Morgunblaðið - 19.03.2007, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 19.03.2007, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. MARS 2007 33 Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn VARÚÐ! EINMANA HUNDUR VARÚÐ! EINMANA HUNDUR VARÚÐ! EINMANA HUNDUR OG FYRST VIÐ ERUM BYRJAÐIR AÐ TALA UM GJAFIR, KÆRI JÓLI... EF ÞÚ SEGIR AÐ BARN SÉ SLÆMT OG DÆMIR ÞAÐ TIL ÞESS AÐ FÁ ENGAR GJAFIR, ERTU ÞÁ EKKI EINNIG AÐ DÆMA FORELDRA ÞESS? MEÐ ÖÐRUM ORÐUM... VERÐ ÉG AÐ GJALDA FYRIR VERK... AH HA! OG EF ÞÚ ERT BÚINN AÐ DÆMA FORELDRANA, ERTU ÞÁ EKKI LÍKA AÐ DÆMA AFGANGINN AF FJÖLSKYLDUNNI? SAKLAUSA BRÆÐUR OG SYSTUR AÐRAR BUXUR ÞRÍR BOLIR... FJÓRAR PEYSUR... TVEIR JAKKAR... OG EINAR BUXUR Í VIÐBÓT ERTU ENNÞÁ AÐ REYNA AÐ LÆRA AÐ HJÓLA? GETUR ÞÚ EKKI BARA HALDIÐ ÞÉR SAMAN ÞÚ HEFUR VERIÐ HANSAMAÐUR Á FRANSKRI GRUNDU FYRIR AÐ RUPLA OG RÆNA Í FRÖNSKUM BORGUM EIN- HVER HINSTU ORÐ? JÁ! FRÖNSK ELDA- MENNSKA ER OFMETIN! ÉG SKIL EKKI AF HVERJU INDÍÁNINN VILDI EKKI LENGUR VERA LUKKUDÝRIÐ OKKAR EFTIR AÐ VIÐ BREYTTUM UM NAFN Á LIÐINU VÁ! ÞEIR SENDU ÞRJÁ BRUNABÍLA! BARA TIL ÞESS AÐ ATHUGA GASLEKA? ÉG SAGÐI BARA AÐ ÞAÐ VÆRI SKRÍTIN LYKT HEIMA ÞEIR VILJA EKKI AÐ TAKA NEINA ÁHÆTTU EF ÞAÐ ER EKKI GASLEKI ÞÁ VERÐ ÉG DÁLÍTIÐ SVEKKTUR EKKI ÉG! FÆRIÐ YKKUR, TAKK! HVAÐ GERÐIST? ANDLITIÐ Á ÞÉR RÉÐST Á HNEFANN MINN LÖGREGLA! ÉG VIL EKKI SVARA NEINUM SPURNINGUM ÉG GÆTI SVARIÐ ÞAÐ AÐ ÞESSI MAÐUR SÉ KLÆDDUR Í LAK Skaðabótaskylda vegna svifryks Í FORSÍÐUGREIN Moggans föstudaginn 2. mars sl. er fjallað um skaðsemi svifryks og álit nokkurra lögfróðra spekinga á hugsanlegri skaðabótaskyldu borgaryfirvalda. Tilefnið var væntanlega viðtal við undirritaðan daginn áður þar sem ég velti því fyrir mér hvort slík skaða- bótaskylda væri fyrir hendi. Þar er vitnað í orð sviðsstýru umhverf- ismála Reykjavíkurborgar þar sem hún viðurkennir að nagladekk séu vissulega ein af meginorsökum svif- ryksmengunar. „Við verðum að fá borgarana til að vinna með okkur,“ segir hún. Áður hafði hún hvatt borgarbúa til þess að draga úr dreifingu ryksins með því að aka hægar(!) þegar frost er úti og blíðviðri. Ekki hef ég þá reynslu af tillitssemi reykvískra ökumanna að hægt sé að fá þá til slíkrar samvinnu. Á sama tíma og víðtækar rannsóknir sýna fram á ótvíræð tengsl milli svif- ryks og vanheilsu fjölda fólks og jafnvel dauðsfalla þora borgaryf- irvöld ekki að taka af skarið og banna nagladekkin. Forræðis- hyggjufælnin eina ferðina enn. Mað- ur er skíthræddur um að næst leggi þeir niður hraðatakmarkanir og treysti á að borgarbúar „vinni með okkur“. Einkennilegt að ekki sé hægt að draga neinn til ábyrgðar og að borg- aryfirvöld skuli sleppa með að vera stikkfrí þrátt fyrir það sem réttlæt- isvitund mín myndi kalla „vítavert aðgerðarleysi“. Með góðum kveðjum, Gylfi Baldursson, Sléttuvegi 9, Reykjavík. Öskubuska – frábær sýning UM þessar mundir er mikið að ger- ast innan veggja Fjölbrautaskólans í Garðabæ. Þar er lítið leikhús sem getur verið montið af því sem þar fer fram! Um 110 manns leggja hönd á plóg til að koma sýningunni Ösku- buska – úr öskunni í eldinn? á svið og get ég hér með sannað að það hef- ur tekist með eindæmum vel. FG- ingar geta svo sannarlega verið stoltir af öllu sem viðkemur sýning- unni. Þar koma saman allir þættir sem sýningar sem þessar krefjast; góður leikur, frábær söngur og mögnuð dansatriði. Við hjónin skelltum okkur á þessa sýningu á sunnudaginn var og sjáum svo sannarlega ekki eftir að hafa far- ið. Mikill húmor, grín og glens sem einkennir þessa stórglæsilegu sýn- ingu. Þetta er eitthvað fyrir alla fjöl- skylduna og hvet ég hér með alla til að drífa sig að kaupa miða í Fjöl- brautaskóla Garðabæjar. Tvö ánægð. Stússi er týndur HALLÓ, ég heiti Stússi og er týnd- ur. Ég er hvít-kremlitaður skógar- kisi, sem hvarf að heiman 15. mars, og er mjög sárt saknað af fjölskyldu minni. Ég hef aldrei áður farið langt eða lengi frá heimili mínu. Ef ein- hver hefur séð til mín, eða veit um afdrif mín, þá vinsamlega látið vita í síma 555-4303 eða 891-6155, Elín Birna. Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Framtalsaðstoð Annast framtalsaðstoð fyrir einstaklinga með og án reksturs. Annast einnig frestbeiðnir. Pantið tímanlega í síma 511 2828 eða með tölvupósti bergur@vortex.is Skattaþjónustan ehf. Bergur Guðnason hdl. Suðurveri v/Stigahlíð dagbók|velvakandi   

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.