Morgunblaðið - 21.04.2007, Page 26

Morgunblaðið - 21.04.2007, Page 26
Námsmenn hafa margir hverjir ekkiúr miklu að moða og þurfa að til-einka sér nægjusemi bæði í al-mennri neyslu og húsnæði. Hin þýska Claudia Overesch stundar meistaranám við Háskóla Íslands í þýðingarfræðum og vinnur með skólanum því hún fær ekki náms- lán. Hún leigir 30 fermetra bílskúr á Miklu- brautinni sem hefur verið innréttaður sem íbúð og henni hefur reynst létt að aðlagast fimm prósent gólfhalla og takmörkuðu plássi. Hún hefur komið sér vel fyrir í þessu litla rými sem er litríkt og skemmtilegt. „Ég kom til Íslands fyrir fjórum árum og bjó fyrst með nokkrum öðrum stúdentum í stórri íbúð, en mér finnst miklu betra að vera út af fyrir mig og þetta er alveg nógu stórt fyrir mig. Reyndar getur orðið ansi kalt hér á köldustu vetrardögunum en það getur líka orðið svakalega heitt hér inni á heitustu sum- ardögunum. Svo er mjög hljóðbært á milli mín og leigjandans sem býr við hliðina á mér í hin- um bílskúrnum, en hann er sem betur fer mjög rólegur. Stærsti gallinn við að búa hér finnst mér vera umferðarþunginn og stöðug hljóðin frá bílunum sem aka eftir Miklubraut- inni. En öllu þessu er hægt að venjast og ég er nokkuð sátt. Þetta er allt bærilegt af því að ég veit að þetta mun aðeins vera tímabundinn bílskúrsbúskapur. Heima í Þýskalandi tíðkast ekki að stúdentar búi flott eða eigi bíla, eins og hér á Íslandi, og þar fara krakkar líka að heiman eins og fljótt og þau geta. Hér býr fólk ótrúlega lengi í foreldrahúsum. Þetta er mjög ólíkt því sem ég þekki frá mínu heimalandi.“ Claudia er mikil útivistarkona og einna helst saknar hún þess að hafa meira af græn- um svæðum í borginni til að njóta. „Ég hef vissulega Öskjuhlíðina hér í göngufæri og svo fer ég reglulega í Fossvoginn, þar finnst mér gott að vera. Ég ferðast líka um landið eins mikið og ég get og ég er búin að fara hring- veginn og naut þess vel. Mér finnst Ísland mjög heillandi land og Austurland finnst mér standa upp úr, þar eru margir fallegir staðir. Helst mundi ég vilja vinna úti á landsbyggð- inni á sumrin.“ Laxness í uppáhaldi Claudia er mikil bókmenntakona og hún heldur upp á Halldór Laxness. „Íslandsklukkan finnst mér einna best af bókunum hans, Snæfríður Íslandssól er stór- kostleg manneskja. Heimsljós er líka bók að mínu skapi. En Gestur Pálsson keppir við Halldór um fyrsta sætið og Steinunn Sigurð- ardóttir er líka frábær rithöfundur.“ Athygli vekja fjölmargir málmkassar í öll- um regnbogans litum og stærðum og gerðum sem standa á litlu borði hjá Claudiu. Í ljós kemur að þeir geyma te, hún er mikil tekona og safnar tei, bæði vegna þess að henni finnst gott að drekka te, en líka vegna þess að oft eru boxin sem geyma teið svo falleg. „Ég fer oft í búðir þar sem fæst te, til að finna góðu telykt- ina og til að dást að umbúðunum. Svo kaupi ég kannski eitthvað ef mér líst vel á.“ khk@mbl.is Stúdentalíf í bílskúrnum Morgunblaðið/Árni Sæberg Nægjusöm Claudia er ánægð í litlu gulu íbúðinni þar sem hún hefur stofu, eldhús, svefnpláss og örlítið baðherbergi með sturtu. Che og Doors Ofan við rúmið eru uppáhalds hljómsveitin og byltingarsinninn. Frumlegt veggskraut Claudi falaði þessa sígarettupakka af kínverskum strák sem vann með henni í fiski í Granda. Ódýr skreyting Innan á útidyrahurðina hef- ur hún safnað bakhliðum af mjólkurfernum. Bókakona Claudia les mikið og heldur upp á Halldór Laxness. Á Íslandi keppast margir við að byggja sér hallir og búa í sem flestum fermetrum. En ekki gera allir kröfur um slíka mannabústaði. Kristín Heiða Kristinsdóttir heimsótti unga konu sem unir hag sínum ágæt- lega þar sem hún býr í 30 fer- metra bílskúr. innlit 26 LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.