Morgunblaðið - 19.03.2007, Side 39
Skrautleg Verka Serdjuchka þykir í meira lagi lífleg á sviði.
ÞAÐ VERÐA að minnsta kosti tvær dragdrottn-
ingar með í Evróvisjón-keppninni sem fram fer í
Helsinki í ár. Fyrst völdu Danir lagið „DQ“ með
Drama Queen sem sitt framlag og nú hafa Úkra-
ínumenn valið Verka Serdjuchka (Andrej Da-
nilko) sem sinn fulltrúa með lagið „Danzing“.
Verka þessi, sem flytur reyndar flest sín lög á
rússnesku, er mikil stjarna í Úkraínu og Rúss-
landi. Lög hennar eru fjörug og myndbönd henn-
ar skrautleg, eins og listamaðurinn sjálfur.
Verka komst næstum því í lokakeppni Evró-
visjón árið 2005, en margir halda því fram að að-
standendur keppninnar í Úkraínu hafi guggnað á
síðustu stundu. Kannski ekki að furða þar sem
margir þar í landi hafa mótmælt þátttöku Verku
og krafist þess að „Danzing“ verði dregið út úr
keppninni.
Myndbönd með lögunum má finna á netsíðunni
youtube.com með því að slá inn nöfn keppend-
anna.
Tvær drag-
drottningar
í Evróvisjón
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. MARS 2007 39
Sími - 551 9000
Epic Movie kl. 6, 8 og 10 B.i. 7 ára
Venus kl. 6, 8 og 10 B.i. 12 ára
Last King of Scotland kl. 5.30, 8 og 10.35 B.i. 16 ára
Notes on a Scandal SÍÐUSTU SÝN. kl. 8 B.i. 14 ára
Pan´s Labyrinth SÍÐUSTU SÝN. kl. 10 B.i. 16 ára
Litle Miss Sunshine SÍÐUSTU SÝN. kl. 5.50 B.i. 7 ára
* Gildir á allar sýningar
í Regnboganum merktar
með rauðu
450 KR.
Í BÍÓ
*
- Verslaðu miða á netinu Sýnd kl. 6, 8 og 10Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 7 ára
-bara lúxus
Sími 553 2075
HÚN ER STÓR....VIÐ MÆLDUM
UPPLIFÐU MYNDINA SEM FÉKK
ENGIN ÓSKARSVERÐLAUN!
Milljón dollarar. Sjö leigumorðingjar. Eitt skotmark.
Sýnd kl. 5:45, 8 og 10:15 B.i. 16 árawww.laugarasbio.is
eee
SV, MBL
eee
VJV, TOPP5.IS
Hefur þú einhvern tímann gert
mjög stór
mistök?
eeee
H.J. - MBL
eeee
LIB - TOPP5.IS
eeee
O.R. - EMPIRE
eee
H.J. - MBL
eee
Ó.H.T. - RÁS 2
SÍÐUSTU SÝNINGAR
eeeee
LIB, TOPP5.IS
eeeee
HGG, RÁS 2
eeeee
HK, HEIMUR.IS
SÍÐUSTU SÝNINGAR SÍÐUSTU SÝNINGAR
eeee
„Frábær
skemmtun!“
- S.V., Mbl
„Óvænt kvikmyndaperla sem
enginn má láta fram hjá sér fara.“
- Sigríður Pétursdóttir, Rás 1
eeee
„Frábær leikur og eftirminnileg mynd!“
- B.S., Fréttablaðið
DAN DUNNES (Gosling), er vel
látinn sögukennari og körfubolta-
þjálfari gagnfræðaskóla í niðurníddu
úthverfi í New York. Dunnes er
gamall hugsjónamaður sem upplifir
draumana breytast í tálsýnir án þess
að fá rönd við reist. Þess í stað
drabbast hann æ dýpra niður í eitur-
lyfjaneyslu og einangrast frá um-
heiminum – ef undan er skilin nem-
andi hans, hin 13 ára gamla Drey
(Epps). Þau gera vanmáttugar til-
raunir til bjargar hvort öðru.
Það vakti nokkra furðu þegar
Gosling var tilnefndur til Óskars
fyrr á árinu, en ekki lengur. Hans er
ekki minnst fyrir leiksigra, en fer
óaðfinnanlega með erfitt hlutverk
geðþekks manns sem eitrið er að yf-
irbuga. Dunnes vill hjálpa en finnur
að hann er ófær til þess. Nafn mynd-
arinnar, sem er heiti á óvinnandi
glímutaki í fjölbragðaglímu, vísar til
kókaínsins, vanmáttar og uppgjafar
í hörðum heimi. Epps túlkar hlut-
verk sitt af skilningi og óvenjulegum
þroska hjá svo ungri leikkonu. Í
sameiningu blása þau óvæntum lífs-
krafti í kunnuglegt en óvenju vel
skrifað félagslegt og pólitískt efni
með óvæntri tilfinningafléttu sem
gerð eru eftirminnileg skil.
Óvænt tilfinningaflétta
Mynddiskur
Drama
Bandaríkin 2006. Myndform. DVD (105
mín.) Bönnuð yngri en 14 ára. Leikstjóri:
Ryan Fleck. Aðalleikarar: Ryan Gosling,
Shareeka Epps.
Fantatak – Half Nelson Sæbjörn Valdimarsson
Half Nelson Ryan Gosling leikur sögukennara og körfuboltaþjálfara.
ENDURGERÐ klassískrar hroll-
vekju frá 1973 nær ekki settu marki
og hefur engu við að bæta. Söguþráð-
urinn er í stórum dráttum sá sami, ut-
an að sögusviðið er flutt vestur um
haf frá Skotlandi. Lögreglumaður
fær beiðni um neyðaraðstoð frá gam-
alli kærustu sem býr á eyju við
Kyrrahafsströndina, engu er líkara
en jörðin hafi gleypt dóttur hennar.
Gamla myndin er undarleg og
ógleymanleg lýsing á einangruðu,
snargeggjuðu samfélagi þar sem
haldið er í heiðna siði sem þola illa
nærskoðun umhverfisins. Cage er
þéttur sem friðarspillirinn sem lendir
í hremmingum lífsins en ógnina vant-
ar sárlega. Leikstjórinn grípur í sí-
fellu til draumfara, endurhvarfa, of-
sjóna og annarra ómerkilegra klisja
sem verða hvimleiðar. Eina umtals-
verða andlitslyftingin í endurgerðinni
tilheyrir gömlu, góðu Brennan, sem
orðin er óþekkjanleg og eina sjokkið í
The Wicker Man.
Sæbjörn Valdimarsson
The Wicker Man Endurgerð frá ’73.
Tágamaðurinn – The Wicker Man
Bandaríkin 2006. Myndform. VHS (97
mín.) Bönnuð yngri en 16 ára. Leikstjóri:
Neil LaBute. Aðalleikarar: Nicolas Cage,
Ellen Burstyn.
Hrollvekja
Mynddiskar
Án ógnar
Eftir Sæbjörn Valdimarsson
saebjorn@simnet.is
Á SÍÐASTA ári voru gefnar út
tvær eigulegar öskjur með níu af
bestu verkum hins snjalla, franska
leikstjóra sem naut engan veginn
þeirrar athygli né vinsælda sem
hann átti skilið. Með mynd-
diskaútgáfunni er talsvert bætt úr
skák. Malle lést árið 1995, aðeins
63 ára, með glæsilegan vinnudag að
baki. Hálfrar aldar, rösklega 30
mynda ferill, hófst fyrir alvöru með
Ascenseur pour l’échafaud (’58) og
lauk með Vanya on 42. Street,
frumlegri kvikmyndagerð leikrits
Chekhovs (’95).
Malle giftist leikkonunni Candice
Bergen árið 1980, og flutti vestur
um haf þar sem hann starfaði um
hríð við lítinn fögnuð landa sinna.
Eftir heimkomuna gerði Malle önd-
vegisverkið Au revoir les enfants,
og var aftur tekinn í sátt. Myndin
er í öskjunni Louis Malle Collection
(Vol. 2), sem inniheldur auk henn-
ar, Black Moon (1975), Milou En
Mai (1990), Lacombe Lucien (1974)
og Le Souffle Au Coeur (Murmur
Of The Heart) (1971). Þetta er frá-
bær pakki, ekki síður við hæfi
þeirra sem lítið þekkja til leikstjór-
ans og tryggir ólæknandi Malle-
bakteríu.
Í öskjunni Louis Malle Collection
(Vol. 1), er efni fyrir lengra komna:
Ascenseur Pour L’Echafaud /
Elevator to the Gallows, frumraun
leikstjórans með Jeanne Morau í
aðalhlutverki og frægri tónlist Mil-
es Davis. Hinar þrjár, Les Amants
(1958), Zazie Dans Le Metro (1960)
og Le Feu Follet (1963), eru for-
vitnileg undirstöðuverk frá fyrri
hluta ferils eins merkasta leikstjóra
20. aldarinnar.
Útgáfa í mars
Í hverjum mánuði koma út hér-
lendis u.þ.b. 40 titlar, uppistaðan
myndir sem búnar eru að ganga í
kvikmyndahúsunum. Í þeim hopi er
m.a. að finna, Casino Royale (26),
með stálnaglanum Daniel Craig,
nýjasta og að margra áliti besta
Bond sögunnar, og Mannsbörn -
Children of Men (8). Magnaður
framtíðartryllir eftir Mexíkóann
Alfonso Carón, með Clive Owen –
manninum sem vildi ekki leika
Bond, í aðalhlutverki. Af öðrum
forvitnilegum myndum má nefna
teiknimyndirnar Barnyard (15) og
Fima fætur – Happy Feet (29);
Factotum með Matt Dillon (15),
sem opnaði kvikmyndahátíðina
IIFF í fyrra og All the King’s Men
(7), með Sean Penn og The Wicker
Man (8), með Nicolas Cage, sem
báðar fara beinu leiðina á DVD.
Góðir pakkar með
verkum Louis Malle
MYNDDISKAR»
Malle Leikstjórinn franski gerði
rúmlega 30 myndir á ferlinum.