Morgunblaðið - 10.05.2007, Page 10
10 FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Obbobbobb, sittu kjur, ekkert stopp.
Af hverju er Samfylkingin að násér á strik í könnunum? Af
hverju stafar hrun Vinstri grænna
í könnunum? Af hverju á Fram-
sóknarflokkurinn svona erfitt upp-
dráttar? Af hverju er Sjálfstæð-
isflokkurinn að dala?
Það erfreist-
andi að
svara
þessum
spurningum með eftirfarandi
hætti.
Samfylkingin hefur aldrei gefiztupp við að berjast, kannski
vegna þess að þetta er síðasta
tækifæri formannsins og hópsins í
kringum Ingibjörgu Sólrúnu til að
ná völdum.
Vinstri grænir voru byrjaðir aðlíta svo á, að kosningaúrslitin
lægju fyrir og lögðu þess vegna
ekki nógu hart að sér.
Framsóknarmenn hafa aldrei náðupp neinni baráttu vegna þess
að svo margir í þeirra hópi gáfust
upp fyrirfram.
Sjálfstæðisflokkurinn taldi mestuskipta að rugga ekki bátnum
og baráttan hófst þess vegna ekki
nógu snemma.
Þetta eru bara kenningar enkannski er eitthvað til í þeim
eða alla vega sumum þeirra.
Frjálslyndi flokkurinn er búinnsem eitthvert afl í íslenzkum
stjórnmálum af því að hann veit
ekki hver hann er og hvert hann
er að fara.
Íslandshreyfingin hélt að hægtværi að byggja á Ómari Ragn-
arssyni einum. Margrét Sverr-
isdóttir hefur varla sést.
STAKSTEINAR
Af hverju?
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
!
"
"
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
#
!
!
:
*$;<
!"#$ " %
"&
' #$ *!
$$; *!
$% &
%
'
(
)(
=2
=! =2
=! =2
$'&
*
!
+,( -
62
.
/ (
%&(
( # (
!
(
!(% "
/
>
> ;
0 ( &
&
/!! )
(1
)
(
(
"
2- /
"
=7
3
'
/!!
)
(3 (#4(
(#
!1
("
2
! (1
/
"
5/(66
(7 (
(*
!
3'45 ?4
?*=5@ AB
*C./B=5@ AB
,5D0C ).B " 18
"
8" " "
"
"
"
1
1
1
1
1
1
1
1
1
1
1
1
1
1
VEÐUR
SIGMUND
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Árelía Eydís Guðmundsdóttir | 9. maí
2007
Framsókn sækir
í sig veðrið!
Mikið var ég glöð þeg-
ar ég heyrði nýjustu
niðurstöður, enda er
þetta í samræmi við þá
tilfinningu sem maður
hefur fyrir kosninga-
baráttunni almennt.
Þeir sem ég tala við eru jákvæðir og
vilja að Framsóknarflokkurinn sinni
því hlutverki sínu að standa vörð
um jafnrétti og félagshyggju al-
mennt.
Meira: areliaeydis.blog.is
Elly Armannsdottir | 9. maí 2007
Sterum sprautað í
rasskinnarnar
„Ég veit það en ég hef
alltaf hjálpað honum að
sprauta sterunum í
rasskinnarnar þegar
krakkarnir eru sofn-
aðir.
Svo er mótið í byrjun
júní,“ útskýrði hún en sagðist þrátt
fyrir erfitt en fjörugt nautnalíf und-
anfarnar vikur ætla að leggja sig
betur fram við að blómstra, læra og
þroskast af því sem aðrar konur
myndu álíta mistök …
Meira: ellyarmanns.blog.is
Birgir Þór Bragason | 9. maí 2007
Mengun og daglegt líf
Við vitum að beljur
menga meira en bílar,
flugvélar, skip og lest-
ir, samanlagt. En vissir
þú að íslenski flugflot-
inn mengar meira en
íslenski bílaflotinn?
Vissir þú að skipin menga meira en
flugvélarnar? Loftmengun af völd-
um bifreiða, að meðtöldum rútum,
strætó, vörubílum og sendiferða-
bílum, er innan við 5 prósent af loft-
mengun. Sífellt er verið að segja við
einstaklinginn að hann eigi að
menga minna. Það er verið að tala
um að hafa áhrif á ca 3 prósent af út-
blæstri gróðurhúsalofttegunda.
Sama má segja um árekstra í
Reykjavík. Innan við 10 prósent
verða á Miklubraut, Hringbraut og
Kringlumýrarbraut. Það þýðir að
yfir 90 prósent verða annars staðar
og lítið er gert til að fækka í þeim
flokki, athyglin er á fyrrnefndar göt-
ur og þar með á litlu 10 prósentin.
Meira: biggibraga.blog.is
Anna Ólafsdóttir (anno) | 9. maí 2007
Óskráðar grenndar-
reglur?
Ég hjó eftir þessu í
fréttinni um mótor-
hjólin í íbúahverfi:
„Íbúar telja að með
komu KTM í Rofabæ-
inn muni hraðakstur
og hávaðamengun stóraukast og
hafa þeir miklar áhyggjur af börnum
sínum. Íbúar á svæðinu geta höfðað
einkamál fyrir dómstólum á grund-
velli óskráðra grenndarreglna en
ekki liggur fyrir hvað þeir gera að
svo stöddu.“
Á nánast hverju kvöldi sé ég ein-
hverja keyra á hraða langt yfir leyfi-
legum mörkum og samsvarandi há-
vaða á Krossanesbraut
(kappaksturshetjurnar á Akureyri
virðast nefnilega flestar elska svona
kingsize púströr). Stundum finnst
mér að það sé engin lögregla í Akur-
eyrarbæ á kvöldin því að öll þessi
lögbrot virðast fara framhjá henni.
Og svona til að toppa skemmtileg-
heitin þá má enda þennan pistil á að
segja frá því að eftir að strandsigl-
ingar lögðust af aka um þetta hverfi
tugir þungaflutningabíla með til-
heyrandi hávaða- og loftmengun á
hverju kvöldi og langt fram á nótt.
Ég er búin að reyna ALLT nema
kæra. Þegar ég sé þessa frétt skilst
mér að til sé eitthvað sem heitir
óskráðar grenndarreglur. Hvað af
því sem ég er búin að telja upp
skyldi flokkast undir þær? Ef ein-
hver þekkir þessar reglur þá væru
komment vel þegin og eins ef ein-
hverjir þekkja vandamálið af eigin
raun.
Meira: anno.blog.is
BLOG.IS
Jónína Benediktsdóttir | 9. maí 2007
Notkun geðlyfja
Lækningin sjálf krefst
þess að rætur mein-
semdarinnar séu
fundnar og ein-
staklingnum sjálfum
gefinn kostur á því að
lækna sig sjálfur með
aðstoð.
En hvað segir landlæknir um
heimsmet íslenskra lækna í að ávísa
geðlyf í Blaðinu í dag (síða 6)?
„Meira framboð er á lyfjunum og
þau eru betri nú en áður. Það koma
lyf sem hafa minni aukaverkanir en
eldri lyfin. Það gefur því auga leið að
þau eru meira notuð. Það er líka
eðlilegt að heimilislæknar ávísi geð-
lyfjum og það sem skiptir mestu
máli er að réttur einstaklingur, fái
réttu lyfin á réttum tíma í réttum
skammti. Heildarnotkun geðlyfja er
ekki aðalatriðið.“
Er nema von að geðheilbrigðismál
séu í ólestri með svona landlækni í
forsvari ?
Meira: joninaben.blog.is