Morgunblaðið - 09.06.2007, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 09.06.2007, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2007 15 ÞEGAR Högni Atlason var togara- skipstjóri var Atli litli bróðir hans oft stýrimaður hjá honum. Eftir nokkurt hlé starfa þeir nú aftur saman í skautsmiðju álversins í Reyðarfirði. Í skautsmiðjunni eru bæði bak- og forskaut álkeranna steypt. Högni starfar við bræðslupottanna í skautsmiðjunni og segir að sér líki vinnan afar vel. Hann er á leiðinni í vaktafrí þegar blaðamaður nær tali af honum en starfsmenn kusu ný- lega um nýtt vaktafyrirkomulag. „Ég hóf störf 2. janúar á þessu ári. Þá byrjuðu allir á námskeiðum hérna heima en síðan vorum við sendir til Kanada í starfsþjálfun. Vaktavinnan hófst síðan af alvöru núna í mars.“ Þeir bræður eru fæddir og upp- aldir á Fáskrúðsfirði og býr Högni þar enn. „Hér er að verða stórkost- leg breyting,“ segir Högni. „Ég veit ekki hvað hefði orðið um þetta svæði ef þetta hefði ekki komið til. Það var ekkert að gerast hérna. Við sjáum hvernig er farið fyrir sjávar- útveginum. Fólk hefði bara farið og það var byrjað að fara. Og sem bet- ur fer þá er fólk farið að flytja hing- að aftur.“ Högni hafði verið til sjós í 27 ár þegar skip hans var selt árið 1996. Hann starfaði við skipaeftirlit í tíu ár eftir það en greip tækifærið þeg- ar Alcoa auglýsti eftir starfsfólki. „Mér leist svo ljómandi vel á þetta og ég er viss um að þegar þetta verður tilbúið og það færist regla yfir svæðið þá verður þetta lúxus vinnustaður. Hann er 61 árs og seg- ir álverið skapa tækifæri fyrir fólk eins og sig til að ljúka starfsaldr- inum. Alcoa hefur sérstaklega að- gætt að ráða fólk af ýmsum aldri til að endurnýjun starfsfólks verði jöfn. „Þetta hefur ekki staðið til boða hér áður. Menn voru einfald- lega taldir gamlir þegar þeir voru orðnir fertugir.“ Atli bróðir hans er sama sinnis, í álverinu telur hann sig hafa fundið sinn framtíð- arvinnustað. Bræður Högni og Atli Skaftasynir er alsælir með nýja álverið og gera ráð fyrir að um lúxusvinnustað verði að ræða þegar regla færist yfir svæðið. „Hér fá menn að vinna þótt þeir séu fertugir“ BERGLIND Leifsdóttir er ein af þremur iðnkonum í álveri Alcoa við Reyðarfjörð. Hátt á þriðja þúsund umsóknir hafa borist Alcoa vegna starfa í álverinu en enn vantar iðn- aðarmenn. Berglind er ein þeirra sem fluttu til Fjarðabyggðar frá höfuðborgar- svæðinu til að starfa í álverinu. Hún segir töluvert af konum þar við störf. „Þær standa sig mjög vel og standa svo sannarlega uppi í hárinu á körl- unum.“ Eiginmaður hennar starfaði í ál- verinu í Straumsvík og saman fluttu þau austur með fimm börn sín þar sem þeim líður afar vel. „Maður er miklu nær meðborgurum sínum og öllu samfélaginu hér en þegar maður bjó í borginni. Það vissu allir að við værum að koma af því að við erum svo mörg og það var tekið ótrúlega vel á móti okkur. Börnin fóru strax í leikskólann og grunnskólann og ung- lingurinn á heimilinu sést ekki leng- ur heima af því að það er svo mikið að gera í félagslífinu.“ Hún skynjar miklar bjartsýni í samfélaginu og fólk tali um að bærinn sé að lifna við. Hún segir að það hafi síður en svo verið erfitt að fá börnin til að flytja. „Þau voru eiginlega miklu spenntari en við að koma hingað.“ Þar sem eig- inmaður Berglindar starfaði áður sem vélvirki í Straumsvík eru við- brigðin e.t.v. mest fyrir hana sjálfa. Í Reykjavík vann hún hjá Orkuveitu Reykjavíkur og segir hún starf sitt nú vera gjörólíkt. Mikið sé um að vera í álverinu þar sem framkvæmd- irnar séu enn í fullum gangi en nóg er af rafeindabúnaði í álverinu sem breyta þarf áður en hann er tekinn í rekstur. Gjörólíkt starf Berglind Leifsdóttir vann hjá Orkuveitunni áður en hún fluttist austur til að starfa í álverinu, þar sem maður hennar starfar einnig. Fluttu austur úr höfuðborginni Eftir Andra Karl andri@mbl.is UMHVERFISRÁÐUNEYTIÐ hef- ur staðfest ákvörðun Skipulags- stofnunar frá 27. apríl 2006 um að færsla Hringvegar um Hrútafjörð í Bæjarhreppi og Húnaþingi vestra skuli ekki háð mati á umhverfisáhrif- um. Með úrskurðinum var kröfu Leiðar ehf. um að skoða fleiri fram- kvæmdakosti á svæðinu, sem ná sama tilgangi, hafnað. Leið ehf., sem er einkahlutafélag um bættar vegsamgöngur, kærði ákvörðun Skipulagsstofnunar í júní á sl. ári vegna færslu hringvegarins um Hrútafjörð og sagði m.a. í bréfi til umhverfisráðuneytisins að ekkert hefði verið fjallað um aðra möguleika sem ná sama tilgangi og markmiðum og framkvæmdaraðili stefnir að. Tel- ur félagið að með þverun Hrúta- fjarðar á móts við Reyki ætti að vera auðveldara að komast hjá ferðum um Holtavörðuheiði við slæm aksturs- skilyrði. Í niðurstöðu ráðuneytisins kemur m.a. fram að ekki sé talið að máls- ástæður Leiðar varði líkleg neikvæð umhverfisáhrif fyrirhugaðrar fram- kvæmdar, eins og henni er lýst í til- kynningu framkvæmdaraðila og ákvörðun Skipulagsstofnunar. „Ekki er skilyrði samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum eða reglugerð um mat á umhverfisáhrifum að gerð sé grein fyrir mismunandi fram- kvæmdakostum þegar um tilkynn- ingarskylda framkvæmd er að ræða. [...] Þegar af þessum ástæðum fellst ráðuneytið ekki á kröfu kæranda og er ákvörðun Skipulagsstofnunar frá 27. apríl 2006 staðfest.“ Á vefsvæði Leiðar kemur fram að félagið telur það mjög miður að ekki þyki efni til að kanna betur en raun ber vitni þann kost að þvera Hrútafjörð norð- ar en áformað er þótt lagaheimildir standi e.t.v. ekki til slíkrar kröfu. Framkvæmdir hefjast líklega í haust „Þarna er verið að tala um allt aðra leið, á allt öðrum stað og miðað við aðrar forsendur en það er ávallt léttir þegar niðurstaða liggur fyrir,“ segir Magnús V. Jóhannsson, svæð- isstjóri Vegagerðarinnar á norðvest- ursvæði, og bætir því við að haldið hafi verið áfram með undirbúning framkvæmdarinnar líkt og kæran hafi ekki komið til. „Framkvæmdir munu vonandi hefjast í haust þó ekki liggi fyrir nákvæmar dagsetningar. Enn er eftir að samþykkja breyting- ar á aðalskipulagi Bæjarhrepps og Húnaþings vestra en sú vinna er á lokastigi.“ Nýi vegurinn mun liggja við vegg núverandi Brúarskála og eftir Djúp- vegi norður fyrir Selá. Þar fer veg- urinn yfir Hrútafjarðará á nýrri tví- breiðri brú og upp á hringveginn aftur um einn kílómetra norðan við Staðarskála – alls um 7,6 km leið. Gert er ráð fyrir að hægt verði að hleypa umferð um veginn haustið 2008 og framkvæmdum verði að fullu lokið sumarið 2009. Ekki skylt að gera grein fyrir öðrum möguleikum Ákvörðun vegna þverunar Hrútafjarðar staðfest Í HNOTSKURN »Vegagerðin fyrirhugar aðendurgera Hringveg í Hrútafirði á 7,6 km kafla sem hefst um 0,9 km sunnan við Brú, þverar Hrútafjörð á nýj- um stað og endar 1 km norðan Staðarskála. »Skipulagsstofnun komstað þeirri niðurstöðu í apríl á sl. ári að framkvæmdin skuli ekki háð mati á umhverfis- áhrifum. »Leið ehf. kærði úrskurðinnvegna ákvörðunarinnar og segir m.a. í kærunni að ekki hafi verið fjallað um aðra kosti á svæðinu sem ná sama til- gangi. »Vegagerðin sagði í um-sögn sinni að kæran varð- aði ekki umhverfisáhrif fyr- irhugaðrar framkvæmdar og féllst umhverfisráðuneytið á það.                     MIÐSTÖÐ í lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands og Faraldsfræði- deild Harvard Háskóla hafa undir- ritað viljayfirlýsingu um samstarf, sem felur í sérsameiginleg rann- sóknarverkefni og uppbyggingu á framhaldsmenntun í lýðheilsuvís- indum við Háskóla Íslands. Þannig vilja skólarnir vilja sameiginlega stuðla að hágæða vísindastarfi. Hornsteinn samstarfsins er fyrir- hugað rannsóknarverkefni á krabbameini í blöðruhálskirtli sem byggir á einstökum íslenskum gögnum og þegar hafa verið lögð drög að verkefninu, sem byggt verður á einstökum íslenskum gögnum. Næstalgengasta dánarorsök en lítt rannsakað Krabbamein í blöðruhálskirtli hefur farið ört vaxandi og er nú næstalgengasta dánarorsökin vegna krabbameina hérlendis. Samanborið við önnur álíka algeng krabbamein hefur krabbamein í blöðruhálskirtli þó verið minna rannsakað og fátt er vitað um áhrifaþætti nýgengis og framvindu sjúkdómsins. Viljayfirlýsingin er einnig hvatn- ing til handa fræðimönnum beggja stofnana um rannsóknarsamstarf sem byggja á sérstöðu íslenskra gagnagrunna og heilbrigðisupplýs- inga á heilbrigðissviði og þá munu framúrskarandi doktorsnemar í lýðheilsuvísundum við Háskólann á Íslandi hafa tækifæri til að sækja nýdoktors þjálfun við faralds- fræðideild Harvard háskóla. Samstarf milli HÍ og Harvard staðfest Grímsey | Skipið Professor Mult- anovskiy kom til Grímseyjar í ann- að sinn á þessu sumri í einmuna blíðu. Um borð voru ferðmenn frá mörgum löndum sem eiga það sam- eiginlegt að hafa áhuga á heim- skautasvæðum. Með í för var Hol- lendingurinn og blaðamaðurinn Lex Wagenaar frá blaðinu „Het Parool“ í Amsterdam en Lex er einmitt að skrifa um ferðina. Farþegarnir dvöldu heilan dag í og við Grímsey þar sem þeir gengu um eyjuna og fylgdust með fuglalíf- inu sem er í algleymingi þessa dag- ana með þúsundir fugla í lofti og björgum. Auk þess fór hópurinn, yfir fjörutíu manns, í kringum eyj- una á gúmbátum og sá með eigin augum hið stórbrotna líf í fugla- björgunum. Héðan hélt skipið til Jan Mayen, Bear Island og Spitzbergen. Farar- stjórinn, Troels Jacbsen frá Dan- mörku, hefur komið til Íslands með hópa í sams konar ferðum í átta ár. Auk fararstjórnarinnar er hann umhverfisfræðingur og skrifar greinar um heimskautasvæði, til dæmis skrifaði Troels vísindagrein um Kolbeinsey. Ánægja farþeganna var mikil þar sem þeir nutu einstakrar náttúru Grímseyjar í einstöku veðri, logni og sól. Skemmtiferðaskip í blíðunni við heimskautsbaug Ánægðir ferðalangar Troels fararstjóri, Lex blaðamaður og kona hans Sylvia eftir að hafa notið hinnar fjölbreyttu náttúru Grímseyjar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.