Morgunblaðið - 19.03.2007, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 19.03.2007, Qupperneq 40
40 MÁNUDAGUR 19. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ Hagatorgi • Sími 530 1919 • www.haskolabio.is Hefur þú einhvern tímann gert mjög stór mistök? SÝND Í SAMBÍÓ KRINGLUNNI / KRINGLUNNI 300 kl. 8 - 10:10 - 10:30 B.i. 16 ára DIGITAL NORBIT kl. 5:50 - 8 - 10:20 LEYFÐ MUSIC & LYRICS kl. 8 LEYFÐ DIGITAL THE BRIDGE TO TEREBITHIA kl. 5:50 LEYFÐ 300 kl. 6:30 - 9 - 10:40 B.i. 16 ára BLOOD & CHOCOLATE kl. 8 -10:15 B.i. 12 ára LETTERS FROM IWO JIMA kl. 5:30 B.i. 16 ára BLOOD DIAMOND kl. 8 B.i. 16 ára DREAMGIRLS kl. 5:30 STÆRSTA OPNUN ÁRSINS Í BANDARÍKJUNUM eeee V.J.V. BREAKING AND ENTERING HORS DE PRIX ísl. texti kl. 5:40 - 8 - 10:20 TELL NO ONE (NE LE DIS A PERSONE) kl. 8 - 10:20 PARIS, JE T'AIME kl. 5:40 ALLIANCE FRANÇAISE, Í SAMVINNU VIÐ PEUGEOT OG BERNHARD, KYNNA: FRÖNSK KVIKMYNDAHÁTÍÐ Í HÁSKÓLABÍÓ 3.MARS TIL 1. APRÍL ,,TÍMAMÓTAMYND" eeeee V.J.V. - TOPP5.IS Í FYRNDINNI sá undirritaður Spartverjana 300, ég hallast þó að því að það hafi frekar verið í bíó- mynd en raunveruleikanum því Richard Egan fór fyrir köppunum. Hann var örugglega ekki forn- grískur bardagamaður heldur B- myndaleikari í Hollywood, líkt og Gerard Butler. Annað eiga mynd- irnar, sem gerðar eru með 40 ára millibili, ekki sameiginlegt. 300 er byggð á teiknimyndasögu Franks Miller og er farið frjálslega með sögulegar heimildir en átökin færð í ofbeldisfullan og frjálslegan búning hasarblaðasagnaheims höf- undar. Flutningurinn á tjaldið hefur tekist vel á sinn hátt. 300 er vitstola, blóðidrifin, brellumhlaðin rússíbanareið, en með réttu hug- arfari má hafa af henni stund- argaman. Sögutíminn er um 500 f.Kr., Leónídas (Butler), konungur hins öfluga smáríkis Spörtu, heldur ásamt einvalaliði 300 bestu stríðs- manna sinna til móts við innrásarlið Persa. Þetta er ójafn leikur, óvina- fjöldinn telur á þriðja hundrað þús- unda, en Leónídas hyggst sjá við liðsmuninum með því að verjast í Laugahliði, hömrumgirtu einstigi við sjó fram. Skynsamlegast er að skilja sögu- kunnáttuna eftir heima, jafnvel minni rykfallinna B-mynda. 300 er engu öðru lík en verkum Millers, einkum hinni eftirminnilegu mynd Sin City. Að þessu sinni notast Snyder leikstjóri við leikara af holdi og blóði en bakgrunnurinn er að mestu leyti stafræn tölvugrafík. Útkoman er þrjúbíó fyrir full- orðna, spennandi, fyndið og fárán- lega ofbeldisfullt að hætti Millers. Leikararnir eru með á nótunum, Snyder hefur tínt til mismunandi lítt þekkta en karlmannlega tréhesta úr röðum B-mynda- og aukaleikara. Skellt þeim í klæðispjötlur og búið morðvopnum síns tíma og allir skemmta sér hið besta. Setja á sig ygglibrúnir og þylja textaruglið líkt og Shakespeare í Old Vic. Það er óviljandi ferlega fyndið og hugvits- samleg, tölvuunnin bardagaatriðin eru engu lík sem þið hafið áður séð. Auk fáklæddra karlmannskropp- anna gefur að líta slangur af ófreskjum og afstyrmum að hætti Lúkasar í Stjörnustríðum. Santoror klæðir Xerex Persakonung úrkynj- uðum yndisþokka og feiknalegar vinsældir myndarinnar geta hugs- anlega fært hinum tígulega og þol- inmóða vonbiðli frægðarinnar Lenu Headey (Waterland) uppskeru erf- iðis síns. En vonandi ekki fram- haldsmynd. Endalok í Laugaskarði Rússibanareið Gagnrýnandi segir 300 vera vitstola, blóðidrifna, brellum- hlaðna rússíbanareið sem megi hafa gaman að með réttu hugarfari. KVIKMYNDIR Sambíóin, Háskólabíó Leikstjóri: Zack Snyder. Aðalleikendur: Gerard Butler, Lena Headey, Dominic West, David Wenham, Rodrigo Santoro. 118 mín. Bandaríkin 2007. 300  Sæbjörn Valdimarsson REGGÍSVEITIN Hjálmar kom aftur saman um helgina í fyrsta skipti í sjö mánuði. Á föstudaginn lék sveitin fyrir Akureyringa en á laugardag hélt sveitin tónleika á skemmtistaðnum NASA. Tón- leikarnir á laugardag voru vel sóttir og þrátt fyrir að með- limir sveitarinnar staðhæfi að hún sé hætt er ljóst að hún á sér ennþá heilmarga aðdá- endur sem kunna að meta þjóðlega reggíhljóma þessarar íslensk-sænsku hljómsveitar – eins þversagnakennt og það getur hljómað. Eins og sjá má af myndunum var stemmn- ingin góð á NASA og óskandi að fleiri „óstarfandi“ hljóm- sveitir tækju sér Hjálma til fyrirmyndar. Upprisa Hjálmanna Ánægð Ingimar Örn Gylfason og Harpa Hrund Njáls- dóttir voru ánægð með endurkomu Hjálma. Morgunblaðið/Eggert Hættir Hjálmar segjast vera hættir en gripu tækifærið og blésu til tónleika þegar sænski armur hljómsveitarinnar kom til landsins í heimsókn. NASA Mikil og góð stemning myndaðist á tónleikunum eins og við er að búast þegar Hjálmar eiga í hlut. Baksviðs Sammi úr Jagúar heilsaði upp á Hjálma baksviðs eftir tónleikana.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.