Morgunblaðið - 19.03.2007, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. MARS 2007 21
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Fyrir tveimur árum komumst við að þvíað engin okkar hafði lengur áhuga áþví að vinna einsömul og okkur lang-aði líka til að vinna á stað þar sem að-
staðan væri eins og okkur dreymir um. Við
ákváðum því að slá til og byggja okkar eigin
dýralæknamiðstöð,“ segir Ellen Ruth Ingi-
mundardóttir dýralæknir sem er ein þeirra
þriggja kvenna sem hafa ráðist í það stórvirki
að byggja 300 fermetra dýralæknamiðstöð í
Grafarholtinu þar sem eingöngu verður hugað
að smádýrum. Hinar tvær eru þær Steinunn
Geirsdóttir og Sif Traustadóttir.
„Þegar við höfðum fundið lóðina þá var
næsta skref að finna arkitekt og við leituðum
ekki langt yfir skammt, því kona nokkur sem er
eigandi hunds sem Steinunn hefur verið að hlúa
að, er arkitekt og tók að sér verkið. Annar
hundaeigandi reddaði okkur smiðum og sá sem
lagði gólfefnið er með hesta í Keflavík sem ég
hef mikið sinnt. Grafíski hönnuðurinn sem
hannaði lógóið, heilsufarsbækur og annað tengt
miðstöðinni, er kona með hunda og hesta sem
við höfum sinnt. Dýrin hafa því leitt okkur til
margra þeirra sem vinna að byggingunni og
það er auðvitað hið besta mál. Þetta er fólk sem
hefur fullan skilning á þörfum dýra.“
Hundar og kettir ekki hlið við hlið
Þær Ellen, Sif og Steinunn skoðuðu teikn-
ingar af dýralæknamiðstöðvum á bandarískum
heimasíðum til að fá hugmyndir, en Sif kynntist
góðum aðstæðum þar í landi á námsárunum.
„Síðan suðum við saman nokkrar teikningar til
að fá út draumaaðstöðuna. Við vildum til dæmis
hafa skoðunarherbergi fyrir hverja og eina
okkar til að geta allar á sama tíma tekið sjúk-
linga inn til okkar. Við ætlum líka að vera með
sérherbergi fyrir ketti og sérherbergi fyrir
hunda sem verða hvort í sínum endanum á hús-
inu,“ segir Ellen og bætir við að þær hafi hann-
að dýralæknamiðstöðina með áherslu á það að
viðskiptavinirnir fari helst ekki inn fyrir skoð-
unarherbergin.
„Eigendurnir koma auðvitað með dýrunum
inn í fyrstu grunnskoðun en bæði skurðstofan
og aðstaða fyrir skítugri aðgerðir eins og að
tæma graftarkýli og annað í þeim dúr, verður
alveg sér.“
Frjóar og fullar af hugmyndum
Þær ætla líka að vera með góða verslun í
dýralæknamiðstöðinni, til að þjónusta við-
skiptavinina með sjúkrafóður og þar verður
einnig fullt af nýjum gæludýravörum sem
ekki fást annarsstaðar. Og þar sem þær eru
allar fjölskyldumanneskjur, þá lögðu þær í
hönnun húsnæðisins áherslu á aðstöðu fyrir
börnin sín.
„Við verðum með gott fjölskylduherbergi þar
sem verður eldhús, sófi, matarborð og útgengt
út á pall til að leika eða sitja úti í góðu veðri. Við
viljum ekki láta börnin okkar dúsa í einhverju
kaffihorni heldur viljum við að þau geti verið í
friði með sitt dót og hafi gaman að því að vera
hjá okkur í vinnunni, þegar við þurfum að taka
þau með okkur, sem óhjákvæmilega gerist
stundum,“ segir Ellen og bætir við að það hafi
verið mjög skemmtilegt að hanna dýralækna-
miðstöðina, því þær séu allar mjög frjóar og
enginn skortur hafi verið á hugmyndum.
Tannlækningar dýra og atferlisfræði
Ellen segir ástæðu fyrir því að þær ákváðu
að sinna eingöngu smádýrum á nýja spít-
alanum.
„Þá verður þetta allt saman snyrtilegra og
fólk verður minna vart við okkur, það verða
ekki hestar og kýr á lóðinni, enda ekki pláss
fyrir stór dýr á 300 fermetrum, og ekki aðstaða
fyrir þau heldur. Við völdum þessa staðsetn-
ingu líka vegna þess að það er hvorki dýralækn-
ir í Grafarvogi né Grafarholtinu, þannig að þar
er þörf fyrir þessa þjónustu. Gæludýrum hefur
líka fjölgað mikið á Reykjavíkursvæðinu.“
Þær hafa skapað sér nokkra sérstöðu með
því að sérmennta sig á óvenjulegum sviðum.
„Ég hef sérhæft mig í tannsjúkdómum smá-
dýra og er að bæta við það núna og við verðum
líka með mjög góða aðstöðu til tannaðgerða. Sif
er að sérmennta sig í atferlisfræði dýra með at-
ferlismeðhöndlun þeirra í huga og Steinunn
hefur bætt við sig menntun í sjúkdómum hunda
og katta.“
Allar eiga þessar kjarnakonur sjálfar gælu-
dýr, Ellen á hund og hesta, Sif á bæði ketti,
hunda og naggrís en Steinunn lætur ennþá
duga að eiga fiska.
Engar kýr eða hross á lóðinni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tannhreinsun Steinunn hreinsar tennurnar hennar Tinnu.
Til stendur að opna Dýralæknamiðstöðina
um næstu mánaðamót og þá verður kynning-
ardagur þar sem fólki verður boðið að líta á
aðstöðuna.
www.dyrin.is
Dýrakonur Tíkin Snotra, hundurinn Brósi og kötturinn Snæfríður í heimsókn hjá dýralæknunum Ellen, Sif og Steinunni.