forsætisráðherra sigraði í hnífjöfnum kosningum
Í HNOTSKURN
» Miðflokkurinn fékk 51þingsæti af 200 og hægri-
flokkurinn Þjóðarbandalagið
50, 10 fleiri en síðast.
» Jafnaðarmannaflokk-urinn missti átta sæti og
fékk 45. Hann hefur alltaf ver-
ið stærstur eða næststærstur
frá 1962.
» Hugsanlegt er að finnskirjafnaðarmenn verði í
stjórnarandstöðu í fyrsta
skipti frá 1995.
Sigurvegarinn Matti Vanhanen í
sjónvarpsviðtali í gærkvöldi.
St. Louis. AP. | Þumallína er aðeins 44,5 sentímetra há og
hneigist frekar til að smeygja sér undir girðingar en að
stökkva yfir þær.
Hún er fimm ára hryssa og minnsti hestur heims, að-
eins 26 kílógrömm á þyngd. Henni er þó ætlað stórt hlut-
verk: að safna milljón dollara, sem svarar tæpum 70
milljónum króna, handa góðgerðarsamtökum fyrir börn.
Hestatemjarinn Michael Goessling, sonur smáhesta-
bændanna Kay og Paul Goessling, segir að Þumallína sé
tilvalin fulltrúi barna. „Þegar börn koma til hennar vilja
þau tala við hana og fá að vita hvað henni líkar og hvað
ekki,“ segir Goessling.
Heimsmetabók Guinness staðfesti síðastliðið sumar að
Þumallína væri minnsta hross heims og síðan hefur hún
fengið mikla athygli. Börn hafa flykkst í smáhestabú-
garð Goessling-fjölskyldunnar í grennd við St. Louis í
Bandaríkjunum til að skoða Þumallínu og klappa henni.
Ráðgert er að Þumallína fari í fjársöfnunarferð um 48
sambandsríki Bandaríkjanna á árinu og komi meðal ann-
ars við á barnasjúkrahúsum, skólum, sumarbúðum, hér-
aðshátíðum, hestasýningum og fjáröflunarsamkomum.
Þumallína á að ferðast um í húsbíl sem breytt hefur
verið í hesthús á hjólum.
„Við viljum ekki græða á henni,“ sagði Michael Goess-
ling. „Við höfum aldrei gert það. Það verður engin önnur
Þumallína.“
Hryssan leikur sér oftast við hunda sem eru á stærð
við hana sjálfa. Hún sefur jafnvel í hundakofa.
Goessling-fjölskyldan ræktar smáhesta sem eru ýmist
seldir eða sýndir á hestasýningum. Hestar hennar hafa
unnið til fjölmargra verðlauna síðustu árin.
Þumallína forðast oft hin hrossin í búgarðinum þótt
þau séu öll óvenju smá. Af um það bil 40 hestum sem eru
í búgarðinum eru flestir þeirra meira en 30 sentímetrum
hærri en Þumallína.
Þegar fulltrúar Heimsmetabókar Guinness fóru í bú-
garðinn til að mæla Þumallínu var tekin ljósmynd af
henni með stærsta hrossi heims, Radar, tveggja metra
háum hesti frá Texas. Hann er um 40 sinnum stærri en
Þumallína.
Hún hræddist þó ekki risann. „Mér bauð í grun að
Þumallína væri alls ekkert hrifin af því að deila sviðsljós-
inu með stærsta hesti heims,“ sagði Michael Whitty,
myndastjóri Guinness.
Ljósmyndin af hestunum verður birt í Heimsmetabók
Guinness í haust.
AP
Smæst hrossa Hestatemjarinn Michael Goessling með Þumallínu (lengst t.h.), fimm ára hryssu sem er minnsti
hestur heims, aðeins 44,5 sentímetra há. Þumallína forðast hina smáhestana í búgarðinum en hænist að hundum.
Minnsti hestur heims safnar
milljónum í þágu barna
Gaza-borg. AFP. | Þjóðstjórn Palest-
ínumanna kom saman í fyrsta skipti
í gær og utanríkisráðherra hennar
sagði að fram hefðu komið merki
um að samstaða vestrænna landa í
andstöðunni við Hamas-hreyf-
inguna væri að rofna.
Vesturlönd hafa sniðgengið
heimastjórn Palestínumanna og
hættu að veita henni fjárhags-
aðstoð fyrir ári eftir að Hamas sigr-
aði í þingkosningum Palest-
ínumanna.
Ehud Olmert, forsætisráðherra
Ísraels, skoraði í gær á Vesturlönd
að halda þessari stefnu til streitu og
sniðganga nýju þjóðstjórnina þar
sem hún hefði ekki orðið við kröf-
unni um að hafna ofbeldi og við-
urkenna tilvistarrétt Ísraelsríkis.
Stjórnvöld í Bretlandi og Banda-
ríkjunum sögðust þó ekki útiloka
viðræður við palestínska ráðherra
sem væru ekki í Hamas-hreyfing-
unni.
Norðmenn gengu lengra og sögð-
ust ætla að viðurkenna þjóðstjórn
Hamas og Fatah, flokks Mahmouds
Abbas forseta. Franska stjórnin
bauð utanríkisráðherra þjóðstjórn-
arinnar, Ziad Abu Amr, til við-
ræðna í París og litið er á þær sem
upphafið að því að Evrópuríki falli
frá þeirri stefnu sinni að sniðganga
stjórnvöld Palestínumanna.
„Múrar einangrunarinnar og
bannsins við fjárhagsaðstoð eru að
bresta,“ sagði Abu Amr.
Telur samstöðu Vesturlanda
gegn Hamas vera að rofna
Ehud Olmert Mahmoud Abbas
ROBERT Mugabe, forseti Zim-
babve, óttast að Solomon Mujuru,
fyrrverandi hershöfðingi, og fleiri
gamlir bandamenn hans í stjórn-
arflokki landsins leggi á ráðin um
valdarán, að sögn breska dagblaðs-
ins The Times í gær.
Mugabe er sagður ævareiður út í
Mujuru, sem er eiginmaður varafor-
seta Zimbabve, Joice, vegna þess að
hann hefur átt fundi með sendiherr-
um Bretlands, Frakklands og
Bandaríkjanna í Harare. Mugabe
telur fundina sanna að forystumenn
í flokki hans, Zanu-PF, hafi í hyggju að steypa honum af stóli forseta í sam-
ráði við stjórnvöld í vestrænu löndunum þremur. Mugabe hefur hótað að
vísa sendiherrunum úr landi.
Öryggissveit stöðvaði í gær einn af forystumönnum stjórnarandstöð-
unnar, Nelson Chamisa, á flugvelli í Harare og barði hann til óbóta. Cham-
isa er talsmaður Lýðræðishreyfingarinnar (MDC), flokks Morgans Tsvang-
irai, sem sætt hafði barsmíðum í haldi lögreglu eftir að hafa verið
handtekinn fyrir að taka þátt í mótmælum gegn Mugabe.
Þremur öðrum félögum í Lýðræðishreyfingunni var meinað að fara úr
landi um helgina.
Mugabe óttast að flokksbræð-
ur sínir undirbúi valdarán
Robert Mugabe
MONA Sahlin
hefur verið kjör-
in leiðtogi Jafn-
aðarmanna-
flokksins í
Svíþjóð, fyrst
kvenna.
Sahlin, sem er
fimmtug, tekur
við af Göran
Persson, fyrrver-
andi forsætisráðherra, sem varð
leiðtogi flokksins 1996 og dró sig í
hlé eftir að jafnaðarmenn biðu ósig-
ur í þingkosningum í september.
Sahlin var ein í framboði og var
kjörin einróma á flokksþingi á
laugardag.
Sahlin verður að öllum líkindum
fyrsta konan til að gegna embætti
forsætisráðherra í Svíþjóð fari jafn-
aðarmenn með sigur af hólmi í
næstu kosningum eftir þrjú ár.
Sahlin hefur gegnt ýmsum ráð-
herraembættum og var um tíma að-
stoðarforsætisráðherra. Hún hefur
verið umdeild og beið álitshnekki
árið 1995 þegar upp komst að hún
hafði notað greiðslukort í eigu rík-
isstjórnarinnar til einkanota.
Fyrst kvenna kjörin leiðtogi
sænskra jafnaðarmanna
Mona Sahlin
STJÓRN Súdans hefur ákveðið að
hætta öllu samstarfi við Al-
þjóðasakamáladómstólinn vegna
ásakana um að súdanskir embætt-
ismenn hafi skipulagt stríðsglæpi í
Darfur-héraði, m.a. fjöldamorð og
nauðganir.
Samstarfi hætt
TUGIR þúsunda manna gengu um
götur New York og borga á vest-
urströnd Bandaríkjanna í gær-
kvöldi til að mótmæla stríðinu í
Írak í tilefni af því að á þriðjudag
verða fjögur ár liðin frá innrásinni í
landið.
AP
Stríðinu mótmælt
CESARE Battisti, fyrrverandi bylt-
ingarsinni sem er eftirlýstur á Ítal-
íu fyrir fjögur morð, hefur verið
handtekinn í Brasilíu. Hann gerðist
glæpasagnahöfundur eftir að hann
slapp úr fangelsi á Ítalíu 1981.
Battisti í haldi
A.M.K. þrír unglingar biðu bana
og sjö særðust í sprengjuárás á
íslamskan skóla í Songkhla-
héraði í suðurhluta Taílands í
gær. Lögreglan kenndi aðskiln-
aðarsinnum úr röðum múslíma
um árásina en íbúar héraðsins
drógu það í efa.
Unglingar myrtir