Morgunblaðið - 10.05.2007, Síða 1
STOFNAÐ 1913 126. TBL. 95. ÁRG. FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
EVRÓVISJÓN
VÍÐA ER KOMIÐ VIÐ OG MÁLIN SKOÐUÐ
Í AUKABLAÐI Í DAG UM KEPPNINA
ÞÆR EIGA ALLAR
EITT SAMEIGINLEGT
RAUÐA HÁRIÐ
Í ÚTRÝMINGARHÆTTU? >> 24
FRÉTTASKÝRING
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
LISTAHÁTÍÐ í Reykjavík verður
sett í dag. Hátíðin var haldin í fyrsta
sinn árið 1970, en helsti hvatamaður
að stofnun henn-
ar var rússneski
píanóleikarinn og
hljómsveitar-
stjórinn Vladimir
Ashkenazy. Frá
2004 hefur hátíð-
in verið haldin ár-
lega. Áhrif Ashk-
enazys voru
gríðarmikil á
fyrstu árum há-
tíðarinnar og fyrir hans tilstilli komu
hingað heimsfrægir listamenn eins
og Daniel Barenboim, Itzhak Perl-
man, Yehudi Menuhin, André Prévin
og Jacqueline du Pré. Með heim-
sóknum þessa fólks öðlaðist Listahá-
tíð í Reykjavík virðingu og alþjóð-
lega viðurkenningu strax í upphafi.
Æ síðan hafa mestu listamenn heims
verið í röðum gesta hennar; en ís-
lenskri listsköpun hefur ávallt verið
gert hátt undir höfði líka.
Í viðtali við Morgunblaðið árið
1996 sagði Ashkenazy: „Listahátíð í
Reykjavík er mér kær og ég er afar
ánægður með það hvernig hún hefur
þróast í gegnum tíðina. Hún er orðin
að stofnun og stendur nú styrkum
fótum. Sjálfur hef ég alltaf reynt eft-
ir föngum að leggja hönd á plóginn.“
Árið 2000 var rekstrarformi Listahá-
tíðar breytt og í fyrsta sinn ráðinn
listrænn stjórnandi í fast starf, Þór-
unn Sigurðardóttir.
Hrefna Haraldsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Listahátíðar, segir að
hátíðin í ár verði sú stærsta að um-
fangi og líklega verði slegið aðsókn-
armet. Erfitt sé jafnan að gera sér
grein fyrir heildarfjölda gesta þar
sem margir viðburðir séu ókeypis,
en hátíðin hafi vaxið jafnt og þétt.
Stefnir
í aðsókn-
armet
Vladimir
Ashkenazy
Listahátíð í Reykja-
vík hefst í dag
ÚTSKRIFTARSÝNING Listahá-
skóla Íslands verður opnuð í kart-
öflugeymslunum í Ártúnsbrekku á
laugardaginn. Útskriftarnemarnir
vildu tryggja að innkeyrslan að
kartöflugeymslunum færi ekki
framhjá neinum og reistu því hálf-
gerðan sigurboga úr ónýtum bílum
yfir veginn. | 54
Morgunblaðið/RAX
Sigurboginn í Reykjavík
TALIÐ er að verðmæti eigna íslenskra fyrirtækja og
fjárfesta í Finnlandi sé rúmir 300 milljarðar króna.
Stærstu eignirnar eru hlutir Exista í fjármálafyrirtæk-
inu Sampo, hlutir Novators í farsímafyrirtækinu Elisu og
eign FL Group og fleiri íslenskra fjárfesta í flugfélaginu
Finnair. Eru verðmæti í þessum skráðu félögum metin á
um 216 milljarða króna. En þá er ekki allt upptalið.
Samkvæmt nýlegri samantekt finnska viðskiptatíma-
ritsins Talouselämä eru eignir Íslendinga í óskráðum fé-
lögum í Finnlandi metin á hátt í 100 milljarða króna.
Einna stærst mun þar vera eign Glitnis í finnska fjár-
málafyrirtækinu FIM Group. Þá eru í tímaritinu nefndar
eignir sem lítið hefur heyrst af hér á landi, m.a. hlutir
Kaupþings banka í kælifyrirtækinu Huurre Group og
kranaleigufyrirtækinu Havator Group. Segir tímaritið að
allt síðasta ár hafi íslenskir fjárfestar verið á fullu í því að
kaupa finnsk fyrirtæki, enda er fyrirsögn greinarinnar:
„Þeir eru að kaupa Finnland.“ Greint er frá kaupum á
ferðaskrifstofum, skipafélagi, hinu finnska Pizza Hut og
áformum Björgólfs Thors Björgólfssonar um fasteigna-
kaup í Finnlandi.
Ekki kemur á óvart að vegna aukinna umsvifa Íslend-
inga í finnsku atvinnulífi stendur til að stofna finnsk-
íslenskt viðskiptaráð. Ekki aðeins hafa viðskipti ís-
lenskra fjárfesta í Finnlandi aukist heldur hefur fyrir-
spurnum þaðan um íslenskt atvinnulíf einnig fjölgað.
Stofnfundur viðskiptaráðsins verður í Helsinki 20. júní
næstkomandi. | Viðskipti
Íslenskar eignir í Finnlandi
metnar á 300 milljarða króna
Á FJÖLMENNU Miðborgarþingi
sem haldið var um uppbyggingu á
horni Lækjargötu og Austurstrætis
í kjölfar stórbrunans 18. apríl sl.
komu fram margvíslegar hugmynd-
ir. Meðal annars sagði Björgólfur
Guðmundsson, stjórnarformaður
Landsbankans, að bruninn hefði
skapað nýjar aðstæður. Hann sagði
að eyðing fæli í sér nýtt upphaf.
„Því er komin fram fullgóð ástæða
til að skoða hvort bruninn gefi tæki-
færi til að ná fram áhugaverðri
heildarmynd sem þjóna mun mið-
bænum til framtíðar,“ sagði Björg-
ólfur og vísaði til mikillar uppbygg-
ingar í kringum svæðið. Hann birti
jafnframt niðurstöður úr könnun
Capacent Gallup um viðhorf al-
mennings til miðborgarinnar en þar
kemur fram að aðeins 6,7% telja
hana vera miðstöð verslunar og
þjónustu og um 78% eru á þeirri
skoðun að efla þurfi þessa þætti
miðborgarinnar. | 2
„Eyðing er
upphaf“
SAMFYLKING og Vinstri grænir hafa nálgast í
áherslum undanfarið að mati Steingríms J. Sig-
fússonar, formanns VG, en í kosningaþætti Stöðv-
ar 2 í gærkvöldi var hann spurður hvort útilokað
væri að flokkarnir tveir gætu náð saman. Sagði
hann að friðsamlegra hefði verið á milli flokkanna
hvað varðaði áherslur í félagsmálum og öðrum
slíkum málefnum.
„Samfylkingin er vissulega að sækja dálítið inn
í okkar málaflokka núna og við vildum gjarnan sjá
að þau væru duglegri við að reyna að herja á hina
hliðina og ná fylgi frá hægri. En gott og vel, við
ætlum ekki að standa í neinum átökum. Við erum
samherjar í því að fella þessa ríkisstjórn og von-
andi leiðir það til farsæls samstarfs.“
Ekki á að lofa neinum lækkunum
Geir H. Haarde forsætisráðherra sagðist í þætt-
inum tilbúinn að taka þátt í því að endurskoða eft-
irlaunalög þingmanna og ráðherra í samstarfi við
alla flokka. Tók hann það fram að þegar lögin voru
samþykkt var frumvarpið flutt af öllum flokkum á
Alþingi. Frumvarpið var hins vegar mikið gagn-
rýnt utan og innan þings.
„Það sem þarna var um að tefla og kannski
stingur í augu er það að einstaka menn geta verið
á eftirlaunum jafnhliða því sem þeir eru á launum
frá hinu opinbera. Þó að það sé reyndar almenn
regla að menn geti gert það þá er það kannski
ekki viðeigandi um þennan hóp manna,“ sagði
Geir.
Í sama þætti sagðist Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, formaður Samfylkingarinnar, telja að ekki
ætti að lofa neinum skattalækkunum núna. „Ef
það verður svigrúm á kjörtímabilinu eigum við að
fara fyrst og fremst í að hækka skattleysismörk-
in.“
Hvað varðar verðtryggingu inn- og útlána sagði
Ingibjörg að ekki væru forsendur til þess að af-
nema verðtryggingu við þær aðstæður sem væru
núna. „Það er líka engin ástæða til að banna hana,
en fólk á að hafa val um hvort það vill taka verð-
tryggingu eða vexti. En til þess að það sé raun-
verulegt val þarf náttúrlega að ná niður vöxtunum
í samfélaginu,“ sagði Ingibjörg.
Samfylking og VG sam-
herjar í að fella stjórnina
Geir H.
Haarde
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
Steingrímur J.
Sigfússon
Veldu virkni
Nýjung
Fitusnauðasta jógúrtin á markaðnum