Morgunblaðið - 10.05.2007, Side 23
Vestfirðir | Dagana 25.–29. maí
nk. mun Háskólasetur Vestfjarða
halda sumarnámskeið í fugla-
fræði við Látrabjarg. Námskeiðið
er í samvinnu við Náttúrustofu
Vestfjarða og Háskólasetur HÍ á
Snæfellsnesi, en Endurmenntun
HÍ sér um skráningu á nám-
skeiðið. Á námskeiðinu verður
fjallað um atferlisrannsóknir á
fuglum. Meðal þess sem fjallað
verður um er atferlisgerðir, sam-
skipti einstaklinga, samskipti
para á hreiðurstað og geldfugla.
Einnig verður fjallað um fugla-
merkingar, aðferðir til að veiða
fugla til merkinga og söfnun lífs-
ýna. Þetta er aðeins hluti þess
sem farið verður í á námskeiðinu,
en hér er um að ræða námskeið
úti í náttúrunni við eitt mesta
fuglabjarg landsins og Evrópu.
Námskeið sem þetta er því eitt-
hvað sem enginn fuglaáhugamað-
ur ætti að láta fram hjá sér fara.
Námskeiðið er ætlað öllum
fuglaáhugamönnum sem vilja
upplifa fuglaskoðun og rann-
sóknir við Látrabjarg og læra
þar af helstu fuglasérfræðingum
landsins, en fyrirlesarar eru dr.
Tómas Gunnarsson og dr. Þor-
leifur Eiríksson og leiðbeinendur
eru þau Böðvar Þórisson og Hild-
ur Halldórsdóttir. Námskeiðið
veitir einingar við líffræðiskor
Háskóla Íslands og því eru nem-
endur í líffræði við HÍ sér-
staklega hvattir til að nýta sér
tækifærið til að heimsækja eitt
mesta fuglabjarg í Evrópu og fá
fyrir það einingar í námi sínu.
Nánari upplýsingar um nám-
skeiðið, dagskrá, fyrirlestra,
skráning o.s.frv. er að finna á vef
Háskólaseturs Vestfjarða,
www.hsvest.is Athugið að skrán-
ing á námskeiðið þarf að hafa
borist í síðasta lagi föstudagurinn
11. maí.
Sumarháskóli í fuglaskoðun
Morgunblaðið/RAX
Fuglar Háskólasetur Vestfjarða verður með námskeið í fuglafræði.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2007 23
LANDIÐ
Eftir Atla Vigfússon
Aðaldalur | „Það hefur verið rosalega gaman að
vinna að þessu og stefnt er að því að út komi
bæklingur sem verður sendur út í skólana hér á
svæðinu,“ segir Sif Jóhannesdóttir þjóðfræðing-
ur sem er að ljúka við að vinna nýtt safnkennslu-
efni fyrir Byggðasafn Þingeyinga á Grenjaðar-
stað.
Nýlega fór Sif ásamt nemendum 3.–4. bekkj-
ar Hafralækjarskóla og kennurum á safnið í
þeim tilgangi að prófa efnið og höfðu allir mjög
gaman af. Sif hefur tekið sér hlé frá kennslu við
Hafralækjarskóla í vetur til þess að stunda nám
í hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Ís-
lands og reiknar með að klára í vor. Hún segir
að námsefnið sem hún sé að vinna að sé ætlað
grunnskólanemum og sé byggt upp í kringum
vettvangsferð. Ætlunin sé að vinna hluta heima
í skólanum og hluta á safninu. Þannig sé ákveð-
inn tími ætlaður í að undirbúa heimsókn og síð-
an sé ætlunin að vinna úr ferðinni þegar heim í
skólann kemur og næstu daga á eftir.
Viðfangsefni ólík eftir bekkjum
Viðfangsefnin eru nokkuð ólík eftir bekkjum
og í þessu safnkennsluefni fyrir Grenjaðarstað
er sérstaklega boðið upp á heimsóknir fyrir 1., 4.
og 9. bekk grunnskólans. Þar er í 1. bekkjar
heimsókn lögð áhersla á upplifunina að koma í
safn og hvað þar er og hvernig maður umgengst
söfn. Hjá 4. bekk er mest áhersla lögð á störfin í
gamla bændasamfélaginu, heyskap, matartil-
búning og ullarvinnu. Aðalviðfangsefni 9. bekkj-
ar eru svo aðferðir, byggingar og byggingarefni.
Heimsóknin í Grenjaðarstað var ný upplifun
fyrir suma í bekkjunum því ekki höfðu allir
komið í safnið og urðu nemendurnir hissa yfir
öllum þeim gömlu munum sem safnið geymir.
Þar var Sif með mjög fróðlegar kynningar í
búrinu og hlóðaeldhúsinu um matargerð fyrr á
öldum, einnig voru verkfæri til ullarvinnu mikið
til umræðu í baðstofunni. Þá var farið í skemm-
una þar sem heyvinnuáhöld liðins tíma eru
geymd og það eru töluverð fræði að kunna nöfn-
in á þeim öllum, allavega fyrir ungt fólk sem
ekki þekkir neitt nema vélvæðingu nútímans.
Sif segist hafa mikinn áhuga á því að tengja
þetta fleiri verkefnum í grunnskólanum og þar
sem þessi fyrsta ferð með safnkennsluefnið
hafði tekist svona vel kom fram sú hugmynd að
fara með krakkana í ferðalag til þess að skoða
Landnámssetrið í Borgarnesi til þess að fræðast
enn meira um forna tíð.
Námsefnið ætlað grunnskólanemum og byggt upp í kringum vettvangsferð
Þróar safnkennsluefni fyrir
byggðasafnið á Grenjaðarstað
Ljósmynd/Atli Vigfússon.
Söfn Sif Jóhannesdóttir fræðir nemendur 3.–4.bekkjar Hafralækjarskóla í hlóðaeldhúsinu.
Í HNOTSKURN
»Grenjaðarstaðarbærinn var að hluta tilbyggður 1865, en að mestu í tíð sr. Bene-
dikts Kristjánssonar sem tók við staðnum
1877.
»Flatarmál bæjarins er 775 fermetrar.»Byggðasafn Þingeyinga var opnað íbænum 9. júlí 1958.
»Prestssetur hefur verið á Grenjaðarstaðallt frá 11. öld.
Ölfus | Menningarnefnd Ölfuss hefur stað-
ið fyrir tónlistarhátíð í vetur undir yf-
irskriftinni Tónar við hafið. Síðustu tón-
leikar vetrar verða haldnir laugardaginn
12. maí. Í þetta skipti verður boðið upp á
fjölskyldutónleika, þar sem nemendur úr
Tónlistarskóla Árnesinga og skólakórar
Grunnskóla Þorlákshafnar flytja söngleik-
inn Líf og friður eftir Per Harling. Söng-
leikurinn byggist á sögunni af örkinni
hans Nóa, en undirfyrirsögn söngleiksins
er „dýr(s)legur söngleikur um lífsbjörg-
ina“.
Þarna verða um 50 börn á sviðinu og
eru þau yngstu 7 ára. Þau bregða sér í
hlutverk allra hugsanlegra dýra sem gætu
hafa verið í örkinni hans Nóa. Fjölmargir
hafa komið að undirbúningi söngleiksins,
en tónlistarlegur undirbúningur hefur
verið í höndum Gests Áskelssonar og Est-
erar Hjartardóttur tónlistarkennara.
Halldór Sigurðsson, skólastjóri Grunn-
skóla Þorlákshafnar, aðstoðar við leik-
stjórn og Rebekka Ómarsdóttir myndlist-
arkennari stjórnar leikmyndagerð. Öll
börnin taka þátt í að búa til grímurnar
sem þau verða með. Með söngleiknum lýk-
ur tónleikadagskrá vetrarins en und-
irbúningur dagskrár næsta vetur er langt
komin. Aðgangur er ókeypis og hefst sýn-
ingin kl. 16 í Versölum, Ráðhúsi Ölfuss.
Tónlist Frá æfingu eldri kórs grunnskól-
ans, þar sem æft var fyrir söngleikinn.
Fjölskyldu-
dagskrá Tóna
við hafið
Þorlákshöfn | Máni GK, sem legið
hefur í höfninni í Þorlákshöfn í fjöl-
mörg ár, var hífður upp á bryggju
þar sem hann verður hlutaður í
sundur og fjarlægður af staðnum.
Indriði Kristinsson hafnarstjóri
sagði að lengi hefði staðið til að
losna við þennan vandræðabát úr
höfninni. „Það hefur ekki gengið
fyrr en nú að við komumst yfir af-
salið á honum og eigum hann því
sjálfir, tókum reyndar upp í skuldir.
Það hefur ekki bara skapað leiðindi
og óþægindi að hafa þetta drauga-
skip hér í þessi ár heldur hefur það
kostað höfnina ómælda peninga því
það hefur þurft að lensa og hugsa
um að dallurinn sykki ekki. Nú
verður hann hlutaður í sundur og
járnið fer í brotajárn en timbur og
annað verður að urðað með viðhöfn
á ruslahaugunum.
Það voru GP-kranar sem sáu um
að hífa bátinn upp á bryggjuna en
það var erfitt og vandasamt verk.
Kranamennirnir sögðu að þeir
hefðu aldrei híft þyngri bát á land.
Notaðir voru tveir kranar af
stærstu gerð enda þyngdin 134
tonn.
Draugaskip
fjarlægt úr höfn-
inni í Þorlákshöfn
Ljósmynd/Jón H. Sigurmundsson
Átök Þeir eru engin smásmíði þessir kranar enda varð að lyfta 134 tonnum.
LEIKSKÓLINN Árbær á Selfossi
hefur fengið formlega vottun sem
heilsuleikskóli. Síðan 1999 hafa kenn-
arar við leikskólann Árbæ notað
heilsubók Unnar Stefánsdóttur til að
meta þroska og framfarir barnanna
og þróað og dýpkað leikskólastarfið
með heilsuna í huga. Bókin er nokk-
urs konar einstaklingsnámskrá hvers
barns sem það fær að gjöf í lok leik-
skóladvalar sinnar.
„Eitt helsta markmið leikskólans
er að efla félagslega færni ein-
staklingsins en samkvæmt Daniel
Goleman sem skrifaði hina þekktu
bók Tilfinningagreind vegur það
þyngra að vera félagslega læs á um-
hverfi sitt en hin svokallaða greind-
arvísitala. Þetta fellur vel að heilsu-
stefnunni, því að í viðmiðum
heilsuleikskólanna kemur fram að
skilgreining á heilsu er sú að góð
heilsa er andleg, líkamleg og fé-
lagsleg vellíðan. Það er hægt að vera
við góða heilsu þrátt fyrir sjúkdóma
eða fötlun,“ segir meðal annars í frétt
um vottunina.
Á viðurkenningarskjali sem leik-
skólastjóra var afhent við athöfnina
stendur m. a: Í leikskólanum er starf-
að eftir viðmiðum heilsustefnunnar
þar sem markmiðið er að auka gleði
og vellíðan barnanna með áherslu á
næringu, hreyfingu og listsköpun í
leik og starfi.Við athöfnina sungu
leikskólabörn lag við texta Móeiðar
Ágústsdóttur sem fjallar um heilsu
og hollt mataræði, og er það lag
gjarnan sungið við athafnir í leikskól-
anum. Unnur Stefánsdóttir formaður
samtaka heilsuleikskóla afhenti leik-
skólastjóra fána og viðurkenning-
arskjal heilsuleikskólanna. Einnig
tóku bæjarstjóri og leikskólafulltrúi
til máls og óskuðu börnum og starfs-
fólki til hamingju með áfangann.
Leikskólinn
Árbær
vottaður sem
heilsuleikskóli