Morgunblaðið - 09.06.2007, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 09.06.2007, Qupperneq 14
14 LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR „ÉG er sannfærðari en nokkru sinni að þetta hafi verið rétt ákvörðun,“ sagði Smári Geirsson þegar Morg- unblaðið náði tali af honum í gær. „Það þurfti að fórna ýmsu og ég skil að margir hafi séð á eftir því landi sem var fórnað. Mér finnst það hins vegar hafa verið fullkomlega rétt ákvörðun,“ segir Smári. Hann var formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi á árunum 1998 og 2003 en sambandið beitti sér fyrir því að stóriðja yrði byggð upp á svæðinu. „Það sem mestu skiptir er að hug- arfar fólks hefur breyst. Nú telur fólk að það sé gott að búa á Austur- landi en veltir því ekki fyrir sér hvort það eigi að flytja í burtu. Á árunum áður en framkvæmdirnar hófust velti fólk því meira að segja fyrir sér hvort það gæti yfirleitt flutt.“ Hann segir þetta hafa breyst til betri veg- ar. „Ef menn eru bjartsýnir og trúa að þeir búi á góðum stað þá er allt hægt,“ segir Smári. Hann segir að nú séu að verða ákveðin kaflaskil hvað varðar upp- bygginguna. Framkvæmdirnar sjálfar eru á lokastigi en nú þegar ál- verið komist í rekstur komi í ljós hvaða áhrif það muni hafa á svæðið. „Okkur var sagt að við gætum ekki gert ráð fyrir því að föst íbúatala svæðisins hækkaði svo mjög á með- an á framkvæmdunum stæði. Það gekk eftir en nú fjölgar mjög hratt í samræmi við að farið er að ráða fólk til starfa í álverinu.“ Hann bendir líka á að þjónustustarfsemi og af- leidd starfsemi af álverinu aukist verulega. „Gömul fyrirtæki og stofn- anir eflast verulega og ný festa rót- um. Hér eru að skapast gríðarlega mörg ný tækifæri.“ Fólk hafi nú eðli- leg tækifæri í lífinu, mikið sé byggt á svæðinu og almenn bjartsýni ríki meðal íbúa. Smári segir að forsenda fram- kvæmdanna hafi verið efling og sam- eining sveitarfélaganna á svæðinu. „Hér stóðu menn saman og þurftu að beita sér af fullum krafti.“ Aðspurður hvort það hafi verið erfið barátta þá segir hann svo hafa verið. „Það eru ýmsir sem telja að maður hafi glatað ærunni vegna þessa. Ég tel hins vegar að það sé al- gjörlega blindur maður sem sér ekki þær jákvæðu breytingar sem eru að verða hér.“ Kaflaskil Smári Geirsson segir að forsenda framkvæmdanna hafi verið sameining sveitarfélaganna á svæðinu. Hann segir mikla bjartsýni ríkja. Góð eining íbúa var lykillinn Bjartsýni ríkir meðal fólks nú „ÞETTA er næstum því búið að vera eins og ævintýri,“ segir Samúel Sig- urðsson, rekstrarstjóri Olís á Reyð- arfirði. Þegar framkvæmdir hófust á Austurlandi var Olís-verslunin hefð- bundin bensínstöð sem seldi jafn- framt sælgæti. Nú er þar bakarí, fatabúð og matsölustaður. Í stað fjögurra starfsmanna starfa þar nú 27. Að mati Samúels er það dæmi um trú fyrirtækja á staðnum að Olís ákvað að fara út í þessa fjárfestingu. Þar séu nú margs konar fyrirtæki og mestu skipti að fjármálafyrirtæki hafi nú trú á staðnum. Hann fór sjálfur út í eigin rekstur. „Í septem- ber 2005 datt mér í hug að stofna bílaleigu. Ákvað að leigja út svona fimm eða sex bíla. Nú í vetur leigði ég mest út 130 bíla.“ Samúel segir Reyðarfjörð alltaf hafa haft upp á margt að bjóða og mikilvægt sé fyrir alla að gera sér grein fyrir því að uppbyggingin sé rétt að hefjast. „Fólk er búið að vinna mikið og þetta er búið að vera þriggja ára vertíð. Þetta er samt ekki einhver bóla sem varir bara í þrjú ár og er síðan búin. Við erum nú komin með starfsvettvang fyrir fleiri hundruð manns og þeim mun fleiri afleidd störf. Nú skiptir máli að við byggjum upp innviði samfélagins.“ Hann nefnir sérstaklega skólamál og samgöngur í þessu sambandi. „Við erum að fá hingað menntaða einstak- linga, sem í flestum tilfellum eiga menntaða maka. Við verðum að hafa eitthvað fyrir þetta fólk að gera. Reyðarfjörður á að verða tæknisam- félag og hér eru góðar aðstæður fyr- ir tækniskóla,“ segir Samúel. Ekki þriggja ára bóla sem er búin Telur mikilvægt að byggja upp öflugt tæknisamfélag við Reyðarfjörð Með kústinn Samúel segir Reyðar- fjörð hafa margt upp á að bjóða. JÓHANN Ingi Jóhannsson, 24 ára leikmaður hjá fótboltaliðinu Fjarðabyggð, segir að stór íþrótta- höll sem sveitarfélagið lét reisa fyr- ir nokkrum árum, hafi breytt miklu fyrir fótboltaiðkendur á svæðinu. „Það er helst að menn séu orðnir of framkvæmdaglaðir og haldi að þeir afgreiði þetta bara með því að byggja yfirbyggðan fótboltavöll í fullri stærð. Þetta er frábær að- staða en menn þurfa líka að passa upp á að nóg sé af litlum fótbolta- völlum utandyra til að krakkarnir geti spilað líka,“ segir Jón og bætir við að þetta standi nú til bóta. Á Reyðarfirði er einnig að finna sund- laug og líkamsræktarstöð sem ný- lega var reist. Jóhann stundar nám í íþrótta- fræði við Háskólann í Reykjavík. Hann segist skynja mjög breytt hugarfar á svæðinu og þá sér í lagi hjá ungu fólki. „Fólki finnst eins og það geti snúið aftur hingað heim og gert eitthvað. Það sé einhver mögu- leg framtíð hérna eftir að það er búið í námi. Ég veit um mjög marga sem hafa huga á að koma hingað. Fólk sem er á þrítugsaldri og er héðan veit að það er gott að ala upp börn hérna vegna smæðarinnar. Áhyggjurnar verða mun minni.“ Sjálfur segist Jóhann stefna á að koma aftur til Fjarðabyggðar að námi loknu. „Allavega í einhvern tíma en maður veit ekki hvað tekur síðan við. Maður fer kannski ekki strax að setjast að.“ Kemur aftur Jóhann stundar nám í íþróttafræði við Háskólann í Reykjavík en stefnir að því að flytjast aftur til Fjarðarbyggðar að námi loknu. Íþróttaaðstaða allt önnur OPNUNARHÁTÍÐ álvers Alcoa verður haldin á Reyð- arfirði í dag. Mikil dagskrá verður um allan bæ þar sem opnun álversins verður fagnað. Hátíðin ber þess vitni að ákveðin tímamót eru að verða við framkvæmdirnar á Austurlandi. Nú er farið að draga úr hinum eiginlegu framkvæmdum og við tek- ur mikill flutningur erlendra verkamanna af svæðinu til síns heima. Jafnframt hefst starfsemi álversins með öllum þeim störfum sem því var ætlað að skapa á svæð- inu. Mikil vertíðarstemming hefur verið á svæðinu síðast- liðin þrjú ár. Fólk hefur unnið mikið og langa vinnu- daga og stundum hefur íbúum fundist hamagangurinn full mikill. Nú hefst hins vegar tími þar sem var- anlegum íbúum mun fjölga og á það reynir hvaða starf- semi mun verða til á svæðinu til langframa. Álverinu fagnað Morgunblaðið/Helgi Garðarsson „ÞETTA er allt annað en þetta var hér áður en framkvæmdirnar hóf- ust. Sérstaklega síðustu árin áður en ákveðið var að ráðast í stóriðju- framkvæmdir þá var þetta orðið mjög dapurt.“ Rúnar Sigurjónsson er hafnarstjóri hafnarinnar á Reyð- arfirði. Það er starfsemin við höfn- ina sem hann lýsir með framan- greindum orðum. Undir hans verksvið heyra bæði höfnin við íbúabyggðina í Reyðarfirði og einn- ig Mjóeyrarhöfn, þ.e. höfnin við ál- verið. Áður en framkvæmdir hófust á Austurlandi hafði Eimskip flutt þá starfsemi sem skipafélagið hafði á svæðinu til Eskifjarðar og Samskip höfðu lagt niður sjóflutninga og hafið að flytja vörur með vörubílum þess í stað. Nú eru umsvif hafnar- innar orðin mikil og telst hún með stærstu höfnum landsins hvað varð- ar flutning farms til og frá landi. Árið 2002 sigldu 44 skip til hafn- arinnar og 28 þúsund tonnum var samtals landað eða flutt í burtu. Í fyrra komu hins vegar 273 skip og 520 þúsund tonn voru flutt til og frá landi. Aðspurður hvort álagið muni ekki minnka nú þegar framkvæmd- unum ljúki segir Rúnar svo ekki vera. „Við gerum reyndar ekki ráð fyrir að það komi jafn mörg skip á þessu ári og í fyrra. Þá var umferð- in líka svo mikil hérna að suma mánuði kom eitt skip á dag til hafn- arinnar. Hins vegar verður aukn- ing þegar verksmiðjan fer í fullan gang.“ Hann segir að samhliða því að skipin hætti að koma með að- föng til framkvæmdanna þá fari að koma stærri skip með súrál til verk- smiðjunnar og jafnframt þurfi síð- an að flytja álið á markaði til Bandaríkjanna og Evrópu. Reiknað er með að rúmlega 1.200 þúsund tonn af vörum muni fara um höfn- ina vegna álversins. „Síðan er verið að skipuleggja ýmiss konar starfsemi við höfnina og skipafélögin hafa mikinn áhuga á að koma sér upp aðstöðu þar. Stefnt er að því á næstunni að stækka höfnina á Mjóeyri enn frek- ar útaf þessu.“ Þessu muni fylgja tugir starfa og verið geti að skipa- félögin auki annars konar starfsemi samhliða. Ein stærsta höfn landsins Við stjórn Rúnar Sigurjónsson hafnarstjóri á Reyðarfirði gerir ekki ráð fyrir að álagið við höfnina muni minnka eftir að framkvæmdum lýkur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.