Morgunblaðið - 10.05.2007, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FRÉTTASKÝRING
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
SNÖGG uppsveifla Framsóknar-
flokksins er það sem helst einkennir
niðurstöður síðustu könnunar Capa-
cent Gallup fyrir Morgunblaðið og
Ríkisútvarpið á fylgi flokkanna á
landsvísu. Gangi könnunin, sem gerð
var dagana 7.–8. maí, eftir fær
Framsókn níu þingsæti en er nú með
12. Sjálfstæðisflokkur, Samfylking
og Vinstrihreyfingin grænt framboð
tapa öll fylgi, Frjálslyndir og Ís-
landshreyfingin bæta við sig.
Sjálfstæðisflokkurinn fær 24 þing-
menn, Samfylkingin 17, VG 9 og
Frjálslyndir fjóra.
Ríkisstjórnarflokkarnir tveir eru
því með öruggan meirihluta á ný,
samanlagt 33 sæti af 63. Framsókn-
armenn og VG þyrftu að bæta mjög
litlu við sig til að fella 17. þingmann
Samfylkingarinnar.
Sviptingarnar á fylgi Framsókn-
arflokksins eru svo miklar síðustu
dagana að rétt er að velta fyrir sér
hvort um sé að ræða skekkjur í mæl-
ingunni. Fyrir fáeinum dögum
mældist flokkurinn með 7,6% en nú
með 14,6%, er skyndilega á sama róli
og VG.
Framsókn heldur betur í gamla
fylgið en áður
Næsta könnun ætti að sýna með
meiri vissu hvort um raunverulega
sveiflu sé að ræða. Þess má geta að
vikmörk í könnuninni eru 3,9% hjá
Sjálfstæðisflokknum, 3,5% hjá Sam-
fylkingunni, 2,9% hjá Framsókn og
VG, 2,0% hjá Frjálslyndum og 1,5%
hjá Íslandshreyfingunni.
Athyglisvert er að í þetta sinn
segjast 67,3% þeirra sem kusu
Framsóknarflokkinn í þingkosning-
unum 2003 ætla að kjósa hann aftur.
Þetta hlutfall hefur hækkað veru-
lega síðustu dagana, þess má geta að
mishermt var hjá blaðamanni í gær í
umfjöllun um könnunina 6.-7. maí að
rúm 62% kjósenda Framsóknar 2003
hygðust kjósa aðra flokka, þeir sögð-
ust þvert á móti ætla að kjósa sinn
gamla flokk og er beðist velvirðingar
á mistökunum. En þessi þróun gæti
gefið til kynna að margir óánægðir
stuðningsmenn flokksins hafi viljað
refsa honum en séu nú að fyrirgefa
honum og snúa aftur heim til föð-
urhúsanna.
Sjálfstæðisflokkurinn sígur enn
niður á við og er nú ekki mikið yfir
kjörfylginu 2003 sem var 33,7%.
Verulegt flæði virðist vera á fylgi
milli ríkisstjórnarflokkanna sé mið-
að við kosningarnar 2003 en það er
einhliða, fyrst og fremst eru það þá-
verandi kjósendur Framsóknar sem
halla sér að Sjálfstæðisflokknum.
Samfylkingin og VG tapa nokkru
fylgi, síðarnefndi flokkurinn er þó
enn langt yfir kjörfylginu en Sam-
fylkinguna skortir verulega upp á að
ná því. Jafnvægi er í fylgisflæðinu
hjá vinstriflokkunum tveim, VG fær
þó mun fleiri atkvæði frá Samfylk-
ingunni en öfugt þar sem síðarnefndi
flokkurinn var margfalt stærri í
kosningunum 2003, hver prósenta
sem hann missir vegur því meira,
mælt í atkvæðum.
Konur velja sem fyrr fremur
vinstriflokkana tvo en aðra, í þetta
sinn er kynjamunurinn enn
ákveðnari í samsetningu fylgisins
hjá VG en Samfylkingunni. Nær tvö-
falt fleiri konur ætla að kjósa VG en
karlar.
Munurinn á afstöðu kynjanna til
stjórnarinnar fer nú vaxandi, 58,6%
karla styðja stjórnina en aðeins
44,2% kvenna. Er þetta í góðu sam-
ræmi við að konur eru í miklum
meirihluta meðal stuðningsmanna
tveggja stærstu stjórnarandstöðu-
flokkanna. Nettósvarhlutfall var
64,1% en það fór í 86,6% þegar búið
var að spyrja þrisvar til að reyna að
fækka óákveðnum. Enn er því allstór
hópur kjósenda sem annaðhvort
neitar að svara, hyggst skila auðu
eða hefur ekki ennþá gert upp hug
sinn.
Ríkisstjórnin heldur velli, Sjálfstæðisflokki, Samfylkingu og VG daprast flugið í nýrri könnun
Framsóknar-
menn að snúa
aftur heim?
! "#
$!%&
!$& '
( '
!
"
"
#
$%
&%
"
$
) '
"#
'
(
#!
(
*
!"
#
)* !#* !+!(*(#
$% &%"$
$%!
&!
#
'(*
*
*
)(*
*
*
*
*
*
')(**
*
*
(*
!
"
#$$%
&'
(
'
)'
*
'
&'
+
! !(,%
(*(#
$% &%"$
'
+
! "+
+%+
!+'
+'
) '
"#
Í HNOTSKURN
»Notað var að venju tilvilj-unarúrtak úr þjóðskrá, nú
var hringt í 1048 manns á
aldrinum 18 ára og eldri.
»Tryggð við flokka ernokkuð misjöfn, mest er
hún hjá sjálfstæðismönnum.
En 30,3% þátttakenda í könn-
uninni segjast vera tryggir
stuðningsmenn flokksins sem
hann/hún ætlar að kjósa,
28,6% hvorki né, 13,5% frekar
ótryggir og 26,6% segjast vera
ótryggir eða mjög ótryggir.
Eftir Þuríði Magnúsínu Björnsdóttur
thuridur@mbl.is
ÞAÐ ER kliður í salnum þegar blaðamann og
ljósmyndara ber að garði í safnaðarheimili
Langholtskirkju á fallegum vordegi. Það eru
kátir aldraðir sem standa fyrir kliðnum og með-
al þeirra er Ragnheiður Svanlaugsdóttir, fyrr-
verandi hjúkrunarkona, en hún verður 100 ára
15. maí, næstkomandi þriðjudag. Hún tekur
virkan þátt í starfi aldraðra í Langholtskirkju
og má raunar ekki missa úr miðvikudag góðs fé-
lagsskapar; dag spilanna og söngsins.
Haldið var upp á síðasta miðvikudag tveggja
stafa talna hjá Ragnheiði í safnaðarheimilinu í
gær og var kátt á hjalla.
„Ég hef það bara mjög gott. Ég kem hingað
einu sinni í viku og það er gaman,“ segir Ragn-
heiður sem er ættuð frá Akureyri. Hún segist
vera við góða heilsu fyrir utan lélega heyrn og
hefur það á hraðbergi hver sé lykillinn að lang-
lífinu. „Ég lifi heilbrigðu lífi. Ég á tvo drengi,
það er alveg nóg, þetta eru góðir menn, dugleg-
ir og skynsamir.“ Ættbogi hennar er orðinn dá-
góður.
Félagarnir sem hún hittir í viku hverri eru
henni mikilvægir: „Ég hef alltaf sömu spila-
félagana í vistinni og við þekkjum orðið hvert
annað,“ lýsir Ragnheiður hlýlegri röddu – og er
hún að sögn nokkuð lunkin í spilunum. Hún tek-
ur þátt í vistinni af kappi – þar sem fólkið lætur
í sér heyra – en annar hópur bregður sér í ann-
an sal til að spila brids – þar sem þögnin ríkir.
Háaldraðir hjúkrunarfræðingar
Sigrún Straumland samfagnaði Ragnheiði
vinkonu sinni og starfssystur til margra ára en
Sigrún lifir líka í hárri elli, varð 98 ára í febrúar
síðastliðnum. Hún hefur eins og Ragnheiður
lengi sótt starfið í kirkjunni, þótt heilsan hafi
sett strik í reikninginn í vetur.
Jónas Ragnarsson heldur úti heimasíðu um
langlífi Íslendinga, jr.is/langlifi, og hefur tekið
saman lista um aldraða hjúkrunarfræðinga en
honum telst til að fimmtán hjúkrunarfræðingar
séu nú á tíræðisaldri og er Ragnheiður þeirra
elst. „Hún er elst allra hjúkrunarfræðinga mið-
að við þær upplýsingar sem ég hef getað fund-
ið,“ segir Jónas en hann telur hjúkrunarfræð-
inga þó ekki verða eldri en aðrir. Reynsla
Ragnheiðar gefur hins vegar tilefni til vanga-
veltna. „Ég held það sé vegna þess að við lifum
skynsamlega,“ spurð um langlífa hjúkr-
unarfræðinga. Hún álítur að vinnan við hjúkrun
veiti þeim þekkingu til þess að lifa góðu lífi.
Margrét Jónsdóttir hefur umsjón með starfi
aldraðra í Langholtskirkju. „Þeir sem eru yngri
en 75 ára eru taldir unglingar,“ segir Margrét.
„Fólki finnst ekki leiðinlegt að verða gamalt,
það er ekki slæmt að eldast þegar maður er
hraustur.“ Og undir hljómar kunnuglegur
söngur: Og svo dönsum við dátt, þá er gam-
an …
Ragnheiður Svanlaugsdóttir spilar vist af kappi í starfi aldraðra í Langholtskirkju
Dagar
tveggja
stafanna
kvaddir
Morgunblaðið/Ásdís
Í vist Ragnheiður (t.h.), 99 ára, býr sig undir að gefa í félagsskap Önnu Ingibjargar Helgadóttur (fyrir miðju) og Sigríðar Þorsteinsdóttur.