Morgunblaðið - 10.05.2007, Síða 22
22 FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
LIST án landamæra, myndlist-
arsýning Fjölmenntar á Akureyri,
verður opnuð í Amtsbókasafninu á
morgun kl. 17. „Sem fyrr er það
gleðin og fjölbreytnin sem höfð er
að leiðarljósi,“ segir í frétt frá Fjöl-
mennt. Á síðasta ári var sýningin
með indversku ívafi en nú er það
Mexíkó og kjólarnir hennar Fridu
Kahlo sem veita þátttakendum inn-
blástur. Aðstandendur segja bæði
skemmtilegt og gefandi að kynnast
menningu annarra landa og það
skerpi skilning á því að framtíð
okkar veltur ekki á einsleitni fyrri
kynslóða heldur fjölmenningu kom-
andi kynslóða. „Það er verkefni
sem mætir okkur öllum og lykillinn
að betri heimkynnum. Tíðarandinn
er sýnilegt og ósýnilegt umhverfi
okkar og við getum öll haft áhrif á
hann eins og með sýningu sem þess-
ari. Með henni viljum við leggja
okkar að mörkum við að gera ein-
staklinga með fötlun sýnilegri í
samfélaginu og vinna gegn for-
dómum í þeirra garð. Þessi sýning
er óður til gleðinnar og fjölbreytn-
innar.“
List án
landamæra
TVEIR ellefu ára strákar í 6. bekk
Giljaskóla á Akureyri duttu heldur
betur í lukkupottinn á dögunum þeg-
ar myndband þeirra var valið það
besta í samkeppni sem MS stóð fyr-
ir. Verðlaunin voru ferð til Glasgow í
Skotlandi á tónleika með Justin Tim-
berlake og þar eyddu strákarnir síð-
ustu helgi í góðu yfirlæti ásamt móð-
ur annars þeirra.
Um var að ræða keppni sem efnt
var til í framhaldi af markaðssetn-
ingu á ferskri Kókómjólk í flöskum
og bárust rúmlega 600 myndir og
myndbönd í keppnina. Í sigurmynd-
bandinu sýndu þeir félagar hvernig
Kókómjólkin gæfi þeim kraft til að
stunda skíðafimi og leika listir með
fótbolta.
Fjölhæfir
Patrekur Sólrúnarson og Björn
Ísak Benediktsson hafa verið vinir
síðan í 2. bekk og ýmislegt brallað.
Björn Ísak æfir skíði af miklum
krafti og Patrekur fótbolta þannig
að ekki er að undra hvert efni mynd-
bandsins var. En þar með er ekki
upptalið því þeir hafa líka komið
fram saman og sungið; og sigrað þrí-
vegis í söngkeppni á Glerártorgi.
Svo eru þeir alltaf með myndbands-
vélina á lofti og hafa gert ófá mynd-
böndin þannig að óhætt er að segja
að þarna séu fjölhæfir strákar á
ferðinni.
„Við vorum lengi að finna góða
hugmynd. Svo kom hún og þá vönd-
uðum við okkur svakalega mikið,“
sagði Patrekur þegar blaðamaður
hitti þá að máli á heimili hans í gær.
Patrekur sá á heimasíðu MS á
Netinu að þeir Björn Ísak hefðu
unnið og Sólrún, móðir hans, segir
að stríðsdans hafi verið stiginn á
heimilinu þegar hann áttaði sig á því
– og hún auðvitað fagnað með.
Hægt var að skoða ljósmyndir og
myndbönd, sem send voru í keppn-
ina, á vefnum og margir létu skoðun
sína í ljós. Fjöldi fólks hældi því sem
strákarnir sendu inn þannig að
kannski kom sigurinn ekki á óvart.
„Þetta er það skemmtilegasta sem
við höfum gert saman,“ sagði Björn
Ísak í gær þegar spurt var um ferð-
ina og Patrekur tók undir það:
„Þetta var besti tími lífs okkar.“
Og þeir skemmtu sér konunglega
á tónleikunum. Sögðu að Timberlake
hefði verið góður. „Þetta var þvílík
upplifun. Magnað! Alveg brjáluð
stemning!“ Greinilega ógleymanlegt
eins og nærri má geta.
„Þetta er eitthvað sem okkur hef-
ur dreymt um alveg síðan í 2. bekk
þegar við kynntumst og urðum bestu
vinir; að fara saman til útlanda.“
Á sumrin ganga þeir saman á fjöll.
„Við reynum alltaf að upplifa eitt-
hvað nýtt,“ sögðu þeir í gær.
Skemmtilegasta sem
við höfum gert saman
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Þú færð kraft… Patrekur Sólrúnarson, t.v., og Björn Ísak Benediktsson,
sem skutust til Glasgow um síðustu helgi á tónleika með Justin Timberlake.
Í HNOTSKURN
»Patrekur Sólrúnarson ogBjörn Ísak Benediktsson
hafa verið vinir síðan í 2. bekk
og ýmislegt brallað. Meðal
annars að búa til myndbönd og
eitt slíkt gerði þeim kleift að
skreppa til Glasgow á tónleika
með Justin Timberlake um
síðustu helgi.
MIKIL umskipti urðu á rekstri
sveitarfélagsins Dalvíkurbyggðar á
síðasta ári en reikningar bæjar-
félagsins voru til fyrri umræðu á
bæjarstjórnarfundi á þriðjudaginn.
Langtímaskuldir lækkuðu á árinu
um 125 milljónir króna.
Rekstrarniðurstaða sveitarfé-
lagsins samkvæmt samanteknum
rekstrarreikningi A- og B-hluta árið
2006 er jákvæð um 71,1 milljón
króna en samkvæmt fjárhagsáætlun
var gert ráð fyrir neikvæðri niður-
stöðu upp á 22,4 milljónir króna.
Umskiptin eru því 93,5 milljónir kr.
miðað við áætlun. Þetta kemur fram
í tilkynningu frá sveitarfélaginu.
Samverkandi þættir
Rekstrartekjur sveitarfélagsins á
árinu 2006 námu 1.027 milljónum
króna samkvæmt samanteknum
rekstrarreikningi fyrir A- og B-hluta
á móti 909 milljónum króna á árinu
2005. Munurinn er tæplega 120 millj-
ónir króna í auknar tekjur á milli
ára. Fjárhagsáætlun 2006 gerði ráð
fyrir rekstrartekjum að fjárhæð
989,8 milljónir króna þannig að
tekjur eru ríflega 35 milljónum
króna hærri en áætlun. Þar munar
einkum um það að útsvar og framlög
úr jöfnunarsjóði reyndust hærri en
áætlun. „Það eru ýmsir samverkandi
þættir, bæði á tekju- og gjaldahlið,
sem leiða til ágætrar niðurstöðu árs-
reiknings Dalvíkurbyggðar 2006. Til
framtíðar skiptir þó mestu sú stað-
reynd að íbúunum hefur verið að
fjölga. 1. desember 2006 voru þeir
orðnir 1.966 og hafði þá fjölgað um
39 frá fyrra ári,“ segir í fréttatil-
kynningu frá Dalvíkurbyggð.
71 milljón
í rekstrar-
afgang
REYKJAVÍKURBORG og Vodafone
opnuðu í gær grænt símanúmer, 900
9555, en sé hringt í númerið gjaldfærast
500 krónur á símareikning hringjandans
og fara peningarnir í gróðursetningu
trjáa í landi borgarinnar í sumar.
Hringdu í tré er samstarfsverkefni
Vodafone og Reykjavíkurborgar og er
liður í því draga úr áhrifum gróðurhúsa-
loftegunda sem losaðar eru í Reykjavík.
Skógræktarfélag Reykjavíkur sér um að
planta þeim trjám sem gefin verða, en
átakið er viðbót við það græna skref í
Reykjavík að gróðursetja 500 þúsund tré
í landi Reykjavíkur á næstu þremur ár-
um.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgar-
stjóri og Árni Pétur Jónsson, forstjóri
Vodafone, innsigluðu samninginn með því
að hringja fyrstu símtölin og gróðursetja
tvær hríslur í Grasagarði Reykjavíkur.
Morgunblaðið/RAX
Hringing Árni Pétur Jónsson, forstjóri
Vodafone, og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
borgarstjóri innsigluðu samninginn með
því að hringja fyrstu símtölin og gróð-
ursetja tvær hríslur í Grasagarðinum.
Hringingar
borga tré
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
SIV Friðleifsdóttir heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra og Gunn-
ar Einarsson, bæjarstjóri Garða-
bæjar, skrifuðu í gær undir samn-
ing um fjármögnun á 40 rýma
hjúkrunarheimili á Sjálandi í
Garðabæ og er gert ráð fyrir að
það verði tilbúið 2010. Alls verða
60 rými í heimilinu og auk þess
verða reistar 56 þjónustuíbúðir
fyrir 60 ára og eldri við hliðina.
Nýja heimilið kemur í staðinn
fyrir hjúkrunarheimilið Holtsbúð,
sem er með jafnmörg rými. Áður
hafði heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra ákveðið byggingu
20 nýrra hjúkrunarrýma í Garða-
bæ árið 2010 og verða þau í sama
húsnæði og þau 40 rými sem
samningurinn nær til, en þannig
fæst umtalsverð hagræðing, að
sögn bæjarstjóra.
Garðabær fjármagnar byggingu
heimilisins meðan á fram-
kvæmdum stendur en ríkissjóður
endurgreiðir síðan sinn hlut í
kostnaðinum með verðbótum í
samræmi við heimildir fjárlaga.
Áætlað er að heildarkostnaður
vegna samningsins nemi um 776
milljónum króna fyrir utan kostn-
að vegna rýmanna 20 sem áður
hafði verið tekin ákvörðun um.
Undirbúningur vegna verksins
hefst þegar í stað.
Einn í herbergi eða íbúð
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í
Garðabæ, segir að hjúkr-
unarheimilið Holtsbúð sé barn
síns tíma og í mjög óhentugu
leiguhúsnæði. Því sé gríðarlega
mikilvægt fyrir Garðabæ og íbúa
bæjarins að geta flutt hjúkr-
unarrýmin. Öll 60 hjúkrunarrýmin
verði byggð eftir nýjustu aðferð-
um og hugmyndafræði sem bygg-
ist á því að einn sé í herbergi eða
íbúð. Við hliðina verði einnig reist-
ar 56 þjónustuíbúðir og geti íbúar
þeirra nýtt sér þjónustuna sem
hjúkrunarheimilið veiti sínum íbú-
um. Aftan við nýju húsin sé Jóns-
hús, sex húsa þyrping með þjón-
ustuseli og íbúðum fyrir eldri
bæjarbúa, en hugmyndin sé að
búa þarna til gott hverfi fyrir
eldri íbúa. Garðabær sé líka í góð-
um samskiptum við Hrafnistu í
Hafnarfirði og viðbótin fullnægi
eftirspurn um sinn.
„Ég er afskaplega ánægður fyr-
ir hönd íbúa Garðabæjar að geta
boðið hér upp á enn betri þjón-
ustu fyrir okkar fólk,“ segir Gunn-
ar Einarsson og þakkar Siv Frið-
leifsdóttur og Árna Mathiesen,
fjármálaráðherra, fyrir vasklega
framgöngu í málinu.
Reist fyrir aldraða í Garðabæ
60 rýma hjúkrunarheimili og 56 þjónustuíbúðir tilbúin á Sjálandi 2010
Teikning/THG arkitektar
Uppbygging Fremst á myndinni til vinstri er tillaga Garðabæjar að húsnæði fyrir hjúkrunarrými og þjón-
ustuíbúðir til hægri. Fyrir aftan eru tilbúnar byggingar með íbúðum fyrir 60 ára og eldri.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Undirskrift Sigrún Aspelund bæjarfulltrúi, Gunnar Einarsson, bæj-
arstjóri Garðabæjar, Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðisráðherra, og Erling
Ásgeirsson, formaður bæjarráðs, skrifa undir samninginn.
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ