Morgunblaðið - 21.04.2007, Side 6

Morgunblaðið - 21.04.2007, Side 6
6 LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR www.islandshreyfingin.is ÍSLANDSHREYFINGIN VILL fjölga úrræðum fyrir geðsjúka í búsetumálum og til endurhæfingar í samvinnu við Geðhjálp og aðra hagsmunaaðila Samþætta þjónustu í málefnum barna og unglinga með geðraskanir og auka valkosti í meðferð barna og unglinga með hegðunar- og geðraskanir gera úttekt á áfengis- og vímuefnameðferð fyrir unglinga og bæta úrræði á grundvelli þeirrar úttektar Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is „VIÐ erum að búa til öðruvísi hverfi sem við teljum að muni verða leiðandi í framtíðarskipu- lagningu, bæði hvað varðar skipu- lags- og umhverfismál,“ segir Jón Pálmi Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Urriðaholts ehf. um hönnunina að baki samnefnds hverfis í Garðabænum. Áherslan á vistvæna þáttinn í skipulaginu er nokkuð óvenjuleg og telur Jón Pálmi að hann muni skipta miklu máli fyrir fólk þegar það velur sér húsnæði í framtíðinni. Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, tekur undir með Jóni Pálma um að grænar áherslur hverfisins, sem er stað- sett við Reykjanesbraut, sunnan við Vífilsstaði, marki tímamót í skipulaginu á höfuðborgarsvæð- inu. „Ég er alveg sannfærður um það að þetta hverfi mun gefa ákveðinn tón, bæði í skipulagi á Íslandi almennt og jafnvel um all- an heim,“ segir Gunnar. „Hverfið er að fá viðurkenningu og verð- laun víða og við hjá bænum finn- um að unga fólkið kann að meta áherslu á atriði eins og náttúru- vernd, vistvænt val á bygging- arefnum, ofanvatnslausnir og áherslu á umferð gangandi og hjólandi fremur en bifreiða. Fólk á milli þrítugs og fertugs er mikið að spyrja um umhverfismál, um vistvænar lausnir, flokkun sorps, viðbótartunnur o.s.frv. Þetta kom mér pínulítið á óvart. Það er eins og þessi unga kynslóð sé miklu meðvitaðri um umhverfismál.“ Grunnskóli opnaður 2010 Um 4.000 til 5.000 manns munu búa í hverfinu þegar það er full- byggt og er ráðgert að svipaður fjöldi muni starfa í Urriðaholti. Íbúafjöldi Garðabæjar er nú um 9.500 og kemur hverfið því til með að auka hann um 50 prósent. Alls verða 1.630 íbúðaeiningar á svæð- inu og áherslan á blöndu sérbýlis- og fjölbýlishúsa, verktakar bjóði í rað- og fjölbýlishús en einstakl- ingar í einbýlishúsalóðir. Í fyrsta áfanganum af þremur í íbúðahluta hverfisins verða boðn- ar út lóðir fyrir 377 íbúðaeiningar – meirihlutinn 15. maí nk. – og vill Jón Pálmi aðspurður ekki gefa upp áætlað lóðaverð, en þess má geta að 500 umsóknir bárust í 100 einbýlislóðir í Garðahrauni og Hraunsholti nýverið. Jón Pálmi gerir ráð fyrir að uppbygging fyrsta áfangans taki tvö og hálft ár, grunnskóli opni haustið 2010. Á norðanverðu svæðinu er jafn- framt gert ráð fyrir um 90.000 fermetra skrifstofu- og þjónustu- húsnæði við svokallað Viðskipta- stræti og verður deiliskipulagið tekið fyrir í haust. Fyrsti áfangi verður 25.000 fermetrar og byggður upp í þremur til fjórum áföngum. Áætlar Jón Pálmi að allri uppbyggingu muni ljúka eftir fimm til sex ár, en undirbúnings- vinnan hefur tekið á þriðja ár. Spurður um frekari uppbygg- ingu í framtíðinni segir Gunnar að Hnoðraholt sé á teikniborðinu, þar sem gert sé ráð fyrir um 2.500 manna byggð. Einnig verði byggt á Setbergslandinu, sem sé í einka- eigu, og á Svínholtinu. Þetta sé í samræmi við þá ákvörðun að stækka byggðina fremur til aust- urs en í átt til Garðaholts. Gunnar metur það svo að góð eftirspurn verði eftir húsnæði í Urriðaholti, sú eðlisbreyting sé að verða á markaðnum að kaupendur geri sí- fellt meiri kröfur um lífsgæði. Lóðir í Urriðaholti boðnar út um miðjan maímánuð Hvað með kotið? Urriðavatnslandið er hluti af landi í eigu Oddfellow-reglunnar en á því stóð bærinn Urr- iðakot þar til á öldinni sem leið. Hafa sumir því talið eðlilegt að nefna vatnið Urriðakotsvatn. Hin nafngiftin er hins vegar eldri og stendur. Eignarhaldsfélagið Urriðaholt var stofnað í ársbyrjun 2005 og er í eigu Odd- fellowreglunnar og Viskusteins ehf., eignarhaldsfélags í eigu Sigurðar Gísla og Jóns Pálmasona.  Hverfið eykur íbúafjölda Garðabæjar um 50%  Jafnstórt og Þingholtin VIÐ hönnun íbúðabyggðar við Urriðavatn var tek- ið tillit til þeirrar gagnrýni að byggingarsvæðið væri við viðkvæmt lífríki vatnsins og verður rign- ingarvatni miðlað í vatnið með svonefndum sjálf- bærum ofanvatnslausnum. Felst það í því að regn- vatnið er látið sytra niður í jarðveginn fremur en að dæla því beint út í sjó í lögnum og með því móti tryggt að vatnsbúskapur haldist eðlilegur. Að sögn Halldóru Hreggviðsdóttur, fram- kvæmdastjóra ráðgjafafyrirtækisins Alta, sem kom að hönnun hverfisins, eru götur hannaðar m.t.t. til þess að lágmarka óþarfa og hraða umferð, auk þess sem engir botnlangar eru í hverfinu. Þær munu jafnframt liðast um byggðina en ekki liggja í beinni línu líkt og í ýmsum úthverfum. Þá verður lögð áhersla á vistvænt byggingarefni og zink og kopar ekki leyft sem efniviður í húsþök. Jafnframt því sem umferðarhraði verður lágmarkaður er ætlunin að umferð gangandi og hjólandi fái forgang og að íbúar geti sótt alla þjónustu gangandi. Að auki verða margir grenndargámar í hverfinu, þar sem íbúar geta sett pappír og annan endurnýjanlegan úrgang til endurvinnslu, til greina kemur að slík söfnun færist inn á heimilin. „Við lögðum upp með að þetta yrði svæði þar sem yrði stutt í alla þjónustu, að börn gætu gengið í skóla og íbúar í verslanir,“ segir Halldóra, sem játar því að með þessu sé reynt að byggja upp nýtt sam- félag á svæði jafnstóru Þingholtunum. Til marks um það sé byggðin hönnuð þannig að íbúar geti flust til innan þess alla lífsleiðina. Vistvænt hverfi sem brýtur blað í borgarskipulaginu Halldóra Hreggviðsdóttir FIMM stjórnmálaflokkar greiddu ríflega 11 milljónir króna í auglýs- ingar í blöðum, útvarpi og sjónvarpi dagana 27. til og með 18. apríl sl., samkvæmt samantekt Capacent Gallup fyrir flokkana. Samkvæmt samkomulagi Fram- sóknarflokksins, Frjálslynda flokks- ins, Samfylkingarinnar, Sjálfstæðis- flokksins og Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs á auglýsinga- kostnaður hvers flokks í blöðum og ljósvakamiðlum vegna alþingiskosn- inganna í maí ekki að fara yfir 28 milljónir króna. Samkomulagið var gert áður en Íslandshreyfingin og Baráttusamtökin komu fram og eiga þau því ekki hlut að máli. Framsókn á toppnum Framsóknarflokkurinn hefur greitt mest fyrir auglýsingar til þessa, síðan Samfylkingin, þá Vinstri grænir, svo Frjálslyndir og loks Sjálfstæðisflokkurinn. Auglýsingakostnaður Framsókn- arflokksins á umræddum þremur vikum er um 3,1 milljón króna, þar af um 991 þúsund kr, í blöðum og um 2,1 milljónir kr. í sjónvarpi, en Framsóknarflokkurinn er eini flokk- urinn sem hefur auglýst í sjónvarpi til þessa. Samfylkingin hefur greitt um 2,5 milljónir kr. í auglýsingar og aðeins auglýst í blöðum til þessa. Vinstri hreyfingin – grænt fram- boð hefur varið tæplega 2,5 milljón- um kr. í auglýsingar, þar af liðlega 2,2 milljónum kr. í blaðaauglýsingar og tæplega 247 þúsund kr. í útvarps- auglýsingar. Frjálslyndi flokkurinn hefur ein- göngu auglýst í blöðum og greitt ríf- lega 1,8 milljónir kr. fyrir auglýsing- arnar. Sjálfstæðisflokkurinn rekur lest- ina. Hann hefur varið tæplega 1,3 millj. kr. í auglýsingar, þar af um 1,2 millj. í blaðaauglýsingar og um 342 þúsund kr. í útvarpsauglýsingar. Langmest auglýst í blöðum Flokkarnir hafa samtals auglýst í dagblöðum fyrir tæplega 8,8 millj- ónir kr., fyrir um 2,1 millj. kr. í sjón- varpi og fyrir um 342 þúsund kr. í út- varpi. Framsóknarflokkurinn hefur nýtt 11,1% af auglýsingafé sínu og má greiða um 25 milljónir til viðbótar í þennan lið, samkvæmt samkomulag- inu. Samfylkingin er búin með 9,0% af auglýsingafé sínu, Vinstri grænir 8,9%, Frjálslyndi flokkurinn 6,6% og Sjálfstæðisflokkurinn 4,6%. Auglýsingakostnaður flokk- anna kominn í 11 milljónir Allir auglýsa í blöðum, tveir í útvarpi og einn í sjónvarpi HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hefur dæmt karlmann á sextugsaldri til að greiða 160 þús- und krónur í sekt til ríkissjóðs vegna umferð- arbrots auk þess sem hann var sviptur öku- réttindum til tveggja ára. Maðurinn var stöðvaður við akstur í ágúst á sl. ári á Reykjanesbraut, á móts við Kapla- krika í Hafnarfirði, og samkvæmt niður- stöðum úr blóðrannsókn var vínandamagn í blóði hans 2,04 prómill. Maðurinn gaf þær skýringar að hann hefði gripið til aksturs í neyð þar sem hann hefði ekki séð aðrar leiðir færar til að komast undir læknishendur. Seg- ir í skýrslu lögreglu að maðurinn hafi óttast að hann væri að fá hjartaáfall, hann hafi ekki verið með nein lyf og ekki átt innistæðu á síma sínum. Hann hafi brugðið á það ráð að drekka úr hálfum pela af vodka á mjög skömmum tíma, í þeirri von að það myndi slá á verkinn. Hann hafi ekki þorað annað en að fara á slysadeild en ekki kunnað við að ónáða fólk í nágrenninu og ákveðið að keyra sjálfur. Sveinn Sigurkarlsson héraðsdómari kvað upp dóminn. Jóhann S. Hauksson fulltrúi sótti málið af hálfu ákæruvaldsins og Ívar Pálsson hdl. varði manninn. Keyrði ölvaður af stað af ótta við hjartaáfall ERFITT er að koma í veg fyrir atvik lík því sem kom upp á Vitastíg á miðvikudagskvöld, þegar heitavatnslögn gaf sig og um 80°C heitt vatn flæddi niður á Laugaveg, segir Helgi Pétursson, upplýsingafulltrúi Orku- veitunnar, og bendir á að leiðslukerfi heita vatnsins í borginni sé um 2.500 km langt. Helgi segir hins vegar að reynt sé að fylg- ast með ástandi kerfisins um leið og unnið er að endurbótum á því. Þá segir hann umrædd rör hafa verið um tuttugu ára gömul og nú liggi fyrir að tæring í þeim hafi verið meiri en gert var ráð fyrir samkvæmt útreikn- ingum. Ásgeir Baldursson, framkvæmdastjóri Vá- tryggingafélags Íslands, segir það liggja fyr- ir að félagið sé bótaskylt fyrir hönd Orku- veitunnar en ekki liggi fyrir hversu mikið tjónið sé – það hlaupi þó á milljónum. Stefnt er að því að mat á fjárhagstjóninu liggi fyrir fljótlega eftir helgi. Tæring í rörinu meiri en gert var ráð fyrir LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæðinu hand- tók karlmann á þrítugsaldri vegna aksturs undir áhrifum lyfja síðdegis á fimmtudag. Það væri ekki í frásögur færandi nema vegna þess að maðurinn var stöðvaður í porti lögreglunnar við Hverfisgötu. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu ætl- aði maðurinn að hitta kunninga sinn sem hafði verið stöðvaður skömmu áður. Sá var einnig stöðvaður fyrir lyfjaakstur en auk þess fannst þýfi í bifreið hans sem talið er vera úr innbrotum í bíla á höfuðborgarsvæð- inu á undanförnum dögum. Ekkert varð af fundum þeirra félaga en þegar maðurinn sást síðan undir stýri bif- reiðar var hann þegar stöðvaður. Gripinn í porti lögreglunnar Grænt Myndin er tekin af vefsíð- unni urridaholt.is og er dæmi um sambærilegt hverfamynstur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.