Morgunblaðið - 09.06.2007, Page 1
STOFNAÐ 1913 155. TBL. 95. ÁRG. LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Allir í sund
með Símanum
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
8
2
7
9
Sjá nánar á siminn.is
FRÍTT í sund í dag!
GLERDANSINN
HEFUR REYNT SITT AF HVERJU Í
ALDARFJÓRÐUNG VIÐ ELDINN >> 26
RAFMAGNAÐUR
DÚETT FRÁ FRANS
AIR
FERSKT LOFT >> 54
FRÉTTASKÝRING
Eftir Agnesi Bragadóttur
agnes@mbl.is
GNÚPUR Fjárfestingarfélag hf., í eigu Krist-
ins Björnssonar, Magnúsar Kristinssonar og
Þórðar Más Jóhannessonar, flaggaði í Kauphöll-
inni í gær kaupum sínum á 28,44 milljónum hluta í
FL Group, eða 0,39% hlut og á nú 20,05% í FL
Group og er þar með orðið stærsti einstaki hlut-
hafinn í félaginu. Baugur og tengd félög eru annar
stærsti hluthafinn og Oddaflug, félag í eigu Hann-
esar Smárasonar, forstjóra FL, er þriðji stærsti
hluthafinn.
Jón Ásgeir Jóhannesson var í gær kjörinn
stjórnarformaður FL Group, en Skarphéðinn
Berg Steinarsson hætti sem formaður stjórnar
FL Group í kjölfar skipulagsbreytinga hjá Baugi
og tekur við starfi sem forstjóri nýs félags, Stoðir
Group, sem er að meirihluta í eigu Baugs.
Hyggst skipta sér meira af FL Group
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins, er sú
ákvörðun Jóns Ásgeirs að verða stjórnarformaður
FL Group talin vera sönnun þess að hann hyggist
skipta sér meira af rekstri og fjárfestingarákvörð-
unum FL Group en hann hefur hingað til gert.
Sama eigi reyndar við um eignarhlut FL Group í
Glitni, sem er stærsta einstaka eign FL Group.
Þórður Már og félagar í Gnúpi, sem eiga um 45
milljarða bundna í FL Group, munu sömuleiðis
telja að með því að hafa Jón Ásgeir sem stjórn-
arformann séu þeir að tryggja sér betra flæði upp-
lýsinga, og áhrif á ákvarðanatöku.
Heimildir Morgunblaðsins herma að það sé
Hannesi Smárasyni ekkert sérstakt fagnaðarefni
að viðskiptafélagi hans Jón Ásgeir sé orðinn
stjórnarformaður í FL Group. Hann mun telja að
óumdeild yfirráð hans á FL Group hingað til, og
hvaða fjárfestingarstefnu félagið tekur hverju
sinni, kunni að vera í uppnámi vegna ofangreindra
breytinga.
Fullvíst er talið að eigendur Gnúps styðji Jón
Ásgeir til stjórnarformennskunnar, en þrátt fyrir
20,05% eignarhlut þeirra í FL Group á Gnúpur
enn engan stjórnarmann í félaginu. Búist er við að
á því verði breyting þegar á næsta hluthafafundi
hjá FL Group og að Gnúpur eignist jafnvel tvo
stjórnarmenn í félaginu.
Þórður Már Jóhannesson og Jón Ásgeir Jó-
hannesson hafa um langt skeið átt mjög náið og
gott samstarf, ekki síst þann tíma sem Þórður
Már var forstjóri Straums, en einnig eftir að
Kristinn, Magnús og Þórður Már stofnuðu Gnúp.
Talið er að sú samvinna hafi gegnt lykilhlutverki í
þeim vendingum sem nú hafa orðið.
Raunar er einnig fullyrt að samstarf Gnúps við
Hannes Smárason hafi verið með ágætum. | 4
Gnúpur
stærstur
í FL Group
með 20,05%
Eftir Gunnar Pál Baldvinsson
gunnarpall@mbl.is
„VIÐ þurfum að passa upp á að
þetta verði ekki eins og á tog-
araárunum og þessi þrjú ár sem
liðin eru verði bara eins og vertíð.
Það verður að halda áfram og
byggja eitthvað nýtt. Fjarða-
byggð má ekki stoppa.“
Þessi orð Ásmundar Ásmunds-
sonar, fasteignasala í Fjarða-
byggð, við Morgunblaðið í gær,
lýsa e.t.v. vel því andrúmslofti
sem nú ríkir á Reyðarfirði og
raunar í byggðunum öllum nærri
álveri Alcoa. Allir virðast gera
sér grein fyrir því að uppbygging
svæðisins er nú fyrst að byrja og
sú gríðarlega þensla sem verið
hefur á svæðinu var einungis
tímabundin.
„Það sem mestu skiptir er að
hugarfar fólksins hefur breyst.
Nú telur það gott að búa á Aust-
urlandi og veltir því ekki fyrir sér
hvort það eigi að flytja burtu,“
segir Smári Geirsson og Samúel
Sigurðsson, rekstrarstjóri Olís,
segir mikilvægt að byggt verði
upp öflugt tæknisamfélag við
Reyðarfjörð. Ekki sé nóg að
byggja bara álver og halda að það
leysi allan vanda. Menntun og
tækniþekkingu þarf til að ný-
sköpun eigi sér stað.
Bjartsýni einkennir hug flestra
á svæðinu til framtíðarinnar. Þótt
atvinnuframboð hafi verið mikið
vegna framkvæmdanna mun nú
reyna á hvernig atvinnulífið
byggist upp á svæðinu í kringum
stóriðjuna. Nú þegar er farið að
skipuleggja stækkun hafnarinnar
og ýmis fyrirtæki sjá þar sókn-
arfæri. Hvert svo sem farið er
lýsir fólk mikilvægi tilkomu stór-
iðjunnar. „Ástandið var afar dap-
urt árin áður en ákvörðunin var
tekin. Fólk trúði því raunar ekki
að þetta myndi verða fyrr en
framkvæmdir við álverið sjálft
hófust, jafnvel þótt virkj-
unarframkvæmdirnar væru
komnar vel af stað,“ segir Ás-
mundur. | 14
Kaflaskil á Austurlandi
Morgunblaðið/ÞÖK
Reyðarfjörður Fyrsta álið rann úr keri fyrir apríllok en í dag verður
starfrækslu álversins fagnað með sérstakri opnunarhátíð.
Í HNOTSKURN
» Opnunarhátíð AlcoaFjarðaáls verður haldin
á Reyðarfirði í dag.
» Íbúar á svæðinu eru al-mennt bjartsýnir á
framtíðina og sjá ekki eftir
þeirri ákvörðun að byggja
upp stóriðju í Reyðarfirði.
Íbúarnir fullir bjartsýni og velta ekki lengur fyrir sér að flytja í burtu
ÞAU voru ekki lág til hnésins,
pilturinn og stúlkan sem örkuðu
niður Bankastræti í dag. Ein-
hverjum þótti þau heldur fölleit
í sumarveðrinu, en ekki er því
engin hætta af þessum vinalegu
risum, sem reyndust hin mestu
gæðablóð. Götuleikhúsið setti
mikinn svip á miðborgina í dag
með hátíðlegri stemningu.
að neita að kærleikar þeir sem
tekist höfðu með þeim kölluðu
fram kinnroða sem bætti lit-
arhaftið upp og gaf hraustlegt
útlit. Venjulegu fólki stafaði
Morgunblaðið/Eyþór
Loksins komið sumar í Reykjavík
SÉRSVEIT ríkislögreglustjóra
var kölluð út laust eftir miðnætti í
nótt vegna karlmanns sem grun-
aður er um að hafa hleypt af skot-
vopni á heimili sínu í Hnífsdal í
seint í gærkvöldi. Áður hafði lög-
reglan á Ísafirði sent allt tiltækt
lið á vettvang en þegar Morgun-
blaðið fór í prentun var sérsveitin
hvorki komin á vettvang né búið
að yfirbuga manninn, sem hafði
þá haldið sig á heimili sínu í um
klukkustund. Lögreglan sat þá
um heimilið en hélt í sig í um 50
metra fjarlægð.
Samkvæmt heimildum blaðs-
ins virðist sem maðurinn hafi
skotið að eiginkonu sinni, sem
slapp naumlega undan og til ná-
granna. Lögregla kom fljótlega á
vettvang og hóf leikinn á því að
biðja fólk í nærliggjandi húsum
að halda sig innandyra.
Íbúar í þessu 250 manna bæj-
arfélagi voru að sögn afar skelk-
aðir yfir atburðunum.
Umsáturs-
ástand í
Hnífsdal