Morgunblaðið - 10.05.2007, Síða 32
32 FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
SVIPTINGAR
Í SKOÐANAKÖNNUNUM
Það eru miklar sviptingar í skoð-anakönnunum þessa daga. Ífyrradag bentu niðurstöður
skoðanakönnunar Gallup til þess, að
það væru að skapast forsendur fyrir
myndun ríkisstjórnar stjórnarand-
stöðuflokkanna, þ.e. Samfylkingar,
Vinstri grænna og Frjálslyndra. Í
könnun Gallup, sem birt var í gær,
náði Framsóknarflokkurinn sér veru-
lega á strik, Sjálfstæðisflokkurinn
dalaði en niðurstaðan samt sú, að nú-
verandi stjórnarflokkar halda meiri-
hluta sínum og meira jafnræði á milli
flokkanna en verið hefur í könnunum
fram að þessu.
Þetta gæti bent til þess, að átökin í
kosningabaráttunni séu að kristallast
í þeirri einföldu spurningu, hvort nú-
verandi ríkisstjórn sitji áfram eða
stjórnarandstaðan taki við.
Það er augljóst, að sterkari staða
Framsóknarflokksins mun auðvelda
samstarf hans og Sjálfstæðisflokks-
ins í ríkisstjórn að kosningum lokn-
um. Framsóknarmenn koma þá til
áframhaldandi samstarfs með meira
sjálfstrausti en ella og meira jafn-
vægi á milli flokkanna.
Þótt einhverjir kjósendur hafi
áhuga á samstjórn Samfylkingar og
Sjálfstæðisflokks er alveg ljóst að
kosningabaráttan er að leggjast á
þann veg, að hafi stjórnarandstaðan
möguleika á að mynda ríkisstjórn
verður það fyrsti kostur þeirra
flokka. Þess vegna munu Samfylking
og Vinstri grænir leggja á það
áherzlu að mynda slíka ríkisstjórn
fyrst með Frjálslynda flokknum en
gangi það ekki upp munu þeir leita til
Framsóknarflokksins. Samstarf við
Sjálfstæðisflokk verður síðasti kost-
ur Samfylkingar.
Haldi Sjálfstæðisflokkur og Fram-
sóknarflokkur sameiginlega meiri-
hluta á Alþingi eru miklar líkur á því,
að þessir tveir flokkar haldi samstarfi
sínu áfram. Auðvitað eru hópar innan
beggja flokkanna, sem hafa aðrar
hugmyndir um stjórnarmyndun, en
þeir ráða augljóslega ekki ferðinni.
Niðurstaðan er því sú, að þeir sem
hafa mestan áhuga á óbreyttu stjórn-
arsamstarfi hljóta að styðja annan
hvorn stjórnarflokkanna. Ef ein-
hverjir kjósendur á hægri kantinum
hallast að því að styðja Samfylkingu í
von um að stuðla að samstjórn Sjálf-
stæðisflokks og Samfylkingar er ljóst
að sú hugsun gengur ekki upp. Sam-
fylkingin mun leggja sig fram um að
mynda ríkisstjórn á vinstri kantinum.
Það er svo aftur annað mál, hversu
mikið mark er takandi á svona óvænt-
um sveiflum í skoðanakönnunum.
Líklegt verður að telja, að daglegar
kannanir Capacent Gallup nái að
mæla þær sveiflur, sem eru í afstöðu
kjósenda frá degi til dags síðustu
dagana fyrir kjördag.
En því má aldrei gleyma að kann-
anir eru bara kannanir og ekkert
meira en það.
NÝTT UPPHAF
Myndun samstjórnar á Norður-Írlandi undir forustu Ians
Paisleys og Martins McGuinness
markar tímamót. Paisley var bros-
mildur þegar hin nýja stjórn tók við
völdum á þriðjudag, en fáir hefðu trú-
að því að óreyndu að gamli sam-
bandssinninn ætti eftir að standa í
þessum sporum. Hvað þá að vera for-
sætisráðherra í stjórn þar sem að-
stoðarforsætisráðherrann kemur úr
röðum Sinn Fein og er fyrrverandi
liðsmaður Írska lýðveldishersins eins
og McGuinness. Paisley hefur alla tíð
verið mótfallinn því að koma til móts
við kaþólikka og var einn írskra
stjórnmálaleiðtoga andvígur friðar-
samkomulaginu frá 1998, sem kennt
er við föstudaginn langa. Fyrir sex
vikum féllst hann hins vegar á að
mynda stjórn með McGuinness og af-
raksturinn var samstjórn mótmæl-
enda og kaþólikka. Í einu bresku
blaði var gengið svo langt að segja að
nær því að verða vitni að kraftaverki
hefðu íbúar Belfast ekki komist en að
sjá þessa tvo menn standa saman og
heita að segja skilið við fortíðina.
Myndun stjórnarinnar var fagnað
með viðhöfn og voru bæði Tony Blair,
forsætisráðherra Bretlands, og Bert-
ie Ahern, forsætisráðherra Írlands,
viðstaddir.
Blair hefur frá því hann varð for-
sætisráðherra lagt ríka áherslu á að
koma á friði á Norður-Írlandi og á
mikinn heiður af því sem unnist hef-
ur. Það má segja að það hafi verið
kaldhæðnislegt að einu mótmælin,
sem voru við athöfnina í Belfast,
beindust að Blair vegna aðildar Breta
að Íraksstríðinu.
Þótt fagnað hafi verið með bros á
vör í Belfast á þriðjudag var sérstak-
lega til þess tekið að Paisley og
McGuinness sáust ekki takast í hend-
ur við athöfnina. Hins vegar hafi mál-
flutningur óbilgirni vikið fyrir tóni
sátta. Á þremur áratugum létu 3.700
manns lífið í átökunum á Norður-Ír-
landi og einnig birtust þau í
sprengjutilræðum á Englandi. En nú
heyrir Írski lýðveldisherinn sögunni
til og hermenn eru horfnir af götum
Norður-Írlands. Norður-Írland
stendur hins vegar veikum fótum og
mikillar uppbyggingar er þörf.
Stjórnin í Belfast mun þurfa að reiða
sig á valdhafa í London og þaðan
koma 60% af tekjum hennar. Gordon
Brown, fjármálaráðherra Bretlands,
hefur lofað heimastjórninni 6.400
milljörðum króna á næstu tíu árum.
Hins vegar horfa Norður-Írar einnig
suður yfir landamærin til írska lýð-
veldisins. Efnahagsleg og félagsleg
tengsl aukast jafnt og þétt þar á milli
og munu halda áfram að gera það.
Paisley sagði þegar nýja stjórnin tók
við völdum að þessi dagur markaði
nýtt upphaf. Það má líka segja að
hann hafi verið dagur vonar því að
hann sýndi að svarnir fjendur geta
snúið bökum saman.
Einar Sigurðsson.
Styrmir Gunnarsson.
Forstjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Fyrsta yfirlitssýningin á myndlistCobra-hreyfingarinnar verður opn-uð í Listasafni Íslands í dag, kl.17.30. Sýningin er framlag safnsins
til Listahátíðar í Reykjavík en á henni má líta
fyrsta abstrakt-expressjóníska málverkið í
listasögunni, Ophobning eftir Danann Egil
Jacobsen, eitt lykilverka listasögunnar.
Á næsta ári verða 60 ár liðin frá því nokkrir
myndlistarmenn stofnuðu Cobra-hreyfinguna.
Cobra-hreyfingin leit einkum til verka danskra
listmálara og má því segja að Danir séu fyrstu
abstrakt-expressjónistarnir.
Verkið Ophobning, eða Uppsöfnun, er frá
árinu 1937 og því málað ellefu árum fyrir stofn-
un Cobra. Það hefur aldrei verið sýnt utan
Statens Museum for Kunst í Kaupmannahöfn.
Verkið varð vegvísir Cobra-hreyfingarinnar.
Á sýningunni er brugðið sérstöku ljósi á
tengsl Svavars Guðnasonar við Cobra, en
Svavar var brautryðjandi hér á landi í ab-
strakt-expressjónisma og þekkti vel til eldri
meðlima Cobra-hreyfingarinnar. Hann var þó
aldrei meðlimur í henni, þótt hann tæki þátt í
sýningum á hennar vegum. Svavari fannst
Dönunum í hreyfingunni ekki gert nógu hátt
undir höfði innan hennar.
Á sýningunni eru 120 verk sem fengin voru
að láni frá helstu söfnum Norðurlanda, eftir 29
listamenn, og má þar nefna Asger Jorn, Egil
Jacobsen, Ejler Bille, Carl-Henning Pedersen,
Karel Appel o.fl. Verkin koma bæði úr einka-
söfnum og opinberum. Mörg þeirra eru fengin
frá bræðrunum Lars og Jens Olesen, sem eiga
eitt besta safn Cobra-verka í heiminum. Lars
er einn þriggja aðstoðarsýningarstjóra Cobra
Reykjavík og átti stóran þátt í að koma sýning-
unni á koppinn.
Eitt verkanna á sýningunni er nefnt sér-
staklega af Listasafninu þar sem það er talið
marka hápunkt Cobra-listarinnar, Den tavse
myte, Opus 5, eftir Asger Jorn.
Cobra er því afar mikilvæg hreyfing með til-
liti til listasögunnar, því hún hratt af stað
bylgju expressjónískrar abstraktlistar sem
ríkti í vestrænni myndlist eftirstríðsáranna.
Óðu beint af augum
Halldór Björn Runólfsson, safnstjóri Lista-
safns Íslands, segir dönsku abstrakt-express-
jónistana hafa verið tíu árum á undan Cobra í
raun. Verkið Ophobning sanni það. En hvað
var það sem einkenndi Cobra-listamennina?
„Það sem sker úr er það að þeir voru miklu
villtari en evrópskir listmálarar höfðu verið áð-
ur. Þeir sækja aftur til forsögulegra minna, t.d.
grímunnar og helgiathafna, heiðinna tákna, og
vaða beint af augum. Mjög margir þeirra komu
upphaflega úr súrrealistahreyfingunni en það
fór mjög fyrir brjóstið á þeim hvað súrreal-
isminn var orðinn puntlegur,“ segir Halldór.
Hann segir að þeir hafi ákveðið að vaða
beint áfram með sína sálarangist umbúðalaust,
í stað þess að mála drauma eða sækja mynd-
efni í undirmeðvitundina. Cobra-menn hafi
fært umbúðaleysið, svo að segja, í evrópska
málverkið. „Það er þessi danski hópur sem
kemur með þetta umbúðaleysi.“
Halldór segir Cobra hafa orðið til þegar ab-
strakt-expressjónisminn var orðinn að norður-
evrópskri bylgju. Seinni heimsstyrjöldin hafi
svo gert það að verkum að þessi listastefna
náði ekki fram að ganga fyrr en að stríði loknu.
Þá hafi Bandaríkjamenn verið farnir að stunda
sína útgáfu af abstrakt-exrpessjónisma, Jack-
son Pollock og fleiri. Pollock gerði sín þekkt-
ustu verk til að mynda á árunum 1947–1950.
„Alechinsky, Corneille og Appel voru á
endalausum flótta undan Þjóðverjum í sínum
heimalöndum, þurftu að berjast fyrir lífi sínu,“
segir Halldór. Stofnendur Cobra voru allir
skráðir í kommúnistaflokka í sínum löndum.
„Kommúnistaflokkarnir á þessum tíma voru
eiginlega andspyrnuhreyfing, þetta var svo ná-
tengt. Þeir voru allir meðlimir, en út af and-
spyrnuhreyfingunni. Meira til að berjast gegn
Þjóðverjum og þeirra listastefnu,“ segir Hall-
dór og bætir því við að Cobra-menn hafi síðar
séð sósíalrealíska list Sovétríkjanna og ekkert
viljað hafa með hana að gera. List Cobra-hóps-
ins hafi verið algjör andstæða myndlistar nas-
ismans.
Halldór segir Svavar Guðnason hafa horfið
frá áhrifum súrrealismans upp úr 1937, um
svipað leyti og Asger Jorn. Hlutur Svavars sé
því afar stór í þessum kafla listasögunnar.
Hann hafi svo haldið sýningu í Reykjavík 1945
og fengið afar hörð viðbrögð við sinni list. Hún
hafi hins vegar haft mikil áhrif á íslenska
myndlistarmenn.
Cobra og nýja málverkið
Sýningarstjóri Cobra Reykjavík er Per
Hovdenakk, fyrrverandi safnstjóri Henie On-
stad-listasafnsins í Osló, sem nú starfar sjálf-
úrstefn
ákváðu
gáfu fr
kom að
Breton
súrreal
tímarit
raunak
Hovden
1949 og
mikil.
hreyfin
Hovd
Reykja
og önnu
um list
eftir þv
þennan
því hva
Hann v
fólkið, e
Allir ha
eitt saf
stætt sem sýningarstjóri. Hovdenakk er mesti
sérfræðingur heimsins í dag í list Cobra-hreyf-
ingarinnar og höfundur aðaltexta bókar sem
gefin hefur verið út um sýninguna.
Hovdenakk ítrekar mikilvægi Ophobning
sem lykilverks í listasögunni. Verkið er olíu-
málverk, eins og meirihluti verkanna á sýning-
unni, sérstaklega varið með gleri enda afar
verðmætt. Hovdenakk dregur ekki í efa að
Cobra-hreyfingin sé afar mikilvægur hluti
listasögunnar.
„Cobra-liðar voru fyrst og fremst listmál-
arar og mikilvægi Cobra fylgir þróun málara-
listar. Á 8. áratugnum var málverkið ekki álitið
mikilvægt, annað fékk meiri athygli. Nú hefur
málverkið verið endurlífgað um allan heim og
verk Cobra eru að verða mikilvægari fyrir vik-
ið,“ segir Hovdenakk. Um 1980 hafi athygli
beinst að Cobra-verkum á ný. „Málverkið hef-
ur margoft verið lýst dautt,“ segir Hovdenakk
og gefur lítið fyrir slíkar dánartilkynningar.
Hvað stofnun Cobra varðar segir Hovde-
nakk að súrrealisminn hafi verið álitinn fram-
Lykilverk listas
Merkissýning Frá blaðamannafundi þar sem sýningin
stoðarsýningarstjóri, Halldór Björn Runólfsson, safnstj
Hápunktur De
Það er merkile
Upphafið Málverkið Ophobningen,
eða Upphafið, eftir Egil Jacobsen.
MEÐ sýningunni Efter ekspressionisme – AbstrNeoplasticisme – Surrealisme, í Kaupmannahkom fram í fyrsta sinn vísir að abstrakt-expre
það töluvert áður en hann kom fram í bandarískri myn
hreyfingin var stofnuð af belgískum, hollenskum og dö
listarmönnum á kaffihúsi í París hinn 8. nóvember 1948
ist upp þremur árum síðar.
Nafnið er dregið af nöfnum þeirra borga sem stofnen
bjuggu og störfuðu í, Kaupmannahöfn (Copenhagen), B
Amsterdam. Asger Jorn, Karel Appel, Christian Dotrem
Noiret, Constant Nieuwenhuys og Cornelis van Beverlo
stofnuðu hópinn á kaffihúsinu Café Notre Dame í París
gegn súrrealistum og ríkjandi listastefnum. Dotremont
ávarp hópsins sem var lagt fyrir Egil Jacobsen, sem be
í nágrenninu, og var ávarpið samþykkt í framhaldi.
Í ávarpinu segir meðal annars: „Við sjáum því aðeins
leið til að tryggja alþjóðlegt og lifandi samstarf um my
artilraunir, lausar við steingeldar og einstrengingslega
[…] við skiljum verk hver annars, en höfnum því að láta
ur við falska hugmyndafræðilega einingu.“ Dotremont
heyrðu hópi súrrealista í Belgíu, Jorn danska framúrst
og Appel, Constant og Corneille hollenska framúrstefn
Cobra-hreyfingin st