Morgunblaðið - 19.03.2007, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 19.03.2007, Blaðsíða 24
24 MÁNUDAGUR 19. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN GAGNRÝNI Víkverja á útvarps- stöðina X-ið 977 fannst mér afar und- arleg og ekki eingöngu einkenndist hún af fáfræði um efni stöðvarinnar heldur beinlínis íhaldssemi. Víkverji hóf skrif sín á því að X-ið titlaði sig sem stöðina þar sem rokkið byrjaði. Hann heldur því fram að þannig hafi það verið, í byrjun hafi hún spilað rokk en nú spili hún ör- sjaldan rokkaðra efni en Muse eða The Kill- ers. Núna megi því kalla stöðina: X-ið, þar sem rokkið endaði. Þessi röksemda- færsla er með öllu óskiljanleg þar sem X- ið hefur alltaf haldið sig við samtíma rokk- tónlist, allt frá hveit- brauðsdögum stöðv- arinnar til dagsins í dag. Fyrir rúmlega áratug síðan var stöðin jafnvel enn minni rokkstöð en hún er í dag, spilaði á þeim tíma rapp á borð við Wu-Tang Clan og ýmsa danstónlist- arlistamenn. Alltaf hefur það þó haldist í hendur að stöðin hefur spilað sam- tímatónlist, það sem er vinsælast hverju sinni en í bland við eldri slag- ara. Ég ætla mér ekki að fara í ein- hvers konar upptalningarkeppni við Víkverja um hversu mikið af mildum rokksveitum X-ið spilar og hversu mikið af hörðum rokksveitum stöðin spilar. Hins vegar má benda á þá augljósu staðreynd að Deftones, To- ol, Mastadon og fleiri harðar rokk- hljómsveitir fá spilun oft á hverjum klukkutíma á stöðinni. En þá komum við að öðru; hvernig á að skilgreina rokk og einmitt hart rokk? Persónulega finnst mér að fáar hljómsveitir rokka eins harkalega og The Cramps en þeir sem hlusta á til dæmis thrash-metal frá 9. áratugn- um geta varla verið sammála því. Og eiga stjórnendur X-ins að taka lög í spilun eingöngu út frá þeirri stað- reynd að um hart rokk sé að ræða? Sú er sannarlega ekki raunin en í staðinn er reynt að koma til móts við óskir hlustenda, farið eftir ríkjandi straumum og lög tekin til spilunar sem þykja líkleg til af- reka. Hér á árum áður voru vinsælustu hljómsveit- irnar til dæmis Guns’n Roses, Iron Maiden og Slayer en þetta er ekki veruleikinn í dag, þó þessar sveitir eigi að sjálfsögðu risa aðdá- endahóp. Sveitirnar hafa lítið gefið út síð- ustu ár öfugt við Muse, The Killers, Modest Mouse, Wolfmother, Franz Ferdinand, Incu- bus og fleiri sem eru jafnframt með vinsæl- ustu hljómsveitunum á X-inu. Ef einhver ætlar hins vegar að halda því fram að þessar hljóm- sveitir rokki ekki þá þarf viðkomandi aðeins að auka við sinn tónlist- arlega orðaforða. X-ið hefur frá byrjun spilað rokk- tónlist að staðaldri, gerir enn í dag og mun halda áfram að gera. Ef Víkverji vill hins vegar hafa áhrif á það sem spilað er á stöðinni má benda honum á rokkakademíu X-ins þar sem hver sem er getur sagt sitt álitt á efni stöðvarinnar og haft þannig áhrif. Víkverji og aðrir, skráið ykur endi- lega á x977.is, það verður hlustað á ykkur. Rokkið lifir á X-inu Steinþór Helgi Arnsteinsson svarar Víkverja sem gagnrýndi X-ið 977 í skrifum sínum sl. þriðjudag. Steinþór Helgi Arnsteinsson » X-ið hefurfrá byrjun spilað rokk- tónlist að stað- aldri, gerir enn í dag og mun halda áfram að gera. Höfundur er starfsmaður útvarps- stöðvarinnar X-ins 977. MIÐSVÆÐI og væntanlegur mið- bær Álftaness hefur verið mikið í um- ræðunni undanfarin ár, enda eru skipulagsmál ávallt viðkvæm og hjartfólgin íbúum hvers bæjarfélags, sér- staklega þar sem um mótun á framtíð- arásýnd bæjarfélagsins er að ræða. Í skipulags- málum ráða oft miklar tilfinningar og sitt sýn- ist hverjum, enda erfitt að gera öllum til hæfis. Þetta sannaðist þeg- ar fulltrúar Á-lista fór um Álftanesið og söfn- uðu undirskriftum gegn núverandi skipulagi miðsvæðisins. Stór orð voru notuð við söfnun á undirskriftum, upphrópanir eins og „miðbæjarmúrinn“, „massíf háhýsa- byggð“, „raðir 3 hæða fjölbýlishúsa“ og „skipulagsslys“. Allt fullyrðingar sem ætlaðar voru til að blekkja íbúana, sem því miður tókst. Íbúarnir áttu að fá lítinn, lágreistan, vistvænan miðbæ, sveit í borg, græn svæði og síðast en ekki síst áttu íbúar að fá að kjósa um ásýnd miðsvæðisins, alla- vega samkvæmt því sem núverandi bæjarstjóri skrifaði í blað Álftanes- hreyfingarinnar í kosningabarátt- unni. En hver er staðan í dag? Föstudag- inn 9. mars sl. voru kynntar nið- urstöður úr arkitektasamkeppni um miðsvæði Álftaness. Það má margt gott segja um verðlaunatillöguna, en það sem vekur athygli þegar hún er skoðuð er hversu keimlík hún er nú- verandi skipulagi, sem mótmælt var sem harðast með undirskriftalistum. Á svæðinu er gert ráð fyrir 1–3 hæða byggð með 230 íbúðum ásamt þjón- ustumiðstöð, verslun, skrifstofum, ráðhúsi, safnaðarheimili og menning- arhúsi. Aðalgatan er með 3 hæða hús- um, eins og á núgildandi skipulagi, en einnig er gert ráð fyrir 3 hæða húsum við Norðurnesveginn, sem sagt fleiri 3 hæða hús en áætlað var. En það hefur ald- eilis orðið vinkilbeygja hjá núverandi bæj- arstjóra, því í viðtali í Morgunblaðinu 11. mars sl. talar hann um lágreista 1–3 hæða byggð, sveit í borg og grænan miðbæ. Samt er hér verið að tala um hærri byggð en þá sem mótmælt var. Það er ótrúlegt að fylgjast með hvernig það sem áður var svart er nú orðið hvítt, eða eigum við að segja vinstri grænt. Sú upphrópun sem mest var notuð í aðdraganda kosninga var „íbúa- lýðræði“. Öllum stórum málum átti að vísa til íbúanna, þeir áttu að fá að segja sína skoðun, kjósa um mikilvæg mál eins og miðsvæðisskipulagið. En það var þá, nú er allt annað, 5 manna dómnefnd er búin að velja tillögu sem íbúarnir eiga að sætta sig við. Fjölgun íbúa var nokkuð sem Á-listinn ætlaði að berjast gegn, en samkvæmt ný- legri íbúaspá er gert ráð fyrir enn meiri fjölgun og hraðari uppbyggingu en fulltrúar Sjálfstæðisfélagsins höfðu nokkurn tímann gert sér í hug- arlund. Það ætti nú öllum að vera ljóst að einungis var um innantóm kosninga- loforð að ræða síðastliðið vor hjá Á- listanum. Þeim til hróss má þó segja að þau voru góð í að skapa það mold- viðri sem var hér og ná fram tilgangi sínum, en jafnframt má segja að það sé ótrúleg skammsýni sem einkenndi þá ákvörðun. Enda gera þau sér ef- laust grein fyrir því að íbúar hljóti að átta sig á því hvernig í pottinn er búið, enda liggur núverandi meirihluta mikið á að klára öll þau mál sem þeir vilja fá í gegn meðan þeir eru við völd. Síðastliðið haust lá mikið á að gera skuldbindandi samninga við hina ýmsu aðila um uppbyggingu á mið- svæðinu, en þegar þeir samningar eru skoðaðir þá kemur í ljós að búið er að gefa loforð um ca 37.500 íbúðafer- metra, en á skipulagstillögunni sem kynnt var núna er einungis gert ráð fyrir 27.700 íbúðafermetrum, þar er skekkja upp á 35%. Þannig að til að standa við samningana sem gerðir hafa verið, þarf að bæta við allt að 10.000 íbúðafermetrum, eða sem svarar til 10 fjölbýlishúsa eins og eru í Birkiholti. En hvað segja þeir íbúar sem mót- mæltu skipulaginu á sínum tíma? Eru þeir sáttir við að fá allt annað en þeim var lofað? Eru íbúar sáttir við þær auknu álögur sem Á-listinn hefur lagt á þá? Ég vil hvetja íbúa til að fylgjast vel með málefnum bæjarins og kynna sér niðurstöður arkitektasamkeppninnar. Tillagan hefur marga góða kosti, enda eins og áður sagði, töluvert lík núver- andi skipulagi að miðsvæði Álftaness. Miðsvæði Álftaness – Hvað nú? Sigríður Rósa Magnúsdóttir skrifar um skipulag miðbæjar á Álftanesi »En hvað segja þeiríbúar sem mótmæltu skipulaginu á sínum tíma? Eru þeir sáttir við að fá allt annað en þeim var lofað? Sigríður Rósa Magnúsdóttir Höfundur er bæjarfulltrúi Sjálfstæðisfélags Álftaness. HVAÐ sem fólki finnst að öðru leyti um það upphlaup sem varð í síðustu viku um meint auðlindaákvæði í stjórn- arskrána, gengur alveg fram af mér að lesa það slúður sem birtist á forsíðu Morgunblaðsins á laugardaginn um svokallaðan „einleik Össurar Skarphéð- inssonar með fölskum hljómi“, þar sem talað er um barba- brellu hans og svik við svilkonu sína Ingibjörgu Sólrúnu. Hvað gengur Morgunblaðinu og Agnesi Bragadóttur til að birta slíkt slúður á sjálfri for- síðunni? Sannleikurinn er sá að ég ber virðingu bæði fyrir blaðinu og Agnesi og tel þeim ekki sæmandi að bera svona málflutning á borð fyrir les- endur sína. Ég hef verið í þingmannahópi Samfylkingarinnar síðustu vik- urnar og fylgst vel með at- burðarásinni innan og utan þingflokksins. Það er rangt að flokkurinn eða Össur hafi ekki haft áhuga á ákvæði inn í stjórnarskrá lýðveldisins um sameign þjóðarinnar. Öðru nær. Það er líka rangt að Össur hafi verið með einleik. Það er rangt að hann hafi farið á bak við for- manninn. Það er allt rangt og ósatt í þessu slúðri Morg- unblaðsins. Það eru kosningar í vændum og margt ósæmilegt sagt í hita leiksins til að koma höggi á andstæðingana. En eigum við ekki að lyfta okkur upp úr svona lágkúru? Það er fyrir neðan virðingu Morgunblaðsins og Agnesar Bragadóttur að leggjast í skítkast af þessu tagi. Ellert B. Schram Slúður í Mogga Höfundur er varaþingmaður. VIÐ getum stofnað endalaust nefndir, hef ég á tilfinningunni, til að finna út af hverju matur er svona dýr á Íslandi og alltaf kom- ist að sömu nið- urstöðu og hún er „ráðumst á bændur og gerum frjálsan innflutning á land- búnaðarafurðum til landsins“. Einhæfnin og hugmyndaleysið í umræðunni um þetta mál er hreint með ólíkindum. Gott og vel, þróun- in hjá bændum á okk- ar landi er und- anfarin ár á þá leið, að búum fækkar og þau stækka sem hlýt- ur með tímanum að leiða til lækk- andi verðs vegna aukinnar hag- kvæmni í þessum stærri rekstrareiningum. Svo dreifa fóð- urfyrirtækin jafnmiklu fóðri á færri staði og afurðastöðvarnar safna mjólkinni, kjötinu og öðrum afurðum í jafnmiklu magni á færri stöðum. En hefur engum fréttamann- inum dottið í hug að bera saman verð á fóðurbæti til bænda? Fróð- legt væri ef sá kostnaðarliður, sem og túnáburður, en þetta eru ein- hverjir hæstu útgjaldaliðir búanna, væri borinn saman við hin Norð- urlöndin, en ekki bara hlaupin ein ferðin enn út í búð og inn- kaupakarfan fyllt. Samhengi er milli vaxta, verð- bóta og matvælaverðsins og meira en samhengi. Tökum dæmi: Kúabú, svínabú, kjúklingabú eða fjárbú sem fylgja áðurnefndri þró- un sem felst í stækkun og fækkun búa. 1. Búið skuldar 100 milljónir eft- ir dýra uppbyggingu húsa og kvótakaup og bankinn tekur 15% vexti á ári, það eru 15 milljónir á ári bara í vexti sem fara að sjálf- sögðu beint út í matvælaverðið. 2. Sláturhúsið skuld- ar líka 100 milljónir vegna þess að síaukn- ar kröfur eru gerðar til hreinlætis og vand- aðrar meðhöndlunar matvæla, allt verður að fylgja nýjustu Evr- ópustöðlum og öðrum álíka tískustraumum þótt bragðið sé nú svipað og áður en það hét villilamb. Slát- urhúsið borgar líka 15 milljónir í vexti og verðbætur. Og þar er verið að meðhöndla sama kjötbitann og á búinu í lið 1. 3. Við skulum fylgja þessum sama kjötbita úr sláturhúsinu í kjötvinnsluna þar sem hann er „hanteraður“ í alls kyns krásir og álegg og allt hvað heitið hefur. En kjötvinnslan skuldar líka 100 millj- ónir og borgar þar af leiðandi 15 milljónir í vexti á ári. 4. Svo skulum við fara á þann stað sem við þekkjum hvað best af þessari upptalningu. Við skulum fara út í búð, en þessi verslun berst í bökkum eftir verðstríðið sem geisaði hér á síðasta ári, skuldar 100 milljónir og verður að borga 15% í vexti á ársgrundvelli. Kaupmaðurinn hefur enga vasa til að sækja þetta fé í nema hjá sauð- heimskum almúganum sem hann kallar í daglegu tali væntanlega viðskiptavini. Hvað skyldi þetta kosta okkur þegar upp er staðið? Er það ekki þarna sem hundurinn liggur graf- inn? En af hverju erum við svona hrædd við að tala um þetta? Eða hefur bara engum dottið þetta í hug? Þarna spilar verðtryggingin stórt hlutverk. En hvenær er rétti tíminn til að leggja niður verð- trygginguna? Kannski þegar verð- bólgan lækkar eins og gerðist vegna þjóðarátaks á vormánuðum 2006. Er þá rétti tíminn? Af hverju? Lánið sem ég tók í október 2004 hefur hlaðið á sig 2,4 milljónum í formi verðbóta. Og þá er ég bara að tala um hækkun á höf- uðstólnum, ótaldar eru verðbætur vegna vaxta, verðbótaþáttur og hvað þetta heitir nú allt saman. Er verið að nýta tímann svo að höf- uðstóll lánanna verði sem hæstur þegar verðtryggingin er tekin af eða er bara verið að eyða um- ræðunni eina ferðina enn? Tökum eitt dæmi. Hvaða rétt- læti er í því að ef olíuverðs- samráðsríkin minnka framleiðslu til að hækka verð, þá hækkar vísi- talan á Íslandi og afborgunin á húsunum okkar sem og höfuðstóll- inn hækkar? Fyrirgefið mér en ég sé ekki og skil ekki samhengið. En bíddu við, hver fær krónurnar sem ég borga í viðbót í formi hærri verðtryggingar? Bankarnir. En hvar komu þeir inn í þessa mynd? Hvers vegna? Hvað kemur bönk- unum þetta við? Ekki er þetta til að hjálpa mér að skilja þessa ótrú- legu samhengisleysu. Einsýnt er að allt fjármálakerfið á Íslandi er uppbyggt á þann veg að hagur þess er há verðbólga. Verðbætur eru ekkert annað en vextir, ekkert annað. Bankarnir borga aðeins brot af verðbótunum aftur til baka til sinna við- skiptavina. Hvernig væri hagkerfið á Íslandi í dag ef það væri hagur þess að hér væri engin verðbólga? Mundu þá ekki allir bankar, allar lánastofnanir svo og ríkisstjórnin vinna að því markmiði? Af hverju er þá ekki vísitalan lögð niður núna svo við getum nýtt þessi öfl, sem eru svo vel stæð, í hagkerfinu með í þetta verkefni. Ég get ekki vorkennt bönkunum þótt þeir töp- uðu nokkur hundruð milljónum á þessu, ég hef á tilfinningunni að við eigum það inni hjá þeim og vel það. Getur verið að samhengi sé á milli sölu bankanna, hárra vaxta og lokaðs bókhalds stjórn- málaflokkanna? Ég setti mér áramótaheit. Ég ætla að stofna landssamtök vaxta- greiðenda. Það verður ekkert fé- lagsgjald. Takmark samtakanna númer eitt verður að knýja bank- ana til að leggja niður upp- greiðslugjöld svo einhver sam- keppni verði til í þessum geira, svo förum við að tala um vexti og verðbætur. Þetta er ekki hótun, þetta er loforð. Matvælaverð, vextir og verðbætur Magnús Vignir Árnason fjallar um matarverð, vexti og verðbætur »Hvernig væri hag-kerfið á Íslandi í dag ef það væri hagur þess að hér væri engin verð- bólga? Magnús Vignir Árnason Höfundur er aðstoðarrekstrarstjóri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.