Morgunblaðið - 09.06.2007, Page 4

Morgunblaðið - 09.06.2007, Page 4
4 LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Í HNOTSKURN »160-170 þúsund auðkennislyklum hefurverið dreift. 145 þúsund eru virkir. »Verið er að undirbúa dreifingu til við-skiptavina íslenskra banka og spari- sjóða sem búsettir eru erlendis. Í flestum til- fellum er um að ræða íslenskt námsfólk. Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur ylfa@mbl.is NOKKUÐ hefur borið á göllum í auðkennislykl- unum sem dreift var til notenda heimabanka í vor. Svo virðist sem hluti sendinga hafi innihaldið gallaða lykla, segir Guðjón Rúnarsson, fram- kvæmdastjóri samtaka fjármálafyrirtækja. Það sem helst hafi borið á hjá fólki sé að annaðhvort frjósi skjárinn eða gúmmí á enda tækisins losni af. Þegar það gerist, segir Guðjón, eigi fólk að snúa sér til síns banka eða sparisjóðs og fá nýjan lykil sendan um hæl. Enn sem komið er eru auðkennislyklarnir gjaldfrjálsir en týni fólk lyklunum eða skemmi þá þarf að greiða fyrir nýjan. Sé um galla að ræða fær fólk nýjan lykil án endurgjalds. Sé einhver vafi fyrir hendi telur Guðjón hann eflaust túlk- aðan viðskiptavininum í hag. Þó bankarnir séu ekki búnir að setja inn í gjaldskrár sínar hvað greiða skuli fyrir auðkennislyklana segir Guðjón það líklega standa til. Hann hefur þó enga trú á því að reynt verði að ná inn tekjum af lyklunum heldur greiði fólk lágmarkskostnað. Verð á lykl- unum verði algerlega á valdi hvers banka og sparisjóðs en Guðjón telur upphæðina frekar hlaupa á nokkrum hundruðum en þúsundum. Tímabundin lausn Hægt er að fá auðkennisnúmer sent með sms- skilaboðum í farsíma, en aðeins sem varaleið. Að- spurður hví ekki sé hægt fyrir eigendur farsíma að nota eingöngu sms-leiðina segir Guðjón vissa hættu fólgna í henni. Stundum verði bilun í bún- aði símafyrirtækja og lykilorð skili sér seint eða alls ekki. Í raun sé ástæðan sambland ýmissa þátta en niðurstaðan hafi verið sú að lyklarnir væru öruggastir og næðu til flestra þar sem margt gamalt fólk eigi ekki farsíma. Guðjón segir þó auðkennislyklana alltaf hafa verið hugsaða sem tímabundna lausn. Næsta skref séu rafræn skilríki en vinna við undirbúning þeirra er komin á fullt. Í rafrænum skilríkjum eru öryggiskóðar komnir í segulröndina og segir Guð- jón framtíðina án efa vera að taka tæknina upp. Ekki allir á eitt sáttir um gæði auðkennislyklanna Morgunblaðið/Árni Sæberg Gallar Mörgum þykir lyklarnir endast illa. Vinna hafin við undirbúning rafrænna skilríkja sem taka við af auðkennislyklum ALEXANDER Magnússon ræddi í hjartans einlægni við blómin á hótellóðinni á Blönduósi í gær. Drengurinn og blómin voru sammála um það að tíðin, sem menn töluðu svo lengi um í vor að kæmi bráðum, væri komin. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Talað við blómin Eftir Guðmund Sverri Þór sverrirth@mbl.is JÓN ÁSGEIR Jóhannesson lætur af störfum sem forstjóri Baugs Group og verður starfandi stjórn- arformaður félagsins. Hann tekur við stjórnarformennsku af Hreini Loftssyni, sem gegnt hefur því embætti undanfarin ár. Við starfi Jóns Ásgeirs tekur Gunnar Sig- urðsson sem hefur verið fram- kvæmdastjóri fjárfestinga Baugs í smásölu, með aðsetur í Bretlandi, um nokkurt skeið. Skarphéðinn Berg Steinarsson, sem verið hefur framkvæmastjóri fjárfestinga Baugs í fasteigna- og fjármálafyrir- tækjum, verður forstjóri Stoða Group, nýstofnaðs félags sem tekur yfir rekstur Stoða hf. og fleiri fast- eignafélaga í eigu Baugs. Frá þessu er greint í frétta- tilkynningu frá Baugi en breytingar þessar voru samþykktar á aðalfundi Baugs sem fram fór í gær en auk þess voru samþykktar breytingar á skipulagi félagsins. Í tilkynning- unni segir að markmið breyting- anna sé að gera stjórn félagsins enn skilvirkari en áður í fjölþættri sókn þess á alþjóðamarkaði. Haft er eftir hinum nýja stjórn- arformanni að Baugur sé nú örast vaxandi fjárfestingafélag heims á sviði smásölu og fasteigna. Hin mikla stærð og umfang félagsins kalli á breytt skipulag svo „vöxtur og velgengni félagsins geti haldið áfram. Við höfum sett okkur þau markmið að verða stærsta fjárfest- ingarfyrirtæki í heiminum í fjár- festingum tengdum verslunar- rekstri innan 5 ára. Að ná slíku markmiði krefst þess að Baugur sé í framlínu á þróun rekstrarum- hverfis verslunar auk þess að vera leiðandi þátttakandi í þeirri gríð- arlegu samþættingu verslunar sem mun eiga sér stað á komandi árum. Í starfi mínu sem starfandi stjórn- arformaður mun mér gefast tæki- færi til þess að þróa þessa sýn, horfa lengra fram á veginn og byggja upp umhverfi sem gerir Baugi kleift að ná settum mark- miðum á þessu sviði.“ Nýskipaður forstjóri Baugs, Gunnar Sigurðsson, hefur starfað hjá félaginu frá árinu 2003 þegar hann tók við starfi fjármálastjóra. Snemma árs 2004 tók hann við yfir- umsjón með fjárfestingum félagsins í Bretlandi og hefur frá því í upp- hafi þessa árs haft umsjón með öll- um fjárfestingum Baugs í smásölu. Í fréttatilkynningunni segir hann að framundan sé mikið starf við að tryggja áframhaldandi vöxt en það starf felist helst í að vinna að frek- ari þróun verkefna sem eru fyrir hendi og að leita nýrra tækifæra. Stefán Hilmarsson, framkvæmda- stjóri fjármálasviðs Baugs, verður staðgengill forstjóra. Jón Ásgeir Jóhannesson verður starfandi stjórnarformaður en Gunnar Sigurðsson tekur við for- stjórastarfinu. Skarphéðinn Berg Steinarsson verður forstjóri fasteignafélagsins Stoða Group Miklar breytingar hjá Baugi Jón Ásgeir Jóhannesson Gunnar Sigurðsson Skarphéðinn Berg Steinarsson Stefán H. Hilmarsson Í HNOTSKURN » Allur verslunarreksturBaugs í Færeyjum og á Ís- landi færist undir Haga hf. sem og 45% eignarhluti Baugs í Húsasmiðjunni. »Baugur á 96% hlut í Hög-um. » Jeff Blue, Eiríkur Jó-hannsson, Þórdís Sigurð- ardóttir og Sara Lind koma inn í framkvæmdastjórn Baugs. EFNAHAGSBROTADEILD Ríkis- lögreglustjóra rannsakar enn mál fyrrverandi framkvæmdastjóra Verðbréfastofu sparisjóðanna (VSP), sem vikið var úr starfi í apríl sl. Það var gert eftir að erlendur banki leit- aði eftir upplýsingum hjá VSP um ábyrgðaryfirlýsingu um rúmlega 13 milljarða króna innstæðu á banka- reikningi en fjármunina reyndist hvergi að finna. Helgi Magnús Gunn- arsson, saksóknari efnahagsbrota, segir að málið verði sennilega í rann- sókn fram á haust. Það tefji fyrir, að safna þurfi upplýsingum erlendis frá vegna málsins og sú vinnsla taki tíma. Framkvæmdastjórinn fyrrverandi var settur í farbann eftir að mál hans kom upp. Það rennur út í dag en Helgi Magnús segir að lögreglan muni gera kröfu um lengra farbann. Farið fram á lengra farbann INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir ut- anríkisráðherra átti fund með nor- rænum starfsfélögum sínum í Hels- inki í Finnlandi í gær en á dagskrá voru ýmis mál, m.a. loftslagsmál- in, en utanríkis- ráðherra leiddi umræður um þau. Að því er fram kemur í tilkynn- ingu frá utanrík- isráðuneytinu voru ráðherrarnir sammála um að Norðurlöndin ættu að gegna lykil- hlutverki í að raunhæf og metnaðar- full niðurstaða næðist á ráðherra- fundi loftslagssamningsins í Kaupmannahöfn 2009. Að fundi lokn- um átti ráðherra fund með finnskum starfsbróður sínum, Ilkka Kanerva, og ræddu þau framboð ríkjanna til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna en Ísland er í framboði fyrir tímabilið 2009-2010 og Finnland fyrir tímabilið 2013-2014. Rætt var um helstu áherslur og hvernig þau geta unnið saman á vettvangi öryggisráðsins. Öll Norðurlöndin vinna saman að því markmiði að Ísland og Finnland nái kjöri til öryggisráðsins og líta á fram- boðin sem norræn framboð. Ræddu ör- yggisráðs- framboð Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Norrænir utanríkis- ráðherrar funduðu RÍFLEGA 76% þeirra sem tóku afstöðu í nýlegri könnun Capacent Gallup – unninni fyrir Félag ís- lenskra bifreiðaeiganda (FÍB) – telja mikilvægt að olíufélög birti eldsneytisverð á vefsvæðum sínum. FÍB ákvað að kanna viðhorf al- mennings til upplýsingagjafar olíu- félaganna í kjölfar þess að N1 hætti að birta eldsneytisverð á vef- svæði sínu í byrjun maí sl. Félagið hefur síðan gagnrýnt ákvörðunina og svör framkvæmdastjóra N1 sem bar við að neytendur vildu ekki verðupplýsingar á vefsvæði N1, né væri það til minnstu óþæg- inda fyrir viðskiptavini olíufélags- ins. Spurt var: „Telur þú það vera mikilvægt eða lítilvægt að olíufélög birti upplýsingar um verð á heima- síðu sinni?“ Eins og áður segir voru 76,7% sem töldu það mik- ilvægt, 11,6% lítilvægt og 11,6% svöruðu hvorki né. Úrtakið var 1.350 manns af öllu landinu og svarhlutfallið 62%. Vilja upp- lýsingar um verð ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.