Morgunblaðið - 19.03.2007, Blaðsíða 35
Ég er ekki að
leggjast í sólbað,
það er ekki tilgangurinn
með þessu … 41
»
reykjavíkreykjavík
Hvernig fyndist ykkur Dolce&Gabbanaog Armani þrælunum að búa við göt-una Merkjateig? Miðbæjarflugan
gerði sér ferð í óbyggðirnar, þ.e. úthverfi
Reykjavíkur, hvar sómakæra suburbia-slektið
og nýríkir búa, og skemmti sér dátt yfir götu-
heitunum sem eru svo dásamlega á skjön við
söguhlaðin stræti miðbæjarins. Merking-
arþrungið fyrir dulrænt þenkjandi að búa í
Álfkonuhvarfi og kannski bætist gatan
Mannshvarf við áður en langt um líður. Sé fyr-
ir mér að þverskurður íbúanna í Tröllakór
séu fráskildir, grófir karlmenn og veðja á að
einhleypar viðkvæmar piparjúnkur sem
sauma út um helgar eigi lögheimili í Perlukór.
En litla snobb-piparjúnku-flugan ykkar sótti
menningarlífið í hjarta borgarinnar grimmt
um helgina og mætti þegar ofvirki gjörninga-
listamaðurinn Ragnar Kjartansson opnaði
fyrstu einkasýningu sína í gallerí i8 við
Klapparstíg. Bar hún yfirskriftina ,,Sam-
viskubit“ og gat að líta bæði málverk og
myndbandsverk sem var unnið í samvinnu við
Þórhall Sigurðsson (Ladda). Meðal gesta
voru leikkonan Sigrún Edda Björnsdóttir,
myndlistarmaðurinn Erla Þórarinsdóttir og
móðir listamannsins; leikkonan Guðrún Ás-
mundsdóttir sem er nýkomin frá London. Á
hlaupum eftir Hafnarstræti kom Fluga svo
auga á rokkstjörnuna Magna Ásgeirsson sem
stikaði eftir Hafnarstræti í ,,Dead“ hettu-
peysu með svarta hettuna dregna niður fyrir
augu, örugglega að reyna að falla inn í hóp
hinna óþekktu.
Það var líflegt á Þjóðminjasafninu um
helgina þegar Katrín Elvarsdóttir opnaði
ljósmyndasýninguna ,,Sporlaust“ og franska
listakonan Dominique Darbois ljósmynda- og
skúlptúrsýninguna ,,Hví ekki Afríka?“
Franski sendiherrann, Nicole Michelangeli,
opnaði sýninguna og áhugasamir gestir voru
Bragi Þór Jósepsson ljósmyndari, ástsæli
barnabókahöfundurinn Jenna Jensdóttir,
Hrönn Marínósdóttir filmfestivalfrauka og
Björn brunamálastjóri Karlsson. Á Lauga-
vegi 12 b opnaði nýtt gallerí, STARTART þar
sem sjö ólíkir listamenn sameina krafta sína.
Stappfullt var þar á laugardaginn þrátt fyrir
beljandi snjóstorm og sást til Unnar Jök-
ulsdóttur rithöfundar, Koggu listamanns á
Vesturgötunni, Björns Brynjúlfs Björns-
sonar kvikmyndagerðarmanns og frúar hans
Hrefnu Haraldsdóttur menningarmeyjar.
Fluga telur sig sjóaða í nútímalegri list og
umburðarlynda með eindæmum. En henni
fannst hreinlega ruddalegt að sjá þrjá lopa-
vettlinga í ramma upp á vegg með verðmerk-
ingunni 500.000. Til frekari fróðleiks: Þeir
voru ekki prjónaðir úr gulli ...
| flugan@mbl.is
Hannes Smárason og Unnur Sigurðardóttir.
Hilmar Jónsson og
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Bachmann.
Páll Guðmundsson og Thor Vilhjálmsson.
Þórunn Hilmarsdóttir og Álfrún
Laufeyjardóttir.
Þorfinnur Guðnason og Ómar Ragnarsson.
Margrét Sjöfn Torp, Andri Snær Magnason, Birkir Björnsson
og Linda Björk Ingimarsdóttir.
Jón Atli Jónasson og Ragnar
Kjartansson.
Guðrún Ragnhildur Eiríksdóttir
og Ása Ólafsdóttir.Þuríður Sigurðardóttir og Friðrik Friðriksson.
Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir og
Ragnhildur Stefánsdóttir.
. . . með svarta hettuna dregna niður
fyrir augu, örugglega að reyna að falla
inn í hóp hinna óþekktu . . .
»Drauma-landið, byggt á
samnefndri bók
Andra Snæs
Magnasonar, var
frumsýnt í Hafn-
arfjarðarleikhús-
inu.
Morgunblaðið/Eggert
Unnur Jökulsdóttir, Alda Unnardóttir
og Árni Einarsson
Kogga og Magdalena Margrét
Kjartansdóttir.
Flugan
Suburbia-slektið
við Merkjateig
» Startart, listasalur og verslun,var opnaður við Laugaveg. Lena Björnsdóttir og Gaga Skorrdal.
Morgunblaðið/Eggert