Morgunblaðið - 21.04.2007, Page 54
54 LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Margir tengja nafn SigfúsarEymundssonar einkumvið bókaverslunina sem
hann stofnaði og enn ber nafn
hans, 98 árum eftir að hann lést.
Aðrir vita þó að hann var einn
frumherjanna í ljósmyndun hér á
landi – einn sá allra besti sem hér
hefur starfað. Nú stendur sviðin
skel ljósmyndastofu hans á horni
Lækjargötu og Austurstrætis. Sig-
fús átti nefnilega græna hornhúsið,
Lækjargötu 2, sem brann á síðasta
vetrardag. Hér áður fyrr var þetta
aðalhorn miðborgarinnar þekkt
sem „Eymundssonarhornið.“
Í bókinni Ljósmyndir SigfúsarEymundssonar segir Þór Magn-
ússon, fyrrverandi þjóðminjavörð-
ur, að tveir staðir hafi einkum orð-
ið Sigfúsi tíðar fyrirmyndir, neðsti
hluti Bakarabrekkunnar og Lækj-
artorg og hinsvegar höfnin. Hið
fyrrnefnda er skiljanlegt þar sem
Sigfús bjó þarna á horninu. „Þarna
var miðpunktur Reykjavíkur,“
skrifar Þór. „Hér komu ferðamenn
niður Bakarabrekkuna, bændur í
kaupstaðarferð fóru þessa leið og
sprettu jafnvel af hestum sínum á
Lækjartorgi, framan við sjálft
Thomsen-magasín. Hér hélt herinn
samkomur sínar, lúðrasveitir her-
skipanna spiluðu gjarnan á Torg-
inu og þaðan lögðu ferðamenn og
reisendur upp í ferðir sínar og út-
reiðartúra. Hér var alltaf eitthvað
að gerast, og ljósmyndarinn, sem
hafði stofu sína í hornhúsinu,
fylgdist vel með öllu sem fram fór.
Því var fljótgert að bregða sér út
fyrir með myndavélina ef eitthvað
markvert bar fyrir augu, eða
skreppa með hana upp á hornsvalir
hússins, þar sem gott útsýni var til
allra átta og hægt að smella af
mynd í einni andrá.“
Það var P.C. Knudtzon kaup-maður sem keypti fyrstu lóð-
ina sem bæjarstjórn Reykjavíkur
seldi, og byggði þar fyrsta hluta
hússins í Lækjargötu 2 árið 1852.
Árið 1871 keypti Sigfús húsið.
Hann byggði sérstakan myndas-
kála við enda hússins árið 1876, en
nokkrum árum síðar byggði hann
hæð ofan á húsið og þar var ljós-
myndastofan til 1909. Eins og sjá
má á ljósmyndinni, sem hann tók
um 1882 og birt var hér í blaðinu á
föstudaginn með fréttum um brun-
ann, þá hafði hann bæði svalir á
annarri hæðinni, beint úr úr stúd-
íóinu, og aðrar efst á horninu.
Hvorar tveggja fyrirtaks sjón-
arhorn fyrir myndatökur af mann-
lífinu í bænum. Þá má einnig sjá að
á norðurgafli annarrar hæðar
hússins voru upphaflega engir
gluggar; þar voru bakgrunnarnir
sem fyrirsæturnar stilltu sér upp
við til myndatöku.
Vitaskuld ber að endurbyggja
þetta merkilega hús og færa til
fyrra horfs. Og setja myndarlegan
skjöld á húsið þar sem þessa merka
frumherja væri minnst. Á Ey-
mundssonarhorninu er enn hjarta
Reykjavíkur þótt bændur spretti
ekki lengur þar af hrossum.
Af Sigfúsi Eymundssyni er þaðannars að segja að sama
hvernig mat er lagt á okkur ís-
lenska ljósmyndara fyrr og nú, þá
mun hann alltaf verða einn af þeim
bestu. Í filmusafni hans í Þjóð-
minjasafninu eru ómetanlegar ger-
semar sem bíða þess að verða gerð
eðlileg skil í nýrri og vandaðri bók.
Ef verið væri að velja bestu ís-
lensku ljósmyndarana í lið í körfu-
bolta, þá væri Eymundsson alltaf í
byrjunarliðinu. Einhverskonar
Jordan, eða kannski frekar Wilt
Chamberlain; risi í teignum sem
enginn réði við. Svo mætti velta
fyrir sér hverjir væru hinir fjórir,
eða hver kæmi fyrstur inná af
bekknum.
Á Eymundssonarhorninu
Þjóðminjasafn/Sigfús Eymundsson
Eymundssonarhornið Horft inn Austurstræti árið 1885, í ljósmynd Sigfúsar Eymundssonar sjálfs. Til vinstri er
húsið hans en fjærst sést grindin að Vinaminni við Mjóstræti. Steinhúsið til hægri er barnaskólinn sem byrjað var
að reisa 1882. Fyrir framan hús Sigfúsar sést Theodor Jonassen amtmaður ásamt fólki sínu.
AF LISTUM
Eftir Einar Fal Ingólfsson
»Ef það væri verið að velja bestu ís-
lensku ljósmyndarana
í lið í körfubolta, þá
væri Eymundsson
alltaf í byrjunarliðinu.
Einhverskonar Jordan,
eða kannski frekar
Wilt Chamberlain;
risi í teignum sem
enginn réði við.
efi@mbl.is
Krakkadagar í Smárabíó 450 kr.
sýningartímar merktir með grænum lit
SÓLIN ER AÐ DEYJA. ER HÆGT
AÐ BJARGA HENNI?
- Miðasala í Smárabíó og Regnbogann
Vinkona hennar er myrt og ekki er allt sem sýnist
Magnaður spennutryllir með súperstjörnunum
Halle Berry og Bruce Willis ásamt Giovanni Ribisi
Hve langt
myndir þú
ganga?
Ein Svakalegasta
hrollvekja til þessa.
Enn meira brútal
en fyrri myndin.
Alls ekki fyrir viðkvæma.
Stranglega bönnuð innan 18 ára!
Bardagafimu skjaldbökurnar eru mættar aftur
í flottustu ævintýrastórmynd ársins
MÖGNUÐ SPENNUMYND MEÐ MARK WAHLBERG
FRÁ LEIKSTJÓRA "TRAINING DAY"
Í GÆR VAR ÞAÐ HEIÐURINN
Í DAG ER ÞAÐ RÉTTLÆTIÐ
Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir
Aðei
ns ön
nur
bíóm
yndi
n frá
upp
hafi
sem
er bö
nnuð
inna
n
18 á
ra!
Þeir heppnu
deyja hratt
The Hills Have Eyes 2 kl. 5.50, 8, og 10.10 B.i. 18 ára
The Hills Have Eyes 2 LÚXUS kl. 3.40, 5.50, 8, og 10.10
Perfect Stranger kl. 5.30, 8, og 10.30 B.i. 16 ára
Mr. Bean’s Holiday kl. 3, 5, 7, 9 og 11
Úti er Ævintýri m/ísl. tali kl. 2 og 3.45
Sunshine kl. 8 og 10.10 B.i. 16 ára
TMNT kl. 2, 4 og 6 B.i. 7 ára
School for Scoundrels kl. 1.30 og 3.45
M A R K W A H L B E R G
Shooter kl. 8 og 10:20 B.i. 16 ára
Perfect Stranger kl. 8 og 10:10 B.i. 16 ára
Úti er Ævintýri m/ísl. tali kl. 4 og 6
TMNT kl. 4 og 6 B.i. 7 ára
eeee
“Magnþrunginn spen-
nutryllir og sjónarspil sem
gefur ekkert eftir”
- V.J.V. Topp5.is
eee
“Sólskin er vel þess
virði að sjá.”
H.J. MVL
“Besta sci-fi mynd
síðustu tíu ára.”
D.Ö.J. Kvikmyndir.com
eee
Ó.H.T. Rás2
eeee
- Empire
Sími - 564 0000Sími - 462 3500