Morgunblaðið - 10.05.2007, Page 16
16 FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
BENEDIKT XVI páfi kom til Bras-
ilíu í gærkvöldi í fyrstu ferð sinni til
Rómönsku Ameríku frá því hann
varð páfi fyrir tveimur árum. Nær
helmingur allra rómversk-kaþólskra
manna í heiminum býr í Rómönsku
Ameríku en kaþólikkum hefur stór-
fækkað þar á síðustu árum. Að jafn-
aði hefur kirkjan misst þúsundir
manna á hverjum degi.
Biskupar kaþólsku kirkjunnar í
Rómönsku Ameríku hafa miklar
áhyggjur af þessari þróun, þeirra á
meðal Claudio Hummes, erkibiskup
af Sao Paulo, sem spurði í október
2005: „Hversu lengi verður Róm-
anska Ameríka áfram kaþólsk álfa?“
Eitt af meginmarkmiðum páfa
með Brasilíuferðinni er að stöðva
flóttann úr kaþólsku kirkjunni sem
hefur mætt vaxandi samkeppni frá
evangelískum kirkjum. Þær hafa
einkum sótt í sig veðrið meðal fá-
tækra íbúa borganna.
Hvítasunnusöfnuðir hafa til að
mynda stækkað mjög í Brasilíu þar
sem um 89% íbúanna voru í kaþólsku
kirkjunni árið 1980. Nýleg könnun
bendir til þess að þetta hlutfall hafi
lækkað í 64% og að hlutfall hvíta-
sunnumanna af íbúafjöldanum hafi
aukist úr 11% í 17% á síðustu tíu ár-
um.
Ungir menn hafa einnig verið
tregir til að ganga í prestastéttina og
mikill skortur er því á prestum í kaþ-
ólsku kirkjunni í Rómönsku Amer-
íku. Að meðaltali er þar einn prestur
á hverja 7.500 kaþólikka en í heim-
inum öllum er meðaltalið einn prest-
ur á hverja 2.677, samkvæmt tölum
frá Páfagarði. Prestarnir í Róm-
önsku Ameríku eru til að mynda tíu
sinnum færri hlutfallslega en í Norð-
ur-Ameríku og Evrópu.
Margir söfnuðir hafa reynt að
stemma stigu við flóttanum úr kirkj-
unni með því að draga úr formfest-
unni í messum til að fólk fái meira
svigrúm til að láta tilfinningar sínar í
ljósi.
„Það er komið í móð hérna – jafn-
vel meðal presta – að líta svo á að
fólk eigi að fá meira frelsi til fylgja
eigin samvisku og flestir kaþólikkar
hafa fjarlægst kirkjuyfirvöldin,“
hafði The Washington Post eftir
Luiz Roberto Benedetti, presti og
prófessor í félagsfræði við Kaþólska
háskólann í Campinas í Brasilíu.
„Þessi tilhneiging er í algerri and-
stöðu við þau skilaboð sem páfi vill
senda.“
Í ræðum sínum og skrifum hefur
Benedikt páfi lagt áherslu á mann-
kærleika og samúð með þeim, sem
eiga um sárt að binda, en hann hefur
hvergi hvikað frá þeirri afstöðu sinni
að hugmyndir um að laga kenning-
arnar að straumum samtímans sæm-
ræmist ekki þeim eilífu sannindum
sem hann telur kirkjuna byggjast á.
Embættismenn í Páfagarði sögðu í
gær að Benedikt páfi hygðist senda
stjórnmálamönnum Rómönsku Am-
eríku „sterk skilaboð“ um þörfina á
því að berjast gegn fátækt, fé-
lagslegu misrétti, eiturlyfjasmygli
og ofbeldi, auk þess sem efla þyrfti
kirkjuna til að hún gæti haldið for-
ystuhlutverki sínu í trúmálum.
Í ferðinni hyggst páfi setja
tveggja vikna ráðstefnu 166 biskupa
og kardinála frá 22 löndum Róm-
önsku Ameríku og Karíbahafs. Búist
er við að páfi leggi þar áherslu á mik-
ilvægi fjölskyldunnar í lífi íbúanna
og árétti m.a. andstöðu kirkjunnar
við fóstureyðingar. Kirkjan beið
ósigur í þeirri baráttu nýlega þegar
fóstureyðingar voru heimilaðar í
Mexíkóborg.
Varað við frelsunarguðfræði
Talsverð óánægja ríkir innan kaþ-
ólsku kirkjunnar í Rómönsku Amer-
íku vegna afstöðu páfa til frelsun-
arguðfræðinnar sem skaut rótum í
álfunni á sjöunda og áttunda áratug
aldarinnar sem leið. Áður en Joseph
Ratzinger kardináli var kjörinn páfi
og tók sér nafnið Benedikt XVI árið
2005 var hann formaður Ráðs hinnar
trúarlegu kenningar í Páfagarði í
rúma tvo áratugi. Árið 1985 deildi
hann hart á Leonardo Boff, einn
helsta merkisbera frelsunarguð-
fræðinnar í Brasilíu, og ráðið hafnaði
frelsunarguðfræðinni. Hún var sögð
fela í sér „ógnun“ við kenningar kaþ-
ólsku kirkjunnar.
Fyrir Brasilíuferð páfa áréttaði
Páfagarður þessa afstöðu með því að
vara við frelsunarguðfræðinni og
gagnrýna einn af helstu talsmönnum
hennar, spænska jesúítann Jon So-
brino. Voru staðhæfingar í tveimur
ritum hans sagðar „rangar og hættu-
legar“.
Reynt að stöðva
flótta úr kirkjunni
Páfi heimsækir Suður-Ameríku Evangelískar kirkjur
hafa sótt í sig veðrið þar á kostnað kaþólsku kirkjunnar
Reuters
Fagnað Benedikt XVI páfi heilsar gestgjafa sínum, Lula Inacio Lula da
Silva, forseta Brasilíu og Marisu forsetafrú við komuna til Sao Paulo í gær.
Í HNOTSKURN
» Benedikt páfi verður íBrasilíu í fimm daga. Búist
er við að íþróttaleikvangur í
Sao Paulo verði troðfullur
þegar páfi ávarpar þar ungt
fólk í kvöld.
» Allt að milljón mannaverður við útimessu páfa í
Sao Paulo á morgun.
» Munkurinn Galvao, semvar uppi 1739–1822, verð-
ur þá tekinn í dýrlingatölu,
fyrstur Brasilíumanna.
TUTTUGU til þrjátíu óbreyttir
borgarar biðu bana í loftárás er-
lendra hersveita á þorp í Helmand-
héraði í Afganistan í fyrrakvöld, að
sögn þarlendra embættismanna og
sjónarvotta.
Talið er að erlendu hersveit-
irnar, undir forystu Bandaríkja-
hers, hafi orðið nær sextíu manns
að bana í öðrum loftárásum í Afg-
anistan í síðasta mánuði. Hamid
Karzai, forseti landsins, kallaði yf-
irmenn hersveitanna og erlenda
stjórnarerindreka á sinn fund í vik-
unni sem leið til að mótmæla blóðs-
úthellingunum.
Bandaríkjaher staðfesti að loft-
árás hefði verið gerð í fyrrakvöld
en kvaðst ekki vita til þess að
óbreyttir borgarar hefðu fallið.
AP
Fjárbætur Bandarískir herforingjar afhenda Afgana bætur vegna dauða
ættingja hans í loftárás sem gerð var austan við Kabúl í mars.
Allt að 30 þorpsbúar féllu
TVÆR unglingsstúlkur í borginni
Perth í Ástralíu hafa verið dæmdar
í ævilangt fangelsi fyrir að myrða
vinkonu sína. Kyrktu þær hana og
grófu. Ástæðan fyrir ódæðinu var
sú, að þær langaði til að komast að
því hvort þær fyndu til iðrunar. Svo
var ekki.
Nei, engin iðrun
BARACK Obama, sem vill verða
forsetaefni bandarískra demó-
krata, mismælti sig illilega er hann
var að ræða afleiðingar skýstróks-
ins í Kansas. Sagði hann, að 10.000
manns hefðu látist en rétta talan er
12. Kenndi hann um þreytu, hann
hefði átt við 10.
10, ekki 10.000
BRESKA lögreglan handtók í gær
fjóra menn til viðbótar í tengslum
við rannsókn á hryðjuverkum sem
kostuðu 52 menn lífið í London í júlí
2005. Mennirnir voru fluttir til yfir-
heyrslu á lögreglustöð í London.
Áður höfðu þrír menn verið ákærð-
ir fyrir aðild að hryðjuverkunum.
Fleiri handtökur
Hvað er að vera ég?
64 ungskáld takast á við stóra spurningu.
Hugmyndaauðgi, sköpunarkraftur
og hæfni nemenda til þess að
tjá sig í rituðu máli birtist nú á
mjólkurfernum landsins.
Kíktu á öll verkin á www.ms.is.
Mjólk, andleg
næring á fernum!
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
27
69
8