Morgunblaðið - 10.05.2007, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 10.05.2007, Qupperneq 46
46 FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Valdimar Lár-usson fæddist á Efra-Vaðli á Barða- strönd 28. janúar 1920. Valdimar lést að morgni 1. maí á Heilbrigðisstofn- uninni á Hvamms- tanga. Foreldrar hans voru Jónína Valgerður Engil- bertsdóttir, f. 12. janúar 1875, d. 9. febrúar 1926, og Lárus Mikael Stef- ánsson, f. 22. sept- ember 1871, d. 13. apríl 1930. Valdimar var yngstur 14 systk- ina, hin voru: Gísli Hjörtur, Krist- jóna, Valgerður Guðrún, Stefán Benjamín, Kristinn Janus, Hall- dóra, Lára Salóme, Aðalheiður Jenný, María Þórlaug, Svava, Jó- hanna, Anna, öll látin, og Gústaf Lárusson f. 1917. Valdimar missti móður sína 6 ára að aldri og ólst upp hjá föður sínum og systrum til 10 ára aldurs en þá lést faðir hans og var hann hjá systrum Geir Óskarsson. Og stúlka, fædd 23. júní 1936, lést ung og óskírð. Valdimar og Kristrún eiga eina dóttur, Sigrúnu Björk Valdimars- dóttur, f. 16. október 1955, gift Víglundi Gunnþórssyni, f. 17. jan- úar 1957. Þeirra börn eru Hrafn- hildur Ýr Víglundsdóttir, f. 16.ágúst 1979, maki Haraldur Birgir Þorkelsson; Vilmar Þór Víglundsson f. 1. júlí 1984, maki Anna Nordberg, og Kristinn Rún- ar Víglundsson, f. 26. október 1988. Valdimar vann ýmiss konar störf sem ungur maður, hann út- skrifaðist frá leiklistarskóla Ævars Kvaran og var í fyrsta út- skriftarárgangi. Hann starfaði sem leikari við Leikfélag Reykja- víkur, Þjóðleikhúsið og við Ríkis- útvarpið, auk þess sem hann vann með ýmsum leikhópum. Árið 1967 réðst Valdimar sem lögreglumaður til Bæjarfógetans í Kópavogi og starfaði þar uns hann lét af störfum sökum ald- urs. Valdimar verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Jarð- sett verður í Kópavogskirkju- garði. sínum til 13 ára ald- urs að hann fór í kaupavinnu að Króktúni í Land- sveit, til þeirra Vil- hjálms Ólafssonar og Margrétar Þór- arinsdóttur, en þar ílentist hann til 1938 er hann fluttist til Reykjavíkur. Valdimar kvænt- ist, 16. nóvember 1942, Kristrúnu Jónsdóttur, f. á Sel- koti í Þingvallasveit 29. ágúst 1922 , foreldrar Jón Bjarnason, f. í Reykjavík 8. októ- ber 1888, d. 21. október 1976, og Guðrún Einarsdóttir, f. á Núpi í Dýrafirði 10. október 1894, d. 26. september 1951. Systur Krist- rúnar eru Guðný, f. 20.desember 1919, d. 9.mars 1985, Valgerður, f. 15. nóvember 1924, d. 16. júní 2006, maki Guðmundur V. Guð- mundsson, látinn, Bjarney, f. 16. maí 1927, maki Einar Elíasson, Bjarndís, f. 24. janúar 1934, maki Elsku Valdi afi, mikið er erfitt að kveðja þig. Þú skipaðir svo stórt sæti í hjörtum okkar allra og við söknum þín svo mikið. Það voru mikil forréttindi að eiga þig sem afa því ljúfari og yndislegri mann er erfitt að finna. Þú varst alltaf tilbúinn til að spjalla við okkur um allt sem okkur lá á hjarta. Þú mundir ótrúlegustu hluti, heilu romsurnar í gömlum leikritum, sögum og ljóðum sem þú vitnaðir óspart í okkur til mikillar skemmtunar. Með þér var alltaf stutt í hláturinn. Ljóðin þín voru falleg og þykir okkur sérstaklega vænt um afmæl- isljóðin sem leyndust í afmæliskort- unum okkar hvert ár. Myndavélin þín var aldrei langt undan og eftir þig liggja albúm í tugatali af okkur systkinunum, stór- fjölskyldunni og úr hinum mörgu ferðalögum sem þú og amma fóruð í með vinum og vandamönnum. Þú varst mikill veiðimaður og það var fastur liður að heimsækja þig og Njörð frænda á veiðisvæðin í Víði- dalsá á hverju sumri. Við gleymum aldrei svipnum á þér þegar þú komst heim eftir veiði einn daginn með 16 punda lax í farteskinu. Það sem þú varst stoltur af veiðinni, enda stærsti fiskur sem þú fékkst á þínum veiðimannsferli. Pólitík var þér alltaf hugleikin og alþingiskosningarnar í vor voru þér ofarlega í huga. Mestan áhuga hafð- ir þú á fréttum af fylgi Vinstri grænna í skoðanakönnunum enda harður stuðningsmaður þeirra og hlakkaðir mikið til að greiða þeim atkvæði þitt í vor. Þó svo að þú komist ekki í kjörklefann í þetta skiptið erum við systkinin handviss um að þú hafir einhver ráð með að fá þitt fram samt sem áður. Elsku afi. Þú hafðir einstakt lag á að láta hverri manneskju finnast sem hún væri sérstök. Þú varst allt- af svo óumræðanlega stoltur af mömmu, pabba og okkur systkinun- um og studdir okkur í öllu því sem við tókum okkur fyrir hendur. Þú áttir svo mikið af ást og væntum- þykju sem svo margir fengu að njóta. Á sjúkrahúsinu vildir þú hafa mynd af fólkinu þínu hjá þér. Sér- stakan heiðursess fengu Koffi litli í Togo, sem án efa átti besta stuðn- ingsafa í heimi, en myndina af hon- um og Nirði frænda hafðir þú á náttborðinu þínu á sjúkrahúsinu og skoðaðir hana oft á dag. Það var okkur svo dýrmætt að fá að hafa þig hjá okkur svona lengi. Þó svo að sorgin sé djúp og miss- irinn sár gleðjumst við yfir því að þú hefur fengið hvíldina, enda orð- inn þreyttur og lúinn þessa síðustu mánuði. Við kveðjum þig með kvöldbæninni þinni: Veit, Drottinn, þreyttum þráða hvíld í nótt, þerraðu tár er margra væta hvarma Gefðu þeim styrk þinn svo þeir sofi rótt, sefaðu tregans mál og þungu harma. (Valdimar Lárusson) Hvíldu í friði afi, við elskum þig. Þín afabörn Hrafnhildur, Vilmar og Kristinn. „En í kvöld lýkur vetri / sérhvers vinnandi manns“ segir í Maístjörnu Halldórs Laxness, og að morgni 1. maí kvaddi þennan heim Valdimar Lárusson, leikari og lögregluvarð- stjóri, móðurbróðir minn og ævivin- ur. Þar er genginn drengur góður. Árangur lífs hans verður ekki talinn í peningaseðlum enda sóttist hann ekki eftir veraldarauði. Fremur leit- aði hann eftir þroska og sannleika. Engan mann hef ég þekkt fjær því að vilja gera nokkuð á hlut nokkurs manns. Má því heimfæra upp á hann þau orð Laxness, að sannleik- ann finni menn ekki í bókum, ekki einu sinni í góðum bókum, heldur hjá fólki með gott hjartalag. Góðvild er það orð sem kemur mér í hug þegar ég hugsa til frænda míns. Góðvild og hjartahlýja. Ungur fá- tækur námsmaður átti ég víst at- hvarf hjá þeim Valda og Dúnu, og fæ seint þakkað. Svo var einnig um bróður minn Hallgrím Pétur. Valdimar var yngstur 14 systkina og missti foreldra sína ungur. Móð- ur sína missti hann sex ára og föður sinn 10 ára. Ég held að móðurmiss- irinn hafi mótað líf hans meira en flest annað. Raunar grunar mig að hann hafi tæpast nokkurn tíma jafn- að sig á þeirri sáru kvöl, og í ein- hverjum skilningi hafi hann sífellt leitað að öryggisfaðmi móðurinnar. Því var gæfa hans að eignast Krist- rúnu Jónsdóttur, Dúnu, að lífsföru- naut, og síðar dótturina Sigrúnu, á miðjum aldri. Þær voru gleði hans og hamingja, og Dúna var honum svo góð eiginkona, að jaðrar við að hún hafi verið of góð. Ég átti vináttu frænda míns frá barnæsku, og skipti aldursmunur engu, enda áttum við margt sameig- inlegt og vorum ærið oft samferða, bæði í gamni og alvöru. Við spil- uðum saman bridds, svona hæfilega illa. Við veiddum saman lax og sil- ung, og áttum margar gleðistundir á bökkum Víðidalsár, eftir að Sig- rún fluttist þangað norður. Við hnoðuðum saman vísur, enda var Valdi mikill hagyrðingur. Við höfð- um báðir mikinn áhuga á bók- menntum, einkum ljóðlist.Við trúð- um báðir á mannúð jafnaðarstefnunnar. Við störfuðum áratugum saman í Alþjóða Sam-Frí- múrarareglunni Le Droit Humain. Og Valdimar gekk til liðs við hug- sjónafélagið SPES barnahjálp, þeg- ar hann tók að sér ásamt konu og dóttur að ala önn fyrir Koffi litla, munaðarlausum dreng í Tógó. Og nú er hann horfinn og skilur eftir tóm í dag, en lifir í ótal minn- ingum. Hann var orðinn þreyttur af erfiðum sjúkdómi, og því reiðubúinn að gefa sig á vald hins skapandi máttar alheimsins. Valdimar var ekki bara hagyrðingur, hann var líka skáld. Og eins og kemur fyrir skáld, þá er eins og hann hafi átt innsæi til að sjá fyrir endalok sín. Það kom fram í kvæði hans Að kvöldi: Þá lokast hljóðlaust örþreytt augu mín, inn á draumsins lendur hverf ég brátt, hvar við mér blasir birta sem ei dvín, birta, sem að dreifist vítt og hátt, birta sem að gefur mörgum mátt, og mörgum veitir æðri og nýrri sýn. Það er sárt að kveðja þig, bróðir og vinur. Farðu vel. Verði heimferð þín góð. Dúnu og Sigrúnu og fjölskyldunni sendi ég hugheilar samúðarkveðjur. Njörður P. Njarðvík. Í dag er til moldar borinn frá Kópavogskirkju móðurbróðir minn, Valdimar Lárusson, fyrrv. lögreglu- varðstjóri og leikari. Hann var yngstur fjórtán barna þeirra Jónínu Valgerðar Engilbertsdóttur (1875- 1926) og Lárusar Mikaels Stefáns- sonar bónda (1871-1930), sem bjuggu á nokkrum stöðum á Barða- strönd, en Jónína Valgerður var ættuð frá Melgraseyri við Ísafjarð- ardjúp. Svo þröng voru lengst af kjör þeirra hjóna, að þau neyddust til að koma eldri börnunum í fóstur um lengri eða skemmri tíma hjá sóma- fólki á Barðaströnd og Breiðafjarð- areyjum. Samt náðu flest systkinin háum aldri, og er eitt þeirra enn á lífi, Gústaf Adolf (f. 1917). Í frumbernsku var Valdimar hjá foreldrum sínum fyrir vestan, en eftir lát móðurinnar kom hann með föður sínum til Reykjavíkur. Fundu þeir feðgar skjól hjá dætrum Lár- usar, Aðalheiði móður minni og Halldóru. Valdimar var tíu ára þeg- ar faðir hans féll frá, og mun honum skömmu síðar hafa verið komið fyr- ir hjá góðu fólki í sveit. Kynni mín af Valda frænda voru svipul tímann sem hann dvaldist hjá okkur upp úr 1930 á býlinu Lauga- læk við Kleppsveg. Ég kynntist honum ekki að ráði fyrr en allmörg- um árum síðar, þegar hann heim- sótti okkur unglingur að Kirkju- landi við Laugarnesveg. Hann var þannig skapi farinn að börn löð- uðust ósjálfrátt að honum, fjörmikill og léttur í lund, opinskár og ræðinn, einstaklega hlýr í viðmóti. Ekki spillti fyrir að hann lék ljómandi vel á munnhörpu og flutti þannig tónlist inn á tónvana heimilið. Hann átti líka til að bregða á leik, taka á sig framandi gervi og leika skrýtnar persónur ungviðinu til upplyftingar í fásinni kreppuáranna. Við Valdimar kynntumst ekki ná- ið fyrr en á fullorðinsárum. Þá var hann farinn að leika á sviði og í fyrstu innlendu kvikmyndunum. Þó að leiklistin ætti sterk ítök í honum, gat hann ekki framfleytt sér og sín- um á henni og afréð að leggja fyrir sig löggæslu. Lauk hann námi í Lögregluskólanum árið 1969 og starfaði hjá Kópavogslögreglunni á árunum 1967 til 1990. Hann var í fyrsta útskriftarhópi Leiklistar- skóla Ævars R. Kvarans og mennt- aði sig einnig í leiklist í Þjóðleik- hússkólanum. Lék hann í Iðnó og Þjóðleikhúsinu jafnframt því sem hann leikstýrði og lék í verkum með frjálsum leikhópum í Ríkisútvarp- inu. Valdimar var hagmæltur í besta lagi og óspar á snjallar og hnyttnar vísur sem oftlega birtust í blöðum, til dæmis í sambandi við útvarps- þáttinn „Orð skulu standa“ sem frændi okkar, Karl Th. Birgisson, hefur veg og vanda af. Hann gaf ennfremur út þrjár ljóðabækur sem fróðlegt er að blaða í: Rjálað við rím og stuðla, 1990, Laust og bundið, 1993 og Tært drýpur vatnið, 1997. Samfundir okkar frænda urðu strjálir á seinni árum, en ævinlega var hressandi og upplyftandi að eiga við hann orðastað og deila með honum áhugamálum. Sár harmur er kveðinn að ekkj- unni, Kristrúnu Jónsdóttur, og einkadótturinni Sigrúnu Björk sem býr á Dæli í Vestur-Húnavatnssýslu ásamt manni sínum, Víglundi Gunn- þórssyni. Barnabörn Valdimars eru þrjú. Sendi ég ekkju Valdimars og aðstandendum mínar hjartanleg- ustu samúðarkveðjur. Góðan dreng er gott að muna og hugga sig við að hvíldin var honum vísast kærkomin. Sigurður A. Magnússon. Mig langar með nokkrum orðum að minnast vinar míns, Valdimars Lárussonar leikara og fyrrverandi lögregluþjóns, sem jarðsunginn verður frá Kópavogskirkju 10. maí. Það er nú á þriðja tug ára síðan ég kynntist þeim hjónum, Valdimar og konu hans Kristrúnu Jónsdóttur, vegna tengsla dóttur þeirra Sigrún- ar í Dæli í Víðidal og sonar míns Víglundar í Dæli. Það tók ekki lang- an tíma að kynnast þeim hjónum, þau koma til dyranna eins og þau eru klædd og eru bæði mannblendin og félagslynd og gera sér engan mannamun. Við Valdimar erum búnir að stunda það hátt á annan áratug að kveðast á og er það orðið býsna mikið safn. Þetta hefir gefið okkur margar ánægjustundir og styrkt okkar góðu og ágætu kynni. Það er auðvitað með söknuði sem ég kveð nú þennan góða dreng, en þar á móti koma allar góðu minning- arnar og bjarminn af því bjarta ljósi sem lýsir okkur leiðina heim. Mig langar að setja hérna örlítið sýn- ishorn af kveðskap okkar Valdi- mars: GG: Ef þú fátt hér átt og smátt, ert í sátt við góðan hátt. VL: Þá er kátt og kveðið dátt, kallað þrátt á andans mátt. VL: Gott er ekki en, gaman samt, í glímu ljóðs að keppa. GG: Fjaðralaus og flýg því skammt, flyt svo orðaleppa! GG: Víst það felst með vöskum halnum, varpa helsi, leika, þrá! VL: Vil ég helst í Víðidalnum vorsins frelsi notið fá. Við kveðjumst nú að sinni kæri vinur Valdimar. Ég vil svo votta Kristrúnu, fjölskyldunni í Dæli og öllum vinum og vandamönnum þeirra innilega samúð við andlát þessa góða drengs og mæta vinar okkar. Í Guðs friði. Gunnþór Guðmundsson. Á lífsins braut eru margir við- komustaðir. Hugðarefnin eru marg- vísleg og það var líkt á með okkur Valdimar, að við kusum okkur lík viðfangsefni í lífinu. Það er hægt að skrifa heila ritgerð hér um líf Valdi- mars, en á sjöunda áratug síðustu aldar lágu leiðir okkar saman þar sem leiklistargyðjan var í fyrirrúmi. Við unnum saman á sviði Þjóðleik- hússins í nokkur ár á síðari hluta síðustu aldar og könnuðust allir þá við leikararann Valdimar og tóku eftir upplestrum hans í útvarpinu, m.a. Kapitólu. Við unnum saman á vegum Garðaleikhússins og Nafn- lausa leikhópsins í Kópavogi. Þá kusum við okkur löggæslu sem hugðarefni á síðari árum og lágu leiðir okkar einnig saman þar. Við gátum rætt ýmis mál, er aðra varð- aði ekki og þannig myndaðist mikið traust á milli okkar. Þá unnum við saman á kvæðakvöldum í Kópavogi, er hann las úr verkum sínum, því hann var skáld. Það þarf ekki að tí- unda hæfni Valdimars til verka, því hann var traustur maður þegar á þurfti að halda. Ég kveð Valdimar með hans lokaorðum í kvæðinu „Kveðja“ úr ljóðabók hans „Tært drýpur vatnið“ og votta aðstand- endum samúð mína. Þú komst til þess að kveðja, kveðja í hinsta sinn. Kveðjan þín geymist en gleymist ei, glóbjarti drengurinn! Þórir Steingrímsson. Komið er að leiðarlokum Valdi- mars Lárussonar og tími til að kveðja góðan vin hinstu kveðju. Valdimar Lárusson ✝ Ástkær sonur okkar og bróðir, MAGNÚS ÓLI GUÐBJARGARSON, Hólmasundi 6, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 11. maí kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Félag ein- stakra barna í síma 568 2661 og Barnaspítalasjóð Hringsins, sími 543 3724. Guðbjörg Magnúsdóttir, Kristján Már Hauksson, Birta Ósk Kristjánsdóttir, Sigrún Lilja Kristjánsdóttir, Haukur Jarl Kristjánsson. ✝ Faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÞORBJÖRN JÓNSSON frá Grjótá, Fljótshlíð, verður jarðsunginn frá Hlíðarendakirkju í Fljóts- hlíð laugardaginn 12. maí kl. 14.00. Ágúst Þorbjörnsson, Arnar Þorbjörnsson, Margrét Jónsdóttir, Ásdís Þorbjörnsdóttir, Ásrún Þorbjörnsdóttir, Ásta Þorbjörnsdóttir, barnabörn og langafabarn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.