Morgunblaðið - 10.05.2007, Side 30

Morgunblaðið - 10.05.2007, Side 30
ferðalög 30 FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Fólk þeysti út um allaHanoi á mótorhjólummeð stórar ferskjutrjá-greinar á bögglaber- anum. Það var greinilega eitthvað mikið í aðsigi,“ segir Sigurður Guð- mundsson sem í febrúar síðast- liðnum var staddur í Víetnam ásamt eiginkonu sinni, Steinunni Árnadóttur, og þrennum vin- ahjónum. „Við byrjuðum sem mat- arklúbbur, fórum svo í nokkrar borgarferðir áður en við lögðum upp í langferðir eins og yfir S- Ameríku þvera og endilanga, Kína og Suður-Afríku svo eitthvað sé nefnt. Þetta eru sannkallaðar ævin- týraferðir þar sem við leggjum áherslu á að kynnast landi og þjóð. Nú síðast fórum við til Víetnam og Kambódíu. Þetta eru ævintýraferð- ir þar sem við leggjum áherslu á að kynnast landi og þjóð og hluta ferðalagsins förum við oft á tveim- ur jafnfljótum,“ segir Sigurður sem hefur tekið að sér að skrifa ferða- sögurnar og heldur áfram með þessa frá Víetnam. „Meðfram gangstéttunum í Hanoi var víða búið að raða upp kumkvatrjám en þeim má líkja við hin íslensku jólatré nema þau eru með litlum appelsínum, svoköll- uðum kumkvat. Það var eftirvænt- ing í loftinu, blómaangan og ávaxtailmur.“ Framboðslögmálið virkar í sósíalistaríkinu Sigurður segir að Víetnamar noti tvenns konar tímatal. ,,Opinberlega og í alþjóðlegum viðskiptum nota þeir hið vestræna almanaksár en í einkalífinu nota þeir tunglárið eins og Kínverjar enda voru þeir ný- lenda þeirra í þúsund ár. Það sem við urðum vitni að var undirbún- ingur fyrir nýárshátíðina, Tet, eins og hún er nefnd á víetnömsku. Hún er Víetnömum mikilvæg því hún er fjölskylduhátíð, þar sem ættingj- arnir hittast og forfeðranna er minnst. Fólk flykkist úr borgunum á heimaslóðir í sveitum landsins og Víetnamar, sem búa erlendis, koma heim af þessu tilefni.“ Í ár gekk í garð ár svínsins og hófst undirbúningur einni til tveim- ur vikum fyrir hátíðarhöldin. „Þar sem við vorum ferðamenn sáum við einkum það sem gerðist utan dyra en minna það sem fór fram inni á heimilunum sjálfum. Það kom vissulega margt spánskt fyrir sjón- ir þar sem við vorum ekki kunnug hefðunum og höfðum ekki heild- arsýn yfir samhengi hlutanna. En margt var líka alveg öfugt við það sem við hefðum haldið í þessu ríki sem kennt er við sósalista eins og lögmálið um framboð og eftirspurn. Þegar við vorum uppi í fjöllunum nyrst í Víetnam voru bændurnir í óða önn við að saga hríslur af ferskjutrjánum og flytja þær niður á vegi til þess að selja milliliðum sem aftur seldu þær aðilum á stærri þéttbýlistöðum. Og eftir því sem nær dró nýársdeginum lækk- aði verðið á bæði trjám og skrauti ef framboðið var nægt, eins og virt- ist vera.“ Öll fjölskyldan á mótorhjólinu Ferðaklúbburinn var kominn til Saigon þegar sjálf áramótin gengu yfir. „Í borginni búa venjulega um 8 milljónir manna en talið er að um helmingur þeirra fari burt úr borg- inni yfir hátíðina. Á því sem næst hverju húsi hékk skilti þar sem á stóð „Chuck Mong Nam Moi“, sem þýðir gleðilegt ár, og götur og torg voru skreytt eins og tíðkast um jól í kristnum löndum. Á gamlárskvöld reyna borgarbúar að vera með fjöl- skyldu sinni. Við borðuðum á veit- ingastað á hinu sögufræga Cont- inental hóteli, sem lesendur sögu Grahams Greens, „The Quiet Am- erican“ eða þeir sem sáu sam- nefnda kvikmynd muna ef til vill eftir. Þjónustan var snör þetta kvöld því allir vildu komast til síns heima fyrir miðnætti. Á blómum skrýddri aðalgötunni í Saigon var fólk prúðbúið og stillti sér og fjöl- skyldu sinni upp til myndatöku. Á leiksviðum sem búið var að koma fyrir voru fjölbreytt skemmtiatriði. Þetta minnti helst á Menningarnótt í Reykjavík en án áfengis. Eldsnemma á nýársdag á ári svínsins, ókum við síðan út úr borginni, í fylgd aragrúa fjöl- skyldna á mótorhjólum sem einnig voru á leið út í sveit. Börnin sváfu gjarnan á hjólunum og virtist líða nokkuð vel þótt okkur þætti ferða- mátinn nokkuð glæfralegur,“ segir Sigurður og setur upp leikrænan skelfingarsvip. Hundrað dollara pappírsbúnt brennt fyrir framliðna Það voru heldur ekki bara fleiri farþegar á hverju hjóli en Íslend- ingurinn átti að venjast heldur var annar farangur einnig óvenjulegur. „Fjölskyldurnar höfðu meðferðis ýmsa muni sem þær ætluðu að fórna og brenna fyrir framan fjöl- skyldualtarið í sveitinni, bæði sjálf- um sér til lukku í framtíðinni og framliðnum forfeðrum. Við veg- arkantinn voru sölumenn sem buðu pappírseftirlíkingar af hlutum eins og af bílum, húsum, gullstöngum, hundrað dollara búntum, útvarps- tækjum, bjórkössum og vínflöskum. Í Víetnam trúir fólk á framhalds- líf og þetta eru dæmi um þá hluti sem þeir sem eru enn hérna megin grafar telja að hinir framliðnu þurfi og muni líða betur ef þeir hefðu hjá sér í framhaldslífinu. Þetta lýsir í rauninni ákveðinni efnishyggju en Víetnamar trúa því, að ef þessir hlutir eru brenndir fyrir framan altarið, þar sem Búdda er oftast í miðjunni, þá muni hinir framliðnu njóta þeirra hinum megin grafar. Óskir hinna lifandi snúast hins veg- ar um vellíðan og góða heilsu, ver- aldlegt ríkidæmi og langlífi.“ Sigurður segir að það hafi verið lærdómsrík lífsreynsla að vera yfir Tet-hátíðina í hinu fallega Víetnam þar sem þeim var tekið með kost- um og kynjum. ,,Á Íslandi býr nokkur fjöldi fólk sem á uppruna sinn í Víetnam og það hlýtur að sakna þess að geta ekki tekið þátt í þessum fjölbreyttu hátíðarhöldum í því umhverfi þar sem þessir siðir hafa mótast enda þótt þeir reyni efalítið að halda við einhverju af þeim og stundum að komast heim.“ uhj@mbl.is Þar sem pappírsvínflöskum er fórnað fyrir framliðna Mótorhjólafjölskyldur Í Víetnam brunuðu milljónir út úr borg- unum og út í sveitirnar um áramótin. Sögumaður Sigurður Guðmundsson segir ferðasögu fernra vinahjóna til Víetnam, en saman hafa þau þvælst um allan heim. Drekadúndur Á götum Saigin var á Tet fjöldi dreka sem léku kúnstir sínar undir dúndrandi trommuslætti. Víetnamar eru mikið fjölskyldufólk rétt eins og Ís- lendingar og eiga sínar fjölskylduhátíðir eins og Unn- ur H. Jóhannsdóttir komst að í spjalli við ferðalang- inn Sigurð Guðmundsson. Hann upplifði í Víetnam nýárshátíðina Tet þar sem einnig er hugsað vel til þeirra framliðnu. Blómahaf Allt var blómum skreytt, jafnt skip sem vörubíl- ar, byggingar, götur og torg. Í Víetnam trúir fólk á fram- haldslíf og þetta eru dæmi um þá hluti sem þeir sem eru enn hérna megin graf- ar telja að hinir framliðnu þurfi og muni líða betur ef þeir hefðu hjá sér í fram- haldslífinu.             Vika á Ítalíu 17.300 kr. - ótakmarkaður akstur,kaskó, þjófavörn, flugvallargjaldog skattar. Ford Fiesta eða sambærilegur 522 44 00 • www.hertz.is Bókaðu bílinn heima - og fáðu 500 Vildarpunkta frá ÍS L E N S K A /S IA .I S /H E R 36 91 9 04 /0 7

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.