Morgunblaðið - 21.04.2007, Qupperneq 8
8 LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ég verð að játa eitt og það er aðég er svolítið viðkvæm fyrirhópstemmningu og geng
kannski stundum full langt í að að-
laga mig þeim hópum sem ég villist
inn í hverju sinni. Þannig get ég
sveiflast frá því að virðast svakalegur
útivistargarpur og upp í, eða niður í,
að vera versta barrotta, allt eftir
stemmningunni. Ég finn mig líka í
samræðum um ótrúlegustu og að-
skildustu hluti, ef það er bara
stemmning fyrir því. Og einmitt
vegna þessa gat ég ekki annað en
hrifist með á landsfundum bæði Sjálf-
stæðisflokks og Samfylkingar síðustu
helgi.
Við fréttamenn virkum stundum
eins og dálitlir fýlupúkar á svona
samkomum enda eigum við að vera
hlutleysið uppmálað og einhvern veg-
inn nær það svo langt að blaðamað-
urinn ritskoðar sjálfan sig, þ.m.t. öll
svipbrigði og hreyfingar. Þegar allir
standa upp á landsfundum og fagna
þá stend ég mig ítrekað að því að ætla
að spretta á fætur og klappa með
(jafnvel þótt ég sé alfarið ósammála
lófatakstilefninu), en man svo að það
hæfir ekki mínu hlutverki.
Þess vegna sat ég sem fastast við
fréttamannaborðið á landsfundi Sjálf-
stæðisflokksins þegar leiktjald var
dregið frá á sviðinu á lokatónum
Diddúar og brosmildir frambjóð-
endur flokksins komu í ljós í þéttum
hópi. Ég klappaði heldur ekki þegar
Mona Sahlin og Helle Thorning-
Scmidht gengu í salinn við mikinn
fögnuð landsfundargesta Samfylk-
ingarinnar. Og ég reyndi að fela bros-
ið þegar Geir H. Haarde setti spurn-
ingarmerki við reikningskúnstir
stjórnarandstöðunnar sem ýmist sak-
ar ríkisstjórnina um að lækka eða
hækka skatta, sem og þegar Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir sagðist
þekkja það sjálf hvernig væri að eyða
biðlistum sem hafa safnast upp eftir
sjálfstæðismenn. Alltaf sat ég sem
fastast með hlutlausan svip, en leyfði
mér stöku sinnum að klappa á eftir
hlutlausum skemmtiatriðum.
Landsfundur Samfylkingarinnar
var haldinn í skugga margumræddra
skoðanakannana en ég held það sé
óhætt að segja að samfylkingarfólki
hafi tekist ágætlega til. Stemmningin
varð betri eftir því sem leið á fundinn
og ræða Ingibjargar Sólrúnar við lok
fundarins var mun kraftmeiri en sjálf
setningarræðan. Eitt atriði í lands-
fundarályktunum vakti athygli en
það lýtur að því að í mögulegu ráð-
herraliði flokksins verði jafnt kynja-
hlutfall. Ingibjörg Sólrún er eina kon-
an sem leiðir framboðslista flokksins
fyrir kosningar og með svona afdrátt-
arlausri landsfundarsamþykkt er
augljóst að einhverjir af karlkyns
oddvitunum fimm þurfa að sætta sig
við að eiga ekki möguleika á ráð-
herrastóli, komist Samfylkingin í rík-
isstjórn.
Framsóknarflokkurinn hefur sett
gott fordæmi með jöfnu hlutfalli karla
og kvenna í ríkisstjórnarsætum
flokksins og jafnmargar konur og
karlar leiða framboðslista til kosning-
anna í vor. Íslandshreyfingin hefur
kynnt fimm af sex oddvitum sínum og
í þeim hópi eru þegar þrjár konur.
Hjá Vinstri grænum eru tvær konur
af sex í oddvitasætum og hjá Sjálf-
stæðisflokkinum og Frjálslynda
flokkinum ein. Mest hallar á konur í
Norðvesturkjördæmi þar sem engin
kona er í öruggu þingsæti og svo virð-
ist sem ekkert hafi orðið af mögulegu
kvennaframboði í kjördæminu, sem
kjaftasaga gekk um fyrir 2–3 mán-
uðum.
Verði fylgi VG eitthvað í líkingu við
það sem skoðanakannanir sýna
kemst Ingibjörg Inga Guðmunds-
dóttir á þing og ef Framsókn nær að
auka fylgi sitt verulega á endasprett-
inum, eins og svo oft vill verða, þá
hefur Herdís Sæmundardóttir mögu-
leika á þingsetu. Þá verður spennandi
að fylgjast með Bolvíkingnum Pálínu
Vagnsdóttur sem leiðir lista Íslands-
hreyfingarinnar í kjördæminu.
Baráttusamtökin hafa enn ekki
kynnt sína framboðslista en eru engu
að síður komin með listabókstafinn E.
Kjósendur ættu því að öllu óbreyttu
að geta valið milli sjö bókstafa 12. maí
nk: B, D, E, F, I, S og V.
Útivistargarpur og bar-
rotta á tveimur fundum
12. MAÍ 2007
Halla Gunnarsdóttir
BENSÍNVERÐ hækkaði í vikunni
að meðaltali um 2,50 krónur. Olís
reið á vaðið sl. miðvikudag, hækkaði
um 2,70 krónur og N1 fylgdi í kjöl-
farið, hækkaði um 2,50, og loks
Skeljungur 2,50. Hin olíufélögin
hafa ekki látið sitt eftir liggja og
hafa hækkað bensínverð.
Meðalhækkunin virðist vera 2,50
krónur.
Búast má við
frekari hækkunum
Að sögn Runólfs Ólafssonar, for-
manns Félags íslenskra bifreiðaeig-
enda, mátti allt eins búast við hækk-
un þar sem heimsmarkaðsverð
hefur hækkað að undanförnu. „Þessi
þróun hefur verið erlendis, heims-
markaðsverð á bensíni og dísilolíu
hefur farið hækkandi síðustu vikur.
Þetta er þess vegna í takt við það
sem við höfum verið að horfa á í
kringum okkur. Það eru engin teikn
um að lækkun sé í farvatninu á er-
lendum mörkuðum og það veldur
nokkrum áhyggjum,“ sagði Runólf-
ur.
„Það er heldur ekki óalgengt að
bensínverð hækki yfir sumarið þeg-
ar eftirspurn eykst með auknum
ferðalögum. Í ljósi þess má alveg bú-
ast við að bensínverð haldist hátt og
gæti jafnvel hækkað frekar fram á
sumar.“
Bensínverð
hækkaði
í vikunni
VINSTRIHREYFINGIN – grænt
framboð leggur mesta áherslu á að
styrkja innviði samfélagsins og vill
fjárfesta í bættum samgöngum og
aðferðum til að jafna búsetuskilyrði.
Þetta kom fram á fundi á Ísafirði í
gær þar sem fulltrúar flokksins,
Steingrímur J. Sigfússon, Katrín
Jakobsdóttir, Ingibjörg Ingadóttir
og Jón Bjarnason kynntu aðgerða-
áætlun sína í atvinnu-, byggða- og
samgöngumálum á Vestfjörðum.
Breyta samgönguáætlun
Steingrímur J. sagði að stefna
stjórnvalda í atvinnumálum væri
landsbyggðinni fjandsamleg og að
vinstri grænir vildu eindregið koma
á strandsiglingum á nýjan leik þar
sem þær væru umhverfisvænni og
það varðaði öryggismál að minnka
umferð stórra bíla á vegum landsins.
VG áskildi sér rétt til að breyta sam-
gönguáætlun kæmust flokkurinn til
valda; hreyfingin vildi ekki einka-
framkvæmdir á almannavegakerfinu
og teldi það best komið í höndum rík-
isins.
Vinstri hreyfingin – grænt fram-
boð vill fjárfesta í innviðum sveitar-
félaganna, m.a. með því að börnum
sé gert kleift að læra í heimabyggð
til 18 ára aldurs. Ingibjörg sagði að
gróflega áætlað kostaði það 1,5 millj-
ónir að senda barn til Reykjavíkur til
náms og brýnt væri að koma á fram-
haldsskóladeildum eins og gert hefði
verið á Patreksfirði. Slíkt væri ein-
falt í framkvæmd en skipti miklu fyr-
ir sveitarfélögin. Vinstri grænir vilja
gjaldfrjálsa grunn- og leikskóla.
Einnig kom fram á fundinum að vilji
væri til að flýta jarðgangagerð milli
Bolungarvíkur og Ísafjarðar.
Vilja flýta framkvæmd-
um við jarðgangagerð
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns
Nám í heimabyggð VG vill að börnum sé gert kleift að stunda nám í
heimabyggð til 18 ára aldurs og að grunn- og leikskóli verði gjaldfrjáls.
VEGAGERÐIN hefur skrifað undir
samning um gerð Tröllatunguvegar.
Tekið var tilboði lægstbjóðanda,
Ingileifs Jónssonar ehf. í Reykjavík.
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra var viðstaddur undirritunina.
Ákvæði um flýtifé var nýlega bætt
inn í útboðsgögn fyrir Tröllatungu-
veg, sem er á þá leið að ef verktaki
kemur bundnu slitlagi á veginn fyrir
1. september 2008, verða honum
greiddar 20 milljónir króna auka-
lega.
Hinn nýi Tröllatunguvegur verður
24,5 kílómetra langur og verkinu
skal vera lokið fyrir 1. september
2009. Þó er gert ráð fyrir að því verði
að mestu lokið fyrir lok næsta árs.
Vegurinn er nr. 605 og liggur milli
Djúpvegar nr. 61 í Steingrímsfirði
og Vestfjarðavegar nr. 60 í Geiradal,
ekki langt frá Króksfjarðarnesi.
Vegurinn mun liggja um Geiradal,
Gautsdal, Tröllatunguheiði og Arn-
kötludal og verður 7,5 metra breið-
ur.
Níu tilboð bárust í verkið
Í ár eru 200 milljónir ætlaðar til
framkvæmdanna og samkvæmt
samgönguáætlun áranna 2007 til
2010 sem samþykkt var á Alþingi í
mars sl. eru 700 milljónir áætlaðar í
verkefnið á næsta ári og að loka-
framlag komi árið 2009.
Níu tilboð bárust í verkið og hljóð-
aði tilboð Ingileifs Jónssonar upp á
661,8 milljónir kr., 76,5% af kostn-
aðaráætlun. Hæsta tilboðið gerði Ís-
tak, 879, 4 milljónir kr. Næstlægsta
tilboðið gerði Klæðning ehf. upp 696
milljónir króna. Tvö tilboð voru yfir
865,6 milljóna kr. kostnaðaráætlun
en sjö tilboð undir þeirri áætlun.
Þrír undirverktakar taka þátt í
verkinu. Fossvélar á Selfossi sjá um
efnisvinnslu, Suðurverk um spreng-
ingar og Borgarverk um klæðningu.
Áætlað er að framkvæmdir hefjist
í maí að sunnanverðu með því að
leggja veginn upp Gautsdalinn. Ekki
er gert ráð fyrir að vinna hefjist
Strandamegin í Arnkötludalnum
fyrr en á næsta ári.
Samið um Tröllatunguveg