Morgunblaðið - 21.04.2007, Page 32

Morgunblaðið - 21.04.2007, Page 32
32 LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Það var einhvern tímann á of- anverðum þorranum, að þau fóru mikinn í fjölmiðlum, flokkssystkinin umhverfismálaráðherrann og iðn- aðarráðherrann, með tilkomumikl- um slagorðum um hugðarmálefni sín: Þjóðarsátt um auðlindirnar, stór- iðja á Íslandi er ekki hluti af lofts- lagsvandanum, hún er hluti af lausninni, loftslagið er á ábyrgð okkar allra, fyrirtæki þurfa að fá los- unarheimildir, gjald- taka fyrir nýtingu auðlinda, vegir raski ekki landslagi í Vatna- jökulsþjóðgarði og stjórnvöld stefna að því að minnka gróð- urhúsalofttegundir um 50–75% fram til ársins 2050. Þetta eru aldeilis glæsileg stefnumið stjórn- málaflokks og ætti að vera vís veg- ur til farsællar kosninganiðurstöðu í komandi alþingiskosningum. Það hefur hins vegar í framhald- inu sett að undirrituðum nokkurn hroll. Umhverfisráðherrann var einn þeirra þingmanna, sem sam- þykktu Kárahnjúkavirkjun, mestu umhverfisspjöll Íslandssögunnar til þessa. Það er því ekki trúverðugt, að ráðherrann sé eins umhverf- isvænn og hann lætur nú í skína, er ferskir vindar leika um þjóðlífið. Það verður að telja furðulega glámskyggni að halda, að þjóð- arsátt verði um að færa útlend- ingum fósturjörðina á silfurfati og leyfa að náttúru landsins verði stórspillt eftir þörfum til að reka stóriðju, sem engin þjóð vill hafa. Mælt er fyrir því, að klofin þjóð í herðar niður fórni öllum helztu náttúrperlum sínum á lausnaraltari loftslagsvandans í heiminum, þegar við framleiðum aðeins einn tíuþús- undasta af skítnum þrátt fyrir um- talsverða aukningu nú um stundir. Þá er mælt fyrir um, að fyr- irtækin þurfi losunarheimildir vegna stóriðjustefnunnar, sem aldr- ei hefur þrifist betur en nú í kjölfar Kárahnjúkavirkjunar. Auðlinda- gjald er fýsilegur tekjustofn, sem ekkert gefur af sér nema auðlind- irnar séu nýttar. Þetta ber því allt að sama brunni. Stóriðjustefnan blómstrar sem aldrei fyrr. Nú áforma umhverfisráðherrann og skjólstæðingar hans að með- töldum ál- og orkufyrirtækjum að stjórna vegamálum og öðrum mál- um í Vatnajökulsþjóðgarði, hinu glæsta framlagi stjórnvalda til um- hverfisverndar, þvert á gildandi fyr- irkomulag og löggjöf um áþekk mál Í ljósi dapurrar sögu læðist að mönn- um áleitinn efi. Auðvit- að má affriða Vatna- jökulsþjóðgarð og láta hann tortímast sem slíkan eins og aðrar náttúruperlur lands- ins, ef brýna þörf ber til. Svona rétt eins og Kringilsárrana og nú nýlega Teigsskóg af því að það hentaði einhverjum flokksgæðingum og sýslumanninum á Patreksfirði, las ég einhvers stað- ar. Einhvern veginn liggur það í loftinu að affriðun hafi meiri for- gang en friðun. Enda er nú farið fram með það að virkja af ofurkappi fram til árs- ins 2010, er áformuð stefnumörkun ríkisstjórnarinnar um minnkaða losun gróðurhúsalofttegunda um 50–75% til ársins 2050 kemur til framkvæmda. Það sjá allir heilvita menn að til skamms tíma eru þetta augljós stóriðjumarkmið og eftir 40 ár verða flestir dauðir af þeim, sem að þeim stóðu. Og söngnum um hina hreinu endurnýtanlegu orku er ætlað að láta ljúflega í eyrum. Í því sam- bandi má árétta, að væru drykkjar- fangadósir á sorphaugum Vest- urálfu endurnýttar í stað þess að urða þær þyrfti ekki að reisa neitt nýtt álver í hinum dreifðu byggðum heimsins árum saman. Það væri mjög verðugt fyrir umhverf- isráðherra heimsins að berjast fyrir því. Ég get ekki stillt mig um að ljúka þessum pistli með sögu af einum fyrrverandi umhverf- isráðherra, sem á sínum tíma fór mikinn í fjölmiðlum vegna ut- anvegaaksturs. Óheppinn útlend- ingur villtist með fjölskyldu sinni á bíl sínum eftir slóða á viðkvæmu svæði til fjalla og festi hann í drullu eins og gengur. Eitthvert stúss var við að ná bílnum upp, lögregla komst í málið en milt yfirvald vildi sýna sanngirni í ljósi kring- umstæðna. En umhverfisráðherrann þáver- andi var nú ekki aldeilis á því. Hér yrði að beita ýtrustu hörku, straffi og sektum til að uppræða ósómann. Engir mega aka utan vega nema smalar og orkuspekúlantar og svo samþykkti hann átakalítið 400 kíló- volta háspennulínu yfir óspillt há- lendið austur af Henglafjöllum með milljónföldum náttúruspjöllum. Það er óþarfi að geta þess úr hvaða stjórnmálaflokki ráðherrann var. Það virðast engin takmörk vera fyrir því hve djúpt má sökkva í fen ótrúverðugleikans. Það er klaufa- legt að reyna að skrökva því að hinum ljóngáfuðu Íslendingum, að hér sé engin opinber stóriðjustefna en gæti þó verið vísbending um hvaða flokk á ekki að kjósa í kom- andi kosningum. En hvenær skyldu umhverf- isráðherrar þjóðarinnar fara að standa vörð um umhverfið, náttúr- una og þjóðargersemarnar í stað þess að leita allra tiltækra leiða til að útandskota fósturjörðinni, sem almættið trúði okkur fyrir? Og gæti það verið að iðn- aðarráðherrann og hans fólk sé nú þegar farið að leita leiða til að snið- ganga nýgerða synjun fólksins í Hafnarfirði um stækkun álversins í Straumsvík? Ég bara spyr. Af ótrúverðugleika Sverrir Ólafsson skrifar um orku- og umhverfismál »Umhverfisráðherr-ann var einn þeirra þingmanna, sem sam- þykktu Kárahnjúka- virkjun, mestu umhverf- isspjöll Íslandssögunnar til þessa. Sverrir Ólafsson. Höfundur er viðskiptafræðingur og fyrrverandi sjálfstæðismaður Tryggingastofnun er hugsuð sem öryggis-, velferðar- og framfærslu- stofnun fyrir aldraða og þá sem orðið hafa fyrir alvar- legum skakkaföllum. Í ljósi þessarar stað- reyndar vekur furðu hve ráðamenn TR eru utangátta í því sem henni er ætlað að vera. Engu er líkara en að þeim þyki mest um vert að gera not- endum þjónustunnar sem erfiðast að höndla lögvernduð réttindi sín. Í viðtölum mínum við forstjórann og aðra ráðamenn TR hafa þeir skýlt sér á bak við úreltar reglugerðir sem varla standast lög. Eiginlega allt er gert tortryggilegt sem lýtur að hagsmunum skjól- stæðinga þeirra. Eitt af því sem ég ræddi sérstaklega var af hverju komið er aftan að fólki með mán- aðarlegum endurkröfum á of- greiðslum. Hér er ég ekki að tala um að skerða eðlileg laun, miklu fremur eiginlega fátækrastyrki á nútímavísu. Á sama tíma og ein- staklingur er að græða fimmtíu milljarða á fyrrverandi eign þjóð- arinnar með sölu á henni eftir fimmtán mánaða eign verður ósjálfbjarga fólk og aldraðir með hundrað og tíu þúsund á mánuði að borga í sköttum og endurkröfum þrjátíu þúsund til baka. Stjórn- endur skírskota til laga, en geri þeir það með réttu er augljóst að margir þingmenn eru í meira lagi óheiðarlegir gagnvart þessu fólki. Þá ganga þeir sem yfirlýstir ósann- indamenn og hræsn- arar inn í komandi kosningar. Allir ættu nú að vita, að væri þing- heimur heiðarlegur væru skattleysismörk löngu komin í sann- gjarnt horf. Skrif Rögnu Bjark- ar Þorvaldsdóttur 5.4. í Morgunblaðinu, um framkomu Trygg- ingastofnunar gagn- vart henni, ber vald- höfum að grandskoða. Eftir reynslu fjölda fólks af ól- íðandi framkomu TR trúi ég sögu Rögnu langt umfram hennar. Við aðgerð á skjaldkirtli námu læknar kalkkirtla brott og hefur Ragna síðan fyrir mistök þeirra verið á dýrum meðulum í 25 ár. Fyrir til- viljun komst hún að rétti sínum til 100% bóta. Að sjálfsögðu fór hún fram á endurgreiðslu á löglegri inneign sinni. Þá brugðust ráða- menn TR hinir verstu við og þegar hún sá þann kost einan að fara í mál, sendu þeir lögfræðingastóð sitt gegn henni. Hún tapaði málinu fyrir glámskyggnum dómstóli og sjálfsagt hjá henni að fara með það lengra og út fyrir landsteinana ef með þarf. Það er óþolandi að konan nái ekki rétti sínum. Undarlegt er það viðhorf TR að vilja heldur borga lögfræðingum en verða við sanngjörnum og lögmætum kröfum Rögnu. TR hefur margoft verið staðin að því að reyna að komast undan að greiða það sem henni ber að greiða. Mismunur er gerður á því hvort sjúklingur fær hjálp frá hjúkrunarfræðingi eða lækni. Að- eins er greitt að hluta fyrir lækn- ishjálp og þá bara ef sjúklingur krefst þess. Ef hann lætur ekki vita situr hann uppi með kostn- aðinn. Margur sjúklingurinn er svo illa farinn að hann skynjar þetta ekki frekar en margt annað sem að veikindum hans lýtur. Í stað þess að færa þetta í sómasamlegt horf nýtir stofnunin sér ástandið, en þykist ár eftir ár vera að færa mál- ið í lögformlegt og jafnframt mann- úðlegt form. Ef ég réði léti ég ráða- menn Tryggingastofnunar ríkisins leita sér annarar vinnu. Þeir hafa margsannað vanhæfi sitt. Ragna Björk og Tryggingastofnun Albert Jensen skrifar um Tryggingastofnun » Í viðtölum mínum viðforstjórann og aðra ráðamenn stofnunar- innar hafa þeir skýlt sér á bak við úreltar reglu- gerðir sem varla stand- ast lög. Albert Jensen. Höfundur er trésmíðameistari. Á aðalfundi Félags eldri borgara í Reykjavík hinn 19. febrúar síðast- liðinn, var samþykkt áskorun til ríkistjórnarinnar að stofna embætti um- boðsmanns aldraðra. Með áskoruninni fylgdi eftirfarandi greinargerð: ,,Rétt- indi eldri borgara eru oft fyrir borð borin í þjóðfélaginu bæði ut- an stofnana sem og innan þeirra. Þetta gildir um kjaramál, skattamál, þjónustu o.fl. Þess vegna er það brýnt hagsmuna- mál fyrir eldri borg- ara að embætti um- boðsmanns aldraðra verði stofnað. Slíkt embætti gæti tekið að sér og fjallað um rétt- indi og réttindabrot sem eldri borgarar verða fyrir, en enginn aðili í stjórnkerfinu telur sér skylt að sinna.“ Mjög brýnt er að mál þetta nái fram að ganga sem fyrst. Eldri borgarar standa mjög illa að vígi þeg- ar þeir þurfa að sækja eða verja réttindi sín. Eng- inn aðili í stjórnkerfinu er til stað- ar sem þeir gætu leitað til og hefði það lögbundna hlutverk að sinna málum þeirra þegar þeir telja brot- ið á sér. Eldri borgarar standa berskjaldaðir gagnvart stofnunum og yfirvöldum sem beita valdi sínu á óréttlátan hátt eins og því miður fjölmörg dæmi eru um. Stór hópur eldri borgara er í stöðugri baráttu við ,,kerfið“ vegna þess að þeim finnst brotið á sér og fá ekki lausn eða leiðréttingu á sínum málum. Mjög oft er um að ræða lífeyrismál og mál sem eru tengd þeim eins og skattamál en einnig búsetumál, skort á þjónustu bæði utan stofnana aldraðra sem og innan þeirra. Þessi hópur hefur ekki efni á að leita til lögfræðinga með vandamál sín. Í sambandi við rétt- indamál má geta þess að í lögum um málefni fatlaðra frá 1992 eru ítarleg ákvæði um réttindagæslu fatlaðra, sem svæðisráðin (8) hafa eftirlit með eða sérstakir starfsmenn þeirra. Engin hliðstæð ákvæði eru til í lögum um málefni aldraðra. Þess vegna leggur Fé- lag eldri borgara í Reykjavík mikla áherslu á að úr þessu verði bætt með stofn- un embættis umboðs- manns aldraðra. Fé- lagið mun beita sér í ríkari mæli fyrir um- ræðum og að vekja at- hygli á réttindamálum og í því skyni standa fyrir almennum fundi í Stangarhyl 4, 21. apríl nk. þar sem Brynhildur Flóvenz lektor við laga- deild Háskóla Íslands og formaður stjórnar Mannréttindaskrifstofu Ís- lands mun flytja erindi um rétt- indamál aldraðra. Umboðsmaður aldraðra Margrét Margeirsdóttir vill stofna embætti umboðsmanns aldraðra Margrét Margeirsdóttir. »Eldri borg-arar standa berskjaldaðir gagnvart stofn- unum og yf- irvöldum sem beita valdi sínu á óréttlátan hátt eins og því mið- ur fjölmörg dæmi eru um. Höfundur er formaður Félags eldri borgara í Reykjavík. Fyrir hönd Toyota á Íslandi óska ég forráðamönnum Reykja- víkurborgar hjartanlega til ham- ingju með áræðnar og metn- aðarfullar aðgerðir í átt að vistvænni og hreinni borg. Græn skref Reykjavíkurborgar boða sannarlega vatnaskil í átt að auknum ávinningi íbúa borg- arinnar í umhverfismálum. Ósk- andi hefði verið að löggjaf- arsamkoma okkar hefði borið sömu gæfu til þess að auðvelda Íslendingum að eignast umhverf- isvænar bifreiðar. En því miður ákvað Alþingi að fella ekki niður vörugjöld af öllum umhverf- isvænum bifreiðum þegar tæki- færið lá fyrir á síðustu dögum Alþingis. Eðli málsins samkvæmt erum við hjá Toyota á Íslandi sér- staklega ánægð með það fram- tak Reykjavíkurborgar að bjóða eigendum vistvænna bifreiða að leggja án endurgjalds í bílastæði borgarinnar. Toyota er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu vistvænna bifreiða og erum við afskaplega stolt af þeim móttökum sem tvinnbílar okkar (e. Hybrid) hafa fengið hjá viðskiptavinum okkar – hvort sem um Toyota- eða Lexus-bifreiðar er að ræða. Það er ánægjulegt að vita til þess að eigendur slíkra bifreiða, hvort sem þeir búa í borginni eða utan hennar, njóti umbunar þeirrar ákvörðunar að aka um á vist- vænum bíl í höfuðborginni. Við erum að sama skapi af- skaplega ánægð með aðrar að- gerðir Grænna skrefa, enda samræmast þær þeirri stefnu Toyota á Íslandi, og jafnframt Toyota á heimsvísu, að umgang- ast umhverfi okkar í leik og starfi með virðingu og heil- brigðri framtíðarsýn. Það er virðingarvert að sjá í mótun jafn metnaðarfulla heildarstefnu í vistvænni uppbyggingu höf- uðborgar. Við erum sannfærð um að Reykjavík hafi alla burði til að verða leiðandi höfuðborg á heimsvísu í umhverfismálum. Umhverfisbaráttan er ekki spretthlaup – hún er langvarandi maraþonhlaup þar sem þol- inmæði og markviss skipulagn- ing skilar árangri. Við hvetjum því borgaryfirvöld til dáða, hvetjum þau til að efla enn þol sitt og koma í mark sem ótví- ræður sigurvegari hreinna og betra umhverfis. Til hamingju, Reykjavík! Úlfar Steindórsson Til hamingju, Reykjavík! Höfundur er forstjóri Toyota á Íslandi. Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.